Tíminn - 04.04.1968, Síða 6
TÍMINN
FIMMTUDAGUR 4. apríl 1968
Björn Vilhjálmsson
verksmiðjustjóri
Um riitt skeið berinsku minnar
átti ég mörg spor á milli bæjanna
Klifshaiga og Sandfellshaga í
Öxarfirði. Mér þótti alltaf sem
mér opnaðist dýrðarheimur, þegar
ég kom upp á Efra-Leiti og Sand-
fellshagi blasti við sjónum. Stað-
arleg burstahygging, hreinar,
rammíslenzkar línur, matjurtagarð-
ur í hlaðbrekku. Ræktarlegt túnið
í líðandi halla ofan að á, sem
rann lygn við túnfótmn, þar sem
áin breiðir mest úr sér, er gróð-
ursæll, hólmi. Þangað var sóttur
ilmreyr, þurrkaður og lagður með
líni og sparifatnaði í skúffur og
kistur.'
Nokkru ofar en hólminn var
brú yfir ána, leiðin lá yfir brúna,
er mjalta skyldi geitur, er runnu
til náttbóls framan úr „Brekkum",
skjólsælum skógarbrekkum, þar
sem þær höfðu „iborið snoppu
að blómsturtopp og blöðin kropp-
að af greinum."
Ofanvert við Sandfellshaga er
Öxarfjarðariheiði og gnæfir Sand-
fell yfir með grónum brekkum
og rindum hátt upp eftir fjalli.
Sandfell er fallegt fjall og freist-
ar til uppgöngu, því að frá hldð-
um þess blasir við vítt sjónar-
svið. Þaðan sér út yfir hið breiða
Öxarfjarðarihérað, út á sandana
miklu, þar sem-
Starengi blakta við blakkan sand,
bæima hyllir í óskanna land“.
Og
„iGráblikur yzt fyrir landi lýsa,
likast sem bjarmi á ísa“.
Oft liggja hin yztu sjónarmörk
í mókandi kyrrð, hjúpuð blárri
móðu á sólskinsmettuðum sumar-
dögum, en nær 02 fjær er gróð-
ur og grjót gætt töfrandi litbrigð-
um í leik ljóss og skugga.
Unaðslegt var að alast upp í
þessum gróðursæla reit með
fjölda skemmtilegra leikfélaga.
í Sandfellshaga hefur verið tví-
býli siðan stórbóndinn Björn Jóns-
son, dannebrogsmaður, skipti
jörðinni milli tveggja bróður-
b'arna sinna, Jóns Sigurðssonar,
kvæntum Kristínu Friðriksdóttur
og Júlíönu Sigurðardóttur, giftri
Vilhj'álmi Benediktssyni. Börn
þessara hjóna urðu jafnmörg og
fvlgdust nokkurn veginn að með
aldur, þanoig að oftast voru börr
sitt frá hvoru búi á sama ári
Börn Júlíönu og Vilhjálms voru
í þessari aldursröð: Þóra Sigur-
veig, Jóhanna, Aðalbjörg, Bjöm.
Þorbjörg, Margrét Helga og
Hulda Júlíana. Fögnuðurinn var
mikill yfir edna syininum og bróð
urnum, hann var sannkallað óska-
barn.
Það var glatt og létt yfir lífinu
í Sandfellsihaga. Börnin fóru frjáls
á milli heimilanna og léku sér i
góðri éiningu, enda börnin öll
prúð og væn. Og sá grundvöllur,
sem þau lögðu með bernskuleikj-
um sínum og barnalærdómi að
Veruleg verðlækkun
HVEITIKORN
höfum við lækkað í krónur 5733,00 tonnið
45 kg. sekkur kr. 258.00
(Verðið var áður kr. 6840.— tonnið)
BLANDAÐ HÆNSNAKORN
er lækkað í kró.nur 6155.00 tonnið 45 kg. sekkur
kr. 277.00
MAÍSKURL
var áður lækkað í krónur 5778,00 tonnið
45 kg. sekkur kr. 260.00
MJÓLKURFÉLAG REYKJAVIKUR
Kornmylla - Fóðurblöndun - Kögglunarverksmiðja
athafinasamri ævi, reyndist hinn
traustasti og íslenzku þjóðinn;
bættist góður liðsauki, þegar
börnin fná Sandfellshaga hösluðv
sér völl í þjióðlífinu.
Bjöm var ungur að árum, er
bliku dró fyrir sól í bernsku-
paradís hans. Móðir hans veiktis*
af berklum, var nokkur misserí
til lækninga á Vífilsstöðum, en
dó heima í Sandfeilshaga 1928
Björn var þá níu ára, hann fædd-
ist 26. febrúar 1019. Hanm naut
mikils. ástríkis föður síns og
systra. Tvær þeirra önnuðust
hann, Þóra og Jóhanna. Þóra léz*
í Re y kjavdk 1943.
Bjiörn eignaðist góð’a stjúpu,
Guðnúnu Jónsdóttur frá Klifhaga,
og tvö hálfsystkini, Marenu 0?
iSi'gurpál.
Það hefur einkennt þennan
stóra systkinahóp fná Sandfells-
haga, að þau hafa haldið samam
í blíðu og stríðu og ætíð stutt
hvert annað. Móðurbróður sínum
Einari Sigurðssyni frá Sandfells
haga, fósturföður mínum, sýndu
þau mikla ræktarsemi og veitti’
honum margar ánægjustum'dir
Fyrir það vil ég þakka og sömu
leiðis tryggð og vináttu við mig
allt frá bernskuárunum í Öxar-
firði. Það var pabba mikið gleði-
efni að vera með systurbörnum
sínum og völdum vinum í ágætri
veizlu, er þau hjónin Björn og
Þórstína buðu til. Þetta var í
apríl 1066, síðasta vorið, sem
pabbi lifði. í febrúar árið eftir
hittust þeir frændur í Borgar-
spítalanum, þá báðir lagðir upp
í hinztu förina.
Þegar Vilhjálmur Benedi'ktsson
azt Ii9'3'8, fói’u börn hans alfariin
:'á Sandfellshaga. Björn hóf þá
iim haustið nám við Héraðsskól-
jnn á Laugarvatni. Næsti stór-
áfanginm í lífi hans var þegar
hann réðist til vélsmiðjunnar H'éð
ins Þar lærði hann járnsmiði og
lauk bæði bóklegu og verklegu
námi með ágætum vitnisburði.
Bann vann í Héðni um tuttugu
ára skeið og v’arð þar vel til
vina. En heilsa hans var ekki
sterk og því skipti hann um starf.
Síðustu árin var hann verkstjóri
í Fisk- og síldarmjölsverksmiðju
Guðmundar Jónssonar í Sand-
gerði og féll starfið og starfslið
hið bezta.
Björn kvæntist 24. janúar 1048
eftirlifandi konu sinind, Þórstinu
Jóhannsdóttur frá Aíkureyri. Þaa
eignuðust tvö börn, Hilrpar Tómas
íþróttakennara, er kvæntur Unni
Sigtryggsdóttur Klemenssonar,
hjúkrunarkonu, Berta Júlía, dvel-
ur heima hjá móður sinni.
Björn og Þórstína áttu fallegt
heimili að Hlíð’arvegi 30, Kópa-
vogi. Þau nutu mikillar hamingjn
saman, voru samhent og sístarf-
ar.di að hag heimilisins. Þórstína
hefur um árabil unnið hjá Mjólk-
ursamsöluinni, og á sín hvorum
megin götu heimili sitt og vinnu-
stað. •
Allir, sem til Björns þekktu,
vissu, að hann var hið mesta prúð
menni, ágætlega gefinn og hafði
sérstæða, mjög hlýja og hófsama
kímin’igiáfu. Það var sem hljóðlát
gleði fylgdi honum jafnan, bros
hans er eftirminnilegt. Hann var
góður heimilisfaðir, umhyggjusam
ur og ástúðlegur, fagrar minning-
ar létta konu hans og bömum
missínn. Tengdadóttirin, sem
reyndist Birni eins og góð dóU'r,
ihefur einnig mikið misst.
Björn Vilhjálmsson innritaðist
í Borgarspítalann til rannsóknar
í ársbyrjun 1067. Um vorið gekk
hann undir mikinn holskur'ð, sem
mun hafa verð vonlítið viðnám
í leik, sem þegar var tapaður.
Björn var heima að 'Hlíðarvegi
síðsumars og fram eftir vetri. 9.
desemiber fór hann í síðasta sinni
í sjúkrahús, þá í Landakotsspát-
alann. Hann rakti þessa sögu alla
í dagbók sinnd. Hann fékk leyfi
til að dvelja á heimili sínu um
jól og nýár. Að morgni þess 26.
marz lézt hann í Landakotsspitala.
Genginn er góður drengur.
Horfinn er heiður dagur.
1. apríl 1068.
Þórunn Elfa.
BÓTAGIEIÐSLUR
ALMANNATRYGGINGANNA
í REYKJAVÍK
Vegna páskahátíðarinnar hefjast greiðslur bóta almanna-
trygginganna í aprílmánuði sem hér segir:
Föstudaginn 5. og laugardaginn 6. apríl verður eingöngu greidd
ur ellilífeyrir.
GreiSslur annarra bóta, þó ekki fjölskyldubóta, hefjast mánu-
daginn 8. apríl.
Greiðslur fjölskyldubóta hefjast þriðjudaginn 16. apríl.
TRYGGINGASTOFNUN RÍKISINS
t