Alþýðublaðið - 21.03.1990, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 21. mars 1990
STOFNAÐ
1919
45. tbl. 71. árg.
«
Hoppar af þegar á móti blæs
Kristján Örn segir sig úr stjórn HSÍ:
— segir Jón Hjaltalín. Deilt um skipulag HSÍ, ráöningu
þjálfara og óvissa í þjálfaramálum kvenna.
Talsverður titringur
virðist nú vera innan
stjórnar Handknatt-
leikssambands íslands.
Einn stjórnarmanna
þess, Kristján Orn Ingi-
bergsson, hefur sagt sig
úr stjórn HSÍ. Kristján
kvaðst ekki vilja tjá sig
um þetta mál en sagðist
ekki hafa treyst sér til að
starfa þar áfram við
vinnuaðstæður sem hon-
um væri boðið upp á.
Blaðið hefur eftir áreið-
anlegum heimildum að það
séu fyrst og fremst vinnu-
brögð formanns HSÍ, Jóns
Hjaltalíns, sem gagnrýnin
beinist að. Hann taki
ákvarðanir án þess að ræða
við nokkurn mann og sé
allt of einráður. Kristján
Örn sem gagnrýndi forystu
HSÍ á stjórnarfundi á
sunnudaginn lagði þar m.a.
til að öll landsliðsnefndin
segði af sér en það var fellt
með öllum greiddum at-
kvæðum gegn hans eigin.
„Viðkomandi aðili virðist
vera gjörsamlega á skjön
við alla stefnumótun hjá
stjórn HSÍ og virðist vera sá
eini sem nú hoppar af þeg-
ar á móti blæs,“ sagði Jón
um afsögn Kristjáns.
Aðspurður um gagnrýni
á vinnubrögð hans sagði
Jón hana vera komna frá
Kristjáni Erni. „Þessi aðili
var heldur ekkert að nefna
það að ég er búinn að vera
að vinna að því að fá
Heimsmeistarakeppnina í
handbolta hingað til lands
eða var með neitt þakklæti
í minn garð. Þvert á móti er
þessi maður búinn að
vinna gegn stefnu HSÍ und-
anfarin ár og eitt það nýj-
asta sem hann vann að, var
að allir Lottópeningarnir
rynnu til félaganna í stað
unglingastarfseminnar og
kvennalandsliðsins. Þetta
er alls ekki i fyrsta sinn sem
hann hefur verið að gagn-
rýna stjórn HSÍ."
Þá hefur sætt gagnrýni
hvernig staðið var að því að
leita eftir nýjum þjálfara
landsliðsins eftir að Bogd-
an hætti. Jón Hjaltalín
sagði um ráðningarmálin
að þar hefði komið upp
ákveðinn misskilningur
þess eðlis að menn héldu
að það væri hægt að halda
því leyndu eftir að lands-
liðsnefnd karla pg fram-
kvæmdastjórn HSÍ væri bú-
in að taka þá stefnu á fundi
að leita til Þorbergs Aðal-
steinssonar en reynslan
hefði sýnt að svo væri
ekki.“
Kristján Örn sagði að á
fundinum hefðu ekki beint
verið deilt um kvenna-
landsliðið „en því er ekki
að leyna að Handknatt-
leikssambandið hefur ekki
haft neina markaða stefnu í
neinum málum til að vinna
eftir nema gagnvart
A-landsliði karla. Það er
það sem ég hef gagnrýnt í
mörg ár og gerði kannski
háværast á þessum fundi.
Menn hefðu í reynd enga
stefnu til að fara eftir. Menn
væru alltaf með henti-
stefnu frá degi til dags."
Um stefnuleysi HSI sagði
Jón: „Það var skipuð nefnd
sem á að fara í saumana á
undirbúningnum fyrir í
Tékkóslóvakíu og þátttöku
liðsins þar og móta stefnu
fyrir A-landslið karla fram
til ársins 1995. Fyrir
nokkru var skipuð önnur
nefnd sem átti að móta
stefnu í sambandi við efl-
ingu handknattieiks
stúlkna en sú nefnd hefur
ekki ennþá skilað sinni
álitsgerð."
Aðspurður um hvort
kvennalandsliðsþjálfaran-
um Slavko Bambir hefði
verið sagt upp sagði Jón að
það hefði verið ákveðið á
sambandsstjórnarfundi að
hann væri starfsmaður HSÍ
til 31. apríl. Það yrði rætt
við hann á næstunni af
landsiiðsnefnd kvenna og
stúlkna um mörkun stefnu í
þjálfun kvenna- og stúlkna-
landsliðsins.
