Alþýðublaðið - 19.09.1989, Síða 5
Þriðjudagur 19. sept. 1989
5
ÞANKAR Á ÞRIÐJUDEGI
„Ef millistjornendum fækkar jafn
ört og undanfarið og fátt bendir til
annars, þá hrynja metorðastigamir
sem fram að þessu hafa viðhaldið
keppnisanda og tryggð starfs-
manna. Hér á landi hefur reyndar
hlaupið verðbólga í starfstitla og
gert þá merkingarlausa. Menn eru
forstjórar í þriggja manna fyrir-
tækjum og annar hver ríkisstarfs-
maður er yfirdeildarstjóri," segir
Öm D. Jónsson m.a. í grein sinni.
Þekking og nýtt
vinnuumhverfi
Lengi vel voru heimsstyrjaldirnar notaðar til að skipta öldinni
í tímabil. MiIIistríðs- og eftirstríðsárin voru vendipunktar þróun-
arinnar. Nú á tímum stóraukinnar fjölmiðlunar og örari breyt-
inga eru áratugirnir notaðir til að hólfa söguna.
I nýlegu hefti Fortune eru framá-
menn bandarísks atvinnulífs
fengnir til að spá fyrir ufn tíunda
áratuginn. í heildina þá gera flestir
þeirra ráð fyrir að þróunin verði
mjðg í anda undanfarinna ára.
Eiginleg umskipti urðu á sjötta
og sjöunda áratugnum. 68 kyn-
sióðin innleiddi ný gildi, bæði
hvað varðar neyslu og leikreglur
atvinnulífsins. Japan og nýiðn-
væddu löndin breyttu heimskorti
viðskiptanna og djúpstæð áhrif
tölvubyltingarinnar ná nú til allra
sviða þjóðlífsins.
Viðskiptajöfrar bandarísks at-
vinnulífs sjá fyrir sér aukna sam-
keppni, markvissari gæðakröfur
og, það sem allt snýst um, hærra
þjónustustig. Það verður enginn
markaður fyrir vörur sem öllum
þykja sæmilegar, þær vörur stand-
ast samkeppnina sem einhverjir
ákveðnir telja fyrirtak eins og einn
viðmælandinn orðaði það.
Einna athyglisverðastar eru
hugleiðingar Peters Druckers,
guðföður stjórnunarfræðanna.
Hann telur aukið mikilvægi þekk-
ingarinnar setja svip sinn á áratug-
inn og þá aðallega með þrennum
hætti.
Mjög hefur dregið úr mikilvægi
millistjórnenda í iðnvæddu lönd-
unum. Valdapíramídar fyrirtækja
og stofnana hafa verið flattir út.
Einingarnar eru minni, bæði fyrir-
tækin og innan stærri fyrirtækja.
Við þetta fækkar millistjórnend-
um verulega og almennir starfs-
menn eru kallaðir til ábyrgðar.
Síðan gera þeir kröfur um sjálfs-
ákvörðunarrétt í krafti sérþekk-
ingar sinnar.
Samskiptareglur stjórnenda og
starfsmanna breytast. Drucker lík-
ir fyrirtækjunum við hljómsveit.
Hæfni hljóðfæraleikaranna út-
heimtir mikla þjálfun og sérhver
þeirra leggur metnað sinn í að
standa sig en hlutverk stjórnand-
ans verður að samhæfa leik þeirra
með tilliti til hæfnistigs. Stjórnun
snýst æ meir um að fá hóp há-
menntaðra sérfræðinga til að
vinna saman á framleiðinn hátt.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Ef millistjórnendum fækkar jafn
ört og undanfarið og fátt bendir til
annars, þá hrynja metorðastigarn-
ir sem fram að þessu hafa viðhald-
ið keppnisanda og tryggð starfs-
manna. Hér á landi hefur reyndar
hlaupið verðbólga í starfstitla og
gert þá merkingarlausa. Menn eru
forstjórar í þriggja manna fyrir-
tækjum og annar hver ríkisstarfs-
maður er yfirdeildarstjóri. En í
þeim þjóðfélögum þar sem lífið
hefur gengið út á stöðuhækkanir
þá þýða færri stjórnunarþrep mór-
alskt hrun.
Drucker telur að faglegur metn-
aður starfsmanna, kröfur um inni-
haldsrík og krefjandi verkefni
hljóti að verða mikiivægari en
upphæðin í launaumslaginu og
titlatog jafnvel þó þessi tvö atriði
skipti áfram verulegu máli. Starfs-
menn meta gildi vinnunnar, hóp-
vinna verður í fyrirrúmi og sí-
menntun breytir fyrirtækjum í
menntastofnanir.
Aukið mikilvægi þekkingarinn-
ar, eða vöxtur þekkingarfyrirtækj-
anna er grundvallarbreyting að
dómi Druckers. Eins og hann
bendir á þá eru það ekki stjórn-
endur, eða fésýslumenn sem hafa
verið burðarás iðnvæðingarinnar,
heldur ófaglærðir starfsmenn og
jafnvel þó þeim hafi fækkað hlut-
fallslega þá er fjöldi þeirra veru-
legur, eða um fjórðungurþeirra er
starfa í bandarískum iðnaði. Ófag-
lærðir eru komnir í varnarstöðu í
þjóðfélagi þekkingarinnar.
Ef við skoðum þróunina hér í
ljósi þessara spásagna þá er líklegt
að flestar þeirra gildi um ísland.
Þó hlýtur að vera nokkur áherslu-
munur. Ströng lagskipting er ekki
ríkjandi hér og almennt eru starfs-
menn fjölhæfari en gengur og ger-
ist í nágrannaiöndunum. Aftur á
móti skortir á þá sérhæfingu sem
nú virðist vera orðin takmarkandi
þáttur annars staðar. Vinnuum-
hverfi „þekkingarstarfsmannsins"
verðum við að smíða frá grunni.
Á örfáum áratugum hafa leik-
reglur atvinnulífsins gjörbreyst
hvað varðar starfsumhverfi, kröf-
ur til starfsmanna og inntaks vinn-
unnar. Hraði breytinganna er með
ólíkindum.
SMÁFRÉTTIR
Björg Sveins-
dóttir sýnir
í Ásmundarsal
Þann 15. september opnaði
Björg Sverrisdóttir málverkasýn-
ingu í Ásmundarsal við Freyju-
götu. Þar eru sýnd olíu-
málverk unnin á síðustu tveimur
árum. Myndirnar eru gjarnan
náttúrustemmningar og tákn-
rænir hlutir koma oft fyrir í þeim.
Björg nam við Myndlista- og
handíðaskóla íslands og útskrif-
aðist úr málunardeild 1987.
Sama sumar tók hún þátt í sam-
sýningu við opnun Hafnargaller-
ís, en sýningin í Ásmundarsal er
hennar fyrsta einkasýning.
Sýningin verður opin kl.
16—20 virka daga og 14—22 um
helgar og stendur til 1. október.
Heildarupphæðvinn-
inga16.9.var
4.939.856
1 hafði 5 rétta og fær
hann kr. 2.279.694
Bónusvinninginn fengu
4 og fær hver kr. 98.565
Fyrir4tölurréttarfær
hver5.113ogfyrir3
réttar tölur fær hver um
sig361
Sölustaðir loka 15 mínútum
fyrir útdrátt í Sjónvarpinu
Upplýsingasímsvari 681511.