Alþýðublaðið - 03.07.1990, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 3. júlí 1990
NÆSTAFTASTA SÍÐAN
7
Karólína Monakoprinsessa klæddi af sér vetrarkuldann í Moskvu.
Prínsessur hafa i
nógu að snúasf
Af ævintýrum mætti halda að
prinsessur hefðu lítið annað að gera
en sitja í hásæti með kórónu og eiga
í vafasömum ástarævintýrum með
froskum. En þetta er hinn mesti mis-
skilningur eins og meðfylgjandi
mynd af Karólínu Mónakóprinsessu
ber með sér.
Mynd þessi er tekin af prinsess-
unni á Rauða torginu í Moskvu, allri
dúðaðri í dýrasta loðfeld. Moskvu-
för þessi var í sannleika sagt farin að
undirlagi Grace heitinnar, móður
Karólínu. Þannig er nefnilega mál
með vexti að þaö var hinn heims-
frægi rússneski leikhúsmaður
Sergej Diaghilev sem stofnaði Mó-
nakó-ballettinn. Það var einlæg ósk
Grace að ballettinn færi í sýningar-.
ferð til Moskvu til minningar um
stofnandann. Þessi draumur varð
ekki að veruleika fyrr en í fyrravet-
ur og var þessi mynd tekin í þeirri
ferð því að sjálfsögðu fór prinsessan
með. Eins og hagsýnum húsmæðr-
um sæmir sá Karólína í hendi sér að
best væri að nýta ferðina svo hún
kom við í Saint-Moritz í bakaleiðinni
og eyddi þar þremur vikum við
skíðaiðkun. Að því loknu snéri hún
heim enda beið hennar heimafyrir
það verkefni að skipuleggja hið
fræga góðgerðarbali Le Bal de la
Rose sem útleggjast mætti Rósaball-
ið en eins og flestir vita hefur líf Kar-
ólínu því miður ekki alltaf verið
dans á rósum.
Nautaötin vinsæl
á Spáni
Þegar nautabaninn stendur aug-
liti til auglitis við nautið er ýmislegt
fleira í húfi en líf annars hvors þar
sem fjöldi manna hefur lifibrauð sitt
af þessari þjóðaríþrótt Spánverja.
Þrátt fyrir hávær mótmæli hefur
dýraverndunarsinnum orðið lítið
ágengt í baráttu sinni gegn þessari
blóðugu íþrótt. Á síðasta ári lagði
um 51 milljón manna leið sína í
hringleikahús til að horfa á þessa
viðureign manns og nauts og þar á
meðal voru Juan Carlos Spánarkon-
ungur og fjöldi ráðherra úr ríkis-
stjórninni. Það eru engir smápen-
ingar í spilinu því áætlað er að alls
hafi um 45 milljarðar ísl.kr. verið
greiddar í aðgangseyri. Þetta eru
góðar fréttir fyrir þá 170 þúsund
einstaklinga sem hafa nautaöt að
lifibrauði. Auk nautabananna sjálfra
er þar fjöldinn allur af aðstoðar-
mönnum, bændum sem rækta naut-
in og kaupsýslumönnum sem sjá um
rekstur hringleikahúsanna. Góður
nautabani getur krafist allt að 2,4
milljóna króna fyrir hvern slag við
nautin en sá frægasti fær litlar 4,7
milljónir fyrir sama viðvik. Sá heitir
Juan Antonio Ruiz en er betur
þekktur undir nafninu Espartaco.
Áætlaðar árstekjur hans nema um
250 milljónum króna. Espartaco
segir þetta ekki miklar tekjur ef tek-
ið er tillit til þess hve áhættusamt
þetta starf er. Hann er nú á 27unda
aldursári og hefur verið eftirlæti
landa sinna eftir að múgurinn bar
hann á höndum sér út af La Maestr-
anza-leikvanginum í Sevilla árið
1985. Espartaco hefur viðurkennt
að hann óttist alltaf um líf sitt þegar
hann stendur frammi fyrir froðufell-
andi nautinu en hann tekur ekki
sömu áhættu og fjárfestir tryggilega
í fasteignum í Andalúsíu en þaðan
er hann ættaður. Hluti af launum
nautabanans fer í að borga tveimur
picadores og þremur banderillos en
þeir aðstoða hann við að yfirbuga
nautið í hringnum.
Það eru einungis örfáir nautaban-
ar sem fá svo góð laun enda verða
flestir að finna sér eitthvað annað
að gera frá október til mars en þá
hefst nautaats-vertíðin.
Þekktasti nautaats-hringurinn
kallast Las Ventas og er í Madrid.
Hann er byggður í mára-stíl og getur
tekið 32.000 manns í sæti. Meðal
nautabana og aðdáenda íþróttar-
innar er Las Ventas leikvangurinn
betur þekktur undir nafninu Dóm-
kirkjan.
Þrátt fyrir að nautaatinu sé lokið
og allir farnir heim er ekki þar með
sagt að nautið hafi leikið hlutverk
sitt til enda. Sannleikurinn er nefni-
lega sá að dýrið er dregið í burtu og
kjötið selt til manneldis.
DAGFINNUR
Útgöngur á miðstjórnarfundi
Þá er helgarátökum Aiþýðu-
bandalagsins lokið á Austurlandi.
Á miðstjórnarfundinum voru öll
helstu mál jörðuð og settar í
nefndir og ráð. Eiginlega var eng-
inn nokkru nær eftir fundinn
nema formaðurinn sem sagði að
staða sín hefði styrkst til muna og
hann hefði fengið ótvírætt traust á
fundinum.
Það merkilegasta við fundinn
voru sennilega útgöngurnar. Eftir-
taldar útgöngur þykja einna frétt-
næmastar:
1. Páll Halldórsson formaður
BHMR gekk út þegar Erlingur
„Gellir" Sigurðsson flutti tillögu
um að miðstjórn Alþýðubanda-
lagsins áteldi ríkisstjórnina fyrir
að fresta einhliða ákvæðum kjara-
samanings BHMR.
2. Eiginkona Páls gekk út þegar
Páll gekk út.
3. Erlingur „Gellir" flutnings-
maður tillögunnar gekk einnig út
eftir að hafa flutt tillöguna og eftir
að Páll hafði gengið út og kona
hans á eftir honum.
4. Litlu síðar gekk Svavar
Gestsson ráðherra af fundi. (Var
talinn fara á salerni.)
5. Ólafur Ragnar Grímsson
gekk af fundi þegar Svavar kom
aftur í salinn.
7. Steingrímur J. Sigfússon
landbúnaðarráðherra gekk af
fundi þegar Jón Ottósson, skor-
dýrafræðingur og hugmynda-
fræðingur Alþýðubandalagsins,
flutti greinargerð um Mógilsár-
málið.
8. Helmingur miðstjórnar gekk
af fundi þegar landbúnaðarráð-
herra gerði grein fyrir viðhorfi
ráðuneytisins í Mógilsármálinu.
9. Kjördæmisráð Suðurlands
gekk af fundi þegar Sigurjón Pét-
ursson gerði grein fyrir viðhorfum
Alþýðubandalagsins i Reykjavík
til Nýs vettvangs.
10. Talsmenn Nýs vettvangs
gengu af fundi þegar Sigurjón hóf
tölu sína.
11. Sigurjón Pétursson gekk af
fundi þegar talsmenn Nýs vett-
vangs fluttu tillögu um að Alþýðu-
bandalagið í Reykjavík yrðí lagt
niður.
12. Kjördæmisráð Suðurlands
gekk úr Alþýðubandalaginu
vegna deilna alþýðubandalags-
manna í Reykjavík.
13. Svavar Gestsson flutti til-
lögu um að Honecker, fyrrum leið-
togi Austur-Þýskalands, yrði gerð-
ur að heiðursfélaga í Alþýðu-
bandalaginu. Svavar gekk af fundi
eftir að hafa flutt tillöguna.
Svona héldu menn áfram að
ganga út og inn af fundinum en
aðallega út af honum. Til að
mynda mun formaður Alþýðu-
banmdalagsins hafa lýst því yfir í
lokin að hann gengi óhikað úr Al-
þýðubandalaginu ef hann nyti
ekki trausts miðstjórnar.
En hvað æ'tlar Ólafur Ragnar að
gera ef svo fer?
Allir vita að Ólafur Ragnar
gengur ekki út.
Austur-Þjóð verjar
biða enn i röðum
Þrátt fyrir að markaðshagkerfið
hafi tekið við af kommúnismanum
standa Austur-Þjóðverjar nokkurn
vegin í sömu sporum þ.e. í biðröð.
Myntbandalagið olli því að þeir
fengu alvöru gjaldmiðil í fyrsta
skipti í hendurnar og nú bíða þeir í
biðröðum til að kaupa eitthvað fyrir
hann. Það virðist lítið slá á eftir-
spurnina að verð sumra vara hefur
tvöfaldast þar sem fallið hefur verið
frá niðurgreiðslum á ýmsum vörum.
Búðir í Austur-Berlín eru nú að fyll-
ast af vörum sem voru ófáanlegar í
áratugi og fólk streymir í verslanirn-
ar til að kaupa eitthvað meðan það
hefur efni á því. Það hefur vakið
furðu margra að Austur-Þjóðverjar
vilja frekar kaupa erlendar vörur
þrátt fyrir að þær innlendu séu mun
ódýrari. Verðhækkanir eru fyrir-
bæri sem koma Austur-Þjóðverjum
nokkuð í opna skjöldu enda óþekkt
í Austur-Þýskalandi kommúnism-
ans. Margir spá versnandi hag Aust-
ur-Þýskalands með verðbólgu og at-
vinnuleysi en Helmut Kohl kanslari
Vestur-Þýskalands, sem hefur rekið
sameininguna áfram með harðri
hendi, biður landa sína í austrinu að
vera þolinmóða og gefast ekki upp
þó á móti blási. Honum er mikið í
mun að fullvissa þá um að aðsteðj-
andi erfileikar séu einungis tíma-
bundnir og bráðum komi betri tíð
með blóm í haga. Þá munu allir
njóta ríkulegra ávaxta hins kapítal-
istíska markaðshagkerfis.
