Alþýðublaðið - 04.05.1990, Side 6
6
SMÁFRÉTTIR
Föstudagur 4. maí 1990
Safnaðarheimili og tónlistarskóli
rísa í nágrenni kirkjunnar
Hafnfirðingar hafa verið framkvæmdasamir að
undanförnu, og ekkert lát virðist þar á. Nú hafa
Hafnarfjarðarbær og sóknarnefnd Hafnarfjarðar-
kirkju ákveðið að gangast fyrir samkeppni um
tónlistarskóla og safnaðarheimili við hina fögru
kirkju bæjarins. Rík áhersla er lögð á að vernda
kirkjuna og umhverfi hennar í samkeppninni, nýj-
ar byggingar eiga ekki að þrengja að henni. Trún-
aðarmaður dómnefndar er Guðlaugur Gauti
Jónsson arkitekt.
Ríkisútvarpið þjófstartaði
fór ekki eftir tilmælum OECD
Skýrsla OECD, Efnahags- og framfarastofnun-
arinnar í París, um ástand efnahagsmála okkar
hefur vakið talsverða athygli að venju. Skýrsla
þessi er að venju lögð fram með nokkurra daga
fyrirvara, þannig að fjölmiðlar geti áttað sig á efni
hannar og skrifað lærðar greinar í miðla sína. Inni-
hald skýrