Alþýðublaðið - 05.09.1989, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 5. sept. 1989
SMÁFRÉTTIR
Afmælis- og
vígsluhátíð
Menntaskól-
ans á Egils-
stöðum
Nú í haust eru 10 ár liðin frá
stofnun Menntaskólans á Egils-
stöðum, en hann tók til starfa 11.
sept. 1979. Fyrstu stúdentar
voru brautskráðir frá skólanum
vorið 1981 en alls hafa 308 stúd-
entar útskrifast.
Verið er að leggja síðustu
hönd á 1. áfanga kennsluhúss
skólans sem verður afhent full-
búið við upphaf haustannar. Hér
er því um tímamót að ræða í
sögu stofnunarinnar: skólastarf
hefst við upphaf hins annars ára-
tugar í sögu skólans í fullkomn-
um kennslustofum og tími frum-
býlingsháttar hvað kennsluað-
stöðu varðar að baki. í hinu nýja
húsi eru 9 fullkomnar kennslu-
stofur, þar af tvær tilraunastofur
fyrir raungreinar, ásamt góðri
vinnuaðstöðu kennara.
Sunnudaginn 10. september
verður afmælis- og vígsluhátíð í
skólanum sem hefst ki. 14. Á
dagskránni er meðal annars:
ræður og ávörp, einsöngur og
hljóðfæraleikur. Þá er þess
vænst, að stúdentar frá skólan-
um fjölmenni og að lagður verði
grundvöllur að frekari samskipt-
13» í SE 1* | w«l« 8 Hl
iii ili ■ <• 1 mmSS 1 mmm\ I I
f 1 í í [ mmmmmm
Nýbygging menntaskólans er í forgrunni.
um einstakra stúdentaárganga í
framtíðinni.
Allir vinir og velunnarar skól-
ans eru velkomnir og boðið að
þiggja kaffiveitingar að athöfn
lokinni, segir í fréttatilkynningu
frá skólameistara.
100 nýnemar
í Vélskóla
íslands
Vélskóli íslands var settur 1.
Keflvíkingar
Suðurnesjamenn
Hvernig standa
stjórnmáiin í dag?
Opinn stjórnmálafundur
meö Jóni Baldvin og
Karli Steinari í Flughót-
elinu, Keflavík í kvöld kl.
21.00. Allir velkomnir.
Alþýðuflokkurinn
sept. Skólameistari, Andrés Guð-
jónsson, sagði í setningarræðu
sinni, að innritaðir væru um 200
nemendur, þar af um 100 ný-
nemar, er það óvenjulega mikil
aðsókn af nýnemum.
Á fundi með nemendum og
viðkomandi kennurum, að loknu
verkfalli í vor var ákveðið, að
fella niður viðbótarkennslu og
próf á vorönn, en taka upp þráð-
inn að nýju á haustönn. Einnig
var samkomulag um að meta
alla þá áfanga sem hægt var að
meta án prófa.
1. sept. hófst kennsla í öllum
þeim áföngum, sem ekki var
hægt að meta og verður í 5
daga og síðan haldin próf í öll-
um áföngum sem próf féllu nið-
ur í. Kennsla á haustönn hefst
11. sept. samkvæmt stundaskrá.
Alþýðubanda-
lagið mælir
með byggða-
kvóta
í tilefni umræðna og atburða
að undanförnu vegna kvótakerf-
isins í sjávarútvegi minnir þing-
flokkur Alþýðubandalagsins á
stefnu flokksins í kvótamálum,
sem samþykkt var á fundi mið-
stjórnar 5. desember 1987. Þar er
lögð áhersla á byggðakvóta í
stað þess að rígbinda kvótann
við skip. I samþykkt miðstjórnar-
innar segir meðal annars:
Formaður Alþýðubandalags-
ins, Ólafur Ragnar Grímsson fjár-
málaráðherra, kynnti fiskveiða-
stefnu flokksins á ríkisstjórnar-
fundi í morgun.
„I stað þess að binda kvóta al-
farið við skip eins og gert hefur
verið á undanförnum árum verði
tekið upp nýtt kerfi þar sem
veiðiheimildum á bolfiski verði
skipt í tvo flokka:
I fyrsta lagi skal 2/3 hlutum
veiðiheimildanna úthlutað til
byggðarlaga."
I öðru lagi skal 1/3 hluta veiði-
heimilda útlutað til útgerðar á
skip."
„Eftir að byggðakvóti hefur
verið reiknaður út skal honum
deilt á milli þeirra skipa sem fá
kvóta úthlutað í viðkomandi
byggðarlagi í hlutfalli við veiði-
heimildir þeirra.
Við sölu skipa úr byggðarlag-
inu fylgir þeim einungis sá hluti
aflakvóta sem úthlutað var til út-
gerðar, ekki á hluti sem fór til
byggðarlagsins. Þeim hluta afla-
kvótans sem eftir verður í
byggðarlaginu verði ráðstafað á
nýjan leik í samræmi við
ákveðnar reglur.
Með því að binda veiðiheimild-
ir að verulegu leyti við byggðar-
lög er verið að tryggja hag
starfsfólks í fiskiðnaði, fisk-
vinnslustöðva og allra íbúa
þeirra byggðarlaga sem byggja
afkomu sína á öruggri og skipu-
lagðri nýtingu sjávarafla.
Óeðlilegt verð á fiskiskipum
og brask í tengslum við skipa-
og kvótasölu ætti að mestu að
hverfa úr sögunni."
* Krossgátan
□ 1 2 3— j r 4
5
6 □ 7
Ó 9
10 □ 11
□ 12
13 □
Lárétt: 1 flýtinn, 5 stækka, 6
skordýr, 7 þyngdareining, 8 bifar,
10 eins, 11 fljótið, 12 borðandi,
13 hreysi.
Lóðrétt: 1 fífl, 2 tré, 3 samtök, 4
blökkumenn, 5 úrþvætti, 7 eggir,
9 þraut, 12 reið.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárótt: 1 glaum, 5 arin, 6 net, 7
Sl, 8 gisinn, 10 ið, 11 lúa, 12 alir,
13 trauð.
Lóðrótt: 1 greið, 2 lits, 3 an, 4
meinar, 5 angist, 7 snúið, 9 illu,
12 AA.
RAÐAUGLÝSINGAR
MOSFELLSBÆR
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Tómstundafulltrúi
Tómstundafulltrúi hefur umsjón meö daglegri
framkvæmd tómstundastarfa f. unglinga á vegum
Mosfellsbæjar. Þar undir fellur rekstur félagsmið-
stöðvar, skipulagning klúbbastarfsemi og nám-
skeiða, samstarf við skóla og félagasamtök og sam-
ræming á framboði á tómstundastarfi f. unglinga í
bæjarfélaginu.
Leitað er að aðila sem hefur áhuga á að starfa með
ungu fólki að áhugaverðum verkefnum. Reynsla á
þessu sviði er nauðsynleg.
Allar nánari upplýsingar veitir bæjarstjóri Mosfells-
bæjar í síma 666218 og formaður tómstundaráðs,
Þröstur Lýðsson í síma 666749.
Umsóknum, með upplýsingum um menntun og
fyrri störf, ásamt meðmælum skal skila til undirrit-
aðs, merkt „Tómstundafulltrúi", fyrir 15. september
nk. t
Bæjarstjórinn í Mosfellsbæ
Rafmagnsiðnfræðingur
Rafmagnsveita Reykajvíkur óskar eftir að ráða raf-
magnsiðnfræðing til eftirlitsstarfa (veitueftirlit) á
orkuveitusvæði Rafmagnsveitunnar.
Nánri upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
686222.
Umsóknarfrestur er'til 15. september nk.
Rafmagnsveita Reykjavíkur
Rafeindavirki
Rafmagnsveita Reykjavíkur vill ráða manntil mæla-
viðgerða. Starfið er laust samkvæmt nánara sam-
komulagi.
Leitað er að rafeindavirkja með reynslu í tækjasmíði
og viðgerðum. Einnig kemur til greina að ráða skrift-
vélavirkja.
Upplýsingar um starfið veitir deildarstjóri mæla-
stöðvar og/eða starfsmannastjóri.
Umsóknarfrestur er til 13. september 1989.
Rafmagnsveita Reykjavíkur