Alþýðublaðið - 05.10.1990, Page 1

Alþýðublaðið - 05.10.1990, Page 1
MÞYBUBMÐIB Aktw ekki út i óvisswna aktuó Ingvar Helgason hf. Sævarhotða2 Simi 91-67 4000 150. TÖLUBLAÐ 71. ÁRGANGUR FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1990 KRAFA JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR: félagsmálaráðherra um að tryggt verði aukið framlag á fjárlögum til félagslega húsnæðiskerfisins er til um- fjöllunar hjá formönnum stjórnarflokkanna. Fram hefur komið að samkvæmt þeim drögum sem nú liggja fyrir er óvíst hvort hægt verði að hefja byggingu nokkurra félagslegra íbúða á næsta ári. Málið hefur jafnframt verið tekið fyrir á þingflokksfundi Alþýðuflokksins og segir Jóhanna að hún geri sér góðar vonir um stuðning að minnsta kosti þorra þingmanna Al- þýðuflokksins við tillögur sínar en hafi þó orðið fyrir von- brigðum að þær voru ekki afgreiddar á fundinum. HLUTAFJÁRAUKNING HJÁ FLUGLEIÐUM: Stjórn Flugleiða samþykkti í gær að leita samþykkis hlut- hafafundar hjá félaginu fyrir aukningu hlutafjár um 331.250.000 króna að nafnvirði. Gert er ráð fyrir að mark- aðsverð þessa hlutafjár verði um 750 milljónir króna. Verði af aukningunni fer heildarhlutafé Flugleiða upp í 1,7 milljarða króna. LÆKKA BER ÁLAGNINGU: bsrb beinir þeim ein- dregnu tilmælum til ríkisstjórnarinnar að bregðast við ol- íuverðshækkunum með því að lækka tímabundið álagn- ingarhlutfall á olíu og bensíni. Bandalagið segir margt benda til að hækkanir á olíumörkuðum heims muni að einhverju leyti ganga til baka. Hækkun á bensínverði rýri kaupmátt launafólks og grafi undan markmiðum síðustu kjarasamninga. Af sama tilefni beinir BSRB því til borgar- yfirvalda í Reykjavík að falla frá áformum um hækkun far- gjalda SVR. LAUN Á DAGVISTARHEIMILUM: Fulltrúar borgar- stjórnarandstöðunnar í Reykjavík lögðu fram tillögu á borgarstjórnarfundi í gær þess efnis að borgarstjórn skipi nú þegar sérstakan starfshóp til að endurmeta launakjör starfsfólks á dagvistarheimilum borgarinnar. Hópurinn verði skipaður sjö fulltrúum: Fjórum úr borgar- stjórn — þar af tveim úr minnihluta og tveim úr meirihluta — einum fulltrúa Foreldrasamtakanna, einum tilnefndum af Fóstrufélagi Islands auk fulltrúa ófaglærðs starfsfólks til- nefndum af Sókn. ÞRÓUNARSAMVINNA: Undirritaður hefur verið samningur milli íslands og Grænhöfðaeyja um þróunar- samvinnu í sjávarútvegi og á öðrum sviðum. Samningur- inn gildir til ársloka 1995 og kemur í stað fyrri samnings milli ríkjanna. Með þessum samningi er verið að fram- lengja þróunarsamvinnu ríkjanna, sem hefur staðið í tíu ár og tryggja að hún taki til fleiri þátta en fiskveiða. FISKVINNSLUSTÖÐVAR: Aðalfundur Samtaka fisk- vinnslustöðva verður haldinn í dag. Auk venjulegra aðal- fundarstarfa verður sérstaklega fjallað um stefnumörkun sjávarútvegsins gagnvart Evrópubandalaginu. Um það efni flytja erindi þeir Magnús Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri SÍF, Jón Baldvin Hannibalsson, utanríkis- ráðherra, Þorsteinn Pálsson, form. Sjálfstæðisflokksins og Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráðherra. LEIDARINNIDAG Alþýðublaðið fjallar í leiðara í dag um undirritun viljayfirlýsingar iðnaðarráðherra og fulltrúa Atlants- álsfyrirtækjanna um nýtt álver á Keilisnesi. Alþýðu- blaðið gagnrýnir ráðherra Alþýðubandalagsins og forystu Sjálfstaeðisflokksins fyrir að þvælast fyrir hinu mikla þjóðhagsmunamáli vegna þröngra, pólit- ískra sérhagsmuna. SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: MIKILVÆGUR ÁFANGI ÁL- MÁLSINS STAÐFESTUR Þrælastríðið í nýju Ijósi Allar reglur þverbrotnar Á þröskuldi nýrrar aldar Karl Th. Birgisson skrifar frá Bandaríkjunum um nýja sjón- varpsþáttaröð um bandarísku borgarstyrjöldina, Þrælastríð- ið. „Þetta er mikið stórvirki í sagnaritun fyrir sjónvarp," seg- ir Karl Th. IGervihnattadiskar njóta sí- vaxandi vinsælda en langflest- ir þeirra eru ólöglegir. Seljend- ur nota sér slælegt eftirlit sam- gönguráðuneytis og varpa allri ábyrgð á kaupendur. IÁrni Gunnarson alþingis- maður er þeirrar skoðunar að Alþýðuflokkurinn eigi að stefna að samstarfi við Sjálf- stæðisflokkinn eftir kosningar og ræðir þá skoðun sína í blað- inu í dag. Áfangasamkomulag undirritað. Frá vinstri Jóhannes Nordal, Jón Sigurðsson, Robert G. Miller frá Alumax og Ulf Bohlin frá Gránges. Jón Sigurdsson við undirritun í gær: Grundvellur ad lokasamningi „Þessi áfangi leggur grundvöliinn að loka- samningi og lagafrum- varpi,“ sagði Jón Sigurðs- son iðnaðarráðherra m.a. við undirskrift áfanga- samkomulagsins í gær. Áfangasamkomulagið nær tii flestra atriða vænt- anlegs samnings og sér- stök bókun var undirrituð um raforkuverð. Nýja álverið verður stað- sett á Keilisnesi og mun geta framleitt 200 þúsund tonn á ári. 5% af þeirri framleiðslu, eða 10 þúsund tonn, verða unnin áfram hérlendis sam- kvæmt sérstöku ákvæði í samkomulaginu sem tryggir íslendinum rétt til þessa magns. Þrjú eignarhaldsfélög verða stofnuð til að eiga og reka álverið sem rekið verður í samlagsformi. Álverið mun þannig hvorki eiga hráefni né unnið ál heldur einungis vinna ál úr súráli gegn greiðslu. ítarlega er sagt frá efnis- innihaldi áfangasam- komulagsins í frétt á bls. 3. RITSTJORN 0 681866 — 83320 • FAX 82019 • ÁSKRIFT OG AUGLÝSINGAR (8 681866

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.