Alþýðublaðið - 03.03.1990, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 03.03.1990, Qupperneq 6
6 Laugardagur 3. mars 1990 Jón Hjaltalín Magússon í landkynningarstörfum: Færði borgarstjóra Zlin stein úr Borgarfirði eystra — og leikstjóra leikskrá frá Þjóöleikhásinu. JÓN HJALTALÍN MAGNÚSSON formaður HSI hefur verið á fullri ferð með landkynningu fyrir Is- land. Hitti hann borgarstjóra Zlin að máli og afhenti honum að gjöf frá Handknattleikssam- bandinu forláta slípaðan stein úr Borgarfirði eystra. Hafði Jón að orði að eflaust kæmu steinar sér vel í landi þar sem mikil og góð uppbygging væri að hefjast. Jón fór einnig á fund leikstjóra eins hér í borginni, sem vinnur nú MÞBIIMIDIO ÁHMÍ HANDKNATTLEIK aö því að setja á svið leikrit Havels forseta, Garðveisluna. Færði Jón leikstjóranum að gjöf leikskrá End- urbygingarinnar eftir Havel frá Þjóðleikhúsinu. Þótti leikstjóra og leikurum vænt um þessa gjöf frá fjarlægu landi. Havel sjálfur er væntanlegur til Zlin í næstu viku til að vera viðstaddur frumsýningu á þessari uppfærslu leikrits síns, sem samið var 1963. Á laugardag mun Jón Hjaltalin af- henda verðlaun í ritgerðasam- keppni, sem HSI stóð fyrir meðal skólabarna hér í landi. Ritgerðar- efnið var ísland. Svo vildi til að 13 ára telpa, Clara Stebrovna frá þorpi hér í grennd við Zlin varð sig- urvegari í samkeppninni. Fararstjórn með limbragð í munninum Fararstjórn íslenska landsliðs- ins hefur í mörg horn að líta. I gær, fimmtudag, var fararstjórn- in öll með óheyrilegt límbragð í munninum. Ástæðan? Frí- merkja þurfti 6000 póstkort, sem landsliðið sendi vinum og stuðningsaðilum á Islandi. Kort- in fóru í póst á fimmtudag og eru því væntanleg í næstu viku til Is- lands. Pósthúsið hér í Zlin komst reynar í vandræði þegar keypt voru svo mörg frímerki, — innkaup sem þessi eru alis ekki venjuleg, hvorki hér né annars staðar. En frímerkjaarkir fundust fljótt og voru seld landsliðs- mönnum með brosi á vör. Hvað hugsar Bogdan? Talið að hann gefi Júlíusi Jónassyni og Jakob Sigurðssyni tækifæri gegn heimsmeisturum Júgóslava leiknum í dag — Kristján Arason verður með —- en | stjarnan Vukovic er á annarri löppinni f'rú Andrvsi fttunísyni, fréttamunni Al- þýúuhludsins, Zlin, Tékkóslúvukíu í ftœr: Islensku landsliðsmennirnir bíða þess nú spenntir hvernig Bogdan Kowalczyk hyggst stilla upp byrjunarliðinu i hin- um miklivæga leik gegn heims- meisturum Júgóslavíu í hand- knattleik, sem fram fer á laug- ardag. Talið er fullvíst að Júlíus Jón- asson fái að þessu sinni tækifæri á að sýna hæfni sína með liðinu. Þá er ekki útilokað að Jakob Sig- urðsson verði einnig með liðinu. Ekki er annað að sjá en að ís- land stilli upp sterku liði gegn Júgóslavíu. Kristján Arason haltraði lítilsháttar í dag, — en sagðist örugglega verða orðinn góður fyrir leikinn á morgun og verður tvímælalaust með á morg- un. Andstæðingar okkar, Júgóslav- ar, eru hinsvegar ekki eins heppn- ir. Veslin Vukovic, sá snjalli hand- knattleiksmaður, 32 ára, er nánast á annarri löppinni og ekki talið að hann verði búinn að ná sér fyrir leikinn gegn okkur. Það munár um minna en þann mann. „Mér hefur fundist það miklu erfiðara að standa fyrir utan og horfa á strákana. Það er annars ekki gott að segja hvað Bogdan er að hugsa. En fái ég tækifæri gegn Júgóslövunum, þá verð ég að standa mig,“ sagði Júlíus Jónas- son, þegar ég hitti hann að máli í dag. Landsliðshópurinn hefur það annars gott. í gærdag var farið í skoðunarferð í verksmiðju sem framleiðir listilega glervöru. Siggi Gunnars og Alfreð höfðu ekki áhuga á þessari heimsókn, en héldu niður í bæinn og keyptu þar málverk fyrir spottprís. Ýsunni þakkaður sigurinn! íslenskur matur er á borðum landsliðsmanna okkar í hand- knattleik, þrátt fyrir að hér sé