Alþýðublaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 8
• ••• • ••• • •
• • • • •
• • • • • • • • • •
• • • • •
• • • • • • • • •
••••••••• ••••
• • • •
• •••• ••••
• • • •
• • • • • • •
SOFIU Rauða stjarnan hvarf í gær af aðalstöðvum gamla
kommúnistaflokksins. „Tími til kominn," sagði vegfarandi.
Mikil óvissa hefur ríkt í búlgörskum stjórnmálum eftir
fyrstu frjálsu kosningarnar í sumar. Stjórnarandstaðan hef-
ur hafnað því að ganga inn í stjórn Sósílistaflokksins.
Vínuppskeran
1990 eftir þurrkasumar
verður annað hvort góð
eða léleg — en ekkert þar á
milli. Þetta er álit yfirmats-
legra vínsmakkara.
ÞYSKALANDI: Þingið kom saman í fyrsta skipti í gær
eftir sameiningu. 519 þingmenn úr vesturhluta og 144 úr
gamla austurhlutanum minntust í þögn fórnarlamba ógn-
arstjórnar nasista, þeirra sem létu lífið undir ráðstjórn Sta-
líns og þeirra sem féllu við Berlínarmúrinn.
BERLÍN/MOSKVU: Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna,
mun að öllum líkindum fara í heimsókn til Þýskalands um
miðjan nóvember.
EVRÓPUBANDALAGINU: Sendinefnd frá EB heldur
til austurhluta Þýskalands til að kanna kjarnorkubirgðir. Er
þetta gert í samræmi við Rómarsáttmálann sem Evrópu-
bandalagið fylgir, en við sameiningu Þýskalands er hið
nýja ríki fullgildur aðili að EB og verður þar af leiðandi að
hlíta reglum bandalagsins.
JAPAN/BANDARÍKJ-
UNUM: Fyrirtækjarisinn
Sony og bandaríska flug-
vélafyrirtækið Hughes
hafa á prjónunum mikla
tæknivæðingu í flugvélum.
Farþegar eiga framvegis að
geta horft á sjónvarp við
sætin, fylgst með verð-
bréfamörkuðum og frétt-
um, hringt beint úr sætun-
um o.s.frv.
FLOAMAL: „Því miður virðist Saddam Hussein ekki I
hlusta," er haft eftir Fahd, konungi af Saúdí-Arabíu. Kóngur
samþykkir þó að þrýst sé á efnahagslega og stjórnmála-
lega til þess að koma íraksher út úr Kúvæt.
POLLANDI : Mazowiecki forsætisráðherra hefur ákveðið |
að bjóða sig fram til forseta í Póllandi í komandi kosning- j
um. Þar með fær Walesa samkeppni af fyrrverandi félaga
og ráðgjafa sínum, en Walesa tilkynnti fyrir nokkru að *
hann sæktist eftir embættinu og myndi gefa kost á sér í
það.
NYJU-DELI : Þrjár námsmeyjar sviptu sig lífi gær til að I
mótmæla því að ríkisstjórnin hyggst veita hindúum af
lægri stigum vinnu. Skólastúlkan Narinder Kaur hengdi
sig í Punjab og ánafnaði Singh forsætisráðherra augu sín,
ef vera kynni að það opnaði augu hans fyrir afleiðingum
fyrirhugaðra aðgerða.
BRETLANDI : Vísindamenn hafa komist að því að glúk- I
ósi í súkkulaði getur fellt ökumenn í áfengisprófi. Sé
nammisins neytt á tómann maga getur glúkósinn framkall-
að alkóhól. Nýjar reglur og hertar, t.d. í Svíþjóð í huga eru
augsýnilega ekki samdar með hagsmuni þeirra sem þykir
súkkulaði gott og borða mikið af því.
KAIRO: Hosni Mubarak
forseti sakar íraka
um að gera út flokka sem
eigi að efna til óróleika í Eg-
yptalandi m.a. með
sprengjuhótunum.
