Alþýðublaðið - 04.05.1990, Page 3
Föstudagur 4. maí 1990
INNLENDAR FRETTIR
3
R0KKSK0GUR I Popparar og rokkarar ætla sér að reisa
rokkskóg í kjölfar mikilla tónleika sem haldnir verða í
Laugardalshöllinni þann 16da júní. Þar koma fram m.a.
Bubbi Morthens og Sykurmolarnir ásamt fleirum. Hluti
ágóða þessara tóníeika, sem og hluti ágóðans af öllum
dansiböllum og tónleikum til sjávar og sveita helgina 15.,
16. og 17da júní rennur til skógræktar. Eftir þá helgi er ráð-
gert að hefjast handa við gróðursetningu. Staðsetning
rokkskógarins hefur enn ekki verið kunngjörð en verið er
að kanna mögulega staði í samráði við Landgræðsluna og
fleiri aðila.
ENGIN GLEÐILÆTI: Þriggja mánaða brágðabirgða-
uppgjör Álafoss hf. sýnir betri afkomu fyrirtækisins en
gert var ráð fyrir í rekstraráætlun. Ólafur Ólafsson forstjóri
segir þó að þetta sé ekki tilefni til neinna gleðiláta af hálfu
forráðamanna fyrirtækisins. „Þetta sýnir aðeins að rekstr-
aráætlanir okkar hafa nokkurn veginn staðist, hinsvegar
er hér aðeins um brágðabirgðauppgjör að ræða og engin
ástæða til að halda uppskeruhátíð fyrr en árið er liðið,"
sagði Ólafur við Alþýðublaðið í gær.
NORRÆNA ! Nokkuð hefur dregið úr aðsókn íslendinga
að ferðast til útlanda með færeysku ferjunni Norrænu.
Hins vegar er búist við svipuðum fjölda erlendra ferða-
manna hingað til lands á þessu ári með ferjunni. Þetta seg-
ir Jónas Hallgrímsson, framkvæmdastjóri Smyril Line á
Seyðisfirði.
Framkvæmdastjórinn segir greinilegt að léttara sé í
pyngju Islendinga á þessu ári miðað við undanfarin ár.
Þetta sé aðaláststæðan fyrir minni pöntunum í ferðirnar
frá Seyðisfirði. „Ferjuslysin að undanförnu eiga e.t.v. ein-
hverja þátt í þessari fækkun," segir Jónas. Hann telur þó
að hugsandi fólk viti að Norræna sé traust skip með öll ör-
yggisatriði i lagi þannig að sjóleiðin sé ein sú öruggasta úr
landi.
Ferð með Norrænu til Danmerkur fyrir fjögurra manna
fjölskyldu í bíl kostar á bilinu 50—90 þúsund, eftir því á
hvaða tíma er farið. í fyrra ferðuðust 14 þúsund manns
með ferjunni, þar af 2 þúsund íslendingar. Fyrsta ferðin frá
Seyðisfirði er 7. júní og síðasta ferð frá Bergen 28. ágúst.
MORÐMÁLIÐ VIÐ STÓRAGERÐI: Femt situr nú í
gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að morðmálinu í
Stóragerði. Fólkið, þrír karlmenn og ein kona, hafa oft áð-
ur komist í kast við lögin vegna fíkniefnamála, falsana og
ofbeldismála. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn hefur verið
kærður til Hæstarétts og hefur Rétturinn tvo daga til að
ákveða hvort úrskurður undirréttar hafi veriö nægjanlega
vel rökstuddur.
IÐNO: Kvennalistakonan Elín G. Ólafsdóttir hefur lagt
fram tillögu þar að lútandi að Reykjavíkurborg kaupi
gamla Iðnó. Þjóðleikshúsið hefur haft húsið á leigu síðan
Leikfélag Reykjavíkur flutti í Borgarleikhúsið. Elín segir í
greinargerð sinni að borginni beri skylda að varðveita
þetta gamla hús sem nýta megi til fjölbreyttrar listastarf-
semi.
GROÐI HJA KVH: Kaupfélag Húnvetninga skilaði
hagnaði á síðasta ári þrátt fyrir að afskrifa þyrfti um 20
milljónir af skuldum félagsins. Svo virðist sem kaupfélögin
í landinu séu að rétta úr kútnum eftir erfið ár. Þar er skemst
frá að minnast að Kaupfélag Suður-Þingeyinga, elsta kaup-
félag landsins, skilaði nokkrum hagnaði á síðasta ári. Hins
vegar var róðurinn erfiður hjá KEA á Akureyri og tapaði
félagið miklum upphæðum annað árið í röð.
íbúar uiö Stigahlíö þreyttir á hljóðmengun
Eins og að búa við
kvartmílubraut
Margir íbúar við efri
hluta Stigahlíðar eru orðn-
ir mjög óánægðir með
þann hávaða sem berst frá
umferðinni á Kringlumýr-
arbrautinni. Ástandið hef-
ur versnað til muna eftir
að ijósin á horninu á Lista-
braut og Kringlumýrar-
braut komu því margir bíl-
stjórar nota vegarkaflann
niður að ljósunum á Miklu-
braut og Kringlumýrar-
braut til að þenja bíla sína.
„Þetta er eins og sumir bíl-
eigendur haldi að þetta sé
kvartmílubrautin," sagði
einn langþreyttur íbúi við
Stigahlíðina.
