Alþýðublaðið - 27.08.1985, Qupperneq 8
unarfélags íslands ágrundvelli laga nr.
69/1985 um þátttöku ríkisins í hlutafé-
lagi til aö örva nýsköpun í íslensku
atvinnulífi.
Þróunarfélagið verður hlutafélag -
öllum opið. Nú skapast því tækifæri
fyrir hið opinbera og einkaaðila til að
sameinast um að leggja hönd á plóginn
til nýsköpunar í atvinnulífinu.
Tímabært er að hagnýta þekkingu í
atvinnulífinu í meira mæli og leita
fullkomnustu tækni á öllum sviðum til
að auka framleiðni, bæta afkomu fyrir-
tækja, gera þeim kleift að greiða hærri
laun og keppa með betri árangri en
hingað til á erlendum mörkuðum.
Þróunarfélag fslands mun stuðla að
þessu með því að taka þátt í áhættunni
sem fylgir því að stofna ný fyrirtæki eða
ráðast í nýja framleiðslu.
Frestur til að skrifa sig fyrir hlutafé
stendur til 30. september n.k., en
stofnfundur verður haldinn fyrir 10.
október. Lágmarkshlutur er 10.000 kr.
og er ráðgert að hlutafé verði greitt í
fernu lagi á þremur árum.
Einstaklingar og félög í atvinnurekstri
eiga kost á láni til fjögurra ára úr ríkis-
sjóði til hlutabréfakaupa, ef lagðar eru
fram 100.000 krónur eða meira sem
hlutafé. Lánsupphæð nemur helmingi
af hlutafjárframlagi.
Frá og með morgundeginum mun
stofnskjal Þróunarfélags íslands
ásamt kynningarbæklingi um félagið
liggjaframmi í öllum bönkum og útibú-
um þeirra. í bæklingnum eru eyðu-
blöð til að skrifa sig fyrir hlutafé og
sækja um lán til hlutabréfakaupa.
Nánari upplýsingar um hiö væntanlega félag
og starfsemi þess veitirstarfsmaðurundirbún-
ingsnefndar aö stofnun félagsins, Bjarki
Bragason, í síma 91- 25133.