Alþýðublaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 11
Laugardagur 21. apríl 1990
11
riðu fremstir á fákum sínum en á''
eftir fylgdu hestvagnar með prúð-
búnu, glöðu og veifandi fólki með
blátt blóð í æðum. Lífverðir og
fylgifiskar klæddust sérstökum
skrautbúningum frá því fyrir
seinni heimsstyrjöldina. Hafa bún-
ingar þessir einungis einu sinni áð-
ur verið notaðir. Það var með
naumindum hægt aö forða þeim
undan klóm þýska innrásarliðsins
sem hernam Danmörku 1940, en
það tókst.
I ráðhúsinu var drottningu færð
að gjöf frá Kaupmannahafnarborg
100 þús. krónur danskar í sjóð
Margrétar Danadrottningar og
prins Henriks, sem veitir styrki til
menningarlegra og félagslegra
málefna. Upphæðin var gefin til
þess að styrkir rynnu til lista-
manna Kaupmannahafnar. Einnig
fékk drottning að gjöf skúlptúr eft-
ir Hardy Jakobsen.
Krónprinsinn stoltur af
móður sinni____________________
Ekki var afmælisdagurinn al-
deilis á enda runninn, — hápunkt-
ur dagsins var galakvöldverður í
Kristjánsborgarsloti. Þar var með-
al gesta Vigdís Finnbogadóttir, for-
seti Islands, nýbúin að halda upp á
stórafmæli sjálf.
Eins og geta mátti var þarna
samankomið prúbúðið fólk
skreytt demöntum og djásnum.
Margrét drottning var að sjálf-
sögðu skærasta stjarna kvöldins,
klædd djúpbláum satínkjól með
demanta um hálsinn svo stirndi á.
Það var enginn vafi að þar fór
drottning og það glæsileg drottri-
ing.
Paul Schúlter hélt fyrstu ræðu
kvöldins og sagði m.a. að flestir
Danir þekktu dönsku konungsfjöl-
skylduna best allra, utan eigin fjöl-
skyldu, nútíma fjölmiðlun hjálpaði
hér upp á. Friðrik krónprins var
næstur í ræðustól og sagði m.a. að
foreldrar væru alltaf stoltir af
börnum sínum. Hinsvegar mætti
snúa dæminu við, ef börnin væru
stolt af foreldrunum, þá vildu þau
oft á tíðum ekki viðurkenna það.
,,En ég hef ekkert á móti því að
viðurkennna það að ég ér stoltur
af móður minni, drottningu Dan-
merkur," sagði krónprinsinn.
Drottningin flutti líka ræðu og
þakkaði sér sýndan sóma á afmæl-
isdeginum. Ennfremur þakkaði
hún syni sínum hans hlýlegu orð
og sagði að þeir bræður væru nú
að stíga fystu skrefin á þeirri braut
að létta á embættisskyldum for-
eldranna.
Að ræðum loknum var tekið til
við að bera konunglegan mat á
borð veislugestanna. Afmælisdeg-
inum lauk eins og best varð á kost-
ið, en hér í Danaveldi verða menn
áfram í hátíðaskapi næstu dagana
og hylla drottningu sína eins og
vert er.
Að sjálfsögðu þurfti einhver dansk-
ur „spaugari" að hóta sprengingu á
leið drottningar til Ráðhússins.
„Sprengjan" fannst, plastpoki full-
ur af rusli, sem lögreglumenn tos-
ast með á myndinni.
Við getum bœtt heiminn!
Ð A R
Um allan heim er haldið uppá 22. apríl 1990 sem „Dag jarðar“. Tilgangurinn með því er einfaldur: Að vekja athygli á því að
mengun og eyðilegging, sem virða engin landamæri, ógna lífi allstaðar ájörðinni. Þvíástandi ernauðsynlegt að breyta. Allar
ákvarðanir um framkvæmdir, smáar og stórar, þarf því að taka með tilliti til umhverfissjónarmiða. Þetta á við á Islandi jafnt
og annarstaðar. Hver þjóð hefur sinn hátt á aðgerðum í tilefni dagsins. Hér á Islandi hefur Borgarstjórn Reykjavíkur sam-
þykkt að efna til dagskrár til að vekja borgarþúa til umhugsunar og aðgerða í umhverfismálum.
FJÖLSKYLDUGANGA
UM ÖSKJUHLÍÐ
Sunnudaginn 22. apríl klukkan 14:00
Hressandi skemmtiganga, fyrir alla fjölskylduna um eina af perl-
um höfuðborgarsvæðisins, öskjuhlíðina.
• Gangan hefst klukkari 14:00, við nýja útsýnishúsið á Öskju-
hlíð. Farin verður skemmtileg hringferð um hlíðina undir leið-
sögn „göngustjóra" frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur og garð-
yrkjudeild borgarinnar.
• Að lokinni útiverunni verður haldin veisla við nýja útsýnishúsið í
Öskjuhlíð. Boðið verður uppá grillaðar pylsur, farið í leiki og
flutt tónlist.
• öllum er velkomið að virða fyrir sér stórkostlegt útsýnið úr nýja
útsýnishúsinu.
Þetta er kjörið tækifæri fyrir borgarbúa til að njóta útiveru saman
og sýna um leið í verki stuðning við baráttuna fyrir bættu
umhverfi.
TRÉ GRÓDURSETT
UM ALLA BORGINA
í tilefni af „Degi jaröar" hefur umhverfismálaráð Reykjavíkur
ákveðið að leggja til fjölda trjáa, eða ígildi 20 þúsund græðlinga,
sem íbúasamtök og hverfafélög munu gróðursetja víðsvegar um
borgina þann 9. júní í samráði við garðyrkjudeild Reykjavíkur-
borgar.
DAGSKRÁ UM UMHVERFISMÁL
í BORGARLEIKHÚSINU
Sunnudaginn 22. apríl klukkan 17:00
• Tónlist Skólakór Árbæjarskóla syngur undir stjórn Áslaugar
Bergsteinsdóttur
• Ávarp Davíð Oddsson, borgarstjóri
• iríndi Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands
• Tónlist Sigfús Halldórsson og Elín Sigurvinsdóttir flytja lög eftir
Sigfús
• Iríndi Matthías Johannessen, ritstjóri
Elísabet Þórisdóttir stýrir dagskránni.
Allt áhugafólk um umhverfismál er velkomið í Borgarleikhúsið
HUGMYNDABANKINN
ER ENN OPINN!
Með hugmyndabankanum sem umhverfismálaráö opnaði fyrir
nokkru, er leitað eftir jákvæðum og framsæknum hugmyndum
um hvaðeina sem bætt getur umhverfi okkar. Nú þegar hafa bor-
ist margar góðar hugmyndir en þær verða aldrei of margar. Hug-
myndabankanum verður ekki lokað fyrr en eftir helgi. Sendið inn
ábendingar!
Dagurjarðar
Hugmyndabanki
Skúlatún 2
105Reykjavík
TÖKUM DÁTT
Eitt höfuðverkefni mannskyns á næstu öld verður að bjarga jörðinni úr augljósri
hættu - hættu sem virðir engin landamæri og ógnar lífi á landi, í lofti og í hafinu. Sýn-
um umhyggju okkar í verki og tökum þátt í „Degi jarðar" i Reykjavík22. apríl 1990.