Alþýðublaðið - 21.10.1989, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 21.10.1989, Blaðsíða 4
4 Laugardagur 14. okt. 1989 ÍÞRÓTTAVIÐBURÐIR FYRRITÍMA Eddie Tolan (USA) sigraði af öryggi í 100 og 200 metra hlaupinu. ítalinn Luigi Beccali sigraði í 1500 metra hlaupinu með því að hefja endasprett sinn á réttum tíma. Sögulegir Ólympíuleikar í Los Angeles 1932: Áhorfendur góðir, munið að þetta fólk eru gestir okkar! Kvenhetja Ólympíuleikanna 1932 var Bandaríkjakonan Mildred Did- rikson frá Dallas, Texas. Tíundu Ólympiuleikar vorra tíma fóru fram í Los Angeles í miðri kreppunni 1932. Lítil þátttaka einkenndi þessa leika, en ástæðan var vafalaust sú, að vegalengdin frá Evrópu til Kali- forníu var bæöi löng og kostn- aðarsöm fyrir fátækar Ólymp- íunefndir þess tíma. Ferðin tók vikur, bæði með skipum og járnbrautarlestum. Þjóðirnar sendu aðeins sína allra bestu afreksmenn og sennilega hafa aldrei verið haldnir Ólympíu- leikar þar sem nær eingöngu mættu topp-íþróttamenn til þátttöku eins og á leikunum í Los Angeles 1932. Alveg einstök veðurblíða Frjálsíþróttakeppni leikanna fór fram dagana 31. júlí til 8. ágúst og veðrið var einstaklega fagurt alla dagana. Sumir halda því jafnvel fram, að önnur eins blíða hafi aldrei verið meðan Ólympíuleikar voru haldnir. Ónefndur sænskur blaðamaður skrifaði: „Nú skilur maður hvers vegna stóru kvik- myndafélögin völdu þennan út- jaðar Los Angeles, Hollywood, fyrir höfuðstöðvar sínar. Þau vildu vera viss um sem flesta sólardaga árlega, svo að hægt væri að kvik- mynda utandyra." — Aðstaðan á Memorial Colisseum leikvangin- um var stórkostleg, sú besta til þess tíma og heims- og Ólympíu- met féllu ótt og títt. Meðal áhorf- endafjöldi á frjálsíþróttakeppninni var 60.000 manns á dag, en dags- metið reyndist 86.443, og þótti gíf- urlega mikið í þá daga. Bandaríkjamenn endurheimtu spretthlaupasigrana Bandaríkjamenn hafa löngum verið sigursælir í spretthlaupum á Ólympíuleikunum og þess vegna þótti þeim súrt í broti að tapa bæði í 100 og 200 metra hlaupum á leik- unum í Amsterdam 1928 og raun- ar í 100 m hlaupi á leikunum í Par- ís 1924. Gleði þeirra var því mikil, er lágvaxinn Michigan-búi, Eddie Tolan, sigraði af öryggi, bæði í 100 og 200 metra hlaupunum í Los Angeles. Tolan var þeldökkur eins og flestir bestu spretthlauparar Bandaríkjamanna í gegnum tíð- ina. Metcalfe, einnig þeldökkur Bandaríkjamaður varð annar í 100 metra hlaupinu, en báðir hlutu sama tíma, 10,3 sek, sem þá var nýtt heimsmet. Breti og ítali unnu gullverðlaunin í millivegalengdum____________ Evrópubúar voru sigursælir í millivegalengdum í Los Angeles. Bretinn Tommy Hampson vann 800 metrana á glæsilegum enda- spretti eftir ótrúlegan byrjunar- hraða keppinautanna. Hampson lét hraðann ekkert trufla sig, hljóp sitt hlaup á jöfnum hraða og kom svo með giæsilegan endasprett, þegar þreytan sagði til sín hjá hin- um hlaupurunum ogÓlympíugull- ið í þessari vinsælu grein varð breskt, eins og svo áður og síðar á Ólympíuleikum. Það sama gerðist raunar í 1500 metra hlaupinu, þar sem Cunningham, USA og Kan- adamaðurinn Edward hófu enda- sprettinn alltof snemma, eða þeg- ar 500 metrar voru í mark, en það átti eftir að reynast þeim dýr- keypt, ítalinn Luigi Beccali hóf sinn endasprett 200 m síðar og Beccali var sterkastur í lokin, hljóp á 3.51,2 mín, sem þá var hans besti tími. Lehtinen og Hill (númer 433) koma i mark eftir sögulega viðureign i 5 þúsund