Alþýðublaðið - 17.03.1990, Blaðsíða 13

Alþýðublaðið - 17.03.1990, Blaðsíða 13
Laugardagur 17. mars 1990 13 Svipmynd Hún var orðin fótboltastelpa fjögurra ára gömul „Ég verö aö reyna að hætta, og þaö er hreint ekkert skemmtilegt að hverfa frá þessum góða hópi sem við erum með hjá Stjörnunni, þetta er gott félag og því er vel stjórn- að," sagði íþróttamaður Garðabæjar 1989, Erla Rafnsdóttir, þegar ALÞYÐUBLAÐIÐ hafði tal af henni í gær. Erla er ekki aldin að árum, — hún hélt upp á 26 ára afmælið sitt á þriðjudaginn var. En hún hefur lent í íþróttaslysum og slitið kross- bönd, sem þýðir endi íþróttaferils hennar sem keppnismanneskju. ,,Ég hef ekki hugsað mér að hætta að hreyfa mig, það er öðru nær," sagði Erla í gær, ,,en ég verð að vera raunsæ svona einu sinni," segir hún og hlær. Þrátt fyrir meiðslin sem hún hlaut fyrir 3 ár- um hefur hún haldið áfram keppni og æfingum til þessa, — og náð miklum og góðum árangri samt. Viðskiptafræðinám áfram, — eða að hella sér í vinnu?_____ Erla er hressileg ung kona, — hún lýkur væntanlega prófi frá Viðskiptadeild Háskóla Islands i vor. Um framhaldið segist hún ekki vita — hún þurfi að velja á milli þess að fara í framhaldsnám, eða að fara út á vinnumarkaðinn og hagnýta sér nám sitt. í fríum frá námi hefur Erla unnið hér og hvar, m.a. í Reiknistofu bankanna, í Heilsugarðinum í Garðabæ og við leikjanámskeið bæjarfélagsins. Fjögurra ára knattspymustelpa, — fyrirmyndar iþrottakona En hvenær kviknaði íþrótta- áhuginn? Fjögurra ára gömul var Erla far- in að sparka fótbolta á lóðinni við heimili fjölskyldunnar við Alfta- mýri í Reykjavík. Tíu ára gömul vann hún ásamt félögum sínum sigur í 4x100 metra boðhlaupi á íþróttamóti sem haldið var í tilefni af 1100 ára afmæli íslandsbyggðar. Aðalgreinar hennar hafa þó verið handknattleikur og knattspyrna, — en fjölhæf hefur hún alla tíð ver- ið. Gunnar Einarsson, íþróttafull- trúi í Garðabæ segir um Erlu að hana prýði flestir góðir kostir íþróttamanns. Hún hafi stundað æfingar samviskusamlega og ein- beiti sér til að ná árangri. Hún sé þolinmóð og þrautseig. Hún gefist ekki upp við mótlæti. Hún sé hvetjandi og uppbyggjandi fyrir leikmennina í kringum hana og styrki þannig liðsandann og liðs- heildina. Svona eiga íþróttamenn einmitt að vera. Löng afrekaskrá í mörgum íþróttagreinum Erla segist hafa stundað keppni með mörgum félögum, — Ár- manni í frjálsum íþróttum, síðan með ÍR í Breiðholtinu í handbolta og varð Islandsmeistari í 2. deild þar. Þá var það að stúlkurnar tvístruðust í allar áttir, gengu sum- ar í önnur félög, og þá var ekki um annað að ræða fyrir Erlu en að ganga í Fram. Með því félagi varð hún Islandsmeistari og hefur alls unnið þann titil þrisvar. Þá keppti hún með Breiðabliki í Kópavogi í knattspyrnu — og loks Stjörnunni, sem hún segir sitt uppáhaldsfélag. Erla keppti í knattspyrnu með Breiðabliki. í þeirri grein hefur hún orðið Islandsmeistari 12 sinn- um, en 5 sinnum í 2. sæti, þrívegis bikarmeistari. Með landsliðum í handbolta og fótbolta hefur hún oft leikið. Tólf sinnum með fótboltaliðinu og hef- ur verið fyrirliöi liðsins. í hand- boltanum eru landsleikirnir snöggtum fleiri, 64 auk 5 ung- lingalandsleikja. Með handbolta- landsliðinu hefur Erla leikið sem fyrirliði. í báðum þessum greinum hefur Erla verið feiknmikill markaskorari. Það er því ekki að undra