Alþýðublaðið - 05.10.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 5. okt. 1990
NÆSTAFTASTA SÍÐAN
7
Hver var hann?
Hver var hann? Hvar er hann?
Það eru mörg óuppgerð mál eftir
seinni heimsstyrjöldina. Eitt af
því er hvarf sænska stjórnarer-
indrekans Raouls Wallenbergs.
Talið er að Wallenberg hafi komið
65.000 gyðingum hjá því að lenda í
gasklefanum. Sovétmenn fangels-
uðu hann og segja að Wallenberg
hafi látist í Lubíjanka fangelsinu
1947. Þeir hafa aldrei getað sannað
það. Enn ganga sögusagnir um að
hann sé á lífi.
Kjell Grede kvikmyndagerðar-
maður hefur nýlokið við kvikmynd
um Wallenberg. Myndin var tekin
að mestu í Búdapest. Lýst er síðustu
vikunum í helvítinu í borginni. Hitl-
er hafði ætlað sér að „hreinsa" Ung-
verjaland, hérað af héraði átti að
vera „laust" við gyðinga. Inn í þetta
hreiður hélt Wallenberg.
Stellan Skarsgárd, sem leikur að-
alhlutverkið, segir að kvikmyndin
skipti svo miklu máli vegna þess að
með henni sé verið að sýna til hvers
konar viðbjóðsverka heimurinn og
maðurinn geti gripið. „Eina leiðin til
að koma í veg fyrir þetta er að við
viðurkennum hversu veiklunda við
erum,“ segir Stellan.
Raoul Wallenberg: Eitt af mörgum
óuppgerðum málum seinni heims-
styrjaldar.
DAGFINNUR
Þ|oovil|inii a f|arlogum
Þar sem ég er blaðamaður og á
alla mína afkomu undir því að
blöð komi út, fylgist ég mjög náið
með gangi mála hjá öllum hugsan-
legum vinnuveitendum mínum.
Þess vegna létti mér mjög þegar
ég leit á forsíðu DV og sá að einn
vinnuveitandi í faginu hafði komið
ár sinni vel fyrir borð.
Þjóðviljinn er nefnilega búinn
að fá 50 milljóna lán hjá Lands-
bankanum (Lúðvík alltaf seigur) til
að fleyta pappírsfleyinu áfram og
sneiða hjá gjaldþroti.
Hins vegar verð ég að viður-
kenna að ég hef ákveðnar áhyggj-
ur af tryggingunum sem blaðið
setur fyrir skuldinni.
Þjóðviljinn ætlar nefnilega að
setja ríkisstyrkinn sinn sem trygg-
ingu. Það þýðir með öðrum orð-
um að fjárlögin muni standa undir
láninu. Þjóðviljamenn segja nefni-
lega að þeir muni alveg geta verið
án ríkisstyrksins, því nú standi til
að breyta blaðinu þannig að það
fari að skila hagnaði.
Þetta finnast mér góðar fréttir,
því hver veit nema Alþýðublaðið
fari á h.ausinn einn daginn og ég
þurfi að leita mér að vinnu hjá
blaði sem skilar umtalsverðum
hagnaði.
Hins vegar fékk ég aftur áhyggj-
ur þegar ég las hvernig búa átti til
hagnaðinn.
Þjóðviljinn ætlar nefnilega að
búa til nýtt hlutafélag. Það gamla
heldur sjálfkrafa áfram að greiða
niður skuldir blaðsins á fjárlögum.
(Ólafur Ragnar alltaf seigur). Ef
ríkisstyrknum yrði nú kippt í
burtu af einhverjum vondum sjálf-
stæðisstrákum og fyrrverandi
blaðamönnum Morgunblaðsins,
og gamla félagið gæti ekki staðið
í skilum, fer það bara á hausinn og
allt í lagi með það.
Nýja útgáfufélagið ætlar hins
vegar að fara stórt af stað og búa
til hlutafélag og Sigfúsarsjóður
(Sigfús alltaf seigur), áskrifendur
og lesendur blaðsins munu reiða
fram pyngjuna og borga léttar 20
milljónir í hlutafé.
Máigagn þjóðfrelsis, sósíalisma
og verkalýðshreyf ingar heldur því
áfram að koma út.
Þökk sé hinni heilögu prent-
þrenningu; Lúðvík, Ólafi Ragnari
og Sigfúsi.
Meöal kvenna á lífsleið Beattys: Madonna, Julie Chrístie, Isabelle Adjani.
Dularfull stjarna
Warren Betty er 53 ára og hef-
ur verið kvikmyndastjarna í 30
ór. Dularfullur og erfitt að átta
sig á honum. „Það er erfitt að
verða stjarna um tvítugt,“ segir
Betty, „ en listin og stjórnmól
hafa haldið í mér lífinu.“
Hann segist hafa komist upp með
að þegja í 12 ár gagnvart fjölmiðl-
um. Rolling Stone Magazin náði þó
taki á honum fyrir stuttu í sambandi
við kvikmyndina um Dick Tracy.
Það er langt á milli kvikmyndanna
(síðasta myndin var gerð fyrir 9 ár-
um), hann talar hægt og hléin verða
á tíðum óralöng á milli svaranna.
,Blaðamaður Rolling Stone blaðsins
jbætir inn í viðtalið svigum (24 sek-
'úndur), (39 sekúndur) o.s.frv. „Ro-
salega varstu fljótur," segir þá blaða-
'maðurinn. Beatty segist geta hringt
í síma snöggara en nokkur annar.
Og blaðamaðurinn tekur tímann: 1
sekúnda.
„Kvikmyndin á sjálf að segja frá.
