Alþýðublaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 05.09.1989, Blaðsíða 8
MMMBLÍDIÐ Þriöjudagur 5. sept. 1989 Jóhanna heimsækir Austurland ÍSLAND Hitastig í nokkrum jandshlutum kl. 12 í dag Hitastig iborgum Evrópu kl. 12 i gær að íslenskum tima. Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra heim- sækir ýmsa staði á Austur- landi dagana 6.-8. sept- ember. I ferðinni verða haldnir fundir með sveit- arstjórnum og vinnustaðir heimsóttir. Ráðherra kemur við á Nes- kaupstað, Eskifirði, Reyðar- firði, Seyðisfirði og á Egils- stöðum. A öllum stöðunum verða viðtalstímar þar sem fólki gefst kostur á að hitta ráðherra að máli. Tilgangur ferðarinnar er nánar tiltekið að kynna heimamönnum þau verkefni sem verið er að vinna að á vegum ráðuneytisins, svo sem á sviði húsnæðismála og sveitarstjórnarmála og að kynnast viðhorfum heima- manna á þessum stöðum. Isfisksölur fyrstu átta mánuöina: Minni sala Fyrstu átta mánuði árs- ins hefur selst um 5.000 tonnum minna af þorski úr fiskiskipum á Bretlands- markaði en á sama tíma- bili í fyrra. Verðið er hins vegar betra að meðaltali, eða 0.91 pund fyrir kílóið samanborðið við 0.89 pund á sama tíma í fyrra. í íslenskum krónum hefur meðalverðið farið úr 65,70 krónum fyrir kílíóið í 83, 08 krónur. Sala á karfa á Þýskalandi hefur hins veg- ar aukist um liðlega 3000 tonn milli ára og þar hefur verðið einnig hækkað verulega, eða úr 57,14 krónum kíióið í 75,69 krónur. Þessar upplýsingar eru en hærra verð fengnar hjá Landssambandi íslenskra útvegsmanna, sem heldur yfirlit um ískfisksölur íslenskra fiskiskipa. Að sögn Vilhjálms Vilhjálmssonar hjá LÍÚ hefur ívið hærra hlutfall verið flutt út með skipum en gámum en sama tíma í fyrra. ísfisksölur fiskiskipa á Bret- landsmarkaði hafa ekki verið minni á sama tímabili síðustu fjögur ár. Árið 1986 voru seld rúmlega 23 þúsund tonn af þorski, rúm 25 þúsund árið 1987 og rúm 24 þúsund fyrstu átta mánuðina í fyrra. En sal- an fyrstu átta mánuðina nú var rúmlega 19 þúsund tonn. Gengisþróunin hefur reynst útvegsmönnum hag- stæð, þvi meðalverðið hefur haldist nokkuð stöðugt í pundum talið, var 0,86 pund per kíló árið 1986, 0,91 árið 1987, 0,89 fyrstu átta mánuð- ina í fyrra og 0,91 pund að meðaltali á sama tímabili í ár. í krónum hefur hækkunin hins vegar orðið veruleg, eða farið úr 52,29 krónum per kiló árið 1986 í 83,08 kr. í ár. Sömu sögu er að segja um sölurnar á Þýskalandsmark- að, en þar hefur verðið farið úr 43,46 krónum kílóið fyrstu átta mánuðina árið 1986 í 75,69 krónur kílóið á sama timabili i ár. Sala á ýsu á Bretlands- markað hefur aukist veru- lega. Var rúmlega 7 þúsund tonn fyrstu átta mánuðina ár- ið 1986, svipuð árið 1987 , en fór upp fyrir 10 þúsund tonn í fyrra og yfir 11 þúsund tonn fyrstu átta mánuðina í ár. Verðið hefur verið nokkuð stöðugt miðað við pund, en farið úr 58,45 krónum á kíló árið 1986 í 93,86 að meðaltali fyrstu átta mánuðina í ár. Fyrsti fundur Jóns Balvins Hannibalssonar, formanns Alþýöuflokksins, á ferö um landið var haldinn á Hótel Höfn á Siglufirði sl. föstudagskvöld. Hátt í sjötíu manns sátu fundinn og tók fjöldi þeirra þátt í umræðum. Ásamt Jóni Baldvin var Sæmundur Sigurjónsson alþingis- maður á fundinum á Siglufiröi og ennfremur á