Jón sagði ennfremur að
„hins vegar kom mikil
gagnrýni fram hjá þeim
aðila sem sagði sig úr
stjórninni á að landslið
kvenna hefði ekki unnið
samkvæmt þeirri stefnu
sem var mótuð fyrir tveim-
ur árum, þ.e. að leggja aðal-
áhersluna á eflingu hand-
knattleiks stúlkna í stað
þess að leggja svona mikla
áherslu á kvennalandsliðið.
Ég get alveg tekið undir
það með þessum aðila."
Átta bíta árekstur
Átta bílar, þar affjorir vörubilar og ein rúta, skullu saman ihriðarkófinu á Kjalarnesi um tvöleytið igær. Upphafíð að árekstrin-
um var það að ökumaður fólksbils nam staðar vegna dimmviðris. Vörubill sem á eftir kom, rakst þá aftan á fólksbílinn og
síðan rakst hver bíllinn aftan á annan. Allir bilarnir voru á leið til Reykjavíkur. Rútan frá Borgarnesi lenti i þessum árekstri
og barn sem þar var farþegi meiddist litils háttar. Að öðru leyti urðu ekki slys á fólki. Bílar skemmdust hins vegar mikið og
m.a. er rútan talin nánast ónýt. Tjónið er álitið nema a.m.k. einhverjum milljónum króna. A-mynd E.ÓI.
Sjóslys vid Vestmannaeyjar:
Fimm bjargað
en einssaknað
Sjöstjarnan VE sökk sudvestur
af Vestmannaeyjum í gœrmorgun
Fimm skipverjum var
bjargað um borð í lóðs-
bátinn í Eyjum, en eins
er saknað, eftir að neta-
báturinn Sjöstjarnan VE
sökk suðvestur af Vest-
mannaeyjum um tíu leyt-
ið í gærmorgun.
Báturinn fékk á sig brot-
sjó austur undir Elliðey og
lagðist við það á hliðina.
Aftaka veður var og skip-
verjum gafst ekki ráðrúm
til að senda út neyðarkall.
Lóðsbáturinn í Eyjum
fann annan tveggja gúmm-
íbjörgunarbáta Sjöstjörn-
unar um eitt leytið í gærdag
eftir að sendingar frá sjálf-
virkum sendi björgunar-
bátsins höfðu borist flug-
turninum í Vestmannaeyj-
um. í bátnum voru fimm af
sex skipverjum Sjöstjörn-
unnar. Varðskip fann síðan
hinn gúmmíbjörgunarbát-
inn mannlausan. Leit
stendur nú yfir af skipverj-
anum sem saknað er.
Prófkjör Nýs vettvangs og Alþýduflokksins:
Slagur um efstu sætin
Bjarni P. Magnússon gefur kost á sér í fyrsta sæti listans.
Vitaö er aö Ólína Þorvaröardóttir sœkist einnig eftir því
sæti og e.t.v. einnig Kristín Á. Ólafsdóttir.
Bjarni P. Magnússon gef-
ur kost á sér í sameigin-
legu prófkjöri Nýs vett-
vangs og Alþýðuflokksins
til Borgarstjórnarkosn-
inga og hyggst sækjaat eft-
ir fyrsta sætinu. Þetta
kemur fram í grein sem
Bjarni skrifar í Alþýðu-
blaðið í dag.
Eftir þessa yfirlýsingu
Bjarna er nokkuð ljóst að tek-
ist verður á um skipan efstu
sæta á listanum því komið
hefur fram að Ólína Þorvarð-
ardóttir mun einnig sækjast
eftir fyrsta sætinu. Aður hafa
Kristín Á. Ólafsdóttir og
Hrafn Jökulsson ákveðið að
gefa kost á sér í prófkjörinu.
Þótt hvorugt þeirra hafi bein-
línis lýst því yfir að þau sækist
eftir ákveðnum sætum, þykir
nokkuð ljóst að Kristín hefur
augastað á efsta sæti listans.
Bjarni P. Magnússon, sem
er núverandi borgarfulltrúi
Alþýðuflokksins, segist í
grein sinni hafa sagt við Krist-
ínu Á. Ólafsdóttur að þau
ættu bæði að sækjast eftir
efsta sæti listans og sjá hver
vilji kjósenda sé í því efni.
„Prófkjörið á að vera opið og
lýðræðislegt,” segir Bjarni P.
Magnússon meðal annars í
grein sinni.
Sjá bls. 5.