Tíminn - 29.03.1968, Blaðsíða 13
r
PÖSTUÐAGTJR 29. marz 1968.
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Landsliðsnefnd kunngerð landsliðið gegn Dönum í gær:
Aðeins ein breyting og
Gísli er enn í ,kuldanum#
Sigurður Einarsson í landsliðið, en Hermann Gunnarss. og Stefán Jónss. fengu frí
Alf.—Reykjavik. — Landsliðs-
nefnd heldur nær óbreyttu striki
í landsliðsmáluniun. Hún gerði
aðeins eina breytingu á tilrauna-
liðinu, sem gerði jafntefli við
pressuliðð í fyrrakvöld. En það
er ekki Gísli Blöndal úr KR, sem
kemur inn í liðið, þótt hann hafi
verið áberandi bezti maður pressu
liðsins. Nei, hann verður áfram
úti í „kuldanum". Hins vegar valdi
landsliðsnefnd Sigurð Einarsson,
Fram, hinn reynda h'numann, og
valdi hann sérstaklega með hlið-
sjón af vamarleiknum, en Sigurð
ur er einn okkar traustasti mið-
vörður.
Einn nýliði verður í landsliðinu
gegn Dönum laugardaginn 6. apríl,
Þórður Sigurðsson úr Hauktim,
en annars er liðið þannig skipað:
Þorsteinn Björnsson, Fram
Logi Kristjánsson, Haukum
Ingólfur Óskarsson, Fram
fyrirliði.
Guðjón Jónsson, Fram.
Frá síðasta landsleik íslands, sem ar gcgn Vestur-Þjóðvcrjum. Gunnlaugur í skotfæri.
Þorstein ver í landsleik gegn V-
Þjóðverjum.
Unglingamót
í Svíþjóð
Á s.I. sumri fóru 4 ísl. ungling-
ar til keppni í Stavanger, Noregi
~og tóku þar þátt í hinni árlegu
landskeppni Noregs, Svíþjóðar og
Finnlands. Mörgum er í fersku
minni afrek Þorsteins Þorsteins-
sonar, en hann sigraði þar í 800
m. fclaupi á nýju ísl. meti. Keppni
þessi verður nú 10. og 11. ágúst
í Svíþjóð. Óvíst er um þátttöku
íslendinga í mótinu, en FRÍ mun
hafa milligöngu um það, ef ein-
stök félög eða héraðssambönd
vildu senda sína beztu unglinga
á mótið.
Sigurður Einarsson, Fram
Guttnlaugur Hjálmársson, Fram
Geir Hallsteinsson, FH
Örn Hallsteinsson, FH
Þórður Sigurðsson, Haukum
Ágúst Ögmundsson, Val
Einar Magmisson, Víking
Þótt gagnrýna megi landsliðs-
nefnd fyrir að halda Gísla Blöndal
fyrir utan liðið, skal það viður-
kennt, að nefndin átti úr vöndu að
ráða, þegar hún valdi liðið. Senni
lega hefur hún gert rétt með því
að gera sem minnstar breytingar.
Jafnvel þótt pressuliðið hafi staðið
sig prýðilega í leiknum í fyrra-
kvöld, sannaði það engan veginn,
að það væri betra liðið. Liðin
voru svipuð, en munurinn er sá,
að landsliðið hefur samæfingu að
baki og ætti að geta gert mun
betur. Það hefði verið áhættuspil
að gera miklar breytingar eins og
í pottinn er búið, þvi að nú er
stuttur timi til stefnu.
Á blaðamannafundi, sem stjórn
HSÍ efndi til í gær, gaf hún ýmsar
upplýsingar um landsleikina tvo,
sem framundan eru. Danska lands
liðið kemur til Reykjavíkur föstu
daginn 5. apríl, en fyrri leikurinn
verður laugardaginn 6. apríl 'og
hefst kl. 3. Síðari leikurinn vcrð
ur á sunnudaginn og hefst kl. 4.
Danska liðið er skipað eftirtöldu.n
leikmönnum: Bent Mortensen.HG,
Hans Frederiksen, Slagelse, Jörg-
en Vodsgard, Árhus KFXJM, fyrir
!liði; Börge Thomsen, HG, Karsten
Sörensen, AGF, Pcr Svendsen,
Helsingör. Carsten Lund, HG.
Werner Gárd, HG, Hans Jörgen
Graversen, HG, Nielse Frandsen,
Fredrecisa, Ivan Christiansen, Ár-
hus KFUM, Mogens Cramer, Hels
ingör (Ihann hefur flesta lands-1
leiki að baki, eða 93 og mun í
leikjunum gégn íslandi setja nýtt
landsieikjaimet, þ.e. enginn Dani
hefur fyrr eða síðar leikið fleiri
en 93 leiki), Gert Andersen, HG. J
Þess má geta, að forsala aðgöngu
miða hefst á mánudaginn í Bóka
búð Lárusar Blöndal í Vesturveri
og Skólávörðustíg. Verð miða er
150 kr. fyrir fullorðna og 50 kr.
fyrir börn. Síðast, þegar Danir
léku, var uppselt og urðu þúsundir
frá að hverfa.
