Alþýðublaðið - 05.10.1990, Síða 2

Alþýðublaðið - 05.10.1990, Síða 2
FRÉTTASKÝRING Föstudagur 5. okt. 1990 KOLÖLÖGLEGIR GERVIHNATTADISKAR Seljendur nota sér slœlegt eftirlit og varpa allri ábyrgö á kaupendur Langflestir gervhihnattadiskar sem nú eru i notk- vn hérlendis hafa verið settir upp án leyfis og dæmi eru um að hér sé i notkun búnaður sem ekki er viður- kenndur af Pósti og sima. Samgönguráðuneytið veitir leyfi en eftirlit af hálfu ráðuneytisins er slæ- legt og seljendur gervihnattadiska virðast notfæra sér það ástand út i æsar þvi þeir tilkynna ekki nema brot af sölu sinni til ráðuneytisins. Þar sem um lög- brot er að ræða liggja sölutölur verslananna ekki á lausu og þvi er i raun ógerlegt að áætla með nokk- urri vissu hversu margir diskar eru i notkun. JÓN DANÍELSSON SKRIFAR Svo mikið er þó víst að diskarnir sem settir hafa verið upp hérlend- is eru margfalt fleiri en leyfi hafa verið gefin fyrir. Samgönguráðu- neytinu hefur alls borist 271 um- sókn en leyfi hafa aðeins verið gef- in fyrir 175 diskum. Einungis fá- einum umsækjendum hefur þó beinlínis verið synjað um leyfi. Ríf- lega 90 misgamlar umsóknir bíða hins vegar eftir afgreiðslu vegna þess að umsækjendur hafa trassað að verða sér úti um viðurkenn- ingu Pósts og síma. Voða erfitt að muna Sölutölur eru ekki auðfengnar. Þegar ég hafði samband við þá fimm aðila sem leyfi hafa til að selja gervihnattadiska, áttu flestir þeirra afar erfitt með að muna hve mikið hefði selst. Að sögn flestra þeirra var líka afskaplega erfitt að finna tölur um slíka hluti í bók- haldi eða öðrum gögnum. A hinn bóginn vildu fæstir viðurkenna að þeir seldu mjög lítið af diskum. Með því væri að sjálfsögðu gefið í skyn að varan væri ekki nægilega góð til að seljast og slíkt vill eng- inn sölumaður láta um sig spyrj- ast. Þessi staðreynd, ásamt því sem e.t.v. mætti kalla fákænsku óbreyttra afgreiðslumanna, varð til þess að e.t.v. má áætla tölu gervihnattadiska í mjög grófum dráttum. Það skal hins vegar við- urkennt að sú áætlun er mjög gróf. Skylt er raunar að taka fram að frá undanbrögðum seljendanna var ein undantekning. Jakob Ag- ústsson í Tæknilandi vék sér ekk- ert undan að svara. Hann sagðist hafa selt um 25 diska frá upphafi og þar af um 10 á þessu ári. Svo vill til að frá öðru fyrirtæki höfum við einnig tölu sem trúlega er nokkuð nákvæm, þótt verslunarstjóri hafi verið ófáanlegur til að staðfesta hana. Hljómco hefur sem sé selt um 60 diska frá því að sala þeirra hófst fyrir tæpu ári. Og sumir neituðu_____________ Aðrir söluaðilar sem leyfi hafa eru Radíóbúðin, sem raunar er áberandi stærst í þessari grein, Kapaltækni og Hljómbær. Síðast- talda fyrirtækið hóf þennan inn- flutning á sínum tíma en virðist nú hafa orðið undir í samkeppninni og þar fengust þær upplýsingar að heita mætti að innflutningur gervihnattadiska hefði verið lagð- ur á hilluna í bili og ekkert hefði verið selt á þessu ári. Það ein- kennilega er hins vegar að sam- kvæmt upplýsingum frá sam- gönguráðuneytinu hafa borist upp undir 30 umsóknir frá Hljómbæ á árinu. Miðað við þá óreglu sem ríkir á þessu sviði er að vísu hægt að hugsa sér að þessa umsóknir væru vegna diska sem seldir voru á síðasta ári, eða jafnvel enn fyrr. Hjá Kapaltækni var neitað að gefa upp til birtingar hversu mikið þar væri selt og hjá Radíóbúðinni vildu menn heldur ekki gefa upp nákvæma tölu en þar fékkst þó uppgefið að salan það sem af er þessu ári ,,gæti verið einhvers staðar á bilinu 100—150 diskar.“ Að því er Kapaltækni varðar mun ekki verulega fjarri lagi að áætla að það fyrirtæki ráði svipaðri hlut- deild á markaðnum og Hljómco. Tvö til þrjú hundruð i ár Séu nú þessar upplýsingar dregnar saman kemur í ljós að á fyrstu níu mánuðum þessa árs hafa verið seldir a.m.k. 200 gervi- hnattadiskar. Sölutalan er þó trú- lega mun hærri, 250 mun vera nær sanni og ekki er unnt að úti- loka að 300 diskar hafi verið seldir á árinu. Samgönguráðuneytinu er hins vegar ekki kunnugt um nema 80 af þessum diskum. Samkvæmt reglugerð sem gildir um þessi við- skipti er söluaðilum þó bannað að afhenda diska nema leyfi fyrir þeim hafi verið gefið út af ráðu- neytinu. Ráðuneytið hefur alls upplýsing- ar um 271 gervihnattadisk. Þar af hafa þó ekki verið gefin leyfi fyrir nema 175. Tveim eða þrem um- sóknum hefur verið synjað en yfir 90 umsóknir, sumar nokkuð gaml- ar hafa ekki verið afgreiddar vegna þess að eigendur diskanna hafa ekki aflað viðurkenningar Pósts og síma. Umsóknirnar sem ráðuneytinu hafa borist skiptast þannig milli ára (1990 = jan,—sept.): 1986— 49 umsóknir 1987— 15 umsóknir 1988— 32 umsóknir 1989— 95 umsóknir 1990— 80 umsóknir Aðeins fimmti hver____________ með leyfi_____________________ Ef tekið er mið af árinu í ár og reiknað með að hlutfallið milli um- sókna og raunverulegrar sölu hafi verið svipað frá upphafi, virðist mega reikna með að gervihnatta- diskar séu nú um 800 talsins. Hér vissulega um grófa ágiskun að ræða og þessi tala kynni að vera nokkru lægri en hún gæti líka ver- ið hærri. Sé talan 800 nálægt lagi er ekki nema rétt rúmlega fimmti hver eigandi gervihnattadisks með leyfi fyrir þessari jarðstöð sinni. Radíóbúðin auglýsti um síðustu helgi 200 gervihnattadiska en af þeim munu a.m.k. 50 hafa verið seldir þégar auglýsingin birtist. Hinir 150 munu vafalaust seljast á næstunni og varlega verður að teljast áætlað að aðrir seljendur muni selja 50 diska til áramóta. Fyrir lok ársins verða diskarnir því væntanlega orðnir þúsund talsins. Ekki er hægt að segja að ráðu- neytið hafi haldið uppi neinu eftir- liti með þessari sölu. Ragnhildur Hjaltadóttir í samgönguráðuneyt- inu segir að verslunareigendur hafi alloft verið áminntir um að skila inn umsóknum til ráðuneytis- ins og bréf hafi verið send til þeirra jarðstöðvaeigenda sem ekki hafi orðið sér úti um viðurkenningu Pósts og síma á búnaði sínum. Harðari aðgerðir hafi menn hins vegar viljað forðast í lengstu lög. Ábyrgðinni varpad__________ á kaupendur________________ Það er reyndar athygli vert að seljendur gervihnattadiska sögð- ust flestir ekki senda sjálfir inn umsóknir til ráðuneytisins heldur benda kaupendum á að þeir þyrftu að sækja um leyfi. Þetta er í raun brot á þeim reglum sem gilda, af þeirri einföldu ástæðu að seljandanum er ekki heimilt að af- henda kaupandanum diskinn fyrr en leyfið er fengið. Leyfi ráðuneyt- isins fæst heldur ekki nema fyrir liggi viðurkenning Pósts og síma, þannig að það virðist nánast fá- ránlegt að söluaðilar skuli ekki sjálfir taka að sér aðútvega fá þá viðurkenningu. Viðurkenning Pósts og síma mun, vel að merkja, fást sjálfkrafa eftir prófun eins disks af hverri gerð, þannig að í raun ætti það að vera sjálfsögð skylda verslananna að sjá um þetta atriði. Engu að síð- ur er það staðreynd að söluaðilar leggja ábyrgðina algerlega á hendur kaupenda. RADDIR Er tímabœrt að leggja gamla húsnœðiskerfið niður? Viðar Gunnlaugsson, slökkvi- liðsmaður, 56 ára. „Það er nú orðið langt síðan ég byggði, þannig að þetta snertir mig ekki mikið, en ég held að þetta sé alveg rétt hjá Jóhönnu. Það má salta þetta gamla kerfi. Mérfinnst óþarft að hanga alltaf í sama far- inu. Ég held að þetta sé hið besta mál." Sævar Jónsson, heildsali, 32 ára. „Ég keypti nú í gamla kerfinu en mér sýnist að nýja kerfið geti virk- að ef rétt er á málum haldið. Ég held þó að við þurfum að fá meiri reynslu af húsbréfakerfinu áður en hægt er leggja það gamla alveg niður." Sigrún Kristinsdóttir, sölumaður, 17 ára. „Það hef ég ekki hugmynd um. Það má alveg halda í gamla kerfið. Ég hef ekkert á móti því að geta valið þegar að því kemur að ég þurfi lán." Sigrún Kristinsdóttir, afgreiðslu- dama, 27 ára. „Ég vil halda gamla kerfinu. Það kemur mun betur út fyrir fólk. Ég stend að vísu ekki í húsakaupum sjálf en sé dæmi um þetta allt í kringum mig. Mér finnst hús- bréfakerfið ekki gott og vil frekar hafa bara gamla kerfið." Sigurður E. Guðmundsson, for- stjóri Húsnæðisstofnunar, 58 ára. „Ég held að þetta skiptist nú ekki svona einfaldlega í svart og hvítt, þannig að eitt kerfi sé full- komið og gallalaust en annað ónothæft."

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.