Alþýðublaðið - 06.09.1989, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 6. sept. 1989
7
UTLOND
Enn er svart útlit hjá
bandariskum svertingjum
Nýverið var gerð rannsókn á högum þeldökkra Bandaríkja-
manna. Þar kemur fram að hagur þeirra blökkumanna sem betur
eru settir hefur aldrei verið betri, bæöi í menntunarmálum og fé-
lagsmálum. Á móti kemur að bilið milli þeirra og hinna verst settu
hefur aldrei verið meira.
í skýrslunni sem birt var um
rannsóknina segir að það sé mikill
misskilningur að kynþáttahatur
og fordómar heyri sögunni til.
Mjög algengt er að hvítir hátekju-
menn séu á móti allri mismunun
eftir kynþáttum í orði en ekki á
borði. Það verði t.d. uppi fótur og
fit í ,,betri“ hverfunum ef það frétt-
ist að svertingi sé í þann veginn að
Einstaka hópar svert-
ingja í Bandaríkjunum
hafa vissulega komist
vel áfram og sumir í
virdingarstöður á þeim
25 árum, sem liðin eru
frá því aö Lyndon B.
Johnson hóf baráttuna
fyrir bættum kjörum
svertingja. Samt er gjáin
milli fátækra og ríkra
dýpri en nokkru sinni og
kynþáttamismunun á
mörgum sviðum svo til
óbreytt.
kaupa hús í nágrenninu. Það er þó
talið í lagi, ef svertinginn er þekkt-
ur skemmtikraftur . . .
Talið er að hægri bylgjan síðast-
liðin 8 ár eigi mikinn þátt í því,
hvað hagur ómenntaðra og eigna-
lausra svertingja hefur versnað
mikið og þeim fjölgað. Andstaðan
gegn því að skattpeningar séu not-
aðir til að leiðrétta kynþáttamis-
munun hefur aukist. Mikill hluti
þjóðarinnar, sérstaklega í Suður-
ríkjunum, segir of mikið gert úr
réttindaleysi og erfiðleikum
svartra, telur að það séu fátækl-
ingar af hvíta kynstofninum sem
bágast eigi. Skýrsla rannsóknar-
nefndarinnar gefur þó annað til
kynna og gætir þar svartsýni,
„jafnrétti fyrir alla“, eins og stend-
ur í stjórnarskrá þjóðarinnar, eigi
Iangt í land.
(Arbeiderbladet, stytt.)
Fátækt í Bandaríkjunum er mest meðal svartra.
SJÓNVARP
Sjónvarp kl. 20.55
BRODDI
BRODDGÖLTUR
(Priddy the Hedgehog)
Bresk fræðslumynd um það litla og
skrýtna dýr, broddgöltinn. Fylgst er
með dýrinu í tíu mánuði, lifnaðar-
hættir þess kannaðir á allan hugsan-
legan máta, m.a. hvernig því tekst
að forðast þær hættur sem á vegin-
um verða.
Sjónvarp kl. 21.45
EKKERT HEILAGT
(Nothing Sacred)
Bandarísk bíómynd, gerd 1937, aö-
alhlutuerk Carole Lombard, Fredric
March, Charles Winninger.
Blaðamaður gerir að stórfrétt í blaði
sínu sögu stúlku sem er haldin
ólæknandi sjúkdómi. Hún verður
við það þjóðhetja. Blaðamaðurinn
lendir hinsvegar í hinu mesta basli
með allt heila málið þegar í Ijós
kemur að stúlkan er ekki eins veik
og hann hafði talið. Kvikmynda-
handbókin gefur þrjár og hálfa
stjörnu af fjórum mögulegum og
segir myndina vera klassíska gam-
anmynd, hrósar einkum handritinu
sem er kaldhæðnislegt og hrósar
sömuieiðis leikurunum, segir gömlu
stjörnuna Carole Lombard vera upp
á sitt allra besta í þessari mynd.
Semsagt mynd sem haldið hefur sér
vel og ætti að vera hin besta
skemmtan á að horfa.
Stöð 2 kl. 23.05
FINGUR
(Fingers)
Bandarísk bíómynd, gerö 1978, leik-
stjóri James Toback, adalhlutverk
Harvey Keitel, Jim Brown, Tisa Farr-
ow, Michael V. Gazzo.
Ungur maður á ólíka foreldra, ann-
ars vegar er móðirin píanóleikari og
hinsvegar er það faðirinn sem er
glæpamaður. Með þetta veganesti
heldur ungi maðurinn út í lífið og
það gengur ekki allt eins og það á að
gera. Kemur til uppgjörs enda faðir-
inn afskaplega dómínerandi pers-
óna. Myndin fær hvorki meira né
minna en þrjár og hálfa stjörnu í
kvikmyndahandbókinni — og það
af fjórum mögulegum — sem þýðir
að sennilegast er þetta afbragðs-
mynd. Hún þykir reyndar vera
nokkuð hrottaleg, kraftmikil og
ruglar oft áhorfandann í ríminu.
Myndin er sömuleiðis rík af tilfinn-
ingum og þykir bráðvel leikin. Mið-
að við bókina á þetta varla að geta
klikkað.
Sjónvarp kl. 23.10
ÍSLAND - AUSTUR-
ÞÝSKALAND
Því miður fyrir landsbyggðarfólk þá
sendir Sjónvarpið ekki beint frá
landsleik íslands og Austur —
Þýskalands. Heldur lætur sér nægja
— sjálfsagt vegna þess að KSÍ vill
ekki selja þeim sýningarréttinn í
beina útsendingu, eða þeir komast
ekki að samkomulagi um verð- að
sýna klukkustundarútdrátt úr leikn-
um síðla kvölds í útsendingu sem
tekur fram yfir miðnætti. Þeim sem
vilja hinsvegar fylgjast með leikn-
um í beinni útsendingu er bent á lýs-
ingu á leiknum á Rás 2 sem hefst kl.
18.03, eða þremur mínútum eftir að
leikurinn hefst.
0 STÖÐ 2
17.50 Sumarglugg- inn 16.45 Santa Barbara 17.30 Heimur kon- unnar Gamansöm mynd frá sjötta ára- tugnum meö Clifton Webb og Lauren Ba- call o.fl.
1800 18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Poppkorn
1900 19.25 Barði Hamar 19.50 Tommi og Jenni 20.00 Fréttir og veö- ur 20.35 Grænir fingur (20) Lokaþattur — Haustlaukar — 20.55 Broddi brodd- göltur (Priddy the Hedgehog) Bresk fræðslumynd um broddgölt. 21.45 Ekkert heilagt (Nothing Sacred) Bandarísk gaman- mynd frá 1937. Leik- stjóri William Well- man. 19.00 Myndrokk 19.19 19.19 2000 Sögur úr Andabæ 20.30 Falcon Crest 21.25 Bjargvætturinn 22.15 Tiska 22.40 Sögur aö handan
2300 23.00 Ellefufróttir 23.10 Island — Aust- ur-Þýskaland 00.10 Dagskrárlok 2305 Fingur Bíó- mynd um ungan mann sem á í miklu sálarstriöi 00.35 Dagskrárlok