Tíminn - 30.01.1968, Qupperneq 7

Tíminn - 30.01.1968, Qupperneq 7
7 ÞRIÐJUDAGUR 30. janúar 1968. Dúnsængur Æðardúnssængur, — gæsadúnsængur, vöggusægnur, kodd- ar, sængurver og lök — fiðurhelt og dún helt léreft. Pattonsgarnið, hring- prjónar og band- prjónar, nýkomið. Nýjar gerðir, 4 gróf leikar. Litekta. — Litaúrval. Fermingarföt, drengja jakkaföt frá 6—14 ára. Drengjabuxur, sömu stærðir, terre- íjm og ull. Stakir drengjajakkar. — Drengjaskyrtur frá kr. 50,00. — Drengjapeysur og drengjasókkar. — Pósfsendum — Vesturgötu 12. Sími 13570 Á VÍÐAVANGI Framh^lcl af bls. 5 vel við una. Hann lýsti því yfir fyrir kosningarnar, aS nú ri'ði á að gera „stórt átak“ í fjölskyldubótum hér á landi til þess að ná öðrum Norður- löndum, því að þarna hefð um við dregizt aftur úr. Og nú boðar Vísir ,,stóra átak- ið“ — að minnka fjölskyldu- bætur um 50 millj. spara þær hreinlega, en ekki jafna þeim niður á stærri fjölskyldur. ANDSTÆÐ — Framhald af bls. 1 þvingunum mætti aldrei beita við framkvæmd málsins. Þar yrði val- frelsið að ráða svo sem frekast væri unnt. Hann taldi, að einkum þrír möguleikar myndu verða til um- ræðu á þinginu í þessu sambandi. 1. Að félögin yrðu áfram aðilar að Alþýðusambamdinu. 2. Að félögunuim yrði skipt í j svæðissambönd, sem síðan kysu j fulltrúa til ASÍ-þings á þingum sínum. 3. Að landssambönd yrðu mynd uð sem aðilar að ASÍ, og myndu þau þá kjósa fulltrúa á ASÍ-þing á þingum sínum. En ef til vill næði engin breyt ing fram að ganga, og ef svo færi, gegn vonum lians, þá yrði verka lýðshreyfingin enn um sinn að búa við núverandi skipulag, með kost- um þess og göllum. Hann sagði, að breytingin yrði að miðast við að gera ASÍ að sterkara baráttutæki, fjárhags lega öflugra em nú er. Skipulagið ætti að verða einfaldara, jafn- framt því sem þinghald yrði við ráðanlegra og ódýrara. Að ávarpi Hannibals loknu, var gert stutt kaffihié, en síðan könn- uð mæting þingfulltrúa. Að . því loknu voru skipulagsmálin te'kín á dagskrá, og flutti Eðvarð Sigurðs son fyrst framsögu um „Frumvarp að lögum ASÍ.“ Við höfum þá ánægju að tilkynna, að við höfum tekið við einkaumboði á íslandi fyrir Fire- stone Tire & Rubber Company, USA, sem framleiðir hin heimsþekktu FIRESTONE dekk. — Við bjóðum hjólbarða og slöngur á mjög hagstæðu verði frá verksmiðjum í Englandi, Sviss, Þýzkalandi, Svíþjóð og Bandaríkjunum.— Nokkrar stærðir eru þegar fyrirliggjandi. — Leitið upplýsinga. , ;; ;; . ■, _ / ! . CHRYSLER-UMBOÐIÐ VÖKULL H.F. — HRINGBRAUT 121 — SÍMI 10600. Hann rakti fyrst skipulag ASÍ frá stofnun þess, og þeim umræð um, er um þau múl hafa verið síð ustu árin. Gat hann síðan relztu breytinga, sem í frumvarpimu fel ast, en þær eru þessar: - 1. Landssambönd geta ein átt aðild að ASÍ. Þetta er grundvall ar atriðið, en þrátt fyrir slíka af- dráttarlausa yfirlýsingu í 5. grein lagafrumvarpsins, er þó síðar í frumvarpinu gert ráð fyrir,, að félög, „sem ekki verður skiþað í landssambönd", geti áfram verið aðilar að ASÍ beint. Þá er einnig gert ráð fyrir, að verkalýðsfélag geti