Alþýðublaðið - 18.11.1989, Blaðsíða 8
8
Laugardagur 18. nóv. 1989
FRETTASKYRING
W®* ; ' "¥
I ' ' 1
I þessum hluta Hafnarfjarðar er mengunarhættan talin mest. í baksýn sést Hvaleyrarholtið og upp úr því gægist álverið í Straumsvík.
A-mynd/E.ÓI.
Mengunardeila Hafnarfjaröar og Hollustuverndar:
Norðmenn kveða upp dóminn
Bæjaryfirvöld í Hafnarfiröi og Hollustuvernd ríkisins hafa
komist aö sérstæðu samkomulagi í deilu þessara aöila um
mengunarhættu á Hvaleyrarholti. Hollustuverndin haföi
komist að þeirri niöurstöðu að mengunarhætta væri þar yf-
ir viömiðunarmörkum og því lagst gegn áframhaldandi
framkvæmdum. Hafnfirðingar, með forstjóra Vinnueftirlits-
ins í fararbroddi, gagnrýndu skýrsluna harðlega sem ófag-
mannalega og ranga. Samkomulagið felst í því að nú er
beðið eftir nákvæmari rannsóknum norskra aðila i Ijósi
hugsanlegs nýs álvers og á meðan leggst Hollustuvernd
ekki gegn áframhaldandi þróun byggðar á Holtinu.
I raun er þetta samkomulag þó
verulegum annmörkum háð, ef
niðurstaða Norðmannanna styður
niðurstöðu Hollustuverndar og
'áframhaldandi þróun" þá dæmd
óréttmæt eftir á. „Þetta er vissu-
lega agnúi á samkomulaginu,”
segir Olafur Pétursson forstöðu-
maður mengunarvarna Hollustu-
verndar. „En nákvæmari niður-
,stöður ættu á hinn bóginn að
liggja fyrir innan 2ja mánaða, því
vegna hugsanlegs nýs álvers
verða gerðir dreifingarútreikning-
ar á vegum norskra aðila, sem eru
með fullkomnara módel en við.
Menn horfa nú til þeirrar niður-
stöðu'
Hrópandi ósamræmi_____________
niðurstaðna
i
I skýrslu Hollustuverndar er tal-
ið óráðlegt að bæta við íbúða-
byggðina á Holtinu, en formaður
heilbrigðisráðs bæjarins, Eyjólfur
Sæmundsson forstjóri Vinnueftir-
lits ríkisins, gagnrýnir skýrsluna
harðlega sem ófaglega og ranga.
Um leið telja bæjarfulltrúar í Hafn-
arfirði að Hollustuvernd hafi farið
út fyrir verkefnasvið sitt.
í skýrslu Hollustuverndar ríkis-
ins kemst Sigurbjörg Gísladóttir
deildarefnafræðingur og starfs-
maður stofunarinnar að eftirfar-
andi niðurstöðu: „Þá er það mat
mengunarvarna Hollustuverndar
ríkisins að ekki sé ráðlegt að bæta
við íbúðabyggð á Hvaleyrarholt-
ið.“ Eyjólfur kemst að þveröfugri
niðurstöðu. í greinagerð sem Eyj-
ólfur hefur gert um málið segir:
„Fyrirliggjandi upplýsingar benda
sterklega til þess að mengun á fyr-
irhuguðu íbúðarsvæði verði
tryggilega undir loftgæðamörk-
um sem gildi taka um næstu ára-
mót. Þannig ætti hvorki heislufari
íbúanna né gróðri á svæðinu að
stafa hætta af mengun frá núver-
andi starfsemi."
Einföldun á
raunveruleíkanum
Um dreifiútreikninga Sigur-
bjargar segir Eyjólfur: „Þessir út-
reikningar byggja á svo mikilli ein-
töldun á raunveruleikanum að úti-
lokað er að nota þá eina sér til að
draga ákveðnar ályktanir' I for-
sendum skýrslu Hollustuverndar
er einnig tekið mið af atvinnu-
starfsemi sem ekki er hafin, óvist
hvort verði og ekki hefur fengið
starfsleyfi frá Hollustuvernd. í
skýrslunni segir: „Þeir útreikning-
ar sem hér hafa verið notaðir til
þess að meta mengunarálagið á
Hvaleyrarholti eru bundnir ann-
mörkum vegna skorts á upplýs-
ingum um fyrirhugaðan iðnað og
vegna þess að takmarkað er til af
mælingum á mengun á útblæstri
frá fyrirtækjunum. Fyrirtækin
hafa ekki öll fengið starfsleyfi,
með ákvæðum um hámarksmagn
mengunarefna í útblásturslofti, og
ýmsir óvissuþættir eru bundnir
við rekstur þeirra. Æskilegt hefði
einnig verið að taka inn i dæmið
eins og stöðugleika lofts. Þrátt fyr-
ir að þessar upplýsingar skorti, þá
gefa þessir útreikningar ákveðna
vísbendingu um ástandið."
Um vinnubrögð Hollustuvernd-
ar segir Eyjólfur í greinargerð
sinni: „ Ályktun Hollustuverndar
er ekki byggð á viðteknum fagleg-
um vinnubrögðum við mat á
mengunarhættu að mati undirrit-
aðs.“ Hann bendir meðal annars á
eftirfarandi:
Heilsufar eða________________
viökvæmur gróöur
Ályktunin er byggð á grófum
bráðabirgðaútreikningum sem
ekki telst að mati Hafnfirðinga
viðurkennd aðferð til grundvallar
slíkri ályktun. Til viðmiðunar eru
ekki notuð heilsufarsáhrif hugsan-
legrar mengunar þó verið sé að
meta staðsetningu byggðar, held-
ur við mörk sem miða að verndun
viðkvæmasta gróðurs við erfið
skilyrði og eru mun lægri. Ekkert
tillit er tekið til þess að þær vind-
áttir sem flytja mengun frá álver-
inu til Hvaleyrarholts eru lang
sjaldgæfustu áttirnar á svæðinu
og mengun því sáralítil megin-
hluta ársins.
Ekki er tekið tillit til rannsókna
sem fyrir liggja á loftmengun í ná-
grenni álversins, þar á meðal
Hvaleyrarholti. Ekki er heldur
reynt að draga lærdóm af ítarleg-
Hafnfiröingar:
Skýrsla Hollustu-
verndar ófagmann-
leg og röng.
Hollustuvernd:
Gagnrýni Hafn-
firöinga óréttmœt.
um rannsóknum á sambærilegri
mengun við Grundartanga. Ekki
er tekið tillit til fyrirliggjandi rann-
sókna á áhrifum mengunar á við-
kvæman gróður milli álversins og
Hvaleyrarholts. Ekki er tekið tillit
til þess að unnt er að hreinsa
breinnisteinsdíoxíð úr útblæstri
álversins ef á þyrfti að halda og
skyldu fyrirtækisins til að gera
slíkt, fari mengunin yfir viðtekin
mörk, samkvæmt samningi þess
við íslensk stjórnvöld.
Ekki er í samantektinni fjallað
neitt um þýðingu þess ákvæðis
mengunarverndarreglugerðar, að
í 5% tilvika megi mengun mælast
meiri en uppgefin sólarhrings-
mörk. Sú forsenda að mengun geti
timabundið orðið meiri en kveðið
er á um í starfsleyfum á lítt við í
þessu tilviki. Marklaust er að slá
slíkri almennri fuliyrðingu fram
með þessum hætti, heldur verður
að greina í hverju slík hætta er
fólgin og leggja mat á hana. Ekk-
ert bendir til að íbúum fyrirhug-
aðrar byggðar geti stafað hætta af
slíkum aðstæðum í þeim iðn-
rekstri sem hér um ræðir. Álykt-
unin er ennfremur dregin út frá
vangaveltum um aukna umferð
um Reykjanesbraut, hávaða og
sjónmengun. Öll þessi atriði eru
léttvæg nema e.t.v. hávaði frá fyr-
irhugaðri stálbræðslu. Það fyrir-
tæki fékk hins vegar staðsetning-
arleyfi samkvæmt tillögu Holl-
ustuverndar þrátt fyrir að staðfest
skipulag um byggð á Hvaleyrar-
holti lægi fyrir. Tæknilega virðist
hins vegar unnt að setja upp full-
nægjandi hávaðavarnir og vænt-
anlega verður gerð um það krafa
í starfsleyfi sem nú er í vinnslu hjá
Hollustuvernd.'
