Alþýðublaðið - 28.11.1990, Qupperneq 6

Alþýðublaðið - 28.11.1990, Qupperneq 6
6 Miðvikudagur 28. nóvember 1990 Athugaseitid frá f jármalaráðuneytinu í athugasemd frá fjármála- ráðuneytinu í gær er mótmælt þeim staðhæfingum Alþýðu- biaðsins að fjármálaráðherra hafi „reiknað vitlaust" og feng- ið mikiu hærri upphæð en Al- þýðublaðið um heildarupphæð hátekjuskatts sem mundi mið- ast við 8% á tekjur sem að jafn- aði eru hærri en 300 þúsund árið 1991. í athugasemdinni var bent ná- kvæmlega á hvar misskilningur Alþýðublaðsins lá — í því að það notaði tölur frá 1989, án þess að framreikna þær til ársins 1991. í Alþýðublaðinu í gær kemur í ljós að blaðið situr enn við sinn keip. Rök blaðsins virðast nú eink- um þrennskonar. í fyrsta lagi hafi komið fram í blaðafréttum að 5% framteljenda muni á 1991 ná tekjum sem að jafnaði fara yfir 300 þúsund krón- ur á mánuði, en í athugasemdinni sé rætt um 2'/2%. Það er rétt að í fjölmiðlum hefur komist á flakk þessi ranga hlut- fallstala. Hún stendur hins vegar ekki að baki útreikningum fjár- málaráðuneytisins. Varla Alþýðu- blaðsins heldur, því að þá sýndu niðurstöður blaðsins væntanlega helmingi hærri tölu en reikn- ingar ráðuneytisins, en sem kunn- ugt ér heldur Alþýðublaðið því fram að skattur mundi skila helm- ingi minni tekjum en talið er í ráðuneytinu. í öðru lagi segir Alþýðublaðið að ráðuneytið hafi ekki reiknað með að menn reyni að komast hjá því að lenda í þessum skatti. Þótt slík rök væru rétt eru þau of veik til að standa undir staðhæfingum um ranga útreikninga. Það er hins vegar rétt hjá blaðinu að þegar skattar eru settir á nýjan stofn má reikna með að menn reyni að flytja tekjur sínar til og ná sem mestu skattahagræði, eins og það heitir. Um hátekjuskatt af því tagi sem hér um ræðir skiptir til dæmis miklu hvernig hagað er sköttum á fyrirtæki, vegna þess að eigend- um smárra og meðalstórra fyrir- tækja er mörgum í sjálfsvald sett hvort þeir taka hagnað úr fyrir- tækjum sínum sem laun eða halda honum áfram inni. Meðal annars með tilliti til þessa þáttar hefur ráðuneytið valið varlegustu leið- ina í áætlunum sínum um hugsan- legar tekjur ríkissjóðs af hátekju- skatti. í því dæmi sem Alþýðublað- ið tekur hefur fjármálaráðuneytið nefnt niðurstöðuna 400 milljónir króna, þótt Alþýðublaðið fái 436 milljóna niðurstöðu. Með slíkri varúð er einmitt tekið tillit til óvissuþátta eins og þeirra sem blaðið nefnir. í þriðja lagi telur Alþýðublaðið réttara að nota tölurnar frá 1989 en áætlaðar tölur um 1991. Þar með virðist blaðið enn ekki hafa skilið kjarna málsins. Tillögurn- ar um hátekjuskatt, húsaleigu- bætur og fleira miðast við árið 1991, miðast við tekjur manna á því ári, þann skatt sem rynni í ríkissjóð af tekjum ársins 1991 og þær bætur sem greidd- ar yrðu úr sjóðnum á því ári. Það er hins vegar ekki gert ráð fyrir því í tillögum að skattleggja tekjur manna árið 1989. Þær tekj- ur hafa þegar verið skattlagðar, nefnilega árið 1989 og að ein- hverju leyti árið eftir. Það væri þess vegna fullkom- lega óeðlilegt að framreikna ekki tölur til áætlaðs verðlags 1991 — samkvæmt forsendum þjóðhags- stofnunar og fjárlagafrumvarps, og það hefur fjármálaráðuneytið gert með viðurkenndum aðferð- um. Rétt er að vekja athygli á að tölurnar sem þar eru lagðar til grundvallar eru fengnar frá Þjóð- hagsstofnun, og eru þær sömu og Alþýðublaðið notaði þegar það „reiknaði vitlaust". Alþýðublaðinu er velkomið að kynna sér alla til- högun við þennan framreikning í fjármálaráðuneytinu. Menn og dagblöð hafa öðru hvoru rangt fyrir sér. Þá er yfirleitt besta ráðið að viðurkenna einfald- lega að svo hafi verið. Að auki er mannsbragð að því að biðjast af- sökunar. Mörður Arnason, upplýsingafulltrúi fjármálaráðherra. RAÐAUGLÝSINGAR Auglýsing frá Hagstofu íslands Eruö þið rétt skráð í þjóðskrá? 1. Áríðandi er að heimilisföng séu rétt skráð í þjóð- skrá. 2. Skattkort, staðgreiðsluyfirlit, barnabætur, launa- seðlar og margt fleira er sent út eftir þjóðskrá. Skattframtöl eru send á lögheimili manna eins og þau eru skrá 1. desember ár hvert. Bent skal á að við alþingiskosningar eru menn teknir á kjörskrá í því sveitarfélagi er þeir áttu lög- heimili í 1. desember næstum fyrir kjördag. 3. Aðsetursskipti skal tilkynna til skrifstofu viðkom- andi sveitarfélags, í Reykjavík til Hagstofunnar, Skuggasundi 3, Manntalsskrifstofunnar, Skúla- túni 2, eða lögregluvarðstofu. Fálkaorðan Tilboð óskast í smíði heiðursmerkja hinnar íslensku fálkaorðu. Þeir sem áhuga kynnu að hafa eru beðnir um að til- kynna það skriflega fyrir 10. desember nk. til Orðu- nefndar, Stjórnarráðshúsinu við Lækjargötu, 150 Reykjavík. Tilboð Ræsti- og þvottavörur Fyrirspurn nr. 2440/90 Innkaupastofnun ríkisins óskar eftir tilboðum í ræsti- og þvottavörur, ásamt tilheyrandi rekstrar- vörum, til nota á ríkisstofnunum. Fyrirspurnin er afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni 7, Reykjavík, milli kl. 08.00 og 16.00 næstu daga. Tilboðum þarf að skila eigi síðar en 7. desember nk. Innkaupastofnun ríkisins. IMIMKAUPASTOFIMUN RÍKISINS „O.'GAR T JNI 7 ' 1 0f> REVKJAVIK Flokkætarfið Alþýðuflokksfélag Garðabæjar og Bessastaðahrepps Fundur í bæjarmálaráði verður haldinn að Goðatúni 2, kl. 20.30 miðvikudaginn 28. nóvember. Allir flokksmenn velkomnir. Stjórnin. Jafnaðarmenn Akranesi Skagarósin Opið hús verður í Röst föstudaginn 30. nóvember kl. 20.30. Slegið verður á léttu strengina. Alþýðuflokksfélag Akraness. Alþýðuf lokkurinn - Austurland Kjördæmisráð Fundur í Kjördæmisráði Alþýðuflokksins á Austur- landi verður haldinn sunnudaginn 2. desember í Verkalýðshúsinu á Fáskrúðsfirði kl. 13.00. Fundarefni: 1. Framboð 1991. 2. Stjórnmálaályktun. 3. Önnur mál. Allir alþýðuflokksmenn og aðrir stuðningsmenn velkomnir. Gestir frá yfirstjórn Alþýðuflokksins koma til fund- arins. Stjórn Kjördæmisráðs. Félagsmiðstöð jafnaðarmanna Hverfisgötu 8—10 Sími15020 Fimmtudagskvöld með ungum jafnaðarmönnum Rósin verður opin næsta fimmtudagskvöld kl. 20.30—23.30. Ungir jafnaðarmenn í léttu spjalli. Öllum opið. SUJ. Lokað föstudaginn 30. nóvember vegna breytinga. Höfum opið laugardaginn 1. desemberfrá kl. 12.00 til 17.00. Heitt kaffi, kakó og vöfflur. Lítið inn eftir búðarápið. Nánar auglýst síðar. Suðurlandskjördæmi Auglýsing um f und og framboðsfrest Kjördæmisráð Alþýðuflokksins í Suðurlandskjör- dæmi heldur fund með kjördæmisráðsmeðlimum laugardaginn 1. desember nk. kl. 14.00 á Hótel Sel- fossi. Dagskrá: 1. Tekin ákvörðun um framkvæmd vals í efsta sæti væntanlegs framboðslista flokksins vegna kom- andi alþingiskosninga. 2. Framboðsmálefni — væntanlegar alþingiskosn- ingar. 3. Önnur mál. Frambjóðendur sem áhuga hafa á að koma til álita sem frambjóðendur í efsta sæti listans, snúi sér til Eriings Ævars Jónssonar, Klébergi 5, sími 98-33766, 815 Þorlákshöfn, fyrir 1. desember nk. Stjórn Kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Suðurlandskjördæmi

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.