Alþýðublaðið - 05.09.1989, Side 7
Þriðjudagur 5. sept. 1989
7
UTLÖND
Skyndilega i sviðsljosinu
Nú, þegar John Major er utanríkisráðherra og jafnvel líkurtaldar
á að hann verði enn hærra settur, verða miklar breytingar í lífi
Normu eiginkonu hans. Þessi látlausa og allt að því feimna kona
sér nú fram á að þurfa að taka á móti erlendum leiðtogum í hinum
opinbera bústað sínum.
Hin framagjarna eiginkona
Johns Moore, Sheila, sem sagt er
að hafi reiknað með að eiginmað-
urinn kæmist á toppinn, verður nú
að sætta sig við annað.
Sheila Moore lagði stund á
stjórnmálafræði og er ættuð frá
Chicago. Hún er skarpgreind og
hefur verið manni sínum mikil
stoð og stytta og er talin hafa mót-
Líf tueggja eiginkvenna
breskra stjórnmála-
manna umsnerist á dög-
unum, þegar Margaret
Thatcher gerdi breyting-
ar á ríkisstjórn sinni.
að ýmsar pólitískar hugmyndir
hans. Hún var kjrödæmisritari
hans, aðstoðaði hann við að semja
ræður. Hún passaði upp á matar-
æði hans, gaf honum kamillute,
koffínlaust kaffi og heilsufæði.
Þrátt fyrir þetta tókst henni að
taka lögfræðipróf.
Norma Major, aftur á móti, lét
eiginmann sinn um stjórnmálin.
Hún vildi heidur halda kyrru fyrir
á heimili sínu úti á landi og var
manni sínum til mikils sóma í sinni
sveit. Hún var ánægð með að að-
stoða við að færa eldra fólki mál-
tíðir (Meals & Wheels Lady), vann
mikið í þágu góðgerðarstarfsemi
allskonar. Hún hefur ekki sérstak-
an áhuga á að eiginmaður hennar
verði forsætisráðherra í framtíð-
inni og segist hafa verið hreykin af
honum að hverju sem hann vann.
Hún segist enn vera hálfdösuð
eftir að eiginmaðurinn hækkaði
snögglega í virðingarstiganum, en
segist ætla að reyna að láta það
hafa sem minnsta breytingu á líf-
inu í för með sér. „Ég mun haida
áfram að gera það sem ég hef allt-
af gert.“ Hún ætlar að vera áfram
í Cambridgeshire og vernda börn-
in, dóttur 17 ára og son 14 ára, sem
mest frá þvi að verða að fjölmiðla-
mat. Hún segist reikna með aö
geta séð um veisluhöld „ef ég þarf
ekki að elda matinn". Hún fær trú-
lega ekki tíma til að sinna einu af
áhugamálum sínum sem er óper-
ur og hún skrifaði bók um söng-
konuna Joan Sutheriand, sem
kom út árið 1987. Öllum sem
þekkja hana ber saman um að hún
sé kona í góðu jafnvægi, hafi jafn-
vel yfir sér „stóiska" ró.
Sheila Moore, aftur á móti,
myndi ekki vera í sveitinni og láta
eiginmann sinn einan um stjór-
málin. Opinberir starfsmenn og
aðrir, sem voru á launum við að
aðstoða John Moore, lentu stund-
um í andstöðu við ráðherrafrúna.
Hún hefur búið í Bretlandi í 25 ár,
en hún starfar á bandarískan hátt
— hreinskilnislega, undanbragða-
laust og getur verið óþægilega op-
inská. Menn hafa sagt að jafnframt
því að hafa átt stóran þátt í að
hjálpa manni sínum upp virðing-
arstigann hafi áhrif hennar einnig
-átt þátt í að stjarna hans fór að
dala.
Sheila Moore hefði trúlega orðið
góð forsetafrú í Bandaríkjunum,
segja Bretar, „en við ýtum gjarnan
þeim ýtnu til hliðar og glottum
þegar þeir dala. Við klöppum aft-
ur á móti fyrir hljóðlátum, feimnis-
legum sem ekki eru með áberandi
framapot. Þannig er Norma
Major“.
