Alþýðublaðið - 17.03.1990, Síða 11

Alþýðublaðið - 17.03.1990, Síða 11
Laugardagur 17. mars 1990 11 Nírœöur í dag: Elias Sigfússon frá Vestmannaeyjum Kldhuginn Klías Sigfússon er ní- ræður í dag. Það er ekki auðvelt fyrir mann sem fæddist um það leyti er Klías var orðinn fimmtug- ur að ætla nú fjörutíu árum seinna að skrifa um hann níræðan. Klli eins og hann er oftast kallaður heitir fullu nafni Þórður Klías og lengst af bjó hann í Vestmannaeyj- um ásamt konu sinni Guðfinnu Kinarsdóttur sem fædd er 22. júlí 1906. A uppvaxtarárum minum kom ég oft sinnis á heimili þeirra hjóna við Hásteinsveg, enda var mikill samgangur á milli þeirra hjóna og foreldra minna, þar voru dægur- málin rædd og oft tengdist það umfjöllun um málefni verkalýðs- ins og jafnaðarstefnuna. Klli var á þeim árum í forystu Al- þýðuflokksins í Vestmannaeyjum, tók þátt í bæjarmálastarfsemi flokksins af alefli og ósérhlífni, jafnt og því sem hann tók virkan þátt í starfsemi Verkalýðsfélags- ins, jafnframt sem hann var einn stofnenda Sjómannafélagsins Jöt- uns og fyrsti formaður þess. A seinni árum sinum hér í Vest- mannaeyjum starfaði Klli hjá Vinnslustöðinni hf., við alhliða störf sem verkstjóri. Þau hjónin fluttust búferlum frá Vestmanna- eyjum á sjöunda áratugnum til Reykjavíkur, og þar búa þau nú í íbúðum aldraðra að Dalbraut 18. Ég veit til þess að fljótlega eftir komuna til Reykjavíkur tók Klli upp samstarf við alþýðuflokks- menn í Reykjavík og hefur tekið virkan þátt í starfsemi flokksins allt til þessa dags. Forystumenn flokksins leita oft ráða hjá Klla og þá er ekkert tví- nón um að ræða hjá Klla, afdrátt- arlaus afstaða til hvers málefnis, ígrunduð af manni með áratuga reynslu af verkalýðsmálefnum og hugsjón jafnaðarstefnunnar og minnist ég þess er Vilmundur heit- inn Gylfason tjáði mér hve gott væri að ræða við Klla og leita ráða. A þessum merku tímamótum Klla vil ég fyrir hönd okkar jafnað- armanna í Vestmannaeyjum, þakka honum fyrir góð samskipti, fórnfýsi og vilja við að vinna jafn- aðarstefnunni allt. Klli, við hér í Vestmannaeyjum óskum þér hjartanlega til ham- ingju með níutíu árin og megið þið Finna hafa það sem best. Þorbjörn Pálsson, bæjarfulltrúi Vestmannaeyjum. Fyrir hönd okkar íslenskra jafn- aðarmanna sendi ég Klíasi Sigfús- syni heillaóskir í tilefni níræöis- afmælisins. Þeim heillaóskum fylgja einnig hugheilar þakkir mínar fyrir eftirminnileg kynni af heilsteyptum manni og staðföst- um jafnaðarmanni. Kynni okkar hófust að marki þegar ég var ritstjóri Alþýðublaðs- ins á árunum 1979—182. Hann hafði þá iðulega simasamband, gagnrýndi og leiðbeindi um mál- flutning og miðlaði af reynslu sinni. Sérstaklega var fróðlegt aö ræða við Klías um sögu flokks- og verkalýðshreyfingar og þá lær- dóma sem læra mætti af þeirri sögu. Klías var lengi í fylkingarbrjósti jafnaðarmanna og verkalýðsfé- lagsins í Kyjum á erfiðum tímum kreppu og uppgjörs við trúaða áhangendur Sovétrúboðsins, sem um skeið voru öflugir í Kyjum. Þá reyndi á staðfestu, þrautseigju og baráttuþrek — og pólitíska skarp- skyggni. Þetta allt hafði Klías til að bera í ríkum mæli. Það lýsir Klíasi einna best að hann átti alltaf auövelt með að blanda geði við ungt fólk, skiptast á skoðunum við það og miðla því af reynslu sinni — án þess að pre- dika yfir hausamótum þess eöa þykjast réttbær til að hafa vit fyrir því. Kn hann hafði áhrif — með rökfestu sinni og sannfæringar- krafti. Fundum okkar Klíasar hefur því miður fækkað hin seinni misserin. Kn mér eru minnisstæð samtöl okkar frá fyrri tíð og er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast þessum heilsteypta hugsjóna- manni. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins. Knda þótt ég sé löngu búinn að leggja frá mér pennann, finnst mér að ég geti ekki látið hjá líða að senda þér á níræðisafmælinu innilegustu afmælisóskir með þökkum fyrir áratugalanga sam- fylgd og sameiginlega baráttu fyr- ir góöum málstaö undir merkjum jafnaðarstefnunnar. Lifðu heill í hárri elli! Hannibal Valdimarsson. og íbúðarkaup Lög um húsbréfaviðskipti gilda um kaup og sölu notaðra íbúða, sem eiga sér stað eftir 15. nóvember 1989. Hvað eru húsbréf? Húsbréf eru skuldabréf sem seljandi íbúðar fær hjá húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar ríkisins, í skiptum fyrir fasteignaveðbréf, sem kaupandi íbúðarinnar gefur út. Hvemig fara íbúðarkanp fram? m a VGreiðslumat. ' Tilvonandi kaupandi verður aö sækja um mat á greiðslugetu sinni til ráðgjafastöðvar Húsnæðisstofnunar. /\ *■) \ Skrifleg umsögn. ^ \ Að fenginni skriflegri umsögn ráðgjafastöðvarinnar, þar sem m.a. er tilgreint hugsanlegt kaupverð íbúðar, er tímabært að skoða sig um á fasteignamarkaðnum. íbúð fundin - gert kauptilboð. A Þegar seljandi hefur gengið að tilboði, sækir tilvonandi kaupandi um skuldabréfa- skipti við húsbréfadeildina, þ.e. að skipt verði á fasteignaveðbréfi, útgefnu af kaupanda og húsbréfum, sem verða eign seljanda. Fasteigna- veðbréfið getur numið allt að 65% af kaupverði íbúðarinnar. Afgreiðsla húsbréfadeildarinnar. ^ \ Húsbréfadeild metur veðhæfni íbúðarinnar og matsverð og athugar greiðslugetu væntanlegs íbúðarkaupanda með tilliti til kaupverös. Samþykki hún kaupin sendir hún væntanlegum kaupanda fasteignaveðbréfið til undirritunar, útgefið á nafni seljanda. \Kaupandinn lætur þinglýsa kaupsamningnum. /\ \ Seljandi lætur þinglýsa \ \ fasteignaveðbréfinu. /\ \ Kaupsamningur undirritaður - ^\ ° \ fasteignaveðbréf afhent seljanda. (búðarkaupandi og íbúðarseljandi gera með sér kaupsamning og seljandinn fær afhent fasteigna- veðbréfið. i fasteigna- veðbréfi fyrir húsbréf. /\ O, \Greiðslur kaupanda hefjast. V______\ Húsnæðisstofnun innheimtir afborganir af fasteignaveðbréfinu af kaupandanum. Þær hefjast á 2. almennum gjalddaga frá útgáfudegi fasteignaveðbréfsins, en gjalddagar eru 4 á ári. Fram að 15. maí 1990 eiga þeir einir aðgang að húsbréfakerfinu sem sóttu um húsnæðislán hjá Húsnæðisstofnun ríkisins fyrir 15. mars sl. og hafa lánsrétt. SAMÞYKKI HÚSNÆÐISSTOFNUNAR ER SKILYRÐI. Það er skilyrði fyrir skuldabréfaskiptum, að greiðslugeta hlutaðeigandi íbúðarkaupanda og veðhæfni fbúðar hafi verið athuguð áður en íbúðarkaup eiga sér stað og að húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar samþykki íbúðarkaupin. HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS HUSBREFADEILÐ SUÐURLANDSBRAUT 24 -108 REYKJAVIK • SIMI • 696900

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.