Alþýðublaðið - 22.12.1989, Qupperneq 1

Alþýðublaðið - 22.12.1989, Qupperneq 1
Viðbrögð yið innrás í Panama Alþýöublaöið kannaöi hui> talsmanna þingflokkanna viö innrás Bandaríkjanna í Pan- ama. Fram kemur aö enginn flokkur hérlendur er tilbúinn aö verja árásina, en menn eru ■ misviljugir til aö fordæma hana án tafar. Sjá bls. 3 Reykjavíkurborg: Fyrstu kaup- leiguíbúðirn- ar keyptar Á fundi borgarráðs Reykjavíkur í vikunni var tekin ákvörðun um kaup á fyrstu kaupleiguíbúðum sem borgin festir kaup á. Borgin kaupir 10 kaup- leiguíbúðir í húsinu við Klapparstíg 1 A sem bygg- ingarfyrirtækið Steintak reisir um þessar mundir. í samtali við Alþýðublaöið í gær lýsti Bjarni P. Magnús- son, borgarstjórnarfulltrúi Alþýðuflokksins, yfir mikilli ánægju með þessa ákvörðun borgarráðs. „Þetta er von- andi þaö sem koma skal," segir Bjarni, en það var minnihluti borgarstjórnar sem kom fyrst fram með til- lögur um að borgin keypti kaupleiguíbúðir fyrir þremur Deilt um ummœli bandaríska sendiherrans: Forsætisráðherra vill veita honum tiltal Ekki ástœöa til aögeröa, segir Jón Sigurösson starfandi utanríkisráöherra „Ég mun ræða þetta við utanríkisráðherra strax og hann kemur heim og ég tel sjálfsagt að kalla á sendiherrann og benda honum á að þarna hafi hann gengið of langt," sagði Stein- grímur Hermannsson forsætisráðherra á Al- þingi í gær. Hjörleifur Guttormsson hafði beðið um utandagskrárum- ræðu um afskipti banda- ríska sendiráðsins af ís- lenskum innanríkismál- um. Tilefnið var viðtal við Charles Cobb sendiherra Bandaríkjanna á islandi i Morgunblaðinu sl. sunnu- dag þar sem hann segir m.a. að hann telji mikil- vægt að hér verði ■ tekin ákvörðun um byggingu nýs alþjóðlegs flugvallar. Kins kemur fram í viðtalinu við sendiherrann áhugi hans á því að greiöa fyrir þvi aö hér rísi álver. Þaö kom fram í máli Jóns Sigurðssonar iðnaðar- og viöskiptaráðherra og starf- andi utanrikisráðherra að hann sæi ekki ástæðu til grípa til neinna aðgerða vegna viðtalsins viö sendi- herrann. Ekki voru ráð- herrarnir Ólafur Ragnar Grímsson og Steingrímur sammála Jóni Sigurðssyni og átöldu sendiherrann fyr- ir afskipti af íslenskum inn- anríkismálum. Þorsteinn Pálsson sagðist taka undir sjónarmið Jóns Sigurðssonar en kvað yfir- lýsingu forsætisráðherra marklausa eða marklitla ef henni fylgja ekki einhver frekari viðbrögð. Júlíus Sól- nes hagstofuráðherra sagði óþarflega mikið veður gert út af umræddu viðtali og sagðist ekki telja að sendi- herrann hefði verið að blanda sér í íslensk innan- ríkismál. Fjárlög nœsta árs: Tekjur ríkisins auknnar um rúmlega 1,1 milljarð Hœkkun á útgjöldum viö aöra umrœöu fjárlaga mœtt meö auknum tekjum íþeirri í tillögum fjárveitinga- nefndar fyrir 3. umræðu um fjárlög næsta árs er gert ráð fyrir því að tekju- áætlun ríkissjóðs hækki um rúmlega 1,1 milljarð króna frá því sem áður hafði verið áætlað. Ráð- gert er að beinir skattar hækki um tæplega 1,2 milljarða en tekjur vegna óbeinna skatta lækki um tæplega 700 milljónir kr. Við aðra umræðu fjárlaga- frumvarpsins hækkuðu gjaldaliðir frumvarpsins um 1.180 milljónir kr. Til að mæta þeirri útgjaldahækkun Jón Baldvin Hannibalsson heimsótti A-Berlín: Mikil bjartsýni er ríkjandi hjó A-þýskum jafnaðarmönnum Jafnaöarmannaflokkar V- og A-Pýska- lands stofna meö sér landssamband. hafa tekjuliðir frumvarpsins verið hækkaðir nokkurn veg- inn um sambærilega upp- hæð. Hallinn á fjárlögunum fyrir næsta ár er ráðgerður um það bil 3,7 milljarða eða svipaður og lagt var upp með við upphaf