Alþýðublaðið - 03.02.1990, Blaðsíða 7
6
Skrifað undir kjarasamninga sem e.t.v. eiga eftir að verða frægir í sögunni,
a.m.k. ef sú samstaða næst um þá sem samningsaðilarnir gera sér vonir
um. Hér er það Asmundur Stefánsson, forseti Alþýðusambandsins sem
mundar pennann. Við hlið hans situr formaður Stéttarsambands bænda,
Haukur Halldórsson, þá koma Einar Oddur Kristjánsson, formaður Vinnu-
veitendasambandsins og Þórarinn Viðar Þórarinsson, framkvæmdastjóri
sama sambands. í bakgrunninum má svo greina Guðlaug Þorvaldsson, rík-
issáttasemjara, sem trúlega má minnast margra erfiðari kjarasamninga en
þessara.
Samningalotu lýkur
Kjarasamningar innsiglaðir með handabandi. Forystumenn vinnuveitenda
og launþega takastí hendur að loknum löngum samningaviðræðum. Milli
þeirra situr formaður Stéttarsambands bænda, sem var einn þeirra fjöl-
mörgu aðila sem áttu beinan eða óbeinan þátt í að samningar náðust
Samningatíminn fer ekki bara í viðræður og útreikninga. Hér sitja Þráinn
Hallgrímsson og Guðmundur Gylfi Guðmundsson hjá ASÍ og Haukur Hall-
dórsson formaöur Stéttarsambands bænda.
Á löngum samningafundum getur komið sér vel að eiga hitt og þetta í
kæliskápnum. Guðlaugur Þorvaldsson ríkissáttasemjari er gamalreyndur
í starfinu og veit þetta sjálfsagt öðmm mönnum betur.
Ljósritunarvélin gegnir mikilvægu hlutverki í húsakynnum sáttasemjara.
Þau eru ófá tilboðin sem þarna eru fjölfölduð árlega að ekki sé minnst á
alla útreikningana sem fara þarna í gegn.
Laugardagur 3. febr. 1990
Laugardagur 3. febr. 1990
/A
Hvai segir
fólkið á götunni"?
Nú eru samningar í höfn. Þessir samningarnir eru að mörgu leyti
óvenjulegir þvíþeir hafa haft langan aðdraganda og kringum þá hefur ríkt
mikið logn. Samningsaðilar hafa lengstum setið í mesta bróðerni, rætt og
reiknað hlutfall kaups og kjara. Fátt hefur skyggt á viljann til að greiða fyrir
lausn mála. En vissulega kom óhugur í mannskapinn þegar ríkisstjórnin
lýsti því yfir að hún hefði ekki bolmagn til að leggja neitt af mörkum að
greiða fyrir gerð samninga. Ráðamenn sáu þó fljótt að sér og tóku ákvörð-
un um að koma inn ísamningana. Þar er helst að nefna niðurgreiðslu land-
búnaðarafurða um 700 til 750milljóniren aukþess hefurhækkunum á op-
inberum gjöldum verið frestað og tryggðar hafa verið hækkaniráfrítekju-
mörkum. Talið er að þessar skuldbindingar muni auka halla ríkissjóðs um
1,2 til 1,3 milljarða.
Nú hefur friður verið tryggður á vinnumarkaðinum a.m. til loka þessa
árs en jafnvel allt til loka september á næsta ári.
Aðstandendur samningsins keppast við að hæla samningum, en hvað
segir fólkið?
Jón Ipsen
verkamaöur:
Guðrún Guðmundsdóttir
húsmóðir:
„Þessir
samningar
verða felldir"
— Ég mun fella þessa samn-
inga í atkvæðagreiðslu. Það er
ekki nóg að lofa. Eg get ekki séð að
staðið hafi verið við nokkuð að því
sem lofað hefur verið hingað til.
Það fer allt í sama gamla farið á ný.
Varekki búið að lofa að ríkisstjórn-
in kæmi inn í síðast? En hún brást,
þeir komu aldnei launafólki til
bjargar eins og lofað hafði verið.
Þessir samningar verða felldir.
