Alþýðublaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 5. sept. 1989
6
Minning
Marta F. Biörnsdóttir
F. 15. 11. 1926 — D. 24. 08. 1989.
m
Sumir kvedja,
og sídan ekki
söguna meir.
— Aðrir med söng,
er aldrei deyr.
(Þorsteinn Valdimarsson.)
Þessar línur úr ljóði Þorsteins
Valdimarssonar „Ingi Lár“ gætu
eflaust verið grafskrift margra
ljóð- og tónelskra íslendinga.
Á þessari stundu finnst mér eins
og þær hafi verið ortar til minn-
ingar um Mörtu Björnsdóttur, vin
minn, félaga og samherja í nær
þrjá áratugi, sem ég kveð nú
hinstu kveðju.
Að hafa átt Mörtu og Magnús
eiginmann hennar að nánum vin-
um öll þessi ár er dýrmætara en
hægt er að tjá í fátæklegum orð-
um.
Allan þennan tíma hef ég verið
þiggjandinn. Þegið hlýju, um-
hyggju og vináttu, en gefið svo
grátlega lítið í staðinn.
Það má með sanni segja að
Marta hafi kvatt okkur vini sína og
fjölskyldu með „söng, er aldrei
deyr“.
Að fylgjast með baráttu hennar
við dauðamein síðustu mánuðina
og vikurnar, óbilandi kjark og
æðruleysi og finna sömu umhyggj-
una og hlýjuna og venjulega
streyma frá henni í orðum og við-
móti er „söngur, er aldrei deyr".
Marta Björnsdóttir fæddist á ísa-
firði 15. nóvember 1926, dóttir
hjónanna Ingveldar Hermanns-
dóttur og Björns Björnssonar,
verkstjóra.
Hún var yngst fimm systkina en
þau eru Guðrún Elísabet, Herdís,
Ólafur og Hermann.
Hún gekk í skóla á ísafirði og
iauk gagnfræðaprófi frá Gagn-
fræðaskóla ísafjarðar. Að prófi
loknu hóf hún störf hjá Pósti og
síma á Borðeyri en fór síðan aftur
til ísafjarðar og lauk prófi frá Hús-
mæðraskólanum Ósk.
Síðar fluttist hún til Reykjavíkur
og hóf störf hjá Pósti og síma. Þar
kynntist hún eftirlifandi eigin-
manni sínum Magnúsi H. Magnús-
syni sem einnig starfaði hjá Pósti
og síma og gengu þau í hjónaband
23. nóvember 1951.
Marta og Magnus reistu heimili í
Reykjavík en árið 1956 fluttust
þau til Vestmannaeyja þar sem
Magnús tók við stöðvarstjórn
Pósts og síma.
Upp frá því urðu þau bæði áber-
andi í bæjarlífinu, hann á sviði
bæjarmála og landsmála sem bæj-
arfulltrúi, bæjarstjóri, þingmaður
og ráðherra en Marta ein af burð-
arásunum í starfi Leikfélags Vest-
mannaeyja.
í starfinu hjá leikfélaginu komu
vel í ljós listrænir hæfileikar henn-
ar, sem hún flíkaði þó ekki dag-
lega.
Fyrir utan ágæta leiklistarhæfi-
leika var hún afar tónnæm, hafði
yndi af góðri tónlist og lék gjarnan
sjálf undir söng í góðra vina hópi.
Hún hafði yndi af lestri bóka, las
allt milli himins og jarðar og var
hafsjór af fróðleik um ólíkustu
hluti.
Þau Marta og Magnús reistu sér
hús að Túngötu 3 í Vestmannaeyj-
um og í Vestmannaeyjum ólust
börn þeirra fjögur upp til fullorð-
insára, en þau eru: Sigríður meina-
tæknir, Páll fréttastjóri, Björn Ingi
tölvunarfræðingur og Helga Bryn-
dís píanóleikari.