þings. Sighvatur Björgvinsson, formaður fjárveitinganefnd- ar, sagði hækkun annarra tekna skýrast fyrst og fremst af eftirfarandi: Reiknað væri með hækkun tekna vegna af- gjalda ríkisjarða um 90 millj- ónir kr., vegna starfsemi Frí- hafnarinnar á Keflavíkurflug- velli um 80 milljónir kr., vegna skila Pósts og síma um 150 milljónir kr. og vegna skila á arði af sameignum rík- isins um 350 milljónir kr. en þar er t.d. að nefna fyrirtæki eins og Járnblendiverksmiðj- una á Grundartanga og Landsvirkjun ásamt fleiri fyr- irtækjum sem ríkið á í sam- eign með öðrum. Þá er reikn- að með að hluti af hagnaði Seðlabanka íslands hækki um 50 milljónir kr. og síðar hækki ýmsar tekjur um 40 milljónir kr. Pálmi Jónsson gagnrýndi margt í tillögum meirihluta fjárveitinganefndar. Hann sagði fjárlögin með alvarleg- um halla upp á 3,7 milljarða þriöju og auk þess mætti ætla að fal- in halli sé til viðbótar allt að 3 milljarðar kr. Þá gagnrýndi hann þenslu í ríkiskerfinu og ýmsa tekjuöflunarliði svo sem hækkun afgjalds af ríkis- jörðum. Málmfríður Sigurðardóttir gagnrýndi niðurskurð til ým- issa mála og hækkun á ýms- um tekjuliðum eins og aukn- um framlögum Pósts og síma til ríkissjóðs. Þegar þetta er ritað standa umræður um fjárlögin enn yfir í sölum Alþingis en búist var við að fjárlög yrðu af- greidd seint í gærkveldi eða nótt. Jón Baldvin Hannibals- son utanríkisráðherra heimsótti vestur og austur Berlín og átti vidræður við leiðtoga þýskra lýðræðis- jafnaðarmanna beggja vegna landamæranna. Fram kom í viðræðum þessum að Jafnaðar- mannaflokkar þessara ríkja ætla að stofna lands- samband sem nær yfir bæði ríkin og hafa með sér náið samstarf. Að sögn Ásgeirs Þórs Árna- sonar námsmanns og frétta- ritara, sem var í för með Jóni, var ráðherranum sérlega vel tekið á þingi V-þýskra jafnað- armanna og ræddi hann við helstu leiðtoga þeirra, Brandt, Vogel og Lafontaine. Síðdegis heimsótti Jón A-Berlín og átti fund með leiðtogum lýðræðisjafnaðar- manna þar, þeim Martin Gut- zeit og Thomas Kriiger í Frönsku kirkjunni svo köll- uðu. Ræddu þeir um þróun mála í A-Þýskalandi og Á-Evr- ópu almennt og hvaða hlut- verki lýðræðisjafnaðarmenn myndu gegna í stjórnmálum landsins. Þeir Gutzeit og Krúger voru mjög bjartsýnir á framhaldið. 1 skoðanakönn- un sem Spiegel hefur látið gera nýlega kom í Ijós að lýð- ræðisjafnaðarmannaflokkur- inn er nú næst stærstur flokka í landinu með 8%, en aðeins um helmingur að- spurðra tók afstöðu. Reikna þeir með þvi að hljóta um 20% fylgi i kosningunum sem halda á i maí. Kommúnistaflokkurinn mældist með 12% í könnun- inni, Nýr vettvangur með 5%, Frjálsir demókratar með 5%, Kristilegir demórkratar með 4%, Bændaflokkurinn með 3% og Græningjar með 2% en aðrir minna. Flokkur lýðræðisjafnaðar- manna í A-Þýskalandi heldur flokksþing um mánaðamót janúar og febrúar og var greinilegt á leiðtogunum að það gætir mikillar bjartsýni um þróun mála hjá flokknum og þjóðinni. Snemmborín áramótabrenna i Garðabæ í gær var kveikt í bálkesti miklum í Garðabæ og varð af töluvert eldhaf. Sömuleiðis var kveikt i sinu á sama staö og stafaði nærliggjandi húsi nokkur hætta af. Samkvæmt upplýsingum Slökkviliös Hafnarfjarðar gekk greiðlega að ráða niðurlögum eldsins en hann breiddist út meö ógnarhraða enda jörð þurr og talsverður vindur. Engar skemmdir urðu af völdum elds- ins en hins vegar var bálkösturinn látinn loga þartil yfir lauk. Það verður þvi engin áramóta- brenna eins og til stóð á þessum stað.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.