Utd. tapaði
Manchester-liðin Utd. og City
léku í 1. deild í fyrrakvöld og
urðu úrslit þau, að City slgraði
3:1. Þar með hefur Manch. City
hlotið 45 stig eins og Manch. Utd.
og Leeds. f fjórða sæti er Liver-
þool með 43 stig, en einum leik,
færra. i
Nýliðinn, Þórður Sigurðsson
Hvers
virði
eru skír-
teinin?
Sem betur fer, hefur sá,
sem þessar línur skrifar
aldrei þurft að kvarta yfir
framkomu dyravarða við í-
þróttamannvirki í Reykja-
vík í þau 5—6 ár, sem
hann hefur skrifað íþrótta-
fréttir. Yfirleitt hafa valizt
ágætir menn til þeirra
starfa, prúðir og kurteisir í
framkomu, en gætt þess þó
vel að fylgja settum regl-
um, eins og vera ber.
Því miður hefur nú orð-
ið misbrestur á þessari
reglu. í fyrrakvöld stöðvaði
ungur og valdsmannlegur
dyravörður í Laugardals-
höllinni annan af tveimur
handhöfum sérstakra blaða-
mannaskírteina Tímans
sem Handknattleiksráð
Reykjavikur gefur út, og
meinaði aðgang að stúbu
blaðamanna. Þrátt fyrir for
tölur, tókst ekki að koma
þessum dyraverði f skilning
um það, að blaðamannaskír
teini giltu í stúku blaða-
manna — og það var ekki
fyrr en Axel Einarsson, for
maður HSÍ, skarst í leikinn
að dyravörðurinn beygði
sig. 1
Það er ósköp óþægilegt
að lenda í svona rifrildi á
leið til vinnu sinnar. Og út
af þessu langar mig að
beina þeirri fyrirspum til
stjómar Handknattleiks-
ráðs Reykjavíkur, hvers
virði blaðamannaskírtein
in séu eiginlega ef þau gildi
ekki í blaðamannastúku.
Hingað til hefur það þótt
sjálfsagt, að hvert blað
hefði tvö sæti í blaðamanna
stúku og það er þá í valdi
viðkomandi íþróttarit-
stjóra og ákveða hvaða að-
stoðamenn hann velur, en
ekki sjálfumglaðra og valds
mannlegra dyravarða.
Persónulega vonast ég til
að svonaIagað endurtaki sig
ekki, um leið og ég beiðist
þess, og þá veit ég, að ég
tala fyrir munn annarra í-
þróttafréttamanna, að að-
búnaður blaðamanna í
Laugardalshöllinni verði
Framhald á bls 14
OBREYTT SAMBAND MILLI
KNATTSPYRNUDÖMARA OG KRR
j Eins og áður hefur verið sagt
frá hór á síðunni, fengust engir
til að taka að sér stjórnarstö-f'
h.j'á Knattspyrnudómarafélagi
Reykjavíkur (KDR) á aðalfundi
félagsins, sem haldinn var í
fehrúar sl.
Á þeim fundi kom m.a. fram,
að mikill hugur va'r í dómurum,
að slíta tengsl við Knattspyrnu-
ráð Reykjavíkur (KRR) og gerast
sjálfstætt félag.
Var kosin á þeim fundi þriggja
manna nefnd, skipuð þeim Hann-
esi Þ. Sig.urðssyni. Gunnari Gunn
arssyni og Einari Hjartarsyni, til
að kanna það mál, og að hefta
viðræður við stjórn KRR um það.
Bngir dómarar fengust á þeim
fundi til að taka að sér stjórn-
atstörf hjá KDR, og var félagið
þvi sfjómlaust, en öllum gögnum
var skilað til KRR. Það, sem aðal-
lega hefur fælt menn frá að taka
aff sér stjórnarstörf fyrir félagið
er það að aðalstarf til þessa hef-
ur verið að raða niður dómurum
á leiki, og einnig að boða þá til
leiks bréflega, og svo með sím-
hringingum sama dag og leikir
fara fram. Ef um forföll var að
ræða, þurfti stjórnin að fá mann
í staðinn, oft með litlum fyrir-
vara, og ef enginn fékkst, varð
einhver úr stjórninni að taka að
sér að dæma. Hefur því leikja-
fjöldi þeirra vfirleitt verið helm-
ingi hærri en annarra dómara.
þar sem þeir hafa alltof
oft þurft að hiáupa i skarðið.
Nú síðastliðin 2 ár hefur stjórn
in fengið aðstoð við þessi mál, en
þá var ráðinn einn maður þeim
til aðstoðar, og fékk hann greidd
laun fyrir starfið. 9a KDR um
greiðslu á helmingi þeirra launa
s móti KRR. Kemur áreiðanlega
mörgum spánskt fyrir sjónir, að
KDR er miklu fjársterkara en yf
irboðarar þeirra KRR.
Stjórn KDR hefur vegna þess-
ara starfa ekki getað sinnt fé-
lagsmálum dómara sem skyidi, og
eru þau n-ú í megnustu óreiðu,
og hefur það vakið óánægju dóm
Framhald á bls. 15.
I