Fyrir um það bil ári var ljóst að
Marta var með krabbamein. Með
óbilandi skapstyrk og traustum
stuðningi fjölskyldu og vina hóf
hún baráttu fyrir lifi sínu, baráttu
sem lauk aðfaranótt hins 24.
ágúst, einhvers fegursta dags
þessa sunnlenska sumars.
Þannig, eins og þessi heiðríki og
fagri dagur, geymist minningin um
Mörtu Björnsdóttur í huga okkar
sem áttum hana fyrir vin.
Elsku Magnús, ég bið Guð að
styrkja þig, fjölskyldu þína og alla
ástvini í sorg ykkar.
Það er huggun harmi gegn að
kvatt var með söng, er aldrei deyr.
Reynir Guðsteinsson
í dag er til moldar borin Marta F.
Björnsdóttir.
Marta lést eftir hetjulega baráttu
við erfiðan sjúkdóm, sem lækna-
vísindin standa enn ráðþróta
gegn.
Þó að vitað hafi verið í nokkurn
tíma, að hverju stefndi, fór samt
svo, að okkur hjónum var brugðið
þegar við fréttum af láti Mörtu.
Við urðum þeirrar gæfu aðnjót-
andi, að eiga samleið með heið-
urshjónunum Mörtu og eigin-
manni hennar Magnúsi H. Magn-
ússyni. Þau kynni verða okkur
ógleymanleg og voru svo sannar-
lega lærdómsrík.
Leiðir okkar lágu saman vegna
afskipta af stjórnmálum, þar sem
við unnum að veg jafnaðarstefn-
unnar fyrir Alþýðuflokkinn.
Margar glaðar stundir og einnig
nokkrar daprar upplifðum við
saman, en það var sama á hverju
gekk alltaf var Marta tilbúin með
brosið sitt og hughreystingar, þeg-
ar ekki gekk sem skyldi.
í gegnum súrt og sætt stóð hún
með manni sínum, sem háði
marga hildi á stjórnmálasviðinu,
sem nýttist samfélaginu til góðs.
Heimili þeirra hjóna bar svip af
myndarbrag húsmóðurinnar, og
gestrisnin var mikil, þegar gesti
bar að garði.
Það var sama hvernig stóð á,
alltaf var stutt í brosið og grínið.
Marta lét lengi vel til sín taka hjá
Leikfélagi Vestmannaeyja og átti
það vel við skapgerð hennar, að
leika þar í fjölmörgum verkum.
Þar er hún meðal annars
ógleymanleg þegar hún lék eina
af kerlingunum í „Þokunni" þar
sem hún fór á kostum með hinum
kerlingunum tveim.
Já það eiga margir ógleyman-
legar minningar um Mörtu, hvort
heldur um er að ræða úr leikhúsi
lífsins eða öðrum.
Minningarnar eru góðar og vilj-
um við þakka fyrir að leiðir okkar
skuli hafa legið saman.
Við biðjum algóðan Guð að
varðveita góðan vin, sem við
kveðjum nú með söknuði.
Magnús og fjölskylda, um ieið
og við samhryggjumst ykkur biðj-
um við góðan Guð að veita ykkur
styrk og blessun í sorg ykkar.
Þuríður Kristín
Kristleifsdóttir og
Guðundur Þ.B. Ólafsson
Hún Marta er dáin.
Þessi fregn barst til Eyja 24.
ágúst sl.
Okkur setti hljóða, en enginn
má sköpum renna.
Hún var búin að heyja harða og
erfiða baráttu. við þann sjúkdóm
er dró hana til dauða.
Ég tel það forréttindi að telja
okkur hjón í þeim hópi er kynnt-
ust Mörtu og áttum hana að vini.
Hún var sannur vinur vina sinna
bæði í sorg og gleði.
Marta var sterkur persónuleiki,
sem við kynntumst oft, en þó best
er eldgosið hrakti okkur frá
Heimaey. Þá stóð hún eins og
klettur við hlið Magnúsar, manns
síns, og studdi hann með ráðum
og dáð, en eins og allir Eyjaskeggj-
ar vita, voru þau hjón viss um að
búseta yrði áfram í Eyjum og voru
þau sameiningartákn okkar sem
vildum heim.
