Alþýðublaðið - 31.10.1989, Side 6
6
Þriðjudagur 31. okt. 1989
SMÁFRÉTTIR
Yfirlitssýning
á verkum
Jóns Stefáns-
sonar
Nú fer hver að verða síðastur
til að sjá yfirl'tssýningu á verk-
um Jóns Stefánssonar í Lista-
safni íslands.
Hér er einstakt tækifæri til að
kynnast list Jóns en yfirlitssýn-
ing á verkum hans hefur ekki
verið haldin frá því að hann lést
árið 1962. Á sýningunni eru fá-
gætar perlur íslenskrar myndlist-
arsögu, en verkin spanna allan
feril Jóns, það elsta er frá 1910
og það yngsta frá 1960. Alls eru
þau 118 og eru sýnd í öllum söl-
um safnsins.
Verkin á sýningunni eru fengin
að láni hjá fjölmörgum aðilum
innan lands og utan, bæði ein-
staklingum, söfnum og öðrum
stofnunum. Gefst því nú einstaki
tækifæri til að kynnast af eigin
raun ýmsum verkum Jóns sem
koma sjaldan eða aldrei fyrir al-
menningssjónir.
í fyrirlestrarsal er sýnd stutt
heimildamynd um Jón eftir Os-
vald Knudsen kvikmyndagerðar-
mann en þulur er dr. Kristján
Eldjárn.
Sýningin hefur hlotið mjög
góða aðsókn og hafa þegar séð
hana um 15 þúsund gestir. Að-
gangur er ókeypis.
Unglingar
gegn ofbeldi
Um þessar mundir er verið að
vinna að undirbúningi átaks sem
ætlað er að vekja athygli á sívax-
andi ofbeldi í þjóðfélaginu og þá
einkum og sér í lagi meðal ungl-
inga.
Átak þetta er kallað „Ungling-
ar gegn ofbeldi" og mun standa
yfir dagana 6/11—16/11. Tilgang-
urinn með þessu átaki er að
vekja unglinga til umhugsunar
um þetta mál og fá þá til að
velta því fyrir sér, hvort það
aukna ofbeldi sem við verðum
vör við í samfélaginu sé eitthvað
sem hægt er að vinna gegn.
Þetta verður gert með því að ná
til krakkanna gegnum félagslíf
og tómstundir auk skóla, sýn-
ingu á leikinni heimildakvikmynd
um ofbeldi meðal unglinga, um-
ræðu- og vinnuhópa í félagsmið-
stöðvum, sérstökum hátíðum
tengdum málefninu o.fl.
Undirbúningsnefndin hefur
opnað skrifstofu í Rauða kross
Húsinu að Tjarnargötu 35, sími
22230. Þar er hægt að ná í Þór-
arinn Eyfjörö eöa Svein Ottós-
son en þeir eru starfsmenn
þessa átaks.
Þrjú ung Ijóð-
skáld kveðja
sér hljóðs
Almenna bókafélagið hefur
gefið út þrjár Ijóðabækur ungra
Ijóðskálda og er það liður í átaki
félagsins til eflingar íslenskrí
Ijóðlist. Ung Ijóðskáld hafa til
þessa átt erfitt uppdráttar hjá
bókaforlögum og þurft að feta
sig áfram með ærnu erfiði og oft
fjárhagslegri byrði. AB vill hlúa
að vaxtarsprota íslenskrar
Ijóðlistar með því að greiða götu
efnilegra Ijóðskálda.
Stundir úr tífi stafrófsins
nefnist Ijóðabók Sigmundar Ern-
is Rúnarssonar. Sigmundur er
betur þekktur sem vinsæll frétta-
og fjölmiðlamaður en hann hefur
áður gefið út tvær Ijóðabækur.
Ljóð Sigmundar eru
þrauthugsuð enda hefur bókin
verið árum saman í smíðum.