Einn
með kaffínu
Rödd í símanum: — Sendu
okkur hálfa milljón eöa viö
drepum konuna þína!
Eiginmaðurinn: —Ég er ekki
meö svo mikla peninga hand-
bæra. Hringdu aftur á morgun,
þetta er áhugavert tilboö!
Kommúnisminn viöhélt forneskjulegum viðskiptaháttum og trúlega mun
það taka þessar þjóðir nokkurn tima að venjast og aölagast hinu nýja
markaðskerfi.
DAGSKRÁIN
Sjónvarpid
17.10 Syrpan 17.40 Táknmálsfréttir
17.45 HM í knattspyrnu 20.00 Fréttir
og veður 20.30 Grallaraspóar 21.00
Sælureiturinn 21.50 Ef að er gáð
22.05 Holskefla 23.00 Ellefufréttir og
dagskrálok.
Slöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Krakkasport
17.45 Einherjinn 18.05 Mímisbrunn-
ur 18.35 Eðaltónar 19.19 19.19 20.30
Neyðarlínan 21.20 Ungir eldhugar
22.10 Smásögur 23.05 Húsið á 92.
stræti 00.30 Dagskrárlok.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 I morgunsárið 09.00 Fréttir
09.03 Litli barnatíminn: Litla músin
Píla pína eftir Kristján frá Djúpalæk
09.20 Morgunleikfimi 09.30 Land-
pósturinn 10.00 Fréttir 10.03 Þjón-
ustu- og neytendahornið 10.10 Veð-
urfregnir 10.30 Ég man þá tíð 11.00
Fréttir 11.03 Samhljómur 11.53 Á
dagskrá 12.00 Fréttayfirlit 12.01 Dag-
legt mál 12.20 Hádegisfréttir 12.45
Veðurfregnir 13.00 I dagsins önn
13.30 Miðdegissagan: Vatn á myllu
Kölska eftir Olaf Hauk Símonarson
14.00 Fréttir 14.03 Eftirlætislögin
15.00 Fréttir 15.03 Basil fursti 16.00
Fréttir 16.03 Að utan 16.10 Dagbókin
16.15 Veðurfregnir 16.20 Barnaút-
varpið 17.00 Fréttir 17.03 Tónlist á
síðdegi 18.00 Fréttir ia03 Sumaraft-
ann 18.30 Tónlist 18.45 Veðurfregnir.
Auglýsingar. 19.00 Kvöldfréttir 19.30
Auglýsingar 19.32 Kviksjá 20.00 Fá-
gæti 20.15 Tónskáldatími 21.00
Safnaðaruppbygging 21.30 Sumar-
sagan: Dafnis og Klói 22.00 Fréttir
22.07 Að utan 22.15 Veðurfregnir.
Orð kvöldsins 22.25 Leikrit vikunnar:
Ef ekki í vöku, þá í draumi eftir Asu
Sólveigu 23.15 Djassþáttur 24.00
Fréttir 00.10 Samhljómur 01.00 Veð-
urfregnir 01.10 Næturútvarp.
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00 Morg-
unfréttir 09.03 Morgunsyrpa 11.03
Sólarsumar 12.00 Fréttayfirlit 12.20
Hádegisfréttir 14.03 HM-hornið
14.10 Brot úr degi 16.03 Dagskrá
18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöldfréttir
19.32 Zikk Zakk 20.30 Gullskifan
21.00 Nú er lag 22.07 Landið og mið-
in 23.10 Fyrirmyndarfólk 00.10 I hátt-
inn 01.00 Næturútvarp.
Bylgjan
07.00 Hallur Magnússon og Kristín
Jónsdóttir 09.00 Fréttir 09.10 Páll
Þorsteinsson 11.00 Ólafur Már
Björnsson 14.00 Helgi Rúnar Óskars-
son 17.00 Síðdegisfréttir 17.15
Reykjavík síðdegis 18.30 Ólafur Már
Björnsson 22.00 Ágúst Héðinsson
02.00 Freymóður T. Sigurðsson.
Stjaman
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Á bakinu
í dýragarðinum 10.00 Bjarni Haukur
Þórsson 12.00 Hörður Arnarsson og
áhöfn hans 15.00 Snorri Sturluson
18.00 Kristófer Helgason 20.00 Lista-
poppið 22.00 Darri Ólason 01.00
Næturvakt — Björn Sigurðsson.
Aðalstöðin
07.00 Á nýjum degi 10.00 Kominn
timi til 13.00 Með bros á vör 16.00 í
dag, í kvöld 19.00 Við kvöldverðar-
borðið 20.00 Á yfirborðinu 24.00
Næturtónar.