Alþýðublaðið - 21.03.1990, Síða 6
éttit í statta máli Fréttir í statta máti Fréttir í stuttu máli
Miðvikudagur 21. mars 1990
Hvaða leikreglur
gilda?
„Abyrgð framleiðenda og ann-
arra sem nálægt matvælafram-
leiðslu koma er mikil og að sjálf-
sögðu er neytendum umhugað um
að tryggt sé að matvæli séu örugg til
neyslu. Hlutverk opinberra eftirlits-
aðila er að fylgjast með að settum
reglum sé fylgt. Umfjöllun í fjölmiðl-
um verður að vera á faglegum
grunni og mikilvægt er að fjölmiðl-
ar geri sér grein fyrir ábyrgð sinni
og viðhafi vönduð vinnubrögð," seg-
ir í boðsbréfi Félags íslenskra iðn-
rekenda vegna ráðstefnu félagsins
næstkomandi þriðjudag, en þar
verður fjallað um öryggi matvæla,
eftirlit og aðgerðir opinberra aðila
og samskipti fyrirtækja, fjölmiðla
og eftirlitsaðila. Tilgangur ráðstefn-
unnar er að efla tengsl þessara að-
ila.
Vesturbæjarútibú
Landsbankans
flytur
Landsbankinn hefur um áratuga
skeið rekið Vesturbæjarútibú sitt
innan veggja Háskólabíós. Á mánu-
daginn flutti útibúið, en ekki langt,
það er nú í austurhluta bíóhússins,
nýbyggingunn'- Bankinn fær þar
betri aðstöðu en fyrr og eykur þjón-
ustu sína, m.a. verður hraðbanka
komið fyrir í anddyrinu. Jón Júlíus
Sigurðsson, útibússtjóri segir að í
útibúinu séu nú nær 10 þúsund
reikningar í viðskiptum. Hjá útibú-
inu starfa 18 manns, hefur fækkað
talsvert á síðari árum með tölvu-
tækninni.
Frægur sellóleikari
hjá Sinfóníunni
Á fimmtudagskvöld eru elleftu
áskriftartónleikar Sinfóníuhljóm-
sveitar íslands í Háskólabíói. Á tón-
leikunum er finnski sellóleikarinn
Arot Noras einleikari, en hann er
um fimmtugt og hefur leikið á hljóð-
færi sitt frá 5 ára aldri og er í hópi
frægustu sellóleikara heims. Á tón-
leikunum verða flutt verk eftir
landa Noras, Jean Sibelius, — einnig
eftir Haydn, Sallinen og Ravel.
Hljómsveitarstjóri er Petri Sakari.
+
Útför tengdamóður minnar,
Guðrúnar Valdimarsdóttur,
fyrrverandi Ijósmóður,
Dalbraut 27,
fer fram frá Háteigskirkju
fimmtudaginn 22. mars kl. 13.30.
Að ósk hinnar látnu eru blóm afþökkuð, en þeir sem
vildu minnast hennar eru beðnir að láta
Slysavarnafélag Islands njóta þess.
Fyrir hönd systkina hennar, sonarbarna
og fjölskyldna þeirra.
Christina Kjartansson.
Agnes Jónsdóttir gjaldkeri afgreiðír einn fyrsta viðskiptavininn sem kom í
Vesturbæjarútibúið á mánudagsmorguninn.
RAÐAUGLÝSINGAR
Menntamálaráðuneytið
Styrkur til háskólanáms í Japan
Japönsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslend-
ingi til háskólanáms í Japan háskólaárið 1991—92
en til greina kemur að styrktímabil verði framlengt
til 1993. Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið háskóla-
prófi eða sé kominri nokkuð áleiðis í háskólanámi.
Þar sem kennsla við japanska háskóla fer fram á
japönsku er til þess ætlast að styrkþegi leggi stund
á japanska tungu um a.m.k. sex mánaða skeið. —
Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum
prófskírteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði,
skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölvhóls-
götu 4,150 Reykjavík, fyrir 30. maí n.k. Sérstök um-
sóknareyðublöð fást í ráðuneytinu.
Norrænir starfsmenntunarstyrkir.
