Alþýðublaðið - 27.10.1990, Blaðsíða 7
Laugardagur 27. október 1990
7
• •• • • ••• • •
• • • • •
• • • • • ••• • •
• • • • •
• • • ••• • • •
••••••••• ••••
• • • •
• •••• ••••
• • • •
• • • • • • •
ENGIR VINIR: Erfiðleikar í samskiptum Bandaríkja-
manna og ísraelsmanna fara vaxandi. Nú er jafnvel talað
opinberlega um persónulega óvild milli Ytzhaks Shamirs
forsætisráðherra ísraels og Georges Bush forseta Banda-
ríkjanna. Jafnframt er talið að gagnkvæm tortryggni ríki
rnilli utanríkisráðherra landanna, þeirra James Bakers
og Davids Levy.
LJOTIR ARABAR: Bandarískar kvikmyndir og sjón-
varpsefni hafa áratugum saman verið notuð til að kynda
undir hatri á aröbum. „Ljóti arabinn" er manngerð sem
gjarna er notuð í skúrkana í bandarískum kvikmyndum.
Það er bandaríski fjölmiðlafræðingurinn Jack Shaheen
sem hefur komist að þessari niðurstöðu eftir langvinnar
rannsóknir.
NEYÐARÁSTAND: Stjórnvöld í Sovétlýðveldinu
Moldovu, sem áður kallaðist Moldavía, lýstu í gær yfir
neyðarástandi í þeim hluta lýðveldisins sem byggður er
fólki af tyrkneskum uppruna. Tyrkneski minnihlutinn hef-
ur sagt sig úr lögum við lýðveldið og hyggst kjósa sér eigin
stjórn. Enn er talin hætta á að borgarastyrjöld brjótist út.
BIRTA LEYNISKJÖL:
Kúbumenn eru reiðubúnir
að birta öll leyniskjöl sem
varða Kúbudeiluna 1962.
Háttsettur embættismaður
lýsti þessu yfir í Havana í
gær. Hann harðneitaðijafn-
framt ásökunum sem hafð-
ar hafa verið eftir Nikita
Khrústjov, þess efnis að
Kúbumenn hafi beðið Sov-
étleiðtogann þáverandi að
gera kjarnorkuvopnaárás á
Bandaríkin. Embættismaðurinn sagði jafnframt að ef birt-
ar yrðu bandarískar skýrslur frá þessum tíma myndu þær
sýna að Bandaríkjamenn hafi áformað árás á Kúbu áður
en sovésku eldflaugarnar voru settar upp.
í TUKTHÚSIÐ: Marion
Barry, fyrrum borgarstjóri
í Washington, var í gær
dæmdur í sex mánaða
fangelsi fyrir kókaínneyslu
sína. Venjan er að menn fái
skilorðsbundinn dóm fyrir
fyrsta brot, en dómarinn
kvað Barry ekki hafa sýnt
nein merki um iðrun.
MÁNAÐASLÖKKISTARF: Það gæti tekið marga mán-
uði að slökkva eldana í olíulindum í Kúvæt, ef írakar
sprengdu þær í hugsanlegri styrjöld. Olíulindirnar í land-
inu skipta hundruðum og skemmdarverk á þeim myndu
valda ægilegum umhverfisspjöllum, sögðu sérfræðingar í
gær.
ARASRÆDD : James Baker, utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna, hyggst fara til Persaflóa og e.t.v. Evrópu í næstu
viku. Óstaðfestar fregnir hermdu í gær að hann kynni að
hafa í hyggju að ræða ákveðna tímasetningu fyrir árás á ír-
ak.
MEGA SKJOTA ARABA: ísraelsk hernaðaryfirvöld
lýstu því yfir í gær að hermönnum og almennum borgur-
um væri heimilt að skjóta Palestínumenn sem köstuðu
grjóti, þó að því tilskildu að hnullungarnir væru nægilega
stórir til að lífshætta stafaði af.
ÞÝSKIR GÍSLAR: utan-
ríkisráðherra Þýskalands,
Hans Dietrich Genscher,
sagði í gær frá því að írakar
byðust til að sleppa þýskum
gíslum gegn því að ýmis
skilyrði væru uppfyllt. Italir
hafa gagnrýnt ferðir ým-
issa nafntogaðra manna af
Vesturlöndum til íraks til að
fá gísla látna lausa.