Ráðuneytiö hefur áminnt
stofnunina
Eyjólfur finnur að því að Holl-
ustuvernd hefur ekki rækt eftirlits-
hlutverk sitt sem skyldi á um-
ræddu svæði. Hann segir: „Þetta
er enn alvarlegra fyrir þá sök að
Hollustuvernd hefur heldur ekki
látið ertirlit með mengunarvörn-
um álversins hafa eðlilegan for-
gang þó að hún hafi þar eftirlits-
skyldu. Þannig átti heilbrigðisráð
Hafnarfjarðar frumkvæði að því
að mæling var gerð á útblæstri ál-
versins á þeim tima sem hún var
gerð og þurfti til þess tilstyrk Heil-
brigðisráðuneytisins. Ráðuneytið
hefur a.m.k. tvívegis síðar áminnt
stofunina bréflega um að eftirlit
með álverinu eigi að hafa forgang
vegna umkvartana heilbrigðis-
ráðs.'
í greinagerð sinni rekur Eyjólfur
þær úrbætur sem unnið er að í ál-
verinu og þær mengunarmæling-
ar sem nú standa yfir. „Hafnar-
fjarðarbær hefur þegar tekið í
notkun mælistöð á Hvaleyrarholti
til að fylgjast með mengun af völd-
um brennisteinsdíoxíðs. Reynist
slík mengun þrátt fyrir allt fara yf-
ir viðtekin mörk ber álverinu
skyida til að hreinsa þetta efni úr
útblæstrinum samkvæmt aðal-
samningi ríkisstjórnarinnar og Al-
usuisse. Þetta er tæknilega fram-
kvæmanlegt án óhóflegs kostnað-
ar'
Hollustuvernd:
Öréttmœt gagnrýni
Bæjarfulltrúar Hafnfirðinga
hafa ekki einungis vefengt hina
fræðilegu hlið málsins, heldur
einnig framsetningu og þann
skilning sem Hollustuverndin
virðist leggja í hlutverk sitt. Einn
bæjarfulltrúanna hafði eftirfar-
andi um málið að segja: „Hollustu-
verndin hefur heldur betur mis-
skilið hlutverk sitt. Þeirra er ekki
að dæma hvort mengun á
ákveðnu svæði komi til með að
verða það mikil að ekki sé rétt að
byggja á því. Frá árinu 1983 hefur
það legið fyrir að á Hvaleyrarholt-
inu ætti að rísa ibúðabyggð. Það er
hins vegar staðreynd sem Holl-
ustuverndinni ber að taka tillit til
og veita þá ekki fyrirtækjum
starfsleyfi ef starfsemi þeirra sam-
ræmist á einhvern hátt ekki þeirri
byggð sem staðfest hefur verið að
komi til með að rísa. Eins er það
hlutverk Hollustuverndar að setja
fram kröfur og staðla um hver há-
marksmengun má vera og sjá til
þess að þeirra kröfum sé fram-
fylgt. Ef þeim er ekki framfylgt ber
að neita viðkomandi fyrirtæki um
starfsleyfi eða krefjast úrbóta og
loka fyrirtækinu ella. Það má því
segja að Hollustuverndin hafa tek-
ið skakkan pól í hæðina'
Hollustuvernd er ekki sammála
um að skýrsla Eyjólfs hreki skýrslu
stofnunarinnar. „Það hefur í sjálfu
sér ekkert breyst. Skýrsla Hafn-
firðinga er byggð á allt öðrum for-
sendum, á niðurstöðum rann-
sókna sem eru allt of fáar og því
ekki marktækar. Við teljum þessa
gagnrýni verulega óréttmæta og
skýrslurnar algjörlega ósambæri-
legar. Hann er að reyna að meta
staðreyndir út frá því sem til er, um
áreiðanieika okkar útreikninga,
en upplýsingar eru það litlar og
óáreiðanlegar að það er alls ekki
rétt að nota þær í siíkum tilgangi,"
segir Ólafur.
Völd í rangar hendur?
Hafnfirðingar standa hins vegar
fastir á sínu og hafa áhyggjur af
vinnubrögðum stofnunarinnar í
Ijósi þess að fyrir dyrum stendur
að auka völd hennar til þvingunar-
úrræða.
„Skýrsla Hoilustuverndar getur
hugsanlega grafið undan því
trausti sem ýmsir aðilar hafa borið
til Hollustuverndar. Nú á dögum
aukinnar umræðu um umhverfis-
mál og bættra samskipta manns
við náttúru er mikilvægara en ella
að þeir aðilar sem fara með mál
tengdum þessum málaflokki sýni
það að þeim sé treystandi og vinni
á faglegan og heiðarlegan hátt,"
sagði einn viðmælenda blaðsins.