Ingi Ú. Magnússon, gatna-
málastjóri, segir að hávaðinn
af Kringlumýrarbrautinni sé
gamalt vandamál. Reyndar
hafi átt að planta þarna trjám
fyrir nokkrum árum til að
draga úr hávaða fyrir íbúa
þessa hverfis en það hafi
þurft að fresta framkvæmd-
um vegna þess að hitaveitan
þurfti að leggja þarna hita-
veitustokk. „En við erum
með þetta mál inni á borðinu
hjá okkur og erum að athuga
hvað við getum gert til að
draga úr hávaða þarna,"
sagði gatnamálastjóri.
Borgarstjórn Reykjavíkur
hefur borist bréf vegna þessa
máls og er þar farið fram á
aðgerðir af hálfu borgarinnar
til að dempa hávaðann frá
Kringlumýrarbrautinni. Ingi
Sundlaugargestur í
Laugardalnum varð fyrir
því óláni fyrir skömmu að
nýju leðurskónum hans
var stoiið á meðan hann
var að spóka sig í heita
pottinum. Að sögn Krist-
jáns Ogmundssonar for-
stöðumanns Sundlaugar-
innar í Laugardai er tölu-
vert um að verðmætum sé
stolið í búningsherbergj-
unum og er verið að leita
lausna á því máli.
Kristjáns segir að fólk sé oft
Ú. Magnússon kvaðst ekki
hafa fengið að vita af þessu
máli en af það kæmi inn a
borð til hans myndi hann að
sjálfsögðu taka það til athug-
unar. Þess má geta að lóðir
ótrúlega kærulaust með
verðmæti sem það komi með
sér í sund. Hann segir að það
liggi nokkuð Ijóst fyrir að
þjófahópar sitji um sundlaug-
arnar og brjótist jafnvel inn í
bifreiðar á bílastæðunum.
Einnig sé mikið af lyklum í
umferð þannig að skáparnir í
búningsherbergjunum séu
ekki öruggir geymslustaðir.
„Þessu verður að breyta og
erum við að velta ýmsum
möguleikum fyrir okkur í því
sambandi, t.d. með þjófa-
við Stigahlíðina, nálægt
Kringlumýrarbrautina, voru
boðnar sérstaklega upp fyrir
nokkrum árum og fóru þá á
mjög háu verði.
varnarkerfi í dyrunum fyrir
lyklana eða hreinlega að öll-
um fötum verði komið fyrir í
geymslu, líkt og í Breiðholts-
lauginni," sagði Kristján.
Haukur Jónasson forstöðu-
maður Vesturbæjarsundlaug-
arinnar segir að þjófnaðir úr
búningsherbergjum sé ekki
mikið vandamál hjá þeim.
„Þó verð ég var við að menn
eru hættir að skilja t.d. skjala-
töskur eftir í bilunum enda
hefur verið brotist inn í bila
fyrir utan sundlaugarnar."
Eru þjófahópar fyrir utan sundlaugarnar?
Sundlaugargestur
fór heim
á sokkaleistunum
ÁBURÐARVERK
SMIÐJAN: Forsætisráð-
herra hefur sent borgar-
stjóra bréf þar sem farið er
fram á viðræður um færslu
á starfsemi Áburðarverk-
smiðjunnar. Davið Odds-
son hefur tekið vel í þessa
málaleitan og lýsti því yfir á
borgarstjórnarfundi í gær
að vel komi til greina að
borgin taki þátt í kostnaði
við að færa verksmiðjuna
frá Réykjavík. Húnvetning-
ar hafa lýst yfir áhuga að fá
verksmiðjuna til sín og hef-
ur þá helst nágrenni
Blönduóss verið nefnt í því
sambandi.
íslenska stálfélagið
Málmtætarí byrjaður
að bryðja bílhræ
Júlfus Sólnes umhverfisrád-
herra vígir malmtætarann
með þvi að fleygja í hann
kampavínsflösku. Glerið á að
skila sér í þar til gerða
geyma en hvort sjálft vinið
skilar sér liggur ekki fyrir.
Málmtætari í eigu ís-
lenska stálfélagsins var
tekinn í notkun í gær.
Hann tætir m.a. bíla og
heimilistæki í spað og
flokkar síðan stálið frá
öðrum málmum og
gúmmíið sér og svo annan
úrgang sérstaklega eins
og gler, plast og tróð. Stál-
ið mun síðan fara í
bræðslu hjá Islenska stál-
félaginu sem er með starf-
semi sína í Hellnahrauni í
Hafnarfirði.
Hér er um þjóðþrifafyrir-
tæki að ræða í orðsins fyllstu
merkingu því bílhræ og alls
konar járnadrasl hefur víða
verið til vandræða og spillt
umhverfi. Nú verður hins
vegar hægt að koma bílhræj-
um í lóg í verksmiðjunni. Stál-
ið sem til fellur mun fara til út-
flutnings steypt í börrum.
Stefnt er að þvi að bræða
u.þ.b. 120 tonn af stáli dag-
lega og að ársframleiðslan á
næsta ári verði um 30 þúsund
tonn. Sjálf stálbræðslan er
ennþá í uppsetningu og
standa vonir til að hægt verði
að byrja að bræða stál í júní.
Fyrirtækið er i meirihluta-
eigu útlendra aðila en nýtur
engra sérstakra undanþága
og heyrir að öllu leyti undir
islensk lög. Gert er ráð fyrir
að verksmiðjan fullbúinn
kosti um 600 milljónir króna.