PARIS:
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón: Þorlákur Helgason
Nú má teljast gott aö ná í símsvara í gamla Austur-Þýskalandi:
„Það er enginn not-
andi með þetta númer"
Ný lög og nýir sidir í gildi. Ferill Honeckers og fylgisveina hans rannsakaöur ofan
í kjölinn.
Það er ekki lengur svar-
að á opinberum skrifstof-
um í fyrrverandi Aust-
ur-Þýskalandi. Þeir teljast
heppnir sem ná í símsvar-
ann, en svarið er eitt: „Það
er enginn notandi með
þetta númer.“
Nýir húsbændur hafa tekið
við öllum málaflokkum sem
áður féllu undir hin ýmsu
ráðuneyti í Austur-Þýska-
landi. Önnur lög gilda og
fyrrverandi embættismenn
eru sóttir til saka fyrir gjörðir
sem voru drýgðar undir
merkjum kommúnisma. I
gær voru tveir fyrrverandi
fulltrúar í forsætisnefnd Aust-
ur-Þýskalands fluttir vestur
yfir í fangelsi.
Erich Mielke, 82 ára og
fyrrverandi höfuðpaur í ör-
yggisráðinu og Harry Tisch,
63 ára, leiðtogi í verka-
mannasambandi, eru trúlega
aðeins fyrstir í röðinni, því að
búast má við að fleiri fylgi á
eftir. Heimildir herma að Mi-
elke kunni m.a. að verða
ákærður fyrir að hafa skotið
skjólshúsi yfir vestur-þýska
borgarskæruliða. Dómsmála-
yfirvöld í því sem áður hét
Vestur-Berlín eru að hefja yf-
irlestur á 500 skýrslum um at-
hafnir Erichs Honeckers,
fyrrum kommúnistaleiðtoga,
og fylgifiska hans. Honecker
dvelur á heimili í Beelitz, fyr-
ir sunnan Berlín. Aust-
ur-þýskir læknar segja hann
ekki hafa heilsu til að koma
fyrir rétt, en Honecker var
hálft ár á sjúkrahúsi í Sovét-
ríkjunum.
Þeir sem áður störfuðu á
ráðuneytiskrifstofum hafa
flestir fengið reisupassann og
70% af launum í hálft ár. Aðr-
ir eru í endurmenntun. Að-
eins 150 af 4.000 manna
starfsliði utanríkisráðuneytis-
ins eru nú í þjónustu hins nýja
ríkis. „Stjórnarerindrekarnir
voru hugmyndafræðilega of
háðir gamla kerfinu," segir
einn af þeim sem eru að raða
niður að nýju í ráðuneytun-
um. Og hann bætir við að
Marx-Engels torgið sem
menn unnu áður við sé eins
og gamla ríkisstjórnin og
landið sjálft í austri: saga ein.
Checkpoint Charlie tákn liðinnar tíðar. En reikningarnir eru
óuppgerðir.
Samkomulag um aö eyða heföbundum vopnum:
Vesturlöndum i hag
— segir Bush, forseti Bandaríkjanna
Varsjárbandalagið verður
að eyða 19.000 skriðdrekum
samkvæmt samkomulagi um
fækkun hefðbundinna vopna,
sem væntanlega verður und-
irritað í París. 22 aðilar í varn-
arbandalðgunum tveimur
munu skrifa undir. Atlants-
hafsbandalagið þarf einungis
að losa sig við 4.000 skrið-
dreka.
James Baker utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna taldi upp
einstaka þætti i samkomulaginu,
en Bush forseti hafði áður lýst
því yfir að samningurinn yrði
Vesturlöndum í hag. Samninga-
maður þýsku stjórnarinnar sagði
að aðeins ætti eftir að ganga frá
fáeinum tæknilegum atriðum,
en gert er ráð fyrir að ríkin 22
sem standa að samningnum
muni undirrita hann i París 22.
nóvember nk.
HIÐ NÝJA ÞÝSKALAND
EFNAHAGSHORFUR:
SAMANBURÐUR VIÐ ONNUR LOND
Gjaldeyrisstaða: í milljörðum dollara