UTGONGUBANN: í hinni helgu borg Ayodhya á Norð-
ur-Indlandi hefur verið fyrirskipað útgöngubann allan sól-
arhringinn. Á Indlandi er talið að um 70 manns hafi látið
lífið í trúarbragðaóeirðum allra síðustu daga. Singh for-
sætisráðherra skoraði á þjóð sína í ávarpi í gær að láta af
manndráþum.
FRIÐSAMLEG LAUSN: Eftir að hafa rætt við Hosni
Mubarak forseta Egyptalands í gær, sagðist Jevgení
Prímakov, sérlegur sendimaður Gorbatsjovs Sovétfor-
seta, telja verulegar líkur á ’að friðsamlega lausn mætti
finna á Persaflóadeilunni.
ERLENDAR FRÉTTIR
Umsjón Jón Daníelsson
ERLENDAR FRÉTTIR
James Baker utanríkisráðherra á fundi utanríkisnefndar öldungadeildarinnar: Ekkert loforð um að leita samþykkis þingsins áður
en ráðist verður á íraka.
Ráöamenn í Washington
Leita að ástæðu til
að ráðast á íraka
Bandarísk stjórnvöld
eru reiðubúin að ráðast á
írak og innan stjórnarinn-
ar leita menn að nothæfu
tilefni, þegar eða ef, Bush
forseti tekur þá ákvörðun
að hefja styrjöld. Utanrík-
isráðherrann, James Bak-
er, neitaði nýverið að gefa
utanríkisnefndum þings-
ins loforð um að leitað yrði
samþykkis þingsins áður
en ráðist yrði á írak.
í nýútkomnu hefti tímarits-
ins Time fjalla tveir banda-
rískir fréttaskýrendur um
möguleikana á styrjöld á
Persaflócisvæðinu og þann
vanda sem Bandarísk stjórn-
Saddam Hussein kveðst
nú reiðubúinn til við-
ræðna um Kúvæt. Hann
lýsti þessu yfir í bréfi til
Franqois Mitterrand
Frakklandsforseta að því
er frönsk sjónvarpsstöð
skýrði frá í gær. Að sögn
stöðvarinnar segist Sadd-
am í bréfinu vilja leita
allra ieiða til að finna frið-
samlega lausn á Persaflóa-
deilunni.
Mitterrand og Mikhail Gor-
batsjov munu ræðast við í
París á sunnudag og mánu-
dag og er bréf Saddams Hus-
sein skrifað í tilefni af þeim
fundi. íraksforseti segist í
bréfinu vona að leiðtogarnir
tveir láti einskis ófreistað til
að finna lausn á öHum vanda-
málum Persaflóasvæðisins,
sérstaklega þó Palestínumál-
inu. Hann bætir því við að
hann sé opinn fyrir öllum
hugmyndum og til viðræðu
um hvaðeina sem Mitterrand
og Gorbatsjov vilji leggja til
málanna, líka um Kúvæt.
Fyrir utan ýmsa leiðtoga
arabaríkja, eru það einmitt
Gorbatsjov og Mitterrand
sem helst hafa reynt að leita
friðsamlegrar lausnar í Persa-
flóadeilunni. Saddam Hus-
sein hefur fram til þess verið
völd standa frammi fyrir
varðandi haldbæra afsökun
til að hefja styrjöld. Þeir
halda því fram að forsetinn
og samstarfsmenn hans hafi
nánast tilbúinn lista yfir til-
efni til styrjaldar. Helsta
vandamálið sé hins vegar
það að írakar gæti þess vand-
lega að gera ekkert sem geti
gefið Bandaríkjamönnum til-
efni til árásar.
Á fundi með utanríkismála-
nefnd fulltrúadeildar Banda-
ríkjaþings, var Baker utanrík-
isráðherra spurður hvort
hann gæti fullvissað nefndar-
menn um að Bandaríkin
myndu ekki ráðast á hersveit-
ófánalegur til lýsa því yfir op-
inberlega að írakar geti hugs-
að sér að fara á brott úr Kú-
væt.
Utanríkisráðherra ír-
lands og írlandsráðherra
bresku stjórnarinnar,
lýstu því sameiginlega yfir
í London í gær að þeir
myndu leita allra ráða til
að finna umræðugrund-
völl um málefni Norður-ír-
lands sem allir aðilar gætu
sætt sig við. Ráðherrarnir
lýstu jafnfram hryllingi
sínum yfir þeirru nýju
árásartækni írska lýðveld-
ishersins að neyða
óbrey tta borgara til að aka
sprengiefni að skotmark-
inu.