Fyrsta Ijóðabók Birgittu Jóns-
dóttur nefnist Frostdinglar og
myndskreytir hún einnig bók
sína. Ljóð Birgittu eru afar pers-
ónuleg og áleitin. Einn kafla
bókarinnar tileinkar hún föður
sínum sem fyrirfór sér og í öðr-
um yrkir hún til íslands.
Þriðja skáldið er Steinunn Ás-
mundsdóttir en fyrsta Ijóðabók
hennar heitir Einleikur á regn-
boga. Bók Steinunnar er sprottin
úr reynslu hennar af dekkri
hliðum lífsins. í Ijóðunum er að
finna lífsháska og þroskaðan
hug. í bókinni eru Ijósmyndir
eftir Ingu Lísu Middleton.
Ljóðskáldin þrjú munu kynna
Ijóð sín á næstu vikum á höfuð-
borgarsvæðinu og landsbyggð-
inni.
Málræktar-
átak Heyrn-
leysingjaskól-
ans
í skólum landsins verður í vik-
unni 23.-27. október, efnt til
móðurmálsviku og af því tilefni
verður í Heyrnleysingjaskólanum
málræktarátak með sérstakri
kynningu á móðurmáli heyrnar-
lausra, táknmáli.
Heyrnaskert börn sem eru að
hluta til í almennu grunnskólun-
um munu koma með bekkjarfé-
laga sína í heimsókn og nem-
endur Heyrnleysingjaskólans
munu kynna táknmálið fyrir
þeim, í öðrum tilvikum munu
heyrnarlaus börn fara í heima-
skóla sína og kynna táknmálið.
í þessari táknmálsviku verður
einnig efnt til kynningar fyrir al-
menning á táknmáli með opnum
fyrirlestri í Heyrnleysingjaskólan-
um fimmtudagskvöldið 26. októ-
ber kl. 20.30 sem nefnist: Hvað
er táknmál?
Með táknmálsvikunni vill
Heyrnleysingjaskólinn benda á
þá staðreynd að móðurmál nem-
enda skólans er ekki íslenska
heldur táknmál heyrnarlausra,
mál með eigin formgerð og eigin
málfræði.
Hvernig næst
jafnrétti í
atvinnulífinu?
Á vegum félagsmálaráðuneyt-
isins og Jafnréttisráðs er komið
út rit sem ber heitið Hvernig
næst jafnrétti í atvinnulífinu?
Ritið, sem skiptist í 10 kafla alls
38 síður að stærð, fjallar um
gerð jafnréttisáætlana í stofnun-
um og fyrirtækjum. Markmiðið
með útgáfunni er að vekja at-
hygli á leiðum sem leitt geta til
meiri jöfnuðar með kynjunum,
m.a. með því að fá atvinnurek-
endur, yfirmenn ráðuneyta, for-
stöðumenn ríkisstofnana og for-
ráðamenn sveitarfélaga til að
vinna markvisst að því að koma
á jafnrétti og jafnri stöðu kvenna
og, karla.
í ritinu er fjallað um nauðsyn
þess að jafnrétti ríki milli kynj-
anna í atvinnulífinu, hvernig
staðan sé á vinnumarkaðinum
og á hvaða sviðum úrbóta sé
einkum þörf. Einnig eru kynntar
nokkrar jafnréttisáætlanir ráðu-
neyta og ríkisstofnana, auk
einnar áætlunar frá sveitarfélagi.
Aðdragandann að útgáfunni
má rekja til vorsins 1988. Þá
samþykkti ríkisstjórnin tilmæli
félagsmálaráðuneytisins og
Jafnréttisráðs um að ráðuneyt-
um og ríkisstofnunum yrði gert
skylt að vinna sérstakar áætlanir
til fjögurra ára um aðgerðir til að
koma á jafnari stöðu kvenna og
karla innan hlutaðeigandi
ráðuneytis og ríkisstofnunar.
Ákveðið var að áætlanirnar
skyldu taka gildi 1. janúar 1989.