að henni hlotnist sæmdarheitiö íþróttamaður Garðabæjar i ár — og óskum viö henni til hamingju með titilinn. Erla Rafnsdóttir, íþróttamadur Garðabæjar 1989. Erlci Rafnsdóttir — íþróttamaöur Garöabæjar 1989 Þjóðminjaróð, fornleifanefnd Svavar Gestsson, menntamála- |ráðherra, hefur skipað þjóð- minjaráð og fornleifanefnd sam- kvæmt nýjum þjóðminjalögum, sem tóku gildi um síðustu ára- mót. Hlutverk þjóðminjaráðs er að fara með yfirstjórn þjóöminjavörslu i landinu, marka henni stefnu og gera langtímaáætlanir. Formaður þjóð- minjaráðs er Gunnlaugur Haralds- son en ásamt honum eiga Inga Lára Baldvinsdóttir, Kristinn Magnússon, Margrét Hvannberg og Sveinbjörn Rafnsson sæti í ráðinu. Þjóðminja- ráð er jafnframt stjórnarnefnd Þjóð- minjasafns Islands. Fornleifanefnd er ætlaö að móta stefnu og gera áætlanir um forn- leifavörslu og fornleifarannsóknir fyrir landið í heild. Þá veitir nefndin leyfi til staðbundinna og tímabund- inna fornleifarannsókna. í fornleifanefnd sitja Sveinbjörn Rafnsson, formaður, Margrét Hall- grímsdóttir, Þór Magnússon, Guð- mundur Ólafsson og Inga Lára Bald- vinsdóttir. Lyfjqfyrirtœkiö Delta yfirtekur Toro: Erum að verjast tapi — segir stjórnarformadur Delta hf. Frá og með deginum í gær yfir- tók lyfjafyrirtækið Delta hf. rekstur lyfjafyrirtækisins Toro hf. að því er segir í sameiginlegri fréttatilkynningu frá fyrirtækj- unum. „Þetta er varnaraðgerð, við reynum að verja okkur áður en við förum að tapa,“ sagði Werner Rassmusen stjórnarfor- maður Delta hf. í samtali við Al- þýðublaðið í gær. Hann bætir við: „Það verður nógu erfitt að keppa við erlenda aðila svo ekki sé talað um að keppa innbyrðis líka. Þessvegna er þessari að- ferð beitt.‘ í áðurnefndrl fréttatilkynningu kemur fram aö íslenskir lyfjafram- leiöendur telja mjög að sér vegið um þessar mundir, annars vegar með hertum verðlagshöftum en hinsvegar með útgáfu svokallaðra bestukaupalista sem þeir telja að opni erlendum samheitalyfjum fyr- irhafnarlaust aögang að íslenskum lyfjamarkaði. Áöurnefnd fyrirtæki eru sameinuö, að sögn forsvars- manna þeirra til að standast betur aukna samkeppni í kjölfar þessara ákvarðana stjórnvalda. Þessi bestukaupalisti er heiti þeirrar áherslu stjórnvalda að fara fram á það við lækna að þeir ávísi jafnan á ódýrasta lyf hverrar geröar og íslenskir lyfjaframleiðendur telja aö í mörgum tilfellum geti hann ver- iö þeim mjög óhagstæður vegna þess aö erlend stórfyrirtæki eigi auðvelt með að bjóða lægra verð en hinir smáu íslensku framleiðendur geta. Að auki sé listinn afar þröngur, þar sé aðeins vísað á eitt lyf, jafnvel þó verömunur sé lítill, muni kannski nokkrum krónum til eða frá. Wern- er Rassmusen segir viö Alþýðublaö- iö að vegna þessa geti erlendir fram- leiðendur komist auöveldlega inn á markað hér, jafnvel án þess að kynna lyf sin vegna þess að verðiö eitt ráði. Sem stendur greiða almennir sjúklingar 750 krónur fyrir lyf, aldr- aðir og öryrkjar greiða 230 krónur. I fyrra voru samsvarandi tölur 580 krónur og 170 krónur. Ávísi læknir á ódýrasta lyf samkvæmt hinum svo- kallaða bestakaupalista er gjaldiö það sama og í fyrra, að öðrum kosti hækkar það í þær tölur sem fyrst voru nefndar. Frá verksmiöju Delta i Hafnarfiröi. — Þar er þessi nýja vélasamstæöa nýlega komin í notkun. A-mynd E.ÓI.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.