Alþýðublaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 21.04.1990, Blaðsíða 6
6 Laugardagur 21. apríl 1990 Enginn ágreiningur um Gralarvog Til ritstjóra Alþýðublaðsins. í leiðara blaðs yðar miðvikudag- inn 18. apríl er fjallað um brunann sem varð í ammoníakstanki Áburð- arverksmiðju ríkisins á páskadag. Innihald þessa leiðara felst þó aðallega í því að reyna að koma höggi á borgarstjóra og vísað er til kosningabaráttunnar 1982 en þá voru skipulagsmál höfuðmál kosn- inganna. Vakin er athygli á því, að sjálf- stæðismenn hafi viljað byggja með- fram ströndinni þe. í Grafarvogi og í landi Korpúlfsstaða en vinstri menn byggja á sprungusvæði við Rauðavatn. Leiðarahöfundur lætur í veðri vaka, að sú stefna sjálfstæðismanna að byggja meðfram ströndinni hafi verið óábyrg með tiiliti til nálægðar við Áburðarverksmiðjuna. Af þessu tilefni er rétt að minna á eftirfarandi atriði varðandi ákvarðanir um framtíðarbyggð Reykvíkinga: 1. Enginn ágreiningur hefur verið meðal borgarfulltrúa, hvorki fyrr né síðar, um að byggja í Grafar- vogi og í landi Korpúlfsstaða. Ástæðan fyrir því, að vinstri menn ákváðu að byggja við Rauðavatn var fyrst og fremst sú að þeim tókst ekki að ná sam- komulagi við ríkið um kaup á iandi Keldna, sem nú er hluti af Foldahverfi og Húsahverfi. Þetta getur fyrrverandi borgarfulltrúi Alþýðuflokksins, Sig. E. Guð- mundsson, staðfest við Alþýðu- blaðið. 2. I aðalskipulagi austursvæða sem unnið var í tíð vinstri meirihlut- ans og staðfest í mars 1982, var gert ráð fyrir íbúðarbyggð í Graf- arvogi og í landi Korpúlfsstaða í framhaldi af byggð við Rauða- vatn. 3. Við gerð aðalskipulags Reykja- víkur sem gildir frá 1984-2004 var fyllsta öryggis gætt varðandi fjarlægðir milli Áburðarverk- smiðjunnar og íbúðarbyggðar í samræmi við mat sérfræðinga. 4. Vegna sprengihættu voru gerðar kröfur um 300 metra fjarlægð frá íbúðarbyggð en minnsta fjarlægð er um 1200 metrar. Ef ammoníak berst út eru íbúar í ýmsum öðrum hverfum borgarinnar en Grafar- vogi í jafn mikilli ef ekki meiri hættu þar sem ríkjandi vindátt í Reykjavík er austan og suðaustan átt. Með kveðju, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi Kjósum Bjarna P. og Guðmund Árna! Guðfinna Þorsteinsdóttir i Hafnarfirði hringdi: ,,Eg hef ekki kosningarétt í Reykjavík, en mætti ég hvetja Reyk- víkinga til að sameinast um að kjósa Bjarna P. Magnússon til borgar- stjórnar. Ég er ekki í vafa um að þar fer góður maður í embætti borgar- fulltrúa. Sjálf hef ég ekki kosið Al- þýðuflokkinn til þessa, — en sem Hafnfirðingur í dag er ég ekki í vafa fremur en flestir hér. Ég vil að nú- verandi bæjarstjóri, Guðmundur Árni Stefánsson, haldi áfram að stjóra bænum okkar og mun því kjósa lista Alþýðuflokksins. Á því er enginn vafi að flestir bæjarbúar eru sama sinnis, enda sýna skoðana- kannanir það.“ Skárri er skitur en sprengja Matthías Ólafsson ritar blað- inu eftirfarandi um málefni Áburðarverksmiðjunnar: Eru ráðamenn þjóðarinnar að kalla yfir sig og alla landsmenn ógæfu sem ekki er unnt að bæta? Forráðamenn þessarar litlu ey- þjóðar eru vísvitandi, ella eru þeir vitgrannir, að kalla yfir sig svívirðu og þjóðina ógæfu. Éða á að draga borgarstjórn til ábyrgðar ef eiturský frá Gufunesverksmiðjunni berst yfir borgina okkar? Reiði mín og sársauki eftir að hafa melt frétt þulanna sem lýstu ástand- inu sem skapaðist í Gufunesi á páskadag, á lítil takmörk. Sofandi fljótum við að feigðarósi, ef ekki verður strax tekið í árar og það hraustlega. Það er vá fyrir dyr- um á meðan Áburðarverksmiðjan er í byggð. Það skiptir engu hve öfl- ugar varúðarráðstafanir eru gerðar. Verksmiðjan skal burt! Ef grannt er skoðað eigum við nægan skít til áburðar. Aftur dregið um DAS-hús — fjöldi fólks hefur skodad húsiö að Reykjabyggð 18 í Mosfellsbæ DAS-húsin þóttu ævinlega spennandi happdrættisvinn- ingar, og verða það án efa áfram, því nú hefur happdrætt- ið ákveðið að bjóða glæsilegt DAS-hús í vinninga einu sinni á ári. Vinningum í happdrættinu fækkar ekki af þessum sökum, — þvert á móti fjölgar þeim úr rúmlega sjö þúsund í nær 14 þúsund. Húsið í Reykjabyggð 18 í Mosfellsbæ er talið 17 milljón króna virði. Er þarna því án efa einhver verðmætasti happdrættisvinningur sem um getur hér á landi. Happdrætti DAS dregur fyrsta sinn á happdrættisárinu 4. maí n.k. Allar tekjur af happdrættinu renna til uppbyggingar Hrafnistu í Reykjavík og Hafnarfirði. Þar er að venju nóg af verkefnum fram- undan, en happdrættisféð kemur í góðar þarfir. DAS-húsið verður opið alla helg- ina fyrir þá sem það vilja skoða, glæsilegt hús, fullt af því nýjasta og besta í innréttingum og hús- gögnum. DAGUR JAROAR 22. APRÍL ENGIN MENGUN er markmið okkar Dagur jarðar er haldinn til að minna okkur á að hvert og eitt berum við ábyrgð á móður jörð. Mengun láðs, lagar og lofts, og eyðing náttúru- gæða, varðar alla því áhrifanna verður vart um allan hnöttinn. Hver ein- asta manneskja getur haft áhrif til góðs. Fyrirtæki Reykjavíkurborgar hafa það að markmiði að af starfsemi jjeirra sé engin mengun. HITAVEITA REYKJAVÍKUR Hitavcita Reykjavíkur hitar allt höfuðborgarsvæðið frá Kjalamesi til Hafnarfjarðar. Ef höfuðborgarsvæðið væri kynt t.d. með oh'u fæm í það 500 þúsund rúmmetrar á ári, brennsla f húskötlum mundi skila út í andrúmsloftið 3500 tonnum af brenni- steinsdioxiði, 2300 tonnum af köfnunarefni og 600 tonnum af ösku og sóti. Af starf- semi Hitaveitunnar er hinsvegar engin mengun. RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR Orka frá Rafmagnsveitu Reykjavíkur útrýmdi á sínum tíma notkun kola, olíu og gastækja á heimilum borgarinnar. Rafmagnsorkan er ósýnileg, hljóðlaus og lyktar- laus. Rafmagnsveitan hefur alla tíð kappkostað að fella gerð mannvirkja sinna sem best að umhverfinu og halda því grónu og í góðri umhirðu. VATNSVEITA REYKJAVÍKUR Vatnsveitan sér nú um 120 þúsund íbúum á höfuðborgarsvæðinu fyrir hreinu og góðu neysluvatni, sem tekið er úr neðanjarðarbrunnum í Heiðmörk. Forsenda þess að mögulegt sé að tryggja gæði vatnsins um alla framtíð er að komið sé í veg fyrir meng- un grunnvatnsins á vinnslusvæðunum í Heiðmörk. Vatnsveitan hefur lagt á það áherslu að virkjunarmannvirkin væru að mestu leiti neðanjarðar, þannig að sem minnst umhverfisröskun eigi sér stað í Heiðmörkinni. GARDYRKJUDEILD REYKJAVÍKURBORGAR Garðyrkjudeild Reykjavíkurborgar og Skógræktarfélag Reykjavíkur vinna saman að því að klæða borgarlandið skógi og skapa sem víðast skjólsælt umhverfi til leikja og útiveru. Á vegum þessara aðila er um hálfri milljón trjáa plantað árlega af æsku borgarinnar. GATNAMÁLASTJÓRINN í REYKJAVÍK Á vegum Gatnamálastjórans f Reykjavík er unnið að því að hreinsa fjörur borgar- innar með það að markmiði að þær verði mengunarlausar af völdum skólps. Öflugur búnaður hefur nú þegar verið settur upp að norðanverðu, við Skúlagötu og Sætún og samsvarandi aðgerðir við Ægissíðu að sunnan eru hafnar. REYKJAVÍKURHÖFN Um Reykjavíkurhöfn er mikil umferð og þar eru lestuð og losuð úrgangsefni jafnt sem viðkvæm matvara. Reykjavíkurhöfn rekur umfangsmikla hreinsiþjónustu og mengunarvarnastarfsemi á eigin vegum og í samstarfi við notendur á hafnarsvæðinu. Markmiðið er: Engin mengun. SORPEYÐING HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS Gríðarleg breyting er að verða á sorpeyðingarmálum höfuðborgarsvæðisins. Nú þeg- ar hafa tekið til starfa móttökustöðvar fyrir einnota drykkjarílát, notaðar rafhlöður og fyrir umhverfismengandi úrgang. Á næsta ári tekur svo til starfa móttöku- og flokkunarstöð fyrir almennt sorp og þá verður urðun óflokkaðs sorps hætt og tekin upp önnur vinnubrögð - meðal annars endurvinnsla í stórum stíl.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.