Menntamálaráðuneyti Danmerkur, Finnlands, Nor-
egs og Svíþjóðar veita á námsárinu 1990—91
nokkra styrki handa íslendingum til náms við
fræðslustofnanir í þessum löndum. Styrkirnir eru
einkum ætlaðir til framhaldsnáms eftir iðnskólapróf
eða hliðstæða menntun, til undirbúnings kennslu í
iðnskólum eða framhaldsnáms iðnskólakennara,
svo og ýmiss konar starfsmenntunar sem ekki er
unnt að afla á íslandi.
Fjárhæð styrks í Danmörku er 15.500 d.kr., í Finn-
landi 24.000 mörk, í Noregi 21.200 n.kr. og í Svíþjóð
10.000 s.kr. miðað við styrk til heils árs.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneytinu,
Sölvhólsgötu 4,150 Reykjavík, fyrir 25. apríl n.k. og
fylgi staðfest afrit prófskírteina, ásamt meðmæl-
um. Sérstök eyðublöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið,
13. mars 1990.
FRÍKIRKJUSÖFNUÐURINN
í REYKJAVÍK
AÐALFUNDUR
safnaðarins verður haldinn í Fríkirkjunni laugardag-
inn 24. mars og hefst hann kl. 13:30.
Venjuleg aðalfundarstörf, tillögur til lagabreytinga
og önnur mál. (Sjá nánar í Fréttabréfi.)
Stjórnin
Menntamálaráðuneytið
Lausarstöður
við Háskólann á Akureyri
Við Háskólann á Akureyri eru lausar til umsóknar
eftirtaldar lektorsstöður:
1) Við heilbrigðisdeild tvær lektorsstöður í hjúkr-
unarfræði.
2) Við rekstrardeild lektorsstaða í þjóðhagfræði.
3) Við sjávarútvegsdeild lektorsstaða í efnafræði
og lektorsstaða í lífefna- og örverufræði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt rækilegri skýrslu um vísindastörf
umsækjenda, ritsmíðar og rannsóknir, svo og
námsferil og störf, skulu sendar menntamálaráðu-
neytinu, Sölvhóli, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík,
fyrir 17. apríl n.k.
Menntamálaráðuneytið
15. mars 1990
RARIK
RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Utboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum í eftir-
farandi:
RARIK-90003: Dreifispennar, 31,5 — 2000 kVA.
Opnunardagur: Fimmtudagur 26. apríl 1990
kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna rík-
isins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunar-
tíma og verða þau opnuð á sama stað að viðstödd-
um þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagns-
veitna ríkisins, Laugavegi 118,105 Reykjavík, frá og
með miðvikudegi 21. mars 1990 og kosta kr. 500,-
hvert eintak.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík.
Kjörskrá
til borgarstjórnarkosninga, er fram eiga að fara 26.
maí n.k., liggur frammi almenningi til sýnis í Mann-
talsskrifstofu Reykjavíkurborgar, Skúlatúni 2, 2.
hæð, alla virka daga frá 25. mars til 22. apríl n.k., þó
ekki á laugardögum.
Kærur vegna kjörskrárinnar skulu hafa borist skrif-
stofu borgarstjóra eigi síðar en 11. maí n.k.
Menn eru hvattir til að kynna sér, hvort nöfn þeirra
séu á kjörskránni.
Reykjavík, 20. mars 1990
Borgarstjórinn í Reykjavík
VEGHEFLAR
Tilboð óskast í 8 veghefla fyrir Vegagerð ríkisins.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Borgar-
túni 7, Reykjavík. Tilboð skulu berast á sama stað
fyrir kl. 11.00 f.h. þann 25. apríl 1990 merkt: „Útboð
3565/90" þar sem þau verða opnuð í viðurvist við-
staddra bjóðenda.
IIMiMKAUPASTOHMUN RÍKISIIMS
BORGARTUNI 7 105 r.C'. KJAVIK_
Alþýðuflokkskonur
Kópavogi
Hittumst og ræðum málin fimmtudagskvöldið 22.
mars nk. kl. 20.30 að Hamraborg 14a.