Marta var góð móðir og eigin-
kona sem bjó manni og börnum
sínum, gott og fallegt heimili, þar
sem gestrisnin réði ríkjum. Hún
unni tónlist og leiklist og öllu er
bætt gæti mannlífið, hér á jörð.
Hún trúði á líf eftir dauðann og er
það huggun harmi gegn, að börn,
eiginmaður, ættingjar og vinir,
eigi eftir að hitta Mörtu á landi lif-
enda, að leiðarlokum.
Magnús, börn og tengdabörn og
barnabörn, megi Guð styrkja ykk-
ur nú og um alla framtíð.
Um leið og ég kveð Mörtu, vil ég
þakka Guði alla hennar tilveru á
meðal okkar og ógleymanleg bros
hennar, sem ylja mér um ókomna
ævidaga. Unnur Guðjónsdóttir
Við getum hvorki lengt líf okkar
né breikkað það. — Við getum að-
eins dýpkað það.
Þegar við minnumst Mörtu
Björnsdóttur, sem fallin er frá
langt fyrir aldur fram, kemur okk-
ur fyrst í hug hversu hjartahlý og
einlæg hún var.
Marta var ein þeirra kvenna
sem fannst sjálfsagt að helga
heimili, börnum og eiginmanni
starfskrafta sína. Enda var það svo
að hún stóð traust og óhagganleg
við hlið manns síns í annasömu
starfi hans hvort heldur var þegar
hann var bæjarstjóri í Vestmanna-
eyjum á miklum umbrotatímum,
þegar jarðeldarnir geisuðu 1973,
eða sem símstöðvarstjóri, þing-
maður eða ráðherra.
Hlýtur hin góða skapgerð Mörtu
oft að hafa komið sér vel, því hún
var þrátt fyrir langvarandi veik-
indi, alla tíð uppörvandi og mikill
baráttumaður fyrir framgangi
jafnaðarstefnunnar.
Kyrrðin er ekki á tindum fjall-
anna, hávaðinn er ekki á torgum
borganna. Hvorttveggja er í hjört-
um mannanna.
Marta var eðlisgreind og svo vel
máli farin að hún gat í stuttri meitl-
aðri setningu, lýst málefni á ljósan
og myndrænan hátt.
Við Alþýðuflokksfólk í Vest-
mannaeyjum söknum nú góðs fé-
laga, og hugur okkar allra dvelur
hjá vini okkar Magnúsi á þessum
erfiða tíma. Hann hefur ekki ein-
ungis misst eiginkonu heldur líka
sinn besta vin./
Fjölskyldunni allri vottum við
okkar dýpstu samúð og ljúkum
þessum orðum með gömlu minn-
ingarljóði eftir Magnínu Jónu
Sveinsdóttur, móður Magnúsar,
sem lýsir hug okkar vel.
Þín minning lifir Ijósi hjúpud
björtu,
því lidnir tímar flétta um hana
krans,
og nafn þitt geymist greipt í vina
hjörtu
med gulli rodnum stöfum
kœrleikans.
M.J.S.
Kristjana Þorfinnsdóttir,
Sólveig Adolfsdóttir,
Elín Alma Arthúrsdóttir.
SMÁFRÉTTIR
Farandsýning í
Regnboganum
í tilefni af 50 ára afmæli Al-
þjóðasamtaka kvikmyndasafna-
FIAF hefur verið efnt til farand-
sýninga á gömlum meistaraverk-
um kvikmyndasögunnar, víðs-
vegar að úr heiminum. Hér er
um að ræða 10 myndir, sem
kvikmyndasöfn hafa bjargað frá
eyðileggingu og endurgerð.
Nú er þessi sýning komin
hingað til lands og dagana
6.—12 september gengst Kvik-
myndasafn íslands fyrir sýning-
um á myndunum í Regnbogan-
um.
