Alþýðublaðið - 04.05.1990, Síða 4
4
VIDHORF
Föstudagur 4. maí 1990
flMIHIHIIIHII
Ármúli 36 Simi 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
DAUÐADOMUR
YFIR RÍKISUMSVIFUM
Skýrsla Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu (OECD) um ís-
lensk efnahagsmál er þungur áfellisdómur á fjármálastjórn Þor-
steins Pálssonar, formanns Sjálfstæðisflokksins á árunum
1985—87 í tíð fyrri ríkisstjórnar Steingríms Hermannssonar. í
skýrslu OECD er staðhæft, að rekja megi mörg vandamál efna-
hagslífsins í dag til mistaka í hagstjórn á uppgangstímabilinu
1985—87. Þar benda skýrsluhöfundar sérstaklega á, að þjóð-
hagslegur sparnaður hafi dregist saman og erlendar skuldir farið
vaxandi við mjög hagstæðar ytri aðstæður. Meginástæðan er
talin vera viðvarandi halli á ríkisbúskapnum. Þetta eru reyndar
þekktar staðreyndir og núverandi fjármálaráðherra hefur reyndar
nefnt þessa fjármálastefnu formanns Sjálfstæðisflokksins
„gaga-hagstjórnina."
Skýrsla OECD er í reynd dauðadómur yfir núverandi ríkisum-
svifum í peninga- og fjármagnskerfi á íslandi. Á köflum mætti
halda að verið væri að fjalla um hagkerfi ríkja í Austur-Evrópu.
Slík eru ígrip, áhrif og umsvif ríkisvaldsins í efnahags- og atvinnu-
lífi þjóðarinnar. Skýrsluhöfundar OECD segja fullum fetum að
stefnan í atvinnumálum og stefnumótun varðandi erlenda fjár-
festingu hafa mótast af of miklum afskiptum ríkisvaldsins. Þeir
mæla með því, að dregið verði úr áhrifum ríkisins í banka- og fjár-
festingarlánakerfinu, einkavæðing verði aukin í bankakerfinu og
opnað verði fyrir aukið fjármagnsstreymi inn og út úr landinu.
Skýrsluhöfundar leggja einnig áherslu á aukinn þátt erlendra að-
ilja í íslensku atvinnulífi, benda á einhæfa undirstöðuatvinnuvegi
og mæla eindregið með auknum markaðslögmálum, auknu frelsi
í fjárfestingalánum og erlendum fjárfestingum. Aðeins einn
stjórnmálaflokkur á íslandi hefur haft uppi sömu áherslur og höf-
undar OECD-skýrslunnar benda nú á sem farsælustu lausnir á
vanda íslensks þjóðarbús. Það er Alþýðuflokkurinn.
OECD-skýrslan er í raun opinber viðurkenning á helstu stefnu-
málum flokksins.
FÖSTUDAGSSPJALL
Guðmundur
Einarsson
HEIMSMYND HAGS-
MUNAVÖRSLUNNAR
„Kvótamálið var komið í höfn,
en með athugasemdum sínum
hafa stjórnmálamennirnir stefnt
því í voða.“ Einhvern veginn á
þessa leið mæltist einum forsvars-
manna svokallaðra hagsmunaað-
ila í sjávarútvegi í sjónvarpsviðtali
nýlega.
Sömu dagana stóð formaður
Sjálfstæðisflokksins í ræðustóli á
Alþingi og ásakaði þingheim fyrir
að hafa gert breytingartillögur á
kvótamálinu án samráðs við
hagsmunaaðila. Og þingmenn
Sjálfstæðisflokksins lögðu til að
málinu yrði vísað aftur til ráð-
gjafanefndarinnar svo marg-
nefndum hagsmunaaðilum gæfist
tími til að skoða það.
í þessum dæmum er mikill fróð-
leikur um íslenska pólitík.
Hagsmunir hverra?
Hverjir eiga hagsmuni í sjávar-
útvegi? Það er auðvitað Ijóst að
þjóðin er öll hagsmunaaðili þar.
Almenningur á þar miklu ríkari
rétt en LÍU.
í lögum stendur að fiskimiðin
umhverfis landið séu sameign ís-
lensku þjóðarinnar. Þar stendur
hvergi að þau séu séreign útvegs-
manna, þótt reyndar hafi verið
reynt að koma því inn í lögin með
ósýnilegu bleki í formi úthlutunar-
reglna.
Heimaríkir hagsmunaaðilar
halda því fram að þingmenn þjóð-
arinnar stefni málinu í hættu með
því að hafa skoðun á því.
Þá eru þeir að segja að fulltrúum
almennings komi ekki við hvernig
sjávarútvegsmenn hafa sjálfir
ákveðið að ráðskast með auðlind-
ina.
Og þeir eru líka að kveða upp
þann dóm að máliö skemmist er
þar verði gætt almannahagsmuna
umfram sérhagsmuni stéttarþing-
anna.
„Sjálfstæðisflokkurinn er skömmt-
unarfélag sem er dulbúið eins og
stjórnmálahreyfing. Undir skikkju
frjálsræðis og víðsýni takast á
gömul einokunarveldi í útflutningi
og verslun. Þegar áflogin fara úr
böndunum er varaformaðurinn
fenginn til að stilla til friðar," skrifar
Guðmundur Einarsson m.a. í Föstu-
dagsspjalli sínu.
Hagsmunir_____________________
Sjálffstæðisfflokksins
Málflutningur Sjálfstæðisflokks-
ins opinberar ýmislegt.
í fyrsta lagi hefur flokkurinn
enga skoðun á málinu. Síðasta
flokksþing reyndi það, en gafst
upp og sneri sér að því að setja inn
nýjan varaformann í stað for-
manns. Engin afstaða er tekin til
grundvallarspurninga um eigna-
rétt og auðlindir.
I öðru lagi sýnir hagsmuna-
þjónkunin okkur innviði flokksins.
Hann er skömmtunarfélag, sem er
dulbúið eins og stjórnmálahreyf-
ing. Undir skikkju frjálslyndis og
víðsýni takast á gömul einokunar-
veldi í útflutningi og verslun. Þeg-
ar áflogin fara úr böndunum er
varaformaðurinn fenginn til að
stijla til friðar.
í þriðja lagi rekur þingmanna-
sveit flokksins erindi sérhagsmun-
anna á Alþingi, fremur en al-
mannahagsmuna. Auk hinnar inn-
byggðu hagsmunavörslu eru flest-
ir málsvarar flokksins uppaldir við
samningaborð stóru samtakanna
og heimsmynd þeirra og sjón-
deildarhringur draga dám af. Þess
vegna verða hin ósjálfráðu við-
brögð þeirra þau að nálin hrekkur
í gamla farið og úr ræðustólum Al-
þingis spila þeir gömlu plötuna
um fótum troðna hagsmunaaðila.
Þess vegna tekur formaður Sjálf-
stæðisflokksins LÍÚ, SÍF og SH
fram yfir Aiþingi.
RADDIR
Finnst þér ad Islendingar œttu aö veita EB-ríkjunum veiöiheimildir í íslenskri
landhelgi gegn aögangi aö mörkuöum í Evrópu?
Birgir Þorgilsson ferðamálastjóri
53 ára:
„Ég segi þvert nei viö þeirri
spurningunni. Ástæöan er sú aö
þetta er okkar stærsta auðlind og
hún er varla nóg fyrir okkur sjálf.
Mér finnst of mikið einblínt á
þennan markaö í Evrópu því
Bandaríkjamarkaður er enn sá
mikilvægasti og þar eru miklir
vaxtamöguleikar. Viö erum meö
góöa vöru í höndunum sem
Bandaríkjamenn munu sækja í á
komandi árum."
Helgi Sigurðsson tæknifræðing-
ur 42 ára:
„Mér finnst aö viö ættum aö
taka upp viðræðum viö Evrópu-
banaalagiö um þessi mál. Þaö er
ekki nóg aö veiða fiskinn, viö verö-
um einnig aö hafa markaði til aö
selja vöruna til. Þess vegna má
ræöa þessi mál þó svo aö niður-
staðan verði e.t.v. sú aö viö teldum
þaö sem Evrópubandalagi ð byöi
ekki þess viröi aö opna landhelg-
ina fyrir."
Fanney Hannesdóttir húsmóðir
68 ára:
„Fiskveiöilögsagan er okkur
þaö mikilvæg aö þaö á alls ekki aö
hleypa erlendum skipum inn í
hana. Rökin aö ekki veröi hægt aö
selja íslenskan fisk til Evrópu eru
ekki nægjanlega sterk til að gera
þessar breytingar. Bandaríkja-
markaöur er enn fyrir hendi og svo
opnast e.t.v. nýir markaðir í A-Evr-
ópu."
Haukur Ársælsson rafvirki 59
ára:
„Viö eigum alls ekki aö veita út-
lendingum veiöiheimildir í ís-
lenskri landhelgi. Ef viö förum aö
gera einhverjar undantekningar
þá veröurfariö fram á meira. Staö-
reyndin er sú aö ef viö réttum litla-
putta þá er allur handleggurinn
tekinn. Fiskurinn okkar er þaö
góöur að viö verðum ekki í nein-
um erfiðleikum aö selja hann í
heimi sem þarfnast sífellt meiri
fæöu."
Gunnar Helgi Kristinsson stjórn-
málafræðingur 32 ára:
„Á meðan íslendingar eru utan
EB eigum viö í lengstu lög aö forö-
ast aö veita erlendum aöilum ein-
hverjar veiöiheimildir í okkar mikil-
vægustu stofna. Hins vegar mætti
hugsa sér aö ræöa um einhverjar
ívilnanir varöandi vannýtta stofna
á íslandsmiðum. Ef viö hins vegar
göngum í Evrópubandalagiö mun
pressan minnka á okkur því viö
þurfum ekki aö veita neinar veiöi-
heimildir, frekar en viö viljum."