Alþýðublaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 1
Gleðilegt sumarí
Sumardagurinn fyrsti er aö sjálfsögdu hálfgerd tíma-
skekkja á dagatalinu okkar — en samt, mjög ánœgju-
leg skekkja. Sumarid er formlega hafid, klakinn er ad
hverfa, og sólin yljar œ betur. Þessar myndir Einars
Olasonar, Ijósmyndara Alþýdubladsins eru af Reyk-
víkingum ad fagna sumri í Hljómskálagardinum.
Ungir sem aldnir horfdu á — eda tóku þátt í 75. V'tda-
vangshlaupinu, sem Örn Eidsson skrifar um í þessu
bladi. Hljómsveitarmenn voru þarna í nánd vid
Hljómskálann sinn meö gullin hljódfœri. Semsagt
ánœgjulegur fyrsti sumardagur, — en dálítid napur.
Listamiðstöðin Straumur
Nánast undir veggjum álverksmiðjunnar í Straumsvík hefur
verið opnuð ný vinnustofa og listamiðstöð i Straumi, Listamið-
stöðin Straumur. Straumur er gamall bóndabær sem stendur
við Straumsvíkina. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á
gömlu bæjarhúsunum og útbúin glæsileg vinnuaðstaða fyrir
listamenn. Það eru listamennirnir sjalfir sem hafa haft forgöngu
um uppbygginguna en Hafnarfjarðarbær lét þeim í té aðstöð-
una og hefur styrkt framtak listamannanna verulega.
Sjá nánar umfjöttun bls. 7
Popparinn sem
slökkti banvænasta
eld Reykjavíkur
— S/ó bls. 3
A Imannavarnarnefnd Reykjcwíkur:
Hefur ekki sinnf
lágmnrksskyldum
— segir Nýr vettvangur
Nýr vettvangur gagn-
rýnir Almannavarnar-
nefnd Reykjavíkur harð-
lega í fréttatilkynningu
sem barst frá þeim í vik-
unni. Þar segir að sam-
kvæmt upplýsingum frá
Almannvörnum ríkisins,
sinni Almannavarnar-
nefnd Reykjavíkur ekki
lágmarksskyldum sín-
um og að hún sé talin ein
verst skipulagða al-
mannavanarnefnd
landsins.
I fréttatilkynningu frá Al-
mannavörnum ríkisins seg-
ir að þær hafi ekki gefið
neinar yfirlýsingar „um að
Almannavarnarnefnd
Reykjavíkur hafi ekki sinnt
lágmarksskyldum sínum
varðandi öryggismál og
viðbrögð við hættuástandi
í borginni." Þá segir í frétta-
tilkynningu Almannavarna
að enginn samanburður
hafi verið gerður á „störf-
um almannavarnanefnda í
landinu, þar sem áherslur i
störfum þeirra séu mjög
mismunándi og miðist við
ólíkar áhættur sem ógna á
hverjum stað.“
Hrafn Jökulsson fram-
bjóðandi Nýs vettvangs
segir að öll sú gagnrýni
sem Nýr vettvangur hafi
sett fram á Almannavarn-
arnefnd Reykjavíkur eigi
við rök að styðjast og að
upplýsingar séu fengnar
hjá starfsmönnum Al-
mannavarna og nefndar-
mönnum Almannavarnar-
nefndar Reykjavíkur.
í gagnrýni Nýs vettvangs
segir m.a: „Fundir í Al-
mannavarnarnefnd
Reykjavíkur hafa verið
strjálir og óskipulegir. Þess
eru dæmi aö heilt ár hafi
liðið milli funda hennar."
Eins segir: Engin ítarleg
áætlun er til vegna yfirvof-
andi hættuástands fyrir ný
borgarhverfi. Gildandi ítar-
áætlun er frá árinu 1976." I
fréttatilkynningu Al-
mannavarna segir hins
vegar: „Neyðaráætlun Al-
mannavarna Reykjavíkur
er frá árinu 1982, en ekki
1976."
Þá bendir Nýr vettvang-
ur á að það hljóti að hafa
verið borgaryfirvöldum
ljóst að hluti íbúðarbyggðar
við Grafarvog væri inni á
hættusvæði því á það hefði
verið rækilega bent þegar
meirihluti borgarstjórnar,
undir forystu Davíðs Odds-
sonar, ákvað að færa
byggðina í Grafarvogi nær
Aburðarverksmiðjunni.