fundi í Saf nahúsinu á Sauðárkróki á sunnudag. Árni Gunnarsson alþingismaður var ásamt Jóni Baldvin á fundi á Akureyri á sunnudags- kvöld. Næsti opni stjórnmálafundur Jóns Baldvins verður í kvöld í Félagsbiói Keflavíkur. Fundurinn hefst klukkan 21.00. Áfimmtudagskvöld verður fundur á Hótel Akranesi. Á sunnu- dag, 10. september, verður formaður Alþýðuflokksins meðfundi á Hótei Valhöil, Eskifirði, kl. 14.00, og kl. 21.00 í Valaskjálf, Egilsstöðum. Áþriðjudag hefst fundur kl. 21.00 á Hótel Selfossi. A-mynd/G.T.K. Ríkisfjármál: 70% með engan eignarskatt 5.000 greiöendur í hœsta þrepi eiga hreinar eignir upp á 60 milljaröa króna. Um 5 þúsund einstaklingar greiddu eignarskatt sam- kvæmt hærra þrepi, alls 908 milljónir. Hrein meðaleign þessara einstaklinga hljóðaði uppá 11,7 milljónir krónaeða rúmlega 23 milljónir hjá hjónum. Hjá þessu fólki hækkaði álagning á milli ára úr 87 þúsund krónum í 181 þúsund krónur að meðaltali eða um 107%. Þessar sömu 5 þúsund manneskjur eiga samkvæmt yfirlitinu eignir umfram skuldir upp á nær 60 miiljarða króna. Um 70% skattgreiðenda eða um 120.000 einstakl- ingar greiða engan eignar- skatt. Rétt rúmlega 5.000 greiðenda, eða 2,9% þeirra allra, eru í efsta þrepi eignarskattsins; greiða skatt af hreinni eign að verðmæti 7 millj- ónir króna eða meira. Fyr- ir hjón er þetta hrein eign upp á 14 milljónir króna. Þetta kemur fram í ritinu „Fjármál", sem Fjárfestinga- félagið gefur út, en upplýs- ingarnar eru fengnar sam- kvæmt heimildum fjármála- ráðuneytisins. I yfirliti yfir álagða eignarskatta 1989 kemur fram að 119.777 ein- staklingar greiddu engan eignarskatt, höfðu hreinar eignir upp á minna en 2,5 milljónir króna. Tæplega 46 þúsund einstaklingar voru með hreinar eignir upp á 2,5 —7 milljónir og greiddu alls 770 milljónir króna eða um 17 þúsund krónur að meðal- itali, sem er 26% hækkun á 'milli ára. Samkomulagid uid Borgaraflokkinn: Grænmeti í lægra þrep Meðal atriða sem leiddu til þess að Borg- araflokkurinn ákvað að ganga til liðs við ríkis- stjórn Steingríms Her- mannssonar voru yfir- lýsingar um að innlent grænmeti verði í lægra þrepi virðisaukaskatts og að hæsta þrep eignar- skatts verði Iækkað með samræmdri skattlagn- ingu fjármagnseigna og tekna. Þetta kemur fram i minn- isblaði sem forsætisráð- herra lagði fram í viðræð- unum við Borgaraflokkinn á laugardag, en ýmislegt er óljóst í minnisblaði þessu sem nú er verið að útfæra. Auk þess sem að innlent grænmeti verður í lægra þrepi virðisaukaskatts munu stjórnarflokkarnir vera reiðubúnir til að nota það svigrúm sem skapa má innan fjárlagarammans til að lækka enn frekar verð á matvælum. Samkomulag mun vera um að kjarnfóð- ursskatturinn verði endur- skoðaður og lækkaður þannig að matvæli fram- leidd með kjarnfóðri lækki sambærilega i verði. Hvað skattamál að öðru leyti varðar er ekki fallist á að leyfa fullan tilflutning ónot- aðs persónuafsláttar á milli maka, enda talið betra að verja slíkum fjármunum til lækkunar á matvælum. VEÐRIÐ í DAG Fremur hæg suðvestanl átt víðast hvar. Víða súld eða rigning suðvestan og vestan lands. Viða bjart- viðri á Suðaustur og Aust- urlandi að morgni en rign- ing síödegis. Hiti 6—15 stig.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.