Alþýðublaðið - 04.12.1990, Blaðsíða 6
6
Þriðjudagur 4. desember 1990
Jón Balduin Hannibalsson um fiskveidistefnu Evrópubandalagsins:
Úrelt og stendur
árangri fyrir þrifum
,,Fyrir land eins og ísland er valid
augljóst. Stærstu viðskiptaaöilarnir
eru ávallt í aðstöðu til að vernda
hagsmuni sína. Smá og meðalstór
ríki verða að reiða sig á alþjóða-
Jón Baldvin Hannibalsson: Veröum
aö reiða okkur á alþjóðasamninga.
samninga," sagði í ræðu utanríkis-
ráðherra á fundi GATT um tolla og
viðskipti í Brussel í gær. Stefán Frið-
finnsson, aðstoðarmaður utanríkis-
ráðherra, flutti ræðuna í fjarveru
ráðherra.
Utanríkisráðherra telur brýnt að
meta langtímaárangur af viðræðum
GATT. Hið alþjóðlega viðskiptakerfi
hafi reynst áhrifaríkur aflvaki hag-
vaxtar og velmegunar. En það sé
grundvallaratriði að samkomulag
náist um landbúnaðarmálin í þess-
um viðræðum. Ágreiningur sé líka
um þjónustuviðskipti, en nauðsyn-
legt sé að komast að samkomulagi
um leiðir til að auka frelsi í viðskipt-
um á því sviði. Þá vék utanríkisráð-
herra að verslun með fisk og fiskaf-
urðir:
„Verslun með fisk og fiskafurðir er
grundvallaratriði fyrir ísland. Til-
boð frá öðrum þátttakendum varð-
andi þessa vöruflokka eru ófull-
nægjandi. Sú stefna EB að tengja
viðskipti við aðgang að auðlindum
hefur staðið árangri fyrir þrifum á
þessu sviði." Þá sagði ráðherra að
einangrun bandalagsins í málinu
hlyti að leiða til þess að menn heykt-
ust á úreltri skoðun. „Hins vegar ber
að meta að í tvíhliða viðræðum hef-
ur ísland fengið fáein tilboð um
tollalækkanir á fiskafurðum og aðr-
ir hafa gefið til kynna möguleika á
sveigjanleika í þeim efnum. Engu að
síður hlýt ég að leggja áherslu á að
heildarútkoman er ófullnægjandi
enn sem komið er.“
Þá vék utanríkisráðherra að regl-
um GATT, sem hann kvað grundvöll
öryggis og stöðugleika í heimsvið-
skiptum. „Veikar GATT-reglur grafa
undan virkni fjölþjóðakerfisins og
opna fyrir möguleika á einhliða að-
gerðum og verndarhyggju." í lok
ræðunnar í gær fjallaði ráðherra um
þátt íslands á vettvangi GATT:
Félagsmálaráðuneytið hefur
sent Alþýðublaðinu eftirfar-
andi texta varðandi umræður á
Alþingi um sérprentun á lög-
um um Húsnæðisstofnun ríkis-
ins.
Verulegar breytingar voru gerð-
ar á lögum um Húsnæðisstofnun
ríkisins sem samþykktar voru af
Alþingi sl. vor og vörðuðu félags-
legar íbúðir. Úr eldri lögum voru
felldar 66 greinar en 52 nýjum
greinum bætt við.
Til hagræðis fyrir þá sem þurfa
á lögunum að halda, svo sem al-
þingismenn, var ákveðið að gefa
út sérprentun nú í haust, til að
hægt væri að lesa gögnin í einu
lagi ásamt þeim fjölmörgu breyt-
ingum sem gerðar hafa verið á
þeim.
Það þarf naumast að taka það
fram, að sérprentun hefur ekki
lagagildi, heldur er hún eins konar
handbók, þar sem er að finna lög,
með öllum þeim breytingum sem
gerðar hafa verið á þeim, og hefur
það verið fellt í einn lagatexta.
„ísland hefur unnið af heilum hug
að góðum árangri þessara við-
ræðna. Að okkar áliti er sterkt al-
þjóðlegt viðskiptakerfi óhjákvæmi-
legt. íslendingar sjá slíkt kerfi sem
tæki fyrir hagvöxt og bestu vörnina
gegn verndarhyggju og geðþótta-
ákvörðunum. Þessi fundur er okkur
öllum afar mikilvægur. Við skulum
Við undirbúning sérprentunar
komu í ljós misfellur á lögunum.
Eins og venja er til voru þær leið-
réttar með neðanmálsathuga-
semdum, þannig að útgáfan væri
heilleg og kæmi að gagni.
Vekja varð athygli á að leiðrétta
þyrfti greinatilvísun í 100 gr. lag-
anna þar sem fjallað er um nauð-
ungarsölu félagslegra íbúða. Eins
og sérstaklega er tekið fram í at-
hugasemd við þá grein í frumvarp-
inu þá væri þessi grein „sam-
hljóða núgildandi lagaákvæði um
það efni sbr. 70. gr. laga nr.
86/1988“. Af þessu er Ijóst að ekki
stóð til að breyta neinu frá þágild-
andi lögum um útreikning sölu-
verðs íbúða á uppboði, enda þótt
slæðst hafi inn í lagagreinina röng
tilvísun sem ekki var veitt athygli
í meðförum þingsins á málinu.
Þetta byggðist á því að eldra grein-
anúmeri var ekki breytt réttilega.
Ljóst var því að breyta þyrfti lög-
um um Húsnæðisstofnun ríkisins
til að tilvísun yrði rétt, og var haf-
inn undirbúningur að því. Ákveð-
leggja alla áherslu á að tryggja ár-
angur þessara viðræðna. Of mikið
er í húfi til þess að viðræðurnar mis-
takist,“ sagði að lokum í ræðu Jóns
Baldvins Hannibalssonar.
ið var að benda á að tilvísun í um-
ræddri grein væri ekki rétt, er sér-
prentunin kæmi út enda var hún
ekki í samræmi við athugasemdir
við greinina í frumvarpinu sem
varð að lögum. Það var gert með
því að setja rétta tilvísun [ horn-
klofa og segja neðanmáls „í yy lið
3. gr. laga nr. 70/1900 er ranglega
vísað í 2. mgr. 102. gr“, Með þessu
móti er ráðuneytið að benda á að
tilvísunin hafi verið röng miðað
við tildrög laganna. Það er hins
vegar fráleitt að telja að ráðuneyt-
ið hafi sjálft breytt lögunum. Fé-
lagsmálaráðuneytið mótmælir
þeim aðdróttunum að það sé að
breyta lögum frá Alþingi með út-
gáfu sérprentunar á lögum. Útgáf-
an er gert til hagræðis, með hlið-
sjón af lagabreytingum sem gerð-
ar hafa verið frá 1988. Útgáfa á
sérprentunum af lögum er á for-
ræði viðkomandi ráðuneytis.
Félagsmálaráðuneytið,
27. nóvember 1990.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrikisróðherra segir i
boðskap sinum til GATT-samningamanna að sú stefna
Evrópubandalagsins að tengja viðskipti með fisk og
fiskafurðir við aðgang að auðlindum standi árangri
fyrir þrifum og að einagrun bandalagsins á þessu sviði
hljóti að kalla á endurskoðun innan EB sem leiði til þess
að bandalagið heykist á úreltri skoðun.
Athugasemd frá
Félagsmálaráðuneyti
RAÐAUGLÝSINGAR
Hafnarfjarðarbær —
Lóðaúthlutun
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum
fyrir einbýlishús á Hvaleyrarholti.
Umsóknarfrestur er til þriðjudags 11. desember nk.
Eldri umsóknir þarf að endurnýja.
Nánari upplýsingar verða gefnará skrifstofu bæjar-
verkfræðings, Strandgötu 6.
Bæjarverkfræðingur.
k.GA$v
' w\ "'Cs*
GETUR
ENDURSKINSMERKI
BJARGAÐ
y^EROAR
Félagsmiðstöð jafnaðarmanna
Hverfisgötu 8—10
Sími 15020
Jólaglögg og piparkökur
fimmtudagskvöld
6. desember kl. 20.30 verður haldinn opinn fram-
kvæmdastjórnarfundur Sambands ungra jafnaðar-
manna.
Hvar standa ungir jafnaðarmenn
gagnvart kosningum
gagnvart þjóðarsátt
gagnvart framtíðinni?
Takið þátt í umræðunni.
Allir ungir jafnaðarmenn velkomnir.
SUJ.
KRATAKAFFI
miðvikudag 5. desemberkl. 20.30 í Rósinni í Reykja-
vík.
Karl Steinar Guðna-
son ræðir þjóðarsátt
og þjóðmál eftir
spennufallið.
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur.