Alþýðublaðið - 21.04.1990, Page 7

Alþýðublaðið - 21.04.1990, Page 7
Laugardagur 21. apríl 1990 7 Listamaðurinn Sverrir Ólafsson, menntamálaráðherra Svavar Gestsson og Guömundur Árni, bæjarstjóri Hafnfirð- inga, lyfta glösum í (stríðum) Straumi. ,/QM loforð sem okkur voru gefin, hafa verið efnd" Fjölbreytt vinnuaöstaöa fyrir listamenn í Listamidstödinni Straumi „Þaö varö okkur því ekki lítiö gleðiefni aö uppgötva að er- indi okkar var frábærlega vel tekiö, og það sem meira er, aö öll loforö sem okkur voru gefin hafa verið efnd. Allt sam- starf okkar viö bæjarstjórn Hafnarfjarðar hefur einkennst af heiðarleika, gagnkvæmu trausti og hvatningu sem okkur hefur svo sannarlega ekki veitt af. Fordæmi sem er verðugt til eftirbreytni," sagöi listamaðurinn Sverrir Ólafsson m.a. viö opnun Listamiðstöövarinnar Straumur. Myndlistarmenn hafa í góðri samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og fleiri aðila unnið að því í nokkurn tíma að byggja upp listamiðstöð í Straumi þar sem listamönnum gef- ist kostur á aðstöðu til að vinna að list sinni. Listamenn hafa oft á tíð- um lent á hrakhólum með aðstöðu til að vinna að list sinni, sérstak- lega þegar sérhæfða aðstöðu vantar eða rými fyrir listsköpun sem krefst mikils húsrýmis. Að- staðan í Straumi mun vissulega bæta nokkru þar um og ef þær hugmyndir um framtíðaruppbygg- ingu á svæðinu verða að veruleika sem fram hafa komið verður nán- ast um byltingu að ræða fyrir að- stöðu listamanna. Listin blómstrar í Hafnarf irði Gífurlegur áhugi fyrir þessari vinnumiðstöð hefur þegar komið í ljós og hafa borist fjöldi fyrir- spurna víða að úr heiminum. Fyrsti gestur Listamiðstöðvarinn- ar Straums verður Magnús Kjart- ansson listmálari sem mun hefja vinnu sína þar þann 23. apríl í boði bæjarstjórnar Hafnarfjarðar. Fram að þeim degi, þ.e. nú um helgina, verður Listamiðstöðin Straumur opin, almenningi til sýnis. I Straumi er aðstaða til að hýsa listamenn sem þar vinna en þegar er fyrir hendi gistivinnustofa fyrir listamenn í Hafnarborg í Hafnar- fitði. Þriðja gistivinnustofan fyrir erlenda og innlenda listamenn er fyrirhuguð í Gerðinu, sem stendur skammt frá Straumi, og hefur ÍSAL boðist til að gera það hús upp. Þar með verða þrjár gistivinnustofur fyrir listamenn í Hafnarfirði. List í miðju hafnar- og iðnaðarhverfi Umhverfi Listamiðstöðvarinnar er um margt sérstætt. Það er í fögru umhverfi Straumsvíkur þar sem hraun og sjór falla saman í eina órofa heild. í næsta nágrenni eru mjög sérstæð náttúrufyrir- brigði, ferskvatnstjarnir sem í gæt- ir flóðs og fjöru. Þá er álverk- smiðja hinum megin Straumsvík- urinnar og hugsanlegt að við hina hlið Straums rísi annað álver. Listamiðstöðin Straumur mun í framtíðinni væntanlega verða sem lítil vin í miðju iðnaðarhverfi Hafnfirðinga, nánast við fyrirhug- aðan nýjan hafnarbakka að Straumsvíkinni vestanverðri. Fyrir hönd listamannanna sem standa að Listamiðstöðinni Straumi bauð Sverrir Ólafsson gesti velkomna við opnunina sl. miðvikudag og höfum við fengið góðfúslegt leyfi Sverris að birta ræðu hans við það tilefni og fer hún hér á eftir: (Millifyrirsagnir eru blaðsins) „Góðir gestir, kæru félagar!" Fyrir hönd stjórnar Straums býð ég ykkur öll hjartanlega velkomin til þessarar stóru stundar. Við fé- lagarnir höfum stundum í gamni, okkar á milli, kallað félagið okkar „hugsjónafélagið Straum." En öllu gamni fylgir nokkur alvara. Sann- leikurinn er nefnilega sá að þegar við lögðum upp í þetta ævintýri, listamiðstöð í Straumi, höfðum við lítið annað í farteskinu en hugsjón- ina, stóra fjarlæga drauma og góð- an ásetning." Vanir að hlusta á fagurgala „Með þetta fórum við á fund Guðmundar Árna Stefánssonar, bæjarstjóra í Hafnarfirði. Satt best að segja erum við listamenn vanir því að hlusta á fagurgala ráða- manna, sem þó á tyllidögum draga fram í dagsljósið listina, en oftar en ekki hafa þeir svikið gefin loforð og gert stóra drauma að rykföllnum pappírum ofan í skúffu. Það varð okkur því ekki lítið gleðiefni að uppgötva að erindi okkar var frábærlega vel tekið, og það sem meira er, að öll loforð sem okkur voru gefin hafa verið efnd. Allt samstarf okkar við bæj- arstjórn Hafnarfjarðar hefur ein- kennst af heiðarleika, gagn- kvæmu trausti og hvatningu sem Vilhjálmur Hjálmarsson arkitekt kynnir hugmyndir að skipulagi Listamiðstöðvarinnar. Hann leggur hönd á likan sem sýnir hugmynd um að byggja vinnustofur úr gámum. okkur hefur svo sannarlega ekki veitt af. Fordæmi sem er verðugt til eftirbreytni. I dag ríkir gleðin í hjörtum okk- ar Straumverja og við lítum björt- um augum til framtíðar. Nú fögn- um við listamiðstöð í Straumi og það er stór stund. Eitt af stærstu hagsmunamálum myndlistar- manna er í höfn, baráttumál okkar um langt árabil er orðið að veru- leika. Stærsta skrefið hefur verið stigið þó mikið verk sé óunnið framundan.Við ætium okkur að reisa hér heilt hverfi af vinnustof- um og sérverkstæðum svo eitt- hvað sé upptalið. Þar má nefna: Steinhöggs- smiðju, trésmiðju, járnsmiðju, málmsteypu og grafíkverkstæði svo eitthvað sé upptalið." Gistivinnustofa í Gerðinu „Til uppbyggingarinnar í Straumi höfum við víða mátt leita eftir aðstoð og mér er bæði ljúft og skylt að þakka velunnurum okkar þeirra stuðning. Þar ber fyrst að nefna Bæjarstjórn Hafnarfjarðar, með Guðmund Arna Stefánsson bæjarstjóra fremstan í flokki því án hans stuðnings væri þetta mál vafalaust enn fjarlægur draumur, en bæjarsjóður hefur af mikilli rausn styrkt þetta málefni og gerir vonandi lengi enn. Þá vil ég sér- staklega nefna þau, Jónu Ósk Guðjónsdóttur, forseta bæjar- stjórnar, Gunnar Rafn Sigurbjörns- son bæjarritara, Geir Gunnarsson alþingismann og Hörð Zophanías- son, menntamálaráðherra Svavar Gestsson og hans starfsfólk þau Þórunni Hafstein og Tryggva Þór- hallsson. Fjölmörg fyrirtæki hafa dyggi- lega stutt okkur af miklum rausn- arbrag og létt okkur baráttuna. Þar vil ég fyrst nefna nágranna okkar ÍSAL og forstjóra þess Christian Roth en hann hefur ákveðið að láta standsetja Gerðið, sem er hér í grenndinni. og af- henda það síðan listamiðstöðinni til afnota sem gestavinnustofu. ÍSAL hefur auk þess veit okkur verulegan fjárhagsstuðning. Málning hf. BM Vallá, Smith og Norrland hf. og Glerborg hafa einnig veitt okkur rausnarlegan stuðning sem um hefur munað.“ Straumur valdi straumhvörfum „Þá vil ég sérstaklega þakka öll- um verktökum hér á staðnpm og öllum mínum samstarfsmönnum og að öllum öðrum ólöstuðum, vini mínum Gunnlaugi Stefáni Gíslasyni sem hefur unnið hér ótrúlegt starf og óeigingjarnt auk þess að hafa sýnt mér sérstaka þol- inmæði. Að lokum vil ég þakka Valgeiri Þórðarsyni smið sem svo lengi hefur mátt þola okkur Gunn- laug báða og það er ekki heiglum hent. Ég veit að Listamiðstöðin Straumur á eftir að valda straum- hvörfum í starfsaðstöðu lista- manna sem svo sannarlega hefur ekki verið upp á marga fiska að bjóða hingað til. Og ég bið að gæf- an fylgi henni um alla framtíð og að hún megi uppfylla þær vænt- ingar sem til er ætlast. Að svo mæltu bið ég vin minn og dyggan stuðningsmann okkar hér á bænum Vilhjálm Hjálmars- son arkitekt að taka við stjórn samkomunnar. Ég þakka fyrir. “ Hagstofan flytur Hagstofa íslands opnar mánudaginn 23. apríl í nýju húsnæði að Skuggasundi 3. Um leið tengist Hagstofan skiptiborði Stjórnarráðsins (sími 60 90 00), en það gefur möguleika á beinu innvali til einstakra deilda og starfsmanna. Eldri símanúm- erum verður lokað, þ.m.t. öllum beinum línum. Helstu símanúmer verða: Afgreiðsla/skiptiborð Upplýsingar um vísitölur, húsaleigu o.fl. 60 98 00 Þjóðskrá Upplýsingar um kennitölur, heimilisföng o.fl. fyrir einstaklinga og fyrirtæki 60 98 50 Afgreiðsla hagskýrslna, Hagtíðinda o.þ.h. 60 98 65 eða 66 Bókasafn 60 98 79 Gistináttaskýrslur 60 98 15 Inn- og útflutningur 60 98 20 eða 23-25 Mannfjöldaskýrslur 60 98 95 eða 96 Nemendaskrá 60 98 11 Neyslukönnun 60 98 35 Skráning fyrirtækja 60 98 61 eða 75 Sveitarsjóðareikningar 60 98 12 Vísitölur 60 98 34 eða 35 Hagstofustjóri 60 98 44 Staðgengill hagstofustjóra 60 98 45 Skrifstofustjóri hagskýrslusviðs 60 98 33 Skrifstofustjóri þjóðskrár 60 98 73 Faxnúmer Hagstofunnar verða: Hagstofustjóri - hagskýrslusvið 62 88 65 Þjóðskrá og fyrirtækjaskrá 62 33 12 Hagstofa íslands Skuggasundi3 150 Reykjavík

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.