Birtur er listi í ritinu yfir þau
ráðuneyti og þær ríkisstofnanir
sem sömdu jafnréttisáætlanir í
samræmi við samþykkt ríkis-
stjórnarinnar.
Ritinu er dreift m.a. til opin-
berra stofnana, samtaka aðila
vinnumarkaðarins og sveitarfé-
laga. Það er jafnframt fáanlegt
hjá félagsmálaráðuneytinu,
Hafnarhúsinu við Tryggvagötu,
sími 609100, og Jafnréttisráði,
Laugavegi 118 D, sími 27420.
Þess skal getið að starfsmenn
Jafnréttisráðs eru reiðubúnir að
veita þeim aðstoð sem vilja nota
ábendingar sem fram koma í
ritinu.
* Krossgátan
□ 1 2 3l 4 “
5
6 □ 7
s 9
10 □ 11
□ 12
13 □ ■
Lárétt: 1 stubbs, 5 slóg, 6 söng-
flokkur, 7 belti, 8 torveldu, 10
guð, 11 mjúk, 12 aukast, 13 úr-
gangsefnið.
Lóörétt: 1 hangsa, 2 grassvörð-
ur, 3 mælir, 4 hamingjuna, 5 rýra,
7 Ás, 9 vonda, 12 keyri.
Lausn á síöustu krossgátu.
Lárétt: 1 gráða, 5 flot, 6 róm, 7
óð, 8 Ármann, 10 ba, 11 góa, 12
ragn, 13 risti.
Lóðrétt: 1 glóra, 2 romm, 3 át, 4
auðnan, 5 frábær, 7 ónógi, 9 ag-
at, 12 rs.
RAÐAUGLÝSINGAR
Söluskattur
Viðurlög falla á söluskatt fyrir septembermánuö
1989, hafi hann ekki verið greiddur í síðasta lagi 2.
nóvember.
Viðurlög eru 4% af vangreiddum söluskatti fyrir
hvern byrjaðan virkan dag eftir eindaga uns þau eru
orðin 20%, en síðan reiknast dráttarvextirtil viðbót-
ar fyrir hvern byrjaðan mánuð, talið frá og með 16.
nóvember.
Fjármálaráðuneytið
miðvikudaginn 1. nóvember í Félagsheimili jafnað-
armanna að Hverfisgötu 8—10 kl. 20.30.
Umræðuefni:
Þverstæður umbúðaþjóðfélagsins.
Hörður Bergmann ræðir grundvallaratriðið, sem
fjallað er um í bók hans „Umbúðaþjóðfélagið".
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkur
Alþýðuflokkurinn hlustar
Efnahags- og atvinnumál
Málstofa um efnahags- og atvinnumál, fimmtudag-
inn 2. nóvember kl. 20.30 í Félagsmiðstöð jafnaðar-
manna, Hverfisgötu 8—10.
Hópstjóri: Birgir Árnason.
Við leitum svara:
Á að byggja álver?
Á að beita handafli á vexti?
Á að afnema verðtryggingu?
Á að leyfa innflutning á
búvöru?
Á að setja hátekjuþrep í
staðgreiðslu?
Á að selja veiðileyfi?
Notið tækifærið og hafið bein áhrif á stefnu og
starfshætti Alþýðuflokksins.
Alþýðuflokkurinn
Landsf undur SA
Samband AlþýðuflokksRvenna heldur landsfund sinn 3. og 4. nóvember
nk. á Hótel KEA, Akureyri, og hefst fundurinn með setningu, föstudaginn
3. nóvember kl. 20.00.
Dagskrá fundarins verður nánar auglýst síðar, en aðalumræðuefni verða
Sveitarstjórnarkosningarnar 1990
Lífskjör á landsbyggðinni
Fundurinn er opinn öllum alþýðuflokkskonum og eru þær hvattar til að
mæta.
Stjórn SA