Magnús Pálsson
framkvæmdastjóri:
„Andleg
kjarabót"
— Mér líst vel á þessa samn-
inga. Þeir eru skemmtilegir og
þetta eri. óvanaleg samningaað-
ferð. Ég þakka góðum undirbún-
ingi að samstaða náðist milli at-
vinnurekenda og launþega. Ég
held einmitt að samvinna og
gagnkvæmur skilningur komi til
með að skila fólki meiru, bæði
launþegum og fyrirtækjum. Það
er náttúrlega forsenda alls að fyr-
irtækin nái að rétta úr kúttnum.
Annars tel ég kjarabótina raun-
verulega andlegs og félagslegs
eðlis. Fólk hefði ekki getað þolað
enn eitt verkfallið. Það er þessi
vonlausa barátta í verkföllum sem
drepur fólk niður. Aðal ávinningur-
inn er að nú hefur fólk öðlast trú á
undirstöðurnar. Nú verðurfarið að
vinna sameiginlega að settum
markmiðum.
„Lausnin að
kveðja
ríkisstjórnina"
— Ég hef ekki trú á því fólki sem
stendur að baki samningunum og
ekki heldur þessari ríkisstjórn.
Þessir samningar bjarga ekki
neinu. Ætli verðið haldi ekki bara
áfram að hækka á nauðsynjavör-
um og hvar stöndum við þá? Er-
um við ekki alltaf að höggva í
sama farið? Það sem við þurfum
nú er algjör verðstöðvun. Ef það
næði fram að ganga myndi það
fljótt skila sér til fólksins og kæmi
öllum til góða. Vitanlega verður að
hækka lágmarkslaunin, 60 þús-
und er algjört lágmark ef fólk á að
lifa af laununum. Eina lausnin sem
raunverulega dygði væri auðvitað
ef ríkisstjórnin væri kvödd.
Hildur Eysteinsdóttir
verslunarmaöur:
„Langur
samningstími"
— Ég hef nú ekki trú á þessu.
Ætli allt fari ekki bara í sama farið
á ný. Auðvitað er allt í lagi að prófa'
nýja leið þegar gamla leiðin hefur
reynst ómöguleg. Mér finnst
samningstíminn reyndar svolítið
langur. Á átján mánuðum getur
svo margt breyst. Nær hefði verið
að semja til 10 til 12 mánaða.
7
Benedikt Haröarson
verkamaöur:
„Ef forsendur
halda"
— Ég er vongóður svo lengi
sem þetta heldur. Það eru eftir-
málar samninganna sem skipta
máli. Ef á eftir koma hækkanir, nú
þá er allt til einskis. Ef ekki, þá má
leggja blessun sína yfir þetta. Það
er verið að fara nýja leið í samn-
ingum sem allt í lagi er að reyna.
Austurbæjarfundurinn er gott
dæmi um þessa gömlu samninga
þar sem ekkert hafðist upp úr
krafsinu.
Nú er bara að vona að þetta skili
fólkinu einhverju. Ég held það geti
ekki versnað.
Berglind Johansen
sölumaður:
„Er verið að
plata mann?"
— Þetta er allt í rétta átt. Þessi
samningur eins og aðrir hefur sín-
ar góðu og slæmu hliðar. Mér líst
vel á vaxtalækkunina hún á ef-
laust eftir að koma sér vel fyrir
ýmsa. Ef tekst að tryggja að bú-
vörur standi í stað og verðlag rjúki
ekki upp úr öllu valdi þá er bjartara
framundan. En auðvitað er alltaf
spurning hvort það verði staðið
við þetta. En það læðist alltaf að
manni sá grunur að verið sé að
plata mann. Maður hefur á tilfinn-
ingunni að þetta verði þegar upp
er staðið engin hækkun.
SKILIÐ SKATTFRAMTALI
í TÆKA TÍD
Skattframtali 1990 vegna tekna 1989 og eigna í árslok á að skila í síðasta
lagi 10-febrúar.
Fylgiblöð með skattframtali liggja frammi hjá
skattstjórum sem jafnframt veita frekari
upplýsingar ef óskað er.
Mikilvægt er að framteljendur varðveiti
launaseðla áfram eftir að skattframtali hefur
verið skilað. Launaseðlar eiga að sanna, ef á _
þarf að halda að staðgreiðsla hafi verið dregin af launum
SÍÐASTISKILADAGUR SKATTFRAMTALS
ER10 FEBRÚAR.
RSK
RÍKISSKATTSTJÓRI