Alþýðublaðið - 05.10.1990, Síða 3
Föstudagur 5. okt. 1990
3
FRÉTTIR
í HNOTSKURN
AFMÆLI ÍSLENSK-
AMERÍSKA: Á laugar-
daginn ætlar Íslensk-Amer-
íska félagið að halda upp á
50 ára afmæli sitt. Athöfn
verður við styttu Leifs Ei-
ríkssonar þar sem borgar-
stjóri, sendiherra Banda-
ríkjanna og formaður fé-
lagsins flytja ávörp. Afmæl-
isfagnaður verður um
kvöldið, saga félagsins
kemur út og efnt verður til spurningakeppni grunnskóla-
nema. Sigurvegarinn fær ferð í Hvíta húsið og má bjóða
með sér öllum bekknum og kennaranum líka. Þá verður
opnuð ljósmyndasýning á Kjarvalsstöðum og vatnslita-
myndasýning í Menningarmiðstöðinni við Nesveg. For-
maður Islensk-Ameríska félagsins er Ólafur Stephensen.
MENGUN FRÁ BÍLUM: Umhverfisráðherra hefur
skipað starfshóp til að gera tillögur um með hvaða hætti
væri hægt að flýta því að gera ráðstafanir til að draga úr
loftmengun frá bifreiðum. Formaður nefndarinnar er Jón
Gunnar Ottósson, deildarsérfræðingur í umhverfisráðu-
neyti en aðrir nefndarmenn eru Guðrún Ásta Sigurðar-
dóttir, fjármálaráðuneyti, Sigurbjörg Sæmundsdóttir, um-
hverfisráðuneyti, Guðni Karlsson, dómsmálaráðuneyti,
Karl Ragnars, Bifreiðaskoðun, Jónás Þór Steinarsson, Bíl-
greinasambandinu, og Björn Pétursson, FIB. Ritari nefnd-
arinnar er Sigurbjörg Gísladóttir, Hollustuvernd. Meðal
þess er nefndin mun fjalla um eru aðgerðir til að auka
notkun á blýlausu bensíni, til dæmis með verðstýringu.
HLAUPIÐ í GRAFARVOGI: Blómabúðin Blómahaf og
frjálsíþróttadeild Fjölnis í Grafarvogi gangast fyrir götu-
hlaupi á laugardaginn og hefst það klukkan 11 um morg-
uninn. Hlaupa á 1,5 km og er þetta ætlað börnum og ung-
lingum 14 ára og yngri. Verðlaun verða veitt auk þess sem
allir þátttakendur fá barmmerki í viðurkenningarskyni og
birkiplöntu frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.
SANDUREÐASALT: Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins lögðu í gær fram tillögu í borgarstjórn þess efnis að
gerð verði tilraun til að draga úr hálku á götum borgarinn-
ar með því að dreifa sandi á þær í stað salts. Segir í greinar-
gerð að saltdreifing undanfarinna ára hafi verið mjög um-
deild og henni fylgt mikill óþrifnaður.
VERÐMUNURAFISKI: í könnun Verðlagsstofnunar á
fiskverði kom í ljós mikili verðmunur er á fiski eftir versl-
unum á höfuðborgarsvæðinu og einnig eftir landshlutum.
Á höfuðborgarsvæðinu var verðmunur á einstökum fisk-
tegundum allt að 149% en upp í 543% munur á verði úti
um land. Mesti verðmunur er á heilli rauðsprettu sem kost-
ar frá 160—399 krónum á höfuðborgarsvæðinu en frá
49—315 krónur utan þess svæðis. A höfuðborgarsvæðinu
er meðalverð á fiski að jafnaði 5% hærra í matvöruversl-
unum en fiskbúðum. Lægsta verð á einstökum fisktegund-
um á höfuðborgarsvæðinu var í öllum tilvikum nema einu
í fiskbúðum, þar af í átta tilvikum af fjórtán í Fiskbúðinni
Sæbjörgu, Bragagötu 22. Ýsa hefur að meðaltali hækkað
um 18% á einu ári og er það meiri hækkun en nemur al-
mennum verðlagshækkunum og er hækkandi verði á út-
flutningsmörkuðum kennt um. Meðalverð á smálúðuflök-
um er 50% hærra á höfuðborgarsvæðinu en utan þess og
ýsuflökin 15% dýrari.
STÆRSTA SKÁKMÓTIÐ TIL ÞESSA: Það verður iif
og fjör í húsakynnum Taflfélags Reykjavíkur að Faxafeni
12 á laugardaginn. Þá fer fram afmælismót TR á 90 ára af-
mæli TR. Mótið er fyrir börn og unglinga á grunnskóla-
aldri af öllu landinu og hafa yfir 1500 börn skráð sig til
leiks. Bendir því allt til þess að þetta verði stærsta skákmót
sem haldið hefur verið hérlendis. Mótinu verður tvískipt
og hefst fyrri hlutinn klukkan 10 og sá seinni kl. 15.30. Veg-
leg verðlaun eru í boði.
Útför fööur okkar
Ragnars Emilssonar
arkitekts
fer fram frá Grindarvíkurkirkju laugardaginn
6. október kl. 14. Blóm og kransar afþakkaðir.
Þeir sem vilja heiðra minningu hins látna
vinsamlega látið Grindarvíkurkirkju
njóta þess. Sparisjóðsbók nr. 175511 í
Landsbanka íslands.
Sigurborg Ragnarsdóttir Emil Jón Ragnarsson
INNLENDAR FRÉTTIR
Jón Sigurðsson iðnaðarráðherra og Robert G. Miller, varaforseti Alumax, takast i hendur að lokinni undirritun.
Iðnadarrádherra um álverið á Keilisnesi:
Mikilyægt skref
í atvinnumálum
„Við erum hér að stíga
mikilvægt skref í atvinnu-
málum og breikka at-
vinnugrundvöllinn, ekki
bara í því héraði þar sem
álverið rís, heldur einnig á
landinu öllu,“ sagði Jón
Sigurðsson iðnaðarráð-
herra, þegar hann skrifaði
undir áfangasamkomulag
í álmálinu í gær. Jón sagði
ennfremur að þetta
áfangasamkomulag sýndi
að viðræðurnar hefðu
gengið vel og að sam-
komulagið leggði grund-
völlinn að lokasamningi
um álver.
Álverið verður á Keilisnesi
og verður rekið sem ál-
bræðslusamlag. Þetta þýðir
að hvorki hráefni né unnið ál
verður í eigu álversins heldur
þriggja eignarhaldsfélaga
sem álfyrirtækin munu
stofna hér á landi. Umsvif
allra fyrirtækjanna verða
skattlögð í einu lagi. Raforku-
verð verður tengt álverði en í
endanlegum samningi verð-
ur ákvæði um endurskoðun-
arrétt. Með framlengingar-
ákvæðum má reikna með að
gildistími verði 35 ár.
Jón Sigurðsson iðnaðarráð-
herra og samninganefnd Atl-
antsálsfyrirtækjanna undir-
rituðu í gær nýtt áfangasam-
komulag í álmálinu og virðist
sem í þessu samkomulagi sé
komið ákveðið sköpulag á
flest atriði sem væntanlegur
lokasamningur mun taka til.
Fulltrúar álfyrirtækjanna
þriggja voru spurðir að því á
blaðamannafundi í gær hvort
þeir hefðu ekki áhyggjur af
því ósamkomulagi sem ríkir
innan ríkisstjórnarinnar um
málið. Þeir kváðust hins veg-
ar ekki vilja hafa afskipti af
pólitík. Þeir hygðust verða
hér í a.m.k. 30—40 ár og
væntu þess að sjá margar rík-
isstjórnir koma og fara á
þeim tíma.
Um væntanlegan orku-
samning var undirrituð sér-
stök bókun þar sem fram
kemur að álverið muni kaupa
u.þ.b. 3.000 gígavattstundir á
ári. 90% orkunnar verður
forgangsorka og álverið
verður skuldbundið til að
kaupa 90% hennar eða ríf-
lega 2.400 gígavattsstundir.