Gerry Collins, utanríkisráð-
herra írlands, og Peter
ir Saddams Husseins án þess
að ráðfæra sig fyrst við þing-
ið. Svar Bakers var stutt og
laggott: ,,Nei.“ Skömmu áður
hafði hann gefið utanríkis-
málanefnd öldungadeildar-
innar svipað svar. Þingmenn
vísuðu til yfirlýsingar Ed-
vards Shevardnadze, utanrík-
isráðherra Sovétríkjanna,
þess efnis að Sovétmenn
myndu ekki grípa til neinna
hernaðaraðgerða á Persa-
flóasvæðinu án þess að fá
fyrst samþykki þingsins.
í grein sinni í Time telja
bandarísku fréttaskýrend-
urnir upp fjölda mögulegra
atburða sem þeir segja að
ráðamenn í Washington telji
nægilega átyllu til að hefja
stríð. Þótt Saddam Hussein
leggi ekki til beint tilefni, t.d.
með því að ráðast á ísrael,
myndu bandarískir ráða-
menn geta látið sér nægja
vísbendingar um að írakar
væru að undirbúa árás. Slíkar
vísbendingar gætu t.d. feng-
ist með því að bandarískir
gervihnettir næðu myndum
af því að verið væri að fylla
eldsneyti á írakskar eldflaug-
ar. Þeir nefna líka að áfram-
haldandi misþyrmingar íraka
á borgurum í Kúvæt megi
Brooke, sá ráðherra í ríkis-
stjórn Thatchers, sem fer
með málefni Norður-írlands,
hittust í London í gær til að
ræða ástandið á Norður-ír-
landi eftir árásir frska lýð-
veldishersins aðfaranótt mið-
vikudagsins sem urðu alls sjö
manns að bana.
í sameiginlegri yfirlýsingu
ráðherranna viðurkenndu
þeir að mistekist hefði að
finna leið til að veita Norð-
ur-írlandi einhvers konar
heimastjórn að nýju. Árás
IRA á þrjár varðstöðvar
breskra hermanna eru taldar
gerðar til hefnda eftir Dennis
Crew, einn leiðtoga IRA sem
hugsanlega nota sem afsök-
un fyrir árás. Hryðjuverk ein-
hvers staðar í heiminum sem
með einhvrerjum hætti
mætti gera sennilegt að frak-
ar stæðu bak við, — eða mis-
þyrmingar á gíslum og margt
fleira er í greininni talið upp
sem nothæfar átyllur til að
hefja stríð við Persaflóa.
RÍáðamenn í Washington
eru líka farnir að tala um að
fá Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna til að samþykkja
áíyktun sem heimili að
vopnavaldi verði beitt. Það er
þó talið líklegt að slík ályktun
félli fyrir neitunvaldi. Reynd-
ar er talið ólíklegt að neitunin
kæmi frá Sovétmönnum, hins
vegar gætu Kínverjar beitt
neitunarvaldi, eða jafnvel
Frakkar.
Bandarísku fréttaskýrend-
urnir virðast þeirrar skoðun-
ar að spurningin um stríð eða
frið við Persaflóa, sé einfald-
lega spurningin um ákvörð-
un Bush Bandaríkjaforseta.
Þeir fullyrða jafnframt að
Saddam Hussein forðist það
eins og heitan eldinn að gefa
forsetanum minnsta tilefni til
árásar.
breskir hermenn skutu til
bana fyrir fáeinum vikum.
Þar með er írski lýðveldisher-
inn aftur farinn að beina árás-
um sínum að breskum her-
mönnum á Norður-írlandi
eftir að hafa beint kröftum
sínum að Englandi síðustu
tvö ár.
Sex menn sem handteknir
voru í fylkinu Donegal, sem
er írlandsmegin landamær-
anna, voru leiddir fyrir rétt í
Dublin í gær og úrskurðaðir í
gæsluvarðhald til 6. nóvemb-
er. Þeir eru ákærðir fyrir að
vera meðlimir í IRA og grun-
aðir um aðild að árásunum.
Saddam Hussein sendir Mitterrand bréf
Vill semja
um Kúvæt
* *
Bretar og Irar funda um Noröur-Irland
Vilja finna nýjan
umræðugrundvöll