Alþýðublaðið - 15.12.1990, Page 12
12
Laugardagur 15. desember 1990
FRÁSAGNIR
ÞEKKTRA MANNA
DR.BJARN1 JÓNSSON
ÆVIBROT eftir Dr. Gunnlaug Þórdarson
Gunnlaugur hefur ávallt verið hress I fasi og talað tæpitungulaust
í þessari bók kemur hann svo sannarlega til dyranna eins og hann
er klæddur. Rekinn úr skóla - Að upplifa dauðann - Ritari forseta
(slands - Smiður á Lögbergi - Húðstrýktur fyrír kirkjudyrum.
- Þetta eru nokkur lýsandi kaflaheiti sem segja meira en mörg orð
um það hvers lesandinn má vænta. Fjöldi ijósmynda prýðir bókina.
Á LANDAKOTI
eftir Dr. Bjarna Jónsson yfirlækni
Dr. Bjarni Jónsson var um áraraðir fremsti sérfræðingur fslendinga
i bæklunarsjúkdómum og meðferð höfuðslysa. Þetta er saga af merkri
stofnun og líknarstarfi f nærrí heila öld þar sem margir af fremstu
læknum landsins koma við sögu. Bókina prýða 60 Ijósmyndir.
SETBERG
MINNINGAR ÚR MÝRDAL
f'essi bók geymir minningar Eyj-
ólfs Gudmundssonar, bónda og rit-
höfundar á Hvoli í Mýrdal, en hann
varð þjóðkunnur fyrir bækur sínar á
stríðsárunum síðari. Þórdur Tómas-
son, safnvörður á Skógum, ritar
bókina. Hefst hún 1893, þegar ung-
ur kennari kemur til starfa í æsku-
byggð sinni. Góð heimild, glettnar
og mannlegar lýsingar.
HORFNIR STARFSHÆTTIR
Þetta er metnaðarfullt verk frá
Bókaútgáfunni Erni og Örlygi, önn-
ur útgáfa bókarinnar, en nú hefur
verið bætt við bók Gudmundar Þor-
steinssonar frá Lundi mörgum af-
bragðsmyndum, sem Ivar Gissurar-
son, þjóðháttafræðingur og fyrrum
forstöðumaður Ljósmyndasafnsins,
safnaði. Verkinu fylgir viðbætir
Guðmundar heitins. Þar er merkur
þáttur um járnsmíðar sem er gott
innlegg í íslenska iðnsögu.
BRAUÐSTRIT OG BARÁTTA
Hér er um að ræða annað bindi
bókarinnar Brauðstrit og barátta —
úr sögu byggðar og verkalýðshreyf-
ingar á Siglufirði. Höfundur er
Benedikt Sigurðsson kennari. Bind-
in tvö eru talsvert viðamikil, nær
þúsund síður, og prýdd fjölda góðra
mynda. Oft snýst sagnaritun okkar
um áhrifamikla einstaklinga, skoð-
anir þeirra og sjónarmið. Alþýðan
er þá aðeins nafnlaus fjöldi, fylgdar-
lið höfðingjans eða hluti af eignum
hans og búi. Hér er hlutunum snúið
við. Horft er á sögusviðið frá sjónar-
hóli verkafólksins í sumarverstöð-
inni og síldarbænum Siglufirði. Sagt
er frá hagsmunaátökum, kjörum og
baráttu verkafólksins, menningar-
viðleitni, stjórnmálastarfi og félags-
lífi.
TRYGGVI GUNNARSSON -
ÆVI OG STÖRF
ATHAFNAMANNS
Menningarsjóður gefur út sögu
Tryggva Gunnarssonar, þess mikla
athafnamanns, og er fjórða bindið
nú komið út. Bækurnar um Tryggva
hafa verið gefnar út fyrir tilstuðlan
Seðlabanka fslands og Landsbanka
íslands. Höfundur þessa fjórða og
síðasta bindis er Bergsteinn Jóns-
son. Hann hefureinnigvaliðmyndir
í bókina, margar hverjar hafa aldrei
sést fyrr opinberlega. Heildarverk-
ið, öll fjögur bindin, er selt í sérstakri
gjafaöskju. Upplag er afar takmark-
að. Fjórða bindið er í 650 eintökum
en gjafaöskjurnar 350 talsins.
SAGA AKUREYRAR
Út er komið fyrsta bindið af Sögu
Akureyrar, sem Jón Hjaltason sagn-
fræðingur hefur ritað. Hér er um
merka heimild að ræða, í máli og
myndum er spannað í heild tímabil-
ið frá landnámsöld til ársins 1862,
þegar Akureyri fékk kaupstaðarétt-
indi öðru sinni. í bókinni er dregin
upp mynd af brauðstriti bæjarbúa
og baráttu þeirra fyrir ýmsum hags-
munamálum sínum. Þá er ekki síðra
að glugga í lýsingar á litríkum ein-
staklingum sem settu svip á bæinn.
VÆRINGINN MIKLI
Það var Gils Guðmundsson sem
ritaði þessa bók um ævi og örlög
Einars skálds Benediktssonar. Hér
er rakinn ótrúlegur æviferill skálds
og framkvæmdamanns og hefur
Gils víða leitað heimilda um Einar.
Án efa verður þessi bók hin
skemmtilegasta lesning enda fjallar
hér góður höfundur um skemmti-
legt viðfangsefni.
BUBBI
Mál og menning gefur út ævisögu
ungs manns, Bubba. Spá margir
Bubba mikilli velgengni á jólabóka-
markaði þessi jólin. Silja Aðalsteins-
dóttir og Ásbjörn Morthens eru
skrifuð bæði sem höfundar, en að
sjálfsögðu er það handbragð Silju
sem er á þessri bók. Bubbi er hrein-
skilinn um sjálfan sig í þessari bók
og er ekki að efa að hún mun varpa
nýju ljósi á hið mikla goð dægurtón-
listarinnar.
Á ÍSLENDINGASLÓÐUM I KAUP-
MANNAHÖFN
Hér er um að ræða nýja útgáfu
samnefndrar bókar sem kom út
1961 en hefur lengi verið ófáanleg.
Texti hefur verið aukinn og endur-
bættur auk þess sem nýjar myndir
prýða bókina. Höfundurinn er
Björn Th. Björnsson. Það ætti að
tryggja að efnið er tekið skemmti-
legum og fræðandi tökum.
FORSETAR ÍSLENSKA LÝÐ-
VELDISINS
I þessari bók Bjarna Guðmarsson-
ar og Hrafns Jökulssonar eru skráð-
ir æviþættir fjögurra forseta lýð-
veldis okkar. Rakin er saga þeirra,
ættir og starfsferill. „Islendingar
hafa reynst sjálfstæðir við val á þjóð-
höfðingjum og einlægt fylgt sann-
færingu sini, þegar val forseta er
annars vegar, fremur en hefðum
eða dulltlung stjórnmálaflokkanna.
Þess vegna er embættið síungt, tíð-
arandinn og hver þeirra fjórmenn-
inga hefur gætt það sínum persónu-
lega blæ”, segir í bókarkynningu.
MINNINGABÓK
Vigdís Grímsdóttir ritaði Minn-
ingabók, og kemur lesendum enn á
ný á óvart með athyglisverðu verki.
Hér er um að ræða persónulega og
gefandi bók. „í bókinni niðar hafið.
Öldurnar hníga jafnskjótt og þær
rísa, en í sérhverri lýsir skamma
stund minning frá genginni tíð.
Smám saman kviknar í huga lesand-
ans veröld sem var, með yfirbragð
trega því að hún kemur aldrei aftur",
segir í bókarkynningu Iðunnar.
MJÓFIRÐINGASÖGUR III
Menningarsjóður gefur út þriðja
bindi Mjófirðingasagna Vilhjálms
Hjálmarssonar, fyrrum alþingis-
manns og ráðherra sem gerst hefur
mikilvirkur rithöfundur á síðari ár-
um og hefur gefið út átta bækur. í
Mjófirðingasögu rekur Vilhjálmur
byggðasögu átthaga sinna.
