Alþýðublaðið - 03.02.1990, Blaðsíða 4
4
Laugardagur 3. febr. 1990
ÍÞRÓTTAVIÐBURÐIR FYRRITÍMA
Frábær árangur
Hauks og Finnbjarnar
í Stokkhólmi 1947:
Haukur Clausen og Finnbjörn Þorvaldsson á Norðurlandamótinu í Stokkhólmi 1947: Komu áhorfendum mjög á
óvart með frábærum afrekum.
Hauk spáð síðasta sætí
en sigraði með glæsibrag!
Margt skemmtilegt og áhugavert gerðist í íþróttum árið
1947, en flestir munu þó vera þeirrar skoðunar, að þátttaka
tveggja íslendinga í keppni fjögurra Norðurlandaþjóöa í
frjálsum íþróttum (íslendinga, Dana, Finna og Norðmanna)
gegn Svíum í Stokkhólmi, hafi verið hápunkturinn. Þessir
Islendingar voru Haukur Clausen og Finnbjörn Þorvalds-
son. Sá fyrrnefndi, sem þá var aðeins 18 ára gamall keppti
í 200 metra hlaupi og Finnbjörn var valinn í liðið í 100 metra
hlaup og langstökk.
Sænska pressan trúði ekki
á Islendinga
I spádómum sérfræöinga fyrir
keppnina voru flestir á einu máli
um það, að Svíar myndu sigra,
sem og kom á daginn. I sænskum
blöðum voru miklar bollalegging-
ar um það hver úrslit einstakra
greina yrðu og er fróðlegt að líta á
þær hugleiðingar. Spádómarnir
voru ótrúlega réttir, nema hvað
varðaði lslendingana. Nær allir
töldu, að Finnbjörn yrði síðastur í
langstökkinu, en hann varð 5. og
Finnbirni var spáð 3. sæti í 100 m
hlaupinu, en þar varð hann 2. Nær
öll blöðin töldu, að hinn kornungi
íslendingur, Haukur Clausen yrði
síðastur í 200 m hlaupinu, en hann
sigraði, eins og margir vita. 1 einu
finnsku blaði var viðtal við finnska
þjálfarann Yrjö Nora, sem þjálfað
hafði á íslandi. Hann sagði að
Haukur væri stórkostlegur 200 m
hlaupari, en var samt á þeirri
skoðun, að Lennart Strandberg frá
Svíþjóð myndi sigra.
Mótið hófst laugardaginn 6.
september með setningarhátíð og
m.a. fluttu krónprins Svía Gustaf
Adolf ávarp. Meðal áhorfenda
voru 15 ÍR-ingar, sem verið höfðu
í keppnisferðalagi um Noreg og
Svíþjóð, þ.á m. sá er þessar línur
ritar, Gamli Ólympíuleikvangur-
inn frá 1912 var fullsetinn.
Finnbjörn nálægt sigri í
1QO m og setti Isl.met________
í langstökki__________________
Eins og áður sagði keppti Finn-
björn í tveimur greinum, 100 m og
langstökki og í báðum fyrri dag-
inn. Fyrrnefnda greinin var ein af
þeim fyrstu. Af hlaupurunum sex
var Finnbjörn á 4. braut. —■ Ræsir-
inn gefur merki um að hlaupar-
arnir taki sér stöðu. — „Viðbúnir“,
og skotið reið af, en Finnbjörn og
Norðmaðurinn Bloch brugðu of
fljótt við. Aftur taka hlaupararnir
sér stöðu. Islensku áhorfendurnir
voru vægast sagt taugaóstyrkir,
sennilega mun verr haldnir en
Finnbjörn. En nú gekk allt eins og
best verður á kosið, Finnbjörn
fékk besta viðbragðið. Hann var
strax fyrstur og nærri tveimur
metrum á undan næstu mönnum,
þegar 60 m voru búnir. A síðustu
10 m tókst Strandberg að pressa
sig nokkra sentimetra framúr, en
báðir fengu sama tíma 10,9 sek.
Mikill fönguður ríkti í „íslendinga-
nýlendunni", þetta byrjaði glæsi-
lega, þó að auðvitað hefðum við
óskað Finnbirni sigurinn. En það
er engin skömm að tapa fyrir Evr-
ópumethafa og úrslitamanni frá
Olympíuleikunum í Berlín.