boðið upp á hinn ágætasta mat. Fyrir Kúbuleikinn var síðasta máltíðin ýsa af Islandsmiðum, og er nú haft á orði að ,ýsa var það heillin", ýsunni er þakkaður sigurinnf Þá eru hér á borðum íslenskir ost- ar og smjör, — og á herbergjum sín- um maula landsliðsmenn harðfisk og hafa smjör með. Jens Einarsson, fyrrum mark- vörður með ÍR fer á milli Zlin og Zil- ina, sem er nágrannabær, en þar leika Rússar, A-Þjóðverjar og Pól- verjar, sem Bogdan og hans menn vilja gjarnan fá að sjá. Jens filmar leikina á myndband og sýnir lands- liðsmönnum á kvöldin. Fararskjóta hefur Jens, Volgu eina forníræga, 10—15 ára gamla og segir hann bensínstybbuna í bílnum ótrúlega. En á milli staða kemst Jens og fiytur með sér ómetanlegt efni. Alþjódleg skodanakönnun franska bladsins Libération: Sósíal-demókratar munu erfa Evrópu Framtíö Evrópu er í höndum sósíaldemókrata. Sam- kvæmt skoðanakönnun sem franska blaðið Libération stóð fyrir í sjö löndum Vestur- og Austur-Evrópu og í Sovétríkj- unum myndi meirihluti íbúa Evrópu kjósa sér sósíal-demó- kratískt þjóðfélag að búa í. Evrópubúar hafna hinum hreina kapítalisma — þeir vilja ekki lúta þjóðfélagi sem byggir á stefnu sem kennd er við Reagan eða Thatcher. Afgerandi meirihluti þeirra styður sósíaldemókratisma, jafnaðar- mennsku. Vestur-Þýskaland er fyrirheitna landið í augum Evrópubúa, og þeir hugsa fyrst til þess lands þegar minnst er á sósíal-demókratisma, ekki til Svíþjóöar eins og menn höfðu búist við. Sovétmenn eru þeir einu sem trúa á nýjan, breyttan og betri kommúnisma. EFTIR: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Könnunin var gerð með aðstoð blaða í Bretlandi, Vestur-Þýska- landi, Ítalíu, Spáni, Ungverjalandi, Póllandi og Sovétríkjunum (þó að- eins á Moskvu-svæðinu). Leitast var við að skilgreina viðhorf Evr- ópubúa til framtíðar álfunnar og spurningar vörðuðu það þjóð- skipulag sem fólk vildi sjá í sínu landi og áifunni allri til frambúðar, spurt var um sameiningu þýsku ríkjanna, kommúnismann og frið- arhorfur í álfunni. Niðurstaðan kom á óvart — Evr- ópubúar hafna algerlega kapítal- ismanum, þeir hafa svipaðar skoð- anir á endalokum kommúnism- ans, friðarhorfum, sameiningu þýsku ríkjanna og mjög jákvæð viðhorf ríkja í garð þess sem fólk kallar sósíal-demókratískt samfé- lag. Vestur-Þjóðverjar og Ungverj- ar eru hörðustu fylgismenn sósí- al-demókratismans, tæplega 70% í hvoru landi eru þeirri þjóðfélags- gerð fylgjandi. Þegar Evrópubúar, að undanskildum Sovétmönnum, hugsa til sósíal-demókratisma sjá þeir fyrst fyrir sér Vestur-Þýska- land. Næst á eftir Frakkland en menn hefðu haldið að Svíþjóð yrði án efa í einu af tveimur efstu sæt- unum þegar að þessu yrði spurt. Aðeins Sovétmenn nefna Svíþjóð fyrst sem dæmi um sósí- al-demókratísk land. Almannatryggingar og gott heilbrigðiskerfi einkenna Sósíal-demókratisma Þetta mun sennilega vekja nokkra undrun í Bandaríkjunum sem hingað til hafa litið á Vest- ur-Þýskaland sem bróðir í kapítal- ismanum — land þar sem sam- keppnislögmálið ríkir ofar öllu. Um leið vekur þetta upp spurning- ar um hvaða skilning Evrópubúar leggja í hugtakið sósíal-demókrat- ismi, fyrst þeir skilgreina Vest- ur-Þýskaland sem fyrirmyndarríki þeirrar gerðar, ríki sem lýtur sem stendur hægri stjórn Kristilegra Demókrata. Evrópubúar setja fyrst á for- gangslista sinn, þegar þeir skil- greina sósíal-demókratískt ríki, öflugt almannatryggingakerfi, gott heilbrigðiskerfi, opinbera íhlutun á vinnumarkaði til að koma í veg fyrir atvinnuleysi og eftirlaunaréttindi. Spánverjar héldu því fram að sósíal-demó- kratismi væri fyrst og fremst að- ferð til að auka jafnrétti í þjóðfé- laginu. Aðrar þjóðir settu þetta at- riði í annað eða þriðja sæti. Önnur atriði sem fólk setti í fyrstu þrjú sætin sem einkenni