Tíminn - 16.06.1968, Side 9
SUNNUDAGUR 16. júní 1968
TIMINN
25
í lok síðasta mánaðar hófst
alvarleg deila milli verkalýðsfé-
félaganna í Hafnarfirði og ís-
lenzka álfélagsins vegna fyrir
ætlana framkvœmdastjóra fyrir
tækisins um stofnun stéttarfé-
lags. Þetta álævintýri var al-
varlegt vegna þess, að ganga
átti freklega á samningsrétt
verkalýðsfélaganna. Enda fór
svo, eins og allir, sem eitthvað
þekkja til íslenzkrar verkalýðs
hreyfingar hefðu átt að vita, að
uppátæki framkvæmdastjórans
fór út um þúfur og samnings-
réttur verkalýðsfélaganna við
félagið var virtur af stjórn
þess.
Þótt ýmsar ytfirlýsingar hafi
verið birtar um þetta mál, er
I það svo einstakt í sinni röð, að
mér þykir rétt að rekja það
nokkuð í þessum þætti.
A3 stofna eigið
stéttarfélag
Það var mánudaginn 27. maí,
að Ragnar Halldórsson, fram-
Kvæmdastjóri Álfélagsins, kall-
aði starfsmenn á sinn fund og
tilkynnti þeim, að hugmyndin
væri að stofna „starfsmanna-
félag', sem hefði þann megin-
tilgang að „koma fram sem
einustu viðsemjendur við
ÍSAL“ varðandi launa-
k j ö r , ráðningarkjör og
vinnuskilyrði. Það var ljóst, að
hér var um séttarfélag að ræða,
og þóttu ill tíðindi. Að vísu
hafði því verið réttilega spáð,
að af hinu erlenda félagi mætti
ýmislegt vænta í viðskiptum
við verkalýðshreyfinguna, en
enginn hafði séð fyrir slíka til
raun til að svjpta verkalýðsfé
lögin á þessu félagssvæði
samningsrétti sínum.
f langri greinargerð, sem
framkvæmdastjórinn birti eftir
að málið varð opinbert, taldi
hann upp ýmis lönd, þar sem
hann hefði kynnt sér þessi mál
en þeim mun meiri virtist van-
þekking hans á samskiptum
heildarsamtakanna á vinnu-
markaðinum hér í hans heima
landi.
í greinargerðinni gróf hann
upp einhverja samiþykkt, sem
árið 1956 hafði verið gerð í
skipulagsmálum á þingi Alþýðu
sambands íslands, og fjallaði
um vinnustaðinn sem undir-
stöðu í uppbyggingu verkalýðs-
samtakanna. Ef hann hefði ein-
hveria þekkingu á íslenzkum
verkalýðsmálum, myndi hann
auðvitað vita að þessi samþykkt
hefur verið grafin í fjölda ára,
og að á þeim 12 árum sem
liðin eru hafa ýmis önnur skipu
lagsform verið efst á baugi, en
engin breyting þó samþykkt.
Þetta skiptir þó iminna máli;
hitt er aðalatriðið, að hann virt
ist hafa komizt að þeirri furðu-
legu niðurstöðu, að forystu-
menn fyrirtækja ættu að
standa að stofnun verkalýðsfé-
laga. Og honum virðist auðsjá-
anlega einnig hafa komið til
hugar, að verkalýðshreyfingin
myndi láta slíkt líðast, og þar
með látið það leyfast, að frek
lega yrði gengið á samnings-
rétt hinna hefðbundmu verka
lýðsfélaga á svæðinu.
Það var auðséð á ummælum
þeim, er blöð höfðu eftir for
svarsmönnum Vinnuveitenda-
sam-bands íslands, að þeim þótti
heimskulega að farið, þótt ekki
vildu þeir afneita Álfélaginu.
Aftur á móti sást á fréttaflutn
ingi Morgunblaðsins, að það
var frekar hliðlhollt „málstað"
framkvæmdastjórans. Kom þar
enn einu sinni fram afstaða
þess blaðs, og þeirra afla, er
að baki þvi standa, til verka-
lýðshreyfingarinnar. Væri fé-
lagsmönnum verkalýðsfélaga
hollt að draga af því réttar
ályktanir.
Samstaða gegn
Álfélaginu
Verkalýðsfélögin í Hafnar-
firði snérust strax hart gegn
þessari óvæntu árás og Alþýðu
samband íslands lýsti yfir full
um stuðningi sínum, og sagði í
.ályktun, að „íslenzk verkalýðs
hreyfing mun ekki líða tilraun-
ir atvinnurekenda til afstkipta
af stéttarfélagsmálum verka-
fólks af því tagi, sem nú hefur
komið fram af hálfu forráða-
manna ÍSALs h. f.“
Höfuðþunginn í baráttunni
lagðist þó á herðar forystu-
manna félaganna í Hafnarfirði,
einkum þó Hermanns Guð-
mundssonar sem enn sýndi
ákveðni og dugnað í viðureign
inhi við atvinnurekendur.
Slagurinn stóð því ekki lengi,
og niðurstaða hans var stutt
yfirlýsing um algjöra uppgjöf
Álfélagsins. í þeirri yfirlýsingu
sagði, að íslenzka Álfélagið
„viðurkennir Verkakvennafélag
ið Framtíðina og Verkamanna-
félagið Hlíf í Hafnarfirði sem
samningsaðila um kaup og
kjör ófaglœrðs verkafólks hjá
ÍSAL. Ennfremur lýsti félagið
yfir því, að félagar ofan-
greindra verkalýðsfélaga hafi
forgangsrétt til allrar vinnu
verkafólks hjá ÍSAL.“
Vel á verði
En þótt íslenzka Álfélagið
hafi í þessum slag gefizt algjör
lega upp við klofningstilraun
sína, mun verkalýðshreyfingin
augljóslega draga ályktanir af
þessum atburði. Hann sýnir
fyrst og fremst, að við öllu má
búast af erlendum fyrirtækjum
á íslandi, og að halda verður
vel vöku um réttindi verkalýðs
hreyfingarinnar. Þessi tilraun
mistókst m. a. vegna þess
hversu klaufaleg hún var í
allri framkvæmd, og árásin aug
ljós.
Næsta árás getur verið
laumulegri og á öðrum sviðum.
Því þarf að vera vel á verði.
Elías Jónsson.
LAWN BOY
GARÐSLÁTTUVÉLIN.
Vél hinria vandlátu.
FLJÓTVIRK GANG-
SETNING:
Hin sjálfvifka kveikju-
stilling sór lyrir þvl..
Eitt handtak á auka-
inngjofina. létt tak I
gangsetningarsnur-
una — og LAWN-BOY
þýtur I gang.
SJÁLFSMURNING: V
Sérstaka ollu þarf el/í,' þvl
að eldsneytið er blahdað með
ollu. sem smyr mótorinn.
I hliðarhalla er þvl útilokað
að mótorinn bræði úr sér
vegna lltillar smurningar.
JAFN SLÁTTUR:
Hjólafestingar eru hreyfan-
legar, svo ójöfnur hafa ekkert
að segja fyrir sláttugæðin.
TAKIÐ Er'TIR, þér hafið aldrei
séð Jafngóðan slátt áður.
FULLKOMIN RYOVÖRN:
Hllfin utan um sláttuhnlfinn
og mótorhlffin eru úr sérstakri
málmblöndu. og þess vegna
getið þér hreinsað LAWN BOY
vélina einfaldlega með
garðslöngunni án þess að
ryð.mynd^st.
STERK MÓTORHLÍF QR
TREFJAPLASTI
og tvöföld hllf utan um sláttu-
hnlfinn, að framan og aftan. —
Þess vegna er LAWN BOY
öruggasta vélin sem þér fáið
i dag.
OUTBOARD MARINE — framleiðendur LAW BOY sláttuvélanna,
EVINRUDE og JOHNSON utanborðsmótoranna og snjósleðanna_______________________
eru meðal reyndustu framleiðenda mótora f heiminum. Allt, sem
þeir vita um vélar — sem er nógu mikið til að flytja stærstu báta
um vötn og höf, — hafa þeir notfært sér við byggingu LAWN BOY
sláttuvélarinnar.
En LAWN BOY er samt enginn utanborðsmótor, sem bjargar
drukknandi manni til lands. Hin langa;pg góða reynzla þeirra veitir
ótvirætt traust og öryggi. Sem sagt: vélin er frá gangsetningar-
snúru til útblástursrörs eingöngu gerð með slátt í huga. Þér getið
fullkomlega treyst LAWN BOY.
P ÞÖRHF®
LAWfNJ BDY
1 REYKJAVÍK SKÓLAVÖRÐUSTÍG 25
VELALEIGA
Simonar Símonarsonar. Simi 33544.
önnumst múrbrot, og flesta loftpressuvinnu.
Einnig skurðgröft.
FJÖLIDJAN HF.
Hagstæðustu verð.
Greiðsluskilmálar.
Verndið verkefni
íslenzkra handa.
FJÖLIÐJAN HF.
Sími 21195
Ægisgötu 7 Rvk.