Sheila Moore (t.v.) Framagjörn. T.h. Norma Major: Latlaus.
SJÓNVARP
Sjónvarpið kl. 22.00
STEFNAN TIL
STYRJALDAR
(The Road to War)
Breskur heimildamyndaflokkur um
aðdraganda Síðari heimsstyrjaldar-
innar. Þetta er sá fyrsti í röðinni en
alls eru þættirnir eitthvað nálægt
tíu. Farið verður nákvæmlega í
saumana i tilurð styrjaldarinnar, lýst
pólitískri ringulreið í Evrópu sem
ríkti við lok Fyrri heimsstyrjaldar-
innar, heimskreppunni sem varð til
þess að fylgisaukning varð hjá Naz-
istum í Þýskalandi og svo framvegis.
Tvískinnungi Breta og vanmætti
þeirra, en þeir töldu sig óumdeilan-
lega leiðtoga Evrópu en gátu hins-
vegar hvorki né þorðu að standa
uppi í hárinu á Þjóðverjum þegar
mest á reið þegar styrjöldin var í
uppsiglingu.
Stöð 2 kl. 22.00
TAFLIÐ
(Die Grunstein Variante)
Þýsk sjónvarpsmynd, leikstjóri
Bernhard Wicki. Mynd sem gerist á
tímum Seinni heimsstyrjaldarinnar.
Þrír menn eru klefafélagar í fanga-
kjallara í Þýskalandi þar sem þeir
bíða þess að fá vegabréfin sín aftur.
Fangarnir drepa tímann með því að
tefla skákir með taflmönnum sem
þeir hafa búið til úr brauðafgöng-
um. Einn þessara manna reynist af-
burða slyngur skákmaður en það er
gyðingurinn Grúnstein og eftir hon-
um heitir myndin að sjálfsögðu
Grúnstein afbrigðið væri rétta þýð-
ingin átitli myndarinnar.
Stöð 2 kl. 23.40
ANDVÖKUNÆTUR
(Nightwatch)
Bresk bíómynd, gerð 1973, leik-
stjóri Brian G. Hutton, aðalhlutverk
Elizabeth Taylor, Laurence Harvey,
Billie Whitelaw. Kona nokkur telur
sig hafa orðið vitni að morði í nær-
liggjandi húsi.Hún hringir á lögregl-
una eins og lög gera ráð fyrir. Hins-
vegar bregður svo við að þegar iög-
reglan kemur á staðinn er líkið sem
konan hafði séð horfið. Þá eru góð
ráð dýr og löggan fer að efast um að
konan sé heil á geði. Myndin fær
þokkalega dóma, yfir meðallagi en
hinsvegar segir ekki af frammistöðu
Elizabeth Taylor, þessari einni fræg-
ustu leikkonu tuttugustu aldarinn-
ar.sem reyndar er kannski ekki jafn
fræg fyrir leik og ástarlíf sitt. Manni
skilst að það skipti enn miklu máli
fyrir heimspressuna hverjum hún
játar ást sína á hverjum tíma og þyki
gott söluefni.
0 ^jjísTÖÐ-2
17.50 Freddi og fé- lagar (27) 1845 Santa Barbara 17.30 Bylmingur
1800 18.15 Múmíndalurinn (4) 18.30 Kalli kanína 184f Táknmálsfréttir 1855 Fagri-Blakkur 1800 Elsku Hobo 1825 fslandsmótiö i knattspyrnu
1900 19.20 Leöurblöku- maöurinn 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veö- ur 20.30 Nýjasta tœkni og visindi 21.00 Eyðing — Þriðji þáttur 22.00 Stefnan til styrjaldar (The Road to War) — Þýskaland 1819 19.19 20X10 Opin lína Sim- inn er 683888 og endilega sláðu á þráö- inn 20.30 Visa-sport 21.30 Óvsant enda- lok — Rangfsersla 22.00 Taflið Kvik- mynd sem fjallar um þrjá fanga
2300 23.00 Ellefufréttir og dagskrárlok. 23.40 Andvökunœtur Kvikmynd með Eliza- beth Taylor, Laurence Harvey og Billie Whitelaw í aöalhlut- verkum 01.25 Dagskrárlok