Alþýðublaðið - 28.11.1990, Page 1
MIÐVIKUDAGUR
28. NÓVEMBER 1990
JÓN SÆMUNDUR
ÁFRAM í 1. SÆTI: uPP-
stillingarnefnd kjördæmis-
ráðs Alþýðuflokksins á
Norðurlandi vestra hefur
ákveðið að Jón Sæmund-
ur Sigurjónsson alþingis-
maður skipi áfram 1. sæti
lista flokksins við komandi
aiþingiskosningar. Ekki
hefur verið tekin ákvörðun
um skipan annarra sæta. ,,Það er greinilega ekki áhugi fyr-
ir prófkjöri núna og allir flokkar í kjördæminu hafa tekið
þann kostinn að stilla upp,“ sagði Jón Sæmundur við Al-
þýðublaðið. ,,Ég hafði lýst því yfir að ég gæfi kost á mér
hvor aðferðin sem yrði farin," sagði Jón Sæmundur enn-
fremur.
TALDIR AF: Mennirnir tveir sem leitað hefur verið á
Húnaflóa undanfarna daga eru nú taldir af. Þeir hétu Dag-
bjartur Jónsson, 45 ára, Víðigerði í Víðidal og Jónas
Sigfússon frá Gröf í Víðidal, 18 ára.
ANNAR LEIÐANGUR A MANGAN-MIÐ: Ríkisút-
varpið sagði frá því í kvöldfréttum að breskir vísindamenn
hafi áhuga á frekari rannsóknum á svæði því á Reykjanes-
hrygg þar sem málmurinn mangan fannst á dögunum.
Greinilegt er að áhugi er víða vakinn á rannsókn þessa
svæðis, innlendur og erlendur, enda hugsanlegt að þarna
leynist talsverður auður innan efnahagslögsögunnar.
Mangan er í sjálfu sér ekki verðmætt, en stundum eru í
tengslum við mangan-útfellingar aðrir málmar, m.a. silfur
og sink og kopar.
POLVERJAR KAUPA
SILD: Á sama tíma og Sov-
étríkin virðast hætta að
kaupa af okkur síld, —
koma Pólverjar og gera
innkaup á 26.000 tunnum
af hausskorinni og léttverk-
aðri síld. Þetta er 170 millj-
ón króna samningur og
sagði Ríkisútvarpið í gær
að það samsvaraði 60% af
Svíþjóðarmarkaðnum.
Undanfarin ár hafa Pólverj-
ar lítið keypt af síld héðan.
VIÐUNANDI AHÆTTA: íbúar í Grafarvogi eru ekki
búnir að gleyma þeirri hættu sem þeim, og raunar mun
fleiri íbúum höfuðborgarsvæðisins, stafar af Áburðar-
verksmiðjunni í Gufunesi. Blaðamannafundur vegna
kynningar á niðurstöðum áhættumats sem ríkisstjórnin lét
gera hjá Technica a.s., norsku fyrirtæki, var haldinn án
þess að GV, blaði Grafarvogsbúa væri boðið. Þar kom fram
að áhættan væri ásættanleg fyrir íbúðabyggðina. Rúnar
Bjarnason, slökkviliðsstjóri, segir hinsvegar að mat þetta
sé marklaust, hvergi í matinu sé minnst á mestu hættuna,
flutning ammoníaks með skipum og losun farmsins. Ein-
mitt þessi atriði hafa leitt af sér slys, síðast fyrir nokkrum
vikum í Hollandi.
LEIÐARINN í DAC
Leiðari dagsins fjallar um hugmyndir fjármálaráð-
herra um svonefndan hátekjuskatt. Alþýðublaðið
telur ekki tímabært að innleiða annað skattþrep, ekki
síst vegna þess að það myndi raska mjög stað-
greiðslukerfinu og öðrum þáttum í skattkerfinu sem
innleitt var 1987 og enn hefur ekki fengið fullan að-
lögunartíma.
SJA LEIÐARA A BLS. 4:
EKKI TÍMABÆR
HATEKJUSKATTUR ER
Major í Downing-
stræti
John Major, sonur sirkus-
Imanns, mætir í dag til vinnu
sinnar sem forsætisráðherra
Bretlands. Downingstræti 10
er hér eftir bústaður hans og
fjölskyldu hans, skyndilega og
óvænt. Margaret Thatcher
flytur út.
Bláa lónið og
Persaflói
Bláa lónið er í heimspress-
unni þessa dagana eftir heim-
J. sókn fréttamanns frá Reuter-
fréttastofunni. Japanskir og
franskir aðilar vilja gjarnan fjár-'
festa þar.
Löggjafinn brýtur
lög á lögbrjótum
Þrátt fyrir að til séu lög og
Ireglugerðir um hvernig
mannabústaðir eigi að vera, —
þá eru þau lög ekki í heiðri höfð
að Litla-Hrauni.
— ef ekkert verður úr samningum EFTA og EB.
Spánverjar krefjast 70—80 þúsund tonna veiði á EFTA-miðum.
Viðræður við Evrópu-
bandalagið eru á við-
kvæmu stigi. Ef ekki
semst á næstu mánuðum
mun pólitískur kraftur í
EFTA ekki duga. Hann er
á þrotum. Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkis-
ráðherra segir, að ef Is-
Iendingar útilokist frá
Evrópska efnahags-
svæðinu, komi upp
gamla spurningin um
samninga við Bandarík-
in.
Evrópubandalagið krefst
veiða í fiskveiðilögsögu
EFTA-ríkja, en Island
hleypir þeim ekki inn. Jón
Baldvin Hannibalsson ut-
anríkisráðherra segir að Is-
lendingar greiði ekki einir
„fórnarkostnað" íslend-
inga.
Ef EFTA greiðir sameig-
inlega reikninginn fyrir
samning EFTA-ríkjanna og
EB, kemur það í hlut Norð-
manna og Svía að hleypa
EB inn í fiskveiðilögsögu
sinna landa. Evrópubanda-
lagið fer líklega fram á
10—20 þúsund tonna afla
en kröfu Spánverja um
70—80 þúsnd tonna afla á
EFTA-miðum hefur verið
vísað frá.
Samningaviðræðurnar
eru á viðkvæmu stigi. Svíar
segjast ætla að sækja um
aðild að Evrópubandalag-
inu á næsta ári og eru því á
hliðarspori.Utanríkisráð-
herra Austurríkis sagði í
gær að leysa yrði innan
hálfs mánaðar úr flækj-
unni, sem samningarnir
eru í nú. Dragist viðræður á
langinn gefast samninga-
menn væntanlega upp, því
að pólitískur kraftur er á
þrotum í EFTA. Þá gæti
komið að því að íslending-
ar hölluðu sér meira í vest-
ur. Þar næðust væntanlega
hagstæðir samningar.
Sjá nánar fréttaskýringu
á síðu 5.
Alþýðubandalagsfélagar á Dalvík týna tölunni:
Stjernarmenn
segja af sér
Alþýðubandalagsfélagið
á Dalvík er nú stjórnar-
laust. Stjórnin hefur öll
sagt af sér utan ritarans
sem ekki var mættur á síð-
asta stjórnarfund. Tveir
stjórnarmanna sögðu sig
jafnframt úr félaginu.
Að sögn Þóru Rósu Geirs-
dóttir, sem var formaður fé-
lagsins, sagði öll stjórnin af
sér nema Jóhann Antonsson
en hann hafði ekki verið
mættur á fundinn. Hún sagði
að það hefði verið að smá-
fækka í félaginu en það ætti
sínar eðlilegu skýringar, stór
hluti af því. Fólk hefði m.a.
flutt af staðnum.
Nú eru 16 manns eftir í Al-
þýðubandalagsfélaginu en
voru þetta 40-50 manns fyrir
nokkrum árum. Hún sagði
ástæðuna fyrir því að hún
hefði sagt sig úr stjórninni
vera þá að það hafi ekki verið
neitt starf í félaginu, almenn
deyfð og fólk hafi ekki sinnt
því að mæta á fundi. ,,Þá voru
í stjórninni aðilar sem vildu
ganga úr félaginu. Við í
stjórninni boðuðum því til fé-
lagsfundar til að ræða þetta
og ég m.a. vildi losa mig und-
an þeirri ábyrgð og frá þessu
sem var orðið ekki neitt,
neitt,' sagði Þóra Rósa við Al-
þýðublaðið.
Nú síðast gengu sjö manns
úr félaginu. Mikill uppgangur
var i Alþýðubandalagsfélag-
inu á Dalvík á þeim tíma sem
Svanfríður Jónasdóttir tók
þátt í forvali Alþýðubanda-
lagsins fyrir síðustu kosning-
ar. Nú er hún flutt suður enda
aðstoðarmaður fjármálaráð-
herra. Þingmaður þeirra Dal-
víkinga, Steingrímur J. Sig-
fússon ráðherra, felldi síðan
Svanfríði í kosningum um
varaformannsembætti Al-
þýðubandalagsins. Olli það
óánægju margra Alþýðu-
bandalagsmanna á Dalvík.
Nú er svo komið að sá eini
sem ekki hefur sagt sig úr
stjórn Alþýðubandalagsfé-
lags Dalvíkur er einmitt eig-
inmaður Svanfríðar, Jóhann
Antonsson.
RITSTJORN /* 681866 — 83320 - FAX 82019 • ASKRIFT OG AUGLYSINGAR ^ 681866