Kvikmyndaunnendum gefst
tækifæri til að sjá ýmis snilldar-
verk allt frá upphafi kvikmynda-
sögunnar. Við endurgerð mynd-
anna hefur verið leitast við að
ganga frá þeim sem næst upp-
haflegri gerð. í sumum tilfellum
eru t.d. svart/hvítar myndir litað-
ar (tinted), eins og algengt var
snemma á öldinni. Meðal þeirra
mynda sem sýndar verða má
nefna „Lost Horizon" frá 1937, í
leikstjórn Frank Capra með Ron-
ald Colman í aðalhlutverki, og
Erotikon eftir Mauritz Stiller. Auk
þessara sígildu verka verða
sýndar kvikmyndir frá ýmsum
þjóðlöndum, m.a. Nýja-Sjálandi,
Argentínu, Finnlandi, Frakklandi
og Ungverjalandi. Athygli skal
vakin á því, að sumar þessara
mynda verða sýndar aðeins einu
sinni, segir í frétt frá Kvikmynda-
sjóði íslands.
Sundnám-
skeið fyrir
almenning
í vetur mun íþrótta- og tóm-
stundaráð standa fyrir nám-
skeiðum í sundi fyrir almenning í
Sundhöll Reykjavíkur.
A þessum námskeiðum er
ætlunin að kenna hvort tveggja
þeim sem þurfa á grunnkennslu
að halda svo og einnig þeim er
vilja bæta við sig kunnáttu, læra
skriðsund og fleiri sundaðferðir
eða rifja upp kunnáttu.
Jafnframt þessum námskeið-
um verður sundleikfimi sem öll-
um gestum Sundhallarinnar er
boðin þátttaka í.
Nánari upplýsingar eru gefnar
í Sundhöll Reykjavíkur í síma
14059.
Ættfræðinám-
skeið hefjast
á ný
Nýtt starfsár er að hefjast hjá
Ættfr^pðiþjónustunni, en undan-
farin ár hefur hún staðið fyrir
ættfræðinámskeiðum í Reykjavík
og víðar um land. í september
verður farið af stað með byrj-
enda- og framhaldsnámskeið í
Reykjavík, en þau standa í 5—7
vikur. Einnig verða haldin helgar-
námskeið í Garðabæ, Búðardal
og fleiri stöðum á landsbyggð-
inni, þar sem næg þátttaka fæst.
Á ættfræðinámskeiði fræðast
menn m.a. um fljótvirkar og ör-
uggar leitaraðferðir, fá leiðarvísa
og yfirsýn um helztu heimildir
og leiðbeiningar um gerð ættar-
tölu og niðjatals. Þá fá þátttak-
endur tækifæri til að þjálfast í
verki við að rekja eigin ættir og
frændgarð með afnotum af víð-
tæku gagnasafn, m.a. kirkjubók-
um um allt land, manntölum
1703—1930, ættartöluhandritum
og útgefnum bókum. Leiðbein-
andi á námskeiðunum er Jón
Valur Jensson. Innritun er hafin
hjá Ættfræðiþjónustunni í síma
27101.
Nefnd fjallar
um vátrygg-
ingarstarfsemi
Heilbrigðis- og tryggingamála-
ráðherra Guðmundur Bjarnason
hefur skipað nefnd sem hefur
það hlutverk að endurskoða lög
um vátryggingastarfsemi. Lög
nr. 50/1978 um vátryggingastarf-
semi hafa verið í gildi í meira en
áratug.
í nefndinni eiga sæti: Sigmar
Ármannsson framkvæmdastjóri,
fulltrúi Sambands íslenskra
tryggingafélaga, Jón Magnússon
lögfræðingur, fulltrúi Neytenda-
samtakanna, Bjarni Þórðarson
tryggingafræðingur, Guðný
Björnsdóttir lögfræðingur og Er-
lendur Lárusson forstöðumaður
Tryggingaeftirlitsins og er hann
formaður nefndarinnar. Ritari
nefndarinnar er Rúnar Guð-
mundsson lögfræðingur.