Alþýðublaðið - 14.12.1990, Qupperneq 4
4
Föstudagur 14. desember 1990
MMÐUMMÐ
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskrifarsími er 681866
Áskriftargjald 1100 kr. á mánuði.
í lausasölu 75 kr. eintakið
ÖFLUGIR A-LISTAR
UM ALLT LAND
Stjómmálalíf landsins ber þess merki að kosningar
til Alþingis eru framundan. Mikið er þrefað á Alþingi
og flokkar í óða önn að ganga frá framboðslistum sín-
um þar sem ekki hefur þegar verið gengið frá þeim.
Að öllu óbreyttu verður kosið í apríl eða maí en dagur-
inn hefur ekki ennþá verið ákveðinn. Enn er þó ekki
loku fyrir það skotið að þing verði rofið og kosningar
boðaðar fyrr. Líkur á því hafa þó minnkað verulega
eftir að sýnt þykir að bráðabirgðalög ríkisstjórnarinn-
ar frá því í sumar um kjarasamninga verði staðfest af
Alþingi.
Alþýðuflokkurinn eins og aðrir flokkar hefur verið að
ákvarða hverjir verða í framboði fyrir flokkinn í næstu
kosningum. í sumum kjördæmum var prófkjör lá'tið
skera úr um það hverjir skipuðu efstu sæti lista Al-
þýðuflokksins. Annars staðar hafa kjördæmisráð
ákvarðað frambjóðendur. Nú liggur fyrir hverjir skipa
efstu sæti lista Alþýðuflokksins um allt land nema á
Vestfjörðum og í höfuðborginni, Reykjavík. Fullskip-
aður listi hefur þó aðeins verið ákvarðaður í einu kjör-
dæmi, á Austfjörðum.
Mlþýðuflokksmenn á Austfjörðum hafa stillt upp
ákaflega sterkum lista. Alþýðuflokkurinn hefur aldrei
náð því að fá þingmann kjörinn í því kjördæmi þótt
nokkrum sinnum hafi aðeins skort á nokkur atkvæði
til að ná inn manni. í síðustu alþingiskosningum vant-
aði Alþýðuflokkinn á Austfjörðum aðeins 6 atkvæði til
ná manni inn á Alþingi. Nú eru alþýðuflokksmenn á
Austfjörðum staðráðnir í að fá mann kjörinn enda er
listi Alþýðuflokksins á Austfjörðum feikisterkur og
valin maður í hverju rúmi. Efsta sæti listans skipar
Gunnlaugur Stefánsson, sóknarprestur í Heydölum,
en hann hefur áður setið á Alþingi og öðlast þannig
dýrmæta reynslu af stjórnmálum á landsvísu. Annað
sætið skipar Níels Hermannsson, sem er Austfirðing-
um af góðu einu kunnur, verið þar farsæll íþrótta-
kennari og forystumaður í ungmenna- og íþrótta-
hreyfingu Austurlands, ÚÍA. Það er því mikill baráttu-
hugur í jafnaðarmönnum á Austfjörðum og Austfirð-
ingar skynja nauðsyn þess að Alþýðuflokkurinn í kjör-
dæminu eigi fulltrúa á Alþingi.
Þegar hefur verið ákveðið hverjir skipa efstu sæti á
listum Alþýðuflokksins í nokkrum kjördæmum. Þarer
að finna bæði nýja og ferska frambjóðendur, sem lík-
legir eru til að láta til sína taka, og reynda stjórnmála-
menn, sem sýnt hafa og sannað ágæti sitt og forystu-
hæfileika. Á Vesturlandi mun Eiður Guðnason, sem
þekkturfyrirdugnað sinn og málafylgju, leiða lista Al-
þýðuflokksins með hinn tápmikla bæjarfulltrúa, Gísla
S. Einarsson, sér við hlið. Á Norðurlandi vestra verður
Jón Sæmundur Sigurjónsson áfram í fyrsta sæti en
hann er þekktur af málefnalegri vinnu sinni og heiðar-
legum málflutningi á Alþingi. Á Norðurlandi eystra
skipar nýr og ferskur baráttumaður, Sigbjörn Stein-
dórsson, fyrsta sæti á lista Alþýðuflokksins og mun
hann eflaust láta til sín taka á Alþingi að afloknum
kosningum. Hreinn Pálsson, sem skipar annað sætið,
er þekktur fyrir áreiðanleika og öf lugan málflutning. Á
Suðurlandi skipar hinn góðkunni alþingismaður Árni
Gunnarsson efsta sætið, þekktur baráttumaður fyrir
ýmsum réttlætismálum. Annað sætið skipar Þor-
björn Pálsson úr Vestmannaeyjum, sem þekkir vel til
sveitarstjórnarmála og vanda og viðfangsefna út-
gerðarstaða. Á Reykjanesi leiðir Jón Sigurðsson ráð-
herra lista Alþýðuflokksins en Jón er öllum lands-
mönnum kunnuraf verkum sínum. Næstu sæti skipa
alþingismennirnir Karl Steinar Guðnason og Rann-
veig Guðmundsdóttir, sem bæði búa yfir reynslu og
þekkingu af sveitarstjórnarmálum auk margvíslegra
viðfangsefna landsstjórnarinnar. Fjórða sætið, bar-
áttusætið, skipar svo ungur baráttumaður, Guð-
mundur Árni Stefánsson bæjarstjóri, sem býr þó yfir
mikilli reynslu og hefur víðtæka þekkingu af stjórn-
málum.
Af þessu má sjá að Alþýðuflokkurinn býður upp á
mikið mannval á listum sínum við komandi kosningar.
Ekki hefur enn verið ákveðið hvernig listi Alþýðu-
flokksins á Vestfjörðum verður skipaður né í Reykja-
vík. í Reykjavík verður opið prófkjör látið skera úr um
það hverjir skipi þar efstu sæti. Auk þess sem Alþýðu-
flokkurinn hefur mjög góða málefnalega stöðu, mun
hann því bjóða upp á góða frambjóðendur í þeim al-
þingiskosningum sem fram fara á næsta ári.
■■ FÖSTUDAGSGREIN
MORALEN
ER...
Það væri t.d. gaman að fá hug-
myndir um jöfnun atkvæðaréttar
og álit erlendra mannréttinda-
stofnana á atkvæðamisvægi. Ætli
Egill Jónsson gæti ekki kippt því í
lag fyrir flokksins hönd.
En bqnkaráðin?_______________
Einhversstaðar í grundvallar-
atriðabunka flokksins hljóta líka
að leynast skjöi um aðskilnað
valdþáttanna. Siðbótahreyfingin
hlýtur að halda því fram að nú sé
of mikið samkrull á milli löggjafar-
og framkvæmdavalds. Næst talar
Friðrik Sophusson örugglega fyrir
því að skerpa þarna skilin. Dæmin
hlýtur hann að taka af ríkisbanka-
ráðunum enda þarf hann þá ekki
að leita út fyrir þingflokkinn eftir
aðstoð við ræðuundirbúninginn.
Þetta kæmi örugglega inn á
vangaveltur Morgunblaðsins um
nauðsyn á auknu sjálfstæði Seðla-
bankans og framkomna fyrir-
spurn á Alþingi um aðferðir við að
velja bankastjóra þar.
Nýtt lif_____________________
Á síldinni í gamla daga var einn
sem alltaf iðraðist eftir fylleríin.
Hann endurskipulagði líf sitt frá
grunni á hverjum einasta mánu-
dagsmorgni. Það sumar hóf hann
60 sinnum nýtt líf.
Spurningin er hvað Sjálfstæði-
flokknum endist lengi sinn mórall.
Hvar hefur Sjálfstæðisfiokkurinn komist i brenni-
vin? Svona mikinn móral fær enginn af Gvendar-
brunnavatni einu saman.
Samviskubitið yfir bráðabirgða-
lagasetningu áratuganna brýst nú
út í siðvæðingaöldu, sem enginn
veit hvar brotnar. Þessi nýsköpun
hugans og siðferðisins gerði engin
boð á undan sér því ekki var ann-
að séð alveg fram á síðasta dag en
að þeir sjálfstæðismenn yndu sér
vel í faðmi kerfisins.
Sumarið 1983 settu þeir bráða-
birgðalög á laun allra landsmanna
og voru sakaðir um að skerða þau
um allt að fjórðung. En þeir depl-
uðu ekki auga.
Þannig liðu árin í ieik og söng og
bráðabirgðalögum.
Guðmundur Einarsson
skrifar
Hvað með___________________
atkvæðavægið?______________
Ekki skal lasta það að menn fái
áhuga á að bæta iíf sitt. Gömlum
flutningsmönnum tillagna um að
að afnema heimild til bráða-
birgðalagasetninga hlýnar um
hjartarætur.
Vonandi láta þeir ekki hér við
sitja. Það þarf að huga að fleiri sið-
ferðis- og grundvallaratriðum.
Sjáifstæðisflokkurinn er búinn að
fara með formennsku í stjórnar-
skrárnefndinni í eitthvað á annan
áratug, svo líklegt er að þeir eigi
orðið slangur af umbótatillögum.