LÍFSSTRÍÐIÐ
Æviferill Margrétar Róbertsdótt-
ur hefur sannarlega verið átakan-
legur framan af ævi, þegar hún upp-
lifði þær hörmungar þegar Rauði
herinn hernam austurhluta Þýska-
lands. Margrét ólst upp í þriðja ríki
Hitlers en komst eftir miklar
hremmingar hingað til lands og
gerðist vinnukona í Fljótshlíðinni.
Fyrstu árin hér voru henni afar erf-
ið. Eiríkur Jónsson skrifaði sögu
Margrétar.
KRISTJÁN
Bók um óperusöngvarann Krist-
ján Jóhannsson. í bókinni dregur
Garðar Sverrisson upp raunsanna
sögu af lífshlaupi Kristjáns, allt frá
því að hann er ungur drengur norð-
ur á Akureyri þar sem ekki ríkti allt-
af dúnalogn, og þar til hann stendur
á sviði þekktasta óperuhúss heims.
Frásögnin er hreinskilin og einlæg,
það eru eðliskostir í fari Kristjáns.
Höfundur bókarinnar, Garðar
Sverrisson ritaði áður minningabók
LeifsMuller, Býr íslendingur hér? Sú
bók hlaut mikið lof fyrir tveim ár-
um.
Á BAK VIÐ ÆVINTÝRIÐ
Margir hafa beðið spenntir eftir
þessari bók Jóns Ottars Ragnars-
sonar. í bókinni greinir hann frá því
mikla ævintýri, sem stofnun Stöðv-
ar 2 var, uppbyggingu starfsins, og
fólkinu sem hann vann með. Hann
segir frá glyshátíðum, skemmtiferð-
um, frá árekstrum og umtali, sögu-
legum heimsóknum erlendra stór-
laxa — skýjaborgum og bláköldum
veruleika. Jón Ottar segir líka frá
einkalífi sínu, sem verið hefur þjóð-
inni nánast sem opin bók á köflum.
Þessa bók verður gaman að lesa.
hispurslaust og það gerir hann sann-
arlega í þessari bók.
HALLGRÍMUR SMALI OG HÚS-
FREYJAN Á BJARGI
Þorsteinn frá Hamri skráði þessa
bók, söguþátt úr Borgarfirði. Rakin
eru örlög feðginanna Hallgríms
Högnasonar og Kristrúnar dóttur
hans. Hallgrímur var sagður hafa átt
nokkur viðskipti við huldufólk, en
dóttirhans ólst upp á hrakningi, gift-
ist sjósóknara á Skipaskaga og átti
með honum 17 börn, varð þó
snemma ekkja og var þá svipt eign-
um sínum.
BARÁTTUSAGA
Jakinn, Guðmundur J. Guð-
mundsson, goðsögn í lifanda lífi, er
hressilegur og hreinskiptinn að
vanda í þessari viðtalsbók við Ómar
Valdimarsson blaðamann. Bókin er
sjálfstætt framhald af bókinni Jak-
inn í blíðu og stríðu, sem kom út í
fyrra og var þá meðal söluhæstu
bóka. Hér er lýst stormasömum ferli
í verkalýðsbaráttu og stjórnmálum.
Lýst er viðskilnaðinum við Alþýðu-
bandalagið, hremmingum í Haf-
skipsmáli, uppákomum á Alþingi og
fleira og fleira. Bókin hefst á frásögn
Guðmundar af fundum með „bjarg-
vættinum frá Flateyri" og hvernig
þeir ýttu úr vör Þjóðarsáttinni marg-
frægu.
EG HEF LIFAÐ MER TIL GAM-
ANS
Björn á Löngumýri segir hér sögu
sína og hefur Gylfi Gröndal skráð
sögu þessa fjörlega bónda og al-
þingismanns. í bókinni er greint frá
því marga og makalausa sem hent
hefur í lífi Björns Pálssonar, m.a. sig-
ursælli kosningaglímu við Jón á
Akri. Björn er þekktur fyrir að tala