Nokkru síðar þennan dag hófst
keppnin í langstökkinu, sem þá
var hálfgerð aukagrein hjá Finn-
birni. Hann stóð sig með mikilli
prýði, stökk 7,09 m og varð fjórði
eins og áður sagði. Árangurinn
var nýtt íslenskt met. Framkoma
og árangur Finnbjarnar vakti að
vonum mikla athygli og hann
vann mun betri afrek, en flestir
höfðu búist við fyrirfram. En
meira átti eftir að gerast síðari dag
keppninnar, er Haukur tók þátt í
200 metra hlaupinu.
Enginn bjóst við sigri
• 'Jm....
Sú grsin, sem við Islendingar
biðum eftir með mestri eftirvænt-
ingu var að sjálfsögðu 200 m
hlaupið, en enginn okkar bjóst við
íslenskum sigri. Við skulum nú
sleppa öllum bollcileggingum, þul-
urinn tilkynnir að 200 metra
hlaup sé næsta grein og þátttak-
endurnir koma gangandi inn á
völlinn. Brautarskiptingin var
þannig: Haukur var á 1. braut,
Strandberg á 2., Lundqvist á 3.,
Bloch á 4., Tranberg á 5. og Hedin
á 6. braut. Þegar hlaupararnir
höfðu grafið rásholurnar og voru
komnir úr æfingargöllunum þá
hrópuðum við strákarnir „Áfram
ísland" og Haukur veifaði til okk-
ar, býsna rólegur að okkur fannst.
Það hefur e.t.v. verið vegna þess
að flestir álitu að hann yrði nú síð-
astur hvort eð var.
Haukurfékk
versta viðbragðið
Hlaupararnir taka sér stöðu og
skotið reið af. Lundqvist og Tran-
berg náðu áberandi bestu við-
bragði, en Haukur og Strandberg
lökustu, Haukur var þó enn seinni
af stað. Þegar 50 metrar voru bún-
ir voru Tranbergog Lundqvist enn
vel fyrstir, næstur var Bloch, en
Strandberg og Haukur síðastir.
Hedin, Svíþjóð tognaði í viðbragð-
inu, en haltraði áfram til að fá eitt
stig fyrir Svíþjóð. — Þegar 75
metrar voru eftir í mark var Tran-
berg enn fyrstur, en Lundqvist,
Bloch, Strandbergog Haukur allir
hlið við hlið. Þá var það sem Hauk-
ur fór að vinna verulega á, hans
glæsilega endasprett stóðst eng-
inn af keppinautunum, Hann
skaust fram úr öllum og sá, sem
sérfræðingarnir höfðj spáð síðasta
sætinu sneri dæminu við og sigr-
aði í hlaupinu með miklum glæsi-
brag á nýju íslensku meti 21,9 sek.
Hann bætti met Finnbjarnar um
2/10 úr sek. Tranberg varð annar
á 22,0 og Lundqvist 3. á 22,1 sek.
„Gamli" Strandberg, sem sigraði í
100 m daginn áður, varð nú að láta
sér nægja 4. sæti á 22,2, enda þótt
Svíarnir hefðu trúað því, að hon-
um tækist að sigra með sínum
gamla og fræga endaspretti.
Mikil fagnaðarlæti
Þegar hlaupinu var lokið brut-
ust út mikil fagnaðarlæti áhorf-
enda, yngsti keppandi mótsins
hinn 18 ára gamli íslendingur,
Haukur Clausen hafði sigrað
óvænt og með yfirburðum, eins
og sænsku blöðin orðuðu það dag-
inn eftir. Sænsku áhorfendurnir
fögnuðu Hauki innilega, þegar
hann hljóp til baka eftir æfingar-
búningnum og „Heia íslandl, Heia
ísland" hljómaði um þennan
fræga og gamla leikvang. Sænsku
blöðin töldu að Haukur og Hieta-
nen sigurvegarinn í maraþon-
hlaupinu hefðu notið mestra vin-
sælda á mótinu og við máttum
vissulega vel við una.
Það er gaman að geta þess í leið-
inni, að þessi glæsilegi árangur fé-
laganna var unninn nokkrum vik-
um eftir stofnun Frjálsíþróttasam-
bands Islands, en sambandið var
stofnað 16. ágúst 1947.
Örn Eiösson
skrifar
200 metra hlaupið eftir 75 metra: Frá vinstri: Bloch, Lundquist, Strandberg
og Haukur.
50 metrar i mark: Tranberg á 5. brauter enn fyrstur en Haukur vinnur stöð-
ugt á.
í martcinu: ItaftariMhraavað. Tranberg er annar og Lundquist þriðji.