Þú lýsir ekki söng," segir Beatty. „Þú
syngur." Sögurnar eru fjölbreyttar.
Hann á að hafa samrekkt með öllum
meðleikurum sínum (af gagnstæðu
kyni). Listinn er langur. Satt eða
ósatt. Hver veit? Hann er sjálfur
löngu hættur að bera sögusagnir til
baka. „Níu af tíu greinum sem hafa
verið skrifaðar um mig eru upp-
spuni."
Hann komst fyrst á toppinn með
„Bonnie og Clyde“ sem hann gerði
sjálfur 1967. Aðeins honum og Or-
son Welles hefur hlotnast sá heiður
að vera tilnefndir til Óskarsverð-
launa á fjórum sviðum: Fyrir leik-
stjórn, leik, handrit og sem fram-
leiðandi.
KROSSGÁTAN
..........
Lárétt: 1 eyddi, 5 gull, 6 skel, 7
bergmál, 8 brytjaði, 10 eins, 11
mjúk, 12 starfa, 13 skaða.
Lóðrétt: 1 miða, 2 beltum, 3 sting,
4 lyktina, 5 grundum, 7 guðs, 9
lengdarmál, 12 tala.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 sveit, 5 svöl, 6 ver, 7 er, 89
einnig, 10 nn, 11 æða, 12 óður, 13
dáðir.
Lóðrétt: 1 svein, 2 vöm, 3 el, 4
torgar, 5 svengd, 7 eiður, 9 næði,
12 óð.
DAGSKRÁIN
Sjónvarpið
17.50 Fjörkálfar 18.20 Hraðboðar
18.50 Táknmálsfréttir 18.55 Popp-
korn 19.20 Umboðsmaðurinn 19.50
Dick Tracy 20.00 Fréttir og veður
20.30 Urður. Þáttur unninní sam-
vinnu við framhaldsskólanema
21.00 Bergerac- 22.00 Tiundi maður-
inn (The Tenth Man) 23.50 The Roll-
ing Stones á tónleikum 01.10 Út-
varpsfréttir í dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Túni og Tella
17.35 Skófólkið 17.40 Henderson
krakkarnir 18.05 ítalski boltinn 18.30
Bylmingur 19.19 19:19 20.10 Kæri
Jón 20.35 Ferðast um tímann 21.25
Maður lifandi (Quantum Leap) 21.55
Guli kafbáturinn (Yellow Submarine)
23.20 í Ijósaskiptunum 23.45 Hættur
í lögreglunni (Terror on Highway)
01.15 Hættuför (High Risk) 02.45
Dagskrárlok.
Rás 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur Rásar 1 08.00
Fréttir 09.00 Fréttir 09.03 Laufskálinn
10.00 Fréttir 10.03 Við leik og störf
11.00 Fréttir 11.03 Árdegistónar
11.53 Dagbókin 12.00 Fréttayfirlit á
hádegi 12.01 Endurtekinn Morgun-
auki 12.20 Hádegisfréttir 12.45 Veð-
urfregnir 12.48 Auðlindin 12.55 Aug-
lýsingar 13.05 í dagsins önn 13.30
Hornsófinn 14.00 Fréttir 14.03 Út-
varpssagan 14.30 Miðdegistónlist
15.00 Fréttir 15.03 Meðal annarra
orða 16.00 Fréttir 16.05 Völuskrín
16.15 Veðurfregnir 16.20 Á förnum
vegi 17.00 Fréttir 17.03 Vita skaltu
17.30 Tónlist á síðdegi 18.00 Fréttir
1^03 Hér og nú 1&18 Að utan 18.30
Auglýsingar 18.45 Veðurfregnir
19.00 Kvöldfréttir 19.35 Kviksjá 20.00
í tónleikasal 21.30 Söngvaþing 22.00
Fréttir 22.10 Að utan 22.15 Veður-
fregnir 22.20 Orð kvöldsins 22.30 Úr
Hornsófanum í vikunni 23.00 í kvöld-
skugga 24.00 Fréttir 00.10 Sveiflur
01.10 Næturútvarp á báðum rásum
til morguns 01.00 Veðurfregnir.
Rás 2
07.03 Morgunútvarp 08.00 Morgun-
fréttir 09.03 Níu til fjögur 12.00
Fréttayfirlit og veður 12.20 Hádegis-
fréttir 12.45 Níu til fjögur 16.03 Dag-
skrá 18.03 Þjóðarsálin 19.00 Kvöld-
fréttir 19.32 Nýjasta nýtt 20.30 Gull-
skífan frá 8. áratugnum 21.00 Á
djasstónleikum 22.07 Nætursól
01.10 Næturútvarp.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Fréttir
09.10 Páll Þorsteinsson 11.00 Valdís
Gunnarsdóttir 14.00 Snorri Sturlu-
son 17.00 Síðdegisfréttir 17.15
Reykjavík síðdegis 1&30 Kvöld-
stemmning í Reykjavík. Ágúst Héð-
insson 22.00 Á naeturvaktinni. Har-
aldur Gíslason 03.00 Freymóður T.
Sigurðsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 11.00 Bjarni
Haukur Þórsson 14.00 Björn Sigurðs-
son og slúðrið 18.00 Darri Ólason og
linsubaunin 21.00 Arnar Albertsson
á útopnu 03.00 Jóhannes B. Skúla-
son.
Aðalstöðin
07.00 í morgunkaffi 09.00 Morgun-
verk Margrétar 12.00 Hádegisspjall
13.00 Strætin úti að aka 16.30 Mál til
meðferðar 18.30 Dalaprinsinn 19.00
Við kvöldverðarborðið 22.00
Draumaprinsinn 02.00 Næturtónar
Aðalstöðvarinnar.