metra hlaupinu: Finninn hljóp hvað eftir annað í veg fyrir Bandaríkjamanninn og uppskar mikla reiði áhorfenda. Hill tók hins vegar ósigrinum á afar íþrótta- mannslegan hátt. Óvæntur sigur Pólverjans Kusocinski í 10 km hlaupi Finnar urðu fyrir áföllum í lang- hlaupunum á Los Angeles-leikun- um. Pólverjinn Janusz Kusocinski vann óvæntan sigur í 10 km hlaup- inu og tími hans, 30.11,4 mín, var sá næstbesti sem náðst hafði í heiminum á þeim tíma, aðeins hinn heimsfrægi Paavo Nurmi hafði gert betur. Þetta var fyrsta áfallið, en annað og verra gerðist í 5 km hlaupinu. Fyrirfram bókaður sigur varð að martröð_______________ Arftaki Paavo Nurmi, Lauri Lehtinen var að flestra áliti vænt- anlegur Ólympíumeistari, enda hafði hann bætt heimsmetið á móti í Helsinki sama sumar, hljóp á 14.16,9 mín. En annað átti eftir að koma í ljós. Bandaríkjamaður að nafni Hill frá Oregon-ríki velgdi hinum heimsfræga Finna svo sannarlega undir uggum. Hill var góður 1500 m hlaupari eða öllu heldur míluhlaupari, en mílan var meira hlaupin vestra. Þetta fólk___________________ eru gestir okkar... Þegar komið var á beinu braut- ina i þessu sögulega hlaupi og að- eins um 80 metrar í mark var Leht- inen að vísu fyrstur, en Hill á hæl- um hans, og nú hófst barátta sem svo sannarlega vakti athygli og deilur . . . Þegar Bandaríkjamað- urinn reyndi að fara fram úr, sveigði Lehtinen í veg fyrir hann út á aðra braut. Er Hill reyndi síð- an að komast fram úr vinstra meg- in lokaði Finninn leiðinni með því að hlaupa aftur fyrir Oregon-bú- ann. Þessari zig-zag-baráttu lauk með naumum sigri Finnans, sem setti nýtt Ólympíumet, 14.30 mín. Hill fékk sama tíma og var einnig skráður fyrir Ólympíumetinu. — £n áhorfendur voru ekki aldeilis ánægðir með framkomu Finnans gagnvart landa þeirra, mótmæla- alda frá áhorfendaskaranum yfir- gnæfði allt, en Bill Henry, tækni- legum framkvæmdastjóra leik- anna tókst að róa mannfjöldann með fleygri setningu, sem oft hef- ur verið vitnað til síðar: „Vinsam- legast munið, áhorfendur góðir að þetta fólk er gestir okkar". íþróttamannsleg framkoma Hill Yfirdómnefnd leikanna tók mál- ið fyrir og ræddi á fundi sem stóð yfir í klukkustund og þar var ákveðið að Finninn hefði ekki vilj- andi truflað hinn bandaríska keppinaut sinn, en þetta var mjög umdeilt. íþróttamannsleg fram- koma Hill var rómuð og átti vafa- laust einhvern þátt í þessum úr- skurði, en hann sagði m.a.: „Ég álít að Lauri hafi ekki viljandi reynt að trufla mig, eða hlaupa í veg fyrir mig á endasprettinum. Hann leit við til að sjá hvar ég væri og ég veit vel, að þegar dauð- þreyttur maður gerir slíkt, þá get- ur hann ósjálfrátt sveigt til hliðar. Vitaskuld hljóp hann í veg fyrir mig, en ég held að hann hafi átt nóg eftir til að sigra." Þetta var vissulega drengilega mælt. Kvenstjarna leikanna var Mildred Didriksen____________ Konur kepptu i annað sinn i frjálsíþróttakeppni Ólympíuleika í Bretinn Tommy Hampson vinnur 800 metrana á glæsilegum enda- spretti. Los Angeles 1932, fyrst var keppt í Amsterdam 1928. Keppni var mjög skemmtileg og jöfn í kvenna- greinunum, en kvenhetja leik- anna var Mildred Didriksen frá Dallas í Texas. Hún hlaut tvenn gullgerðlaun og ein silfurverð- laun. Vissulega gerðist margt fleira á leikunum 1932, en hér er skýrt frá, en allir voru sammála um að þeir hefðu tekist með miklum ágætum. Örn Eidsson skrifar

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.