sósíal-demó- kratískra ríkja, eru t.d. þátttaka launþega í stjórnun fyrirtækja og almenn efnahagsleg velferð. Eng- inn nefndi miklar þjóðfélagslegar skyldur, háa skatta og launalækk- anir sem mikilvægan þátt í því sem einkennir sósíal-demókratis- mann. Sósíalismi og kapítalismi Demókratískur sósíalismi, það kerfi sem ríkir í t.d. Frakklandi og Spáni, er menn telja annað en só- sílademókratisma, hefur líka já- kvæða ímynd í augum Evrópu- búa. „Líberalismi", einhverskonar frjálslyndisstefna, þó ekki sú sem Amerikanar tíðka, hefur líka já- kvæða ímynd hjá Evrópubúum. Hvarvetna, nema í Bretlandi og Póllandi, þar sem spurt var var andstaða við kapítalsima meiri en stuðningur. Hér er átt við þann hreina kapítalisma sem ríkir í Bretlandi. 41% Breta voru honum fylgjandi, 37% á móti, í Póllandi voru 42% aðspurðra fylgjandi kapítalisma en aðeins 19% á móti. Kapítalisminn hafði neikvæðasta merkingu í hugum manna í Frakk- landi og á ítaliu, rétt rúmlega 50% voru á móti honum í þeim lönd- um. Ungverjar komu næstir með 47% andstöðu en Spánverjar fylgdu fast á eftir með 45% and- stöðu. Hjá Vestur-Þjóðverjum skiptist það þannig að 31% voru með kapitalísku kerfi, 40% á móti. Sameining þýsku ríkjanna Friöarhorfur í álfunni Þegar kemur að sameiningu þýsku rikjanna er greinileg samúð rikjandi í garð Þjóðverjanna. Jafn- vel í Sovétríkjunum er meirihluta- stuðningur við sameininguna en það kemur hinsvegar ekki á óvart að mikil andstaða er við samein- inguna hjá Pólverjum. 6 af hverj- um 10 Pólverjum eru henni and- snúnir. Næst mest er andstaðan í Bretlandi, en þar eru þó 6 af hverju 10 fylgjandi, í öðrum lönd- um er hlutfallið yfirleitt þannig að u.þ.b. þrír af hverjum fjórum eru hlynntir sameiningunni. Þrátt fyrir þennan vilja Evrópu- búa til að sameina að nýju þýsku ríkin virðast þeir ekki vera sér- staklega trúaðir á að friður haldist í álfunni. Kannski ekki að ófyrir- synju. Aðeins rétt rúmur meiri- hluti er bjartsýnn á friðvænleika í Evrópu, Italar eru sýnu bjartsýn- astir en þar eru rétt tæplega 6 af hverjum 10 þeirrar skoðunar að hræringarnar austan járntjaldsins sem var, verði til að tryggja varan- legan frið. Sovétmenn og Pólverj- ar eru þjóða svartsýnastar, aðeins 28% Sovétmanna eru bjartsýnir um að friður haldist og enn færri Pólverjar eru sömu skoðunar, að- eins 17%. Evrópa hefur verið vett- vangur tveggja heimsstyrjalda á þessari öld og greinilegt er að enn eimir eftir af ótta um að sagan geti endurtekið sig. Sérstaklega þegar tillit er til þess tekið að báðar styrj- aldarinnar hafa hafist á tímum mikilla pólitískra breytinga og upplausnar sem sannanlega ríkir í dag. Hlutverk Bandaríkjamanna Ein af mörgum athygliverðum niðurstöðum þessarar skoðana- könnunar er hvernig túlka má hlutverk Bandaríkjanna í framtíð- arhugmyndum Evrópubúa um Evrópu. í raun og veru má segja að Bandaríkjamenn muni fremur fjarlægjast Evrópu en nálgast á næstu árum. Þrátt fyrir það að Bandaríkjamenn hafi gjarna lifað í þeirri trú að áhrif þeirra og umsvif í Evrópu gerðu að verkum að Bandaríkin væru einskonar fyrir- mynd Evrópuríkja sem þau myndu elta í fyllingu tímans. Stefna Bandaríkjamanna hefur til langs tíma verið sú að fá bæði Evr- ópuþjóðir og Japani til að haga viðskiptum sínum, bæði útflutn- ingi og innflutningi, á sama hátt og Bandaríkjamenn gera sjálfir. . Nú verða Bandaríkjamenn hins- t vegar líklegast að gera sér grein fyrir því að Evrópa mun ekki — frekar en Japan — fylgja í fótspor þeirra í viðskiptaháttum og það getur orðið stór biti að kyngja fyr- ir þá. Grimmur sannleikur sem rennur upp fyrir þeim á síðasta áratug aldarinnar og tekur þá væntanlega nokkurn tíma að sætta sig við. Byggt á International Herald Tribune.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.