Samkvæmt þessari bókun
verður orkuverðið ákveðið
hlutfall af álverði en í endan-
legum samningi verður þó
ákvæði um endurskoðunar-
rétt. Orkussamningurinn
verður gerður til 25 ára en ál-
fyrirtækin eiga rétt á 5 ára
framlenginu tvisvar sinnum.
Ekki var á blaðamanna-
fundi í gær gefið upp um hve
hátt orkuverð verið væri að
ræða í samningum. Jóhannes
Nordal, sem bæði er formað-
ur álviðræðunefndarinnar og
formaður í stjórn Landsvirkj-
unar, tók hins vegar skýrt
fram að hann hefði undirrit-
að bókunina sem formaður
samninganefndarinnar en
ekki sem stjórnarformaður
Landsvirkjunar.
íslenska ríkið kemur til
með að eiga fulltrúa í stjórn
álbræðslunnar en hún verður
sameign þriggja eignarhalds-
fyrirtækja sem álfyrirtækin
þrjú í Atlantsálshópnum
munu stofna hér á landi. Ál-
verið mun einungis taka að
sér að vinna ál fyrir þessi
eignarhaldsfélög en mun
hvorki eignast hráefnið né
unnið ál. Álið verður allan
tímann í eigu eignarhaldsfé-
laganna.
Það er nýmæli í þessum
samningsdrögum að í þeim
er íslendingum tryggður rétt-
ur til að fullvinna allt að 5%
af framleiðslu verksmiðjunn-
ar. íslensk lög munu verða
ráðandi um túlkun og fram-
kvæmd samninganna og
ágreiningsmál munu heyra
undir íslenska dómstóla.
Umsvif fyrirtækjanna hér-
lendis verða skattlögð sem
um eina heild væri að ræða
og grundvallarreglur ís-
lenskra skattalaga gilda um
skattlagninguna. Tekjuskatt-
ur verður lagður á sam-
kvæmt sérstökum reikniregl-
um. Skattlagninguna má end-
urskoða í samræmi við
ákvarðanir Alþingis um að
leggja á nýja skatta og gert er
ráð fyrir að fyrirtækin geti
valið þann kost að lúta alveg
íslenskum skattalögum þann-
ig að öll sérákvæði falli niður.
Agreiningsefni um skattamál
munu einnig heyra undir ís-
lenska dómstóla.
I áfangasamkomulaginu
sem undirritað var í gær er
gert ráð fyrir að álfyrirtækin
njóti afsláttar á ýmsum svið-
um fyrstu árin. Þetta gildir
t.d. um orkuverð og fast-
eignagjöld. Iðnaðarráðherra
um álverið á Keilisnesi:
Stjórnarslit
ekki á dagskrá
Stjórnarslit virðast ekki
yfirvofandi næstu daga
vegna undirritunar
áfangasamkomulags I ál-
málinu í gær. Ráðherrar
Alþýðubandalagsins voru
þó harðorðir í garð Jóns
Sigurðssonar í gær og
Steingrímur Sigfússon
sagði í samtali við Alþýðu-
blaðið að ef einhver væri
að sprengja ríkisstjórnina
væri það hann.
Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins sendi í gær frá sér
ályktun þar sem farið er
hörðum orðum um viðræður
tveggja Alþýðuflokksráð-
herra við forystulið Sjálf-
stæðiflokksins um álmálið á
meðan það er til umfjöllunar
í ríkisstjórninni. í ályktuninni
segir einnig að flestir þættir
„hugsanlegra samninga um
álver“ þarfnist nánari skýr-
inga.
Steingrímur Sigfússon,
landbúnaðar- og samgöngu-
ráðherra sagði í samtali við
Alþýðublaðið í gær að því
færi víðs fjarri að ráðherrar
Alþýðubandalagsins væru
einangraðir í afstöðu sinni til
samningsdraganna. „Ég tel
að það hafi komið skýrt fram
hjá forsætisráðherra á ríkis-
stjórnarfundi í morgun að
Framsóknarflokkurinn telur
sig óbundinn af undirskrift
iðnaðarráðherra."