verið í fleiri en einu sam- bandi! i 2. Annað höfuðatriði er varðandi þing ASÍ og kosningai' lil |)ess Til er ætlazt, að þingið sitji 150 menn, og koini það saman 4. hver.t ár. Kosningafyrirkomulagið arer nohkuð flokið,' og óljóst, en virð ist stefna í átt til kosningaátaka á borð við alþingiskosningar. Það er 6. kafli frumvarpsins, sem um þetta fjallar. Fer hér á eftir sú grein kaflans, er fjallar um kosn ingu fulltrúanna á ASÍ-þing: ,,a) Aðildarsamband sem kýs 7 fulltrúa eða fleiri (1600 manna samband eða meira) skal skipa aðildarfélögum sínum í kjördeildir og skal það vera aðalregla, að félög sem starfa í sama kjördæmi séu í sömu kjördeild. Hver kjördeild kýs þá töíu fulltrúa á þing ASÍ, sem sameiginleg félagsmannatála félaganna í kjördeildinni gefur rétt til, miðað við heildartölu fé- lagsmanna viðkomandi sambands og heildartölu fulltrúa, sem sam bandið á rétt til. í aðildarsamböndunum . . er fé lögum heimilt, sem hafa jafnmarga eða fleiri félagsmenn, en nemur þeirri tölu, sem er að baki hvers fulltrúa viðkomandi sambartds, að mynda sérstaka kjördeid, hvert. um_ sig, og kjósa fulltrúa á þin'g ASÍ miðað við félagsmannatölu sína. Ennfremur geta félög, inn an sambandsins, sem ekki ná þeirri tölu félagsmanna, er um ræðir í 2. málsg'tein, skipað sér sáman í kjöfdeild, og telsi þá féiagsmannatala þeirra saman við útreikning fulltrúafjölda á þingi ASÍ. b) Þau áðildarsambönd sem kjósa sex fulltrúa eða færri, skulu vera ein óskipt kjördAl. Þó geta sambönd, sem byggð eru á aðild sé^greinafélaga, skipað aðildarfé lögum í kjördeildir eflir sérgrein um, enda séu eigi færri félags menn í kjördéíld, en félagsmanna fjöldinn sem er að baki hvers fulltrúa við kjör á alþýðusam bandsþing". Þetta eru höfuðatriðin í kosn-. ingáfyrirkomulaginu. Þykir flest um þá flókið og vandséð, hverhig framkvæmd þeirra muni takast. Taldi Eðvarð Sigurðsson þó að framkvæmdin ætti að takast vel. 3. Þriðja veiganiesta breytingin er á mið og sambandsstjórii, en sú síðárnefnda skal vera 50 manna samkvæmt tillögunum. Sambands þingið kýs forseta, varaforseta og 13 miðstjórnendur, en þessir 15 myndfl miðstórn. Þá kýs þingið 18 menn í sambandsstjórn, samtals 33 menn. Af þessum 18 skal einn vera úr hverju kjördæmi. Til viðbótar þessu, eiga lands samböndin að skipa fulltrúa í sam bandsstjórnina, samtals 17 menn miðað við hugmyndir meirihlut ans. Er sambandsstjórnin þá orðin 50 manna, og á að hittast a.m.k einu sinni á ári. Þessar eru höfuðbreytingarnar í frumvarpinu. og margar smærri breytingar eru þar. Þó er mikilvæg sú breyting, að þing ASÍ ákveði hverju sinni skattinn og jafnframt lágmarksfélagsgjald. Er Eðvarð Sigurðsson hafði lok ið máli sínu, flutti Sveinn Gamali elsson sína ræðu, ei,ns og segir á öðrum stað í blaðinu. Að því loknu, um kl. 19, var i fundum þingsins frestað til kl. 14 á morgun þriðjudag. Þá hefjast frjálsar um ræður um skipulagsmálin, er það fyrsta umræða en um lagabreyting ar verða að fara fram tivær um ræður.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.