Alþýðublaðið - 14.12.1990, Page 1
FÖSTUDAGUR
14. DESEMBER 1990
KORTAFYRIRTÆKI RENNA SAMAN: Fyrirtækin
Kreditkort hf. og Samkort hf. verða eitt fyrirtæki um
áramótin og flytur hið síðarnefnda þá að Ármúla 28 þar
sem Kreditkort hafa verið til húsa frá upphafi. Sérmerkt
Samkort sem veitt hafa ýmsum hópum sérfríðindi verða
áfram í gildi eftir sameiningu fyrirtækjanna. Þá munu kort-
hafar jafnframt hafa í höndum kort sem gildir erlendis á 8
milljón afgreiðslustöðum Eurocard.
4 MILLJÓNIR í NÁM-
SKEIÐ FYRIR AT-
VINNULAUSA: Félags-
málaráðherra, Jóhanna
Sigurðardóttir, hefur í
samráði við ráðgjafarnefnd
vinnumálaskrifstofu félags-
málaráðuneytisins ákveðið
að veita 4 milljónir króna til
námskeiðahalds fyrir at-
vinnulausa í samvinnu við
Menningar- og fræðslusam-
band alþýðu. Þau verða
haldin í framhaldi af þeirri tilraun sem gerð var á vegum
Reykjavíkurborgar með tilstyrk félagsmálaráðuneytisins
og Atvinnuleysistryggingasjóðs með slíkt námskeiðahald.
Fyrirhugað er að vera með farandnámskeið sem haldið
verði þar sem þörf er á vegna atvinnuleysis.
AKUREYRARKIRKJUDYRNAR OF LITLAR: séra
Birgir Snæbjörnsson prófastur hótar að segja af sér
verði fylgt eftir reglum um brunavarnir í Akureyrarkirkju.
Samkvæmt brunavarnarreglugerð mega aðeins 160
manns koma saman í kirkjunni en hún tekur 480 manns
í sæti og stundum eru þar komnir saman mun fleiri kirkju-
gestir. Málið snýst um að stækka dyrnar eða fjölga þeim.
dagar
til jóla
HVERS ÓSKARÞÚ ÞÉR Í JÓLAGJÖF?
Valdís Gunnarsdóttir á Bylgjunni:
„Ég vildi óska þess að ég gæti gefið öllum jóla-
gjöfina sem ég vildi helst fá sjálf: frið, hamingju, ást
og jafnvægi. Og helst myndi ég pakka því inn í svart
flauel og skreyta með stórri bleikri rós.
Annars er ég ótrúlegur jólasveinn og finnst því
óskapléga gott að liggja í leti í silkináttfötunum
mínum um jólin með góða bók, „Óbærilegur létt-
leiki tilverunnar,” kakó og konfekt. . .
Gleðileg jól!“
LEIÐARINN Í DAG
Alþýðuflokkurinn hefur í flestum kjördæmum
ákveðið hverjir skipi efstu sæti lista flokksins. Aust-
firðingar hafa þegar gengið frá skipan í öll sæti list-
ans með þá Gunnlaug Stefánsson og Níels Her-
mannsson í efstu sætum. Alþýðuflokkurinn verður
með prófkjör í Reykjavík febrúar. Ljóst er að baráttu-
glaðir og öflugir frambjóðendur munu skipa A-lista
um allt land.
SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: ÖFLUGIR A-LISTAR UM
ALLT LAND.
Ávísun en ekki Jm JE* Ekki er öll J||
atvinnuréttindi 5 vitleysan eins
Með því að úthluta kvóta til
smábátaeigenda í mörgum til-
fellum ekki verið að tryggja
þeim atvinnuréttindi, segir í
fréttaskýringu eftir Tryggva
Harðarson.
I
„Nú hefur íslenska landbún-
aðarmafían fundið sér sam-
herja í Evrópubandalaginu,"
segir Birgir Árnason sem fjallar
um frjálsa verslun og
GATT-viðræður.
Moralen er
„Hvar hefur Sjálfstæðis-
flokkurinn komist í brennivín?
Svona mikinn móral fær eng-
inn af Gvendarbrunnavatni
einu saman," segir Guðmund-
ur Einarsson.
Borgin byggir
í leyfisleysi
Nýr vettvangur kœrir framkvœmdir á Öskjuhlíd fyrir félagsmálaráduneytinu
Stjórnendur Reykjavík-
urborgar telja sig greini-
lega ekki þurfa að hlíta
þeim lögum sem almenn-
ingur verður að sætta sig
við. Þeir byggja án þess að
hafa til þess tilskilin leyfi
og án þess að nokkurs
staðar hafi verið sam-
þykkt að byggja með form-
legum hætti. Hér er um að
ræða byggingu jarðhýsis á
Oskjuhlíð.
Borgarfulltrúar Nýs vett-
vangs hafa nú kært meðferð
málsins til félagsmálaráðu-
neytisins. Erindi um bygging-
arleyfi fyrir umrætt jarðhýsi
kom fyrst fyrir byggingar-
nefnd Reykjavíkurborgar
þann 6. nóv. og aftur 29. nóv
en fékkst þá ekki afgreitt þar
sem aðeins tveir greiddu því
atkvæði en þrír sátu hjá. Af-
greiðsla byggingarnefndar er
ekki gild nema meirihluti
nefndarinnar taki þátt í af-
greiðslu málsins.
Á fundi byggingarnefndar í
gær hafði hins vegar tveirfi af
fulltrúum Sjálfstæðisflokks-
ins snúist hugur og greiddu
þeir umræddu leyfi atkvæði
sitt og var það þá samþykkt
með fjórum atkvæðum gegn
einu.
Hitaveita Reykjavíkur fór af
stað með byggingu jarðhýsis
á Öskjuhlíðinni þar sem
gleymst hafði að gera ráð fyr-
ir ýmiss konar starfsemi í
tengslum við veitingahúsið á
hitaveitutönkunum. Þegar
það kom í Ijós var brugðist
hratt við og ákveðið að
byggja jarðhýsi við hlið tank-
anna. Svo mikill var flýtirinn
að ekki gafst tími til að sam-
þykkja byggingaráforminn í
stjórn veitustofnana, sem
stýrir Hitaveitunni. Það var
ekki fyrr en í síðustu viku að
samþykkt var í stjórn veitu-
stofnana að byggja umrætt
hús, þá þegar framkvæmdir
voru vel á veg komnar. Páll
Gíslason, formaður stjórnar
veitustofnana, sagði við Al-
þýðublaðið að það hefðu ver-
ið handvömm að samþykkja
ekki bygginguna formlega á
fundi.
Hjá embætti byggingarfull-
trúa fengust þær upplýsingar
að embættið hefði gefið
grænt ljós á umræddar fram-
kvæmdir án þess að nefndin
hefði samþykkt þær. Það nefndar þann 29. nóv., að arfulltrúar Nýs vettvangs
leyfði framkvæmdum að ekki væri meirihluti fyrir meðferð málsins enda brýtur
halda áfram þrátt fyrir að fyr- byggingarleyfi. Af þessum og hún freklega í bága við bygg-
ir lá, eftir fund byggingar- fleirum ástæðum kæra borg- ingarlög.
Vann Happdrætti HÍ 35 milljónir? — Sjá bls. 6
o
Klapparstígur 1:
Lyftan loks í gagnið?
Lengi hafa íbúar nýja háhýsisins aö Klapparstíg eitt orðiö að þramma stigana allt upp á efstu
hæðir. Langþráð lyfta verður væntanlega tekin í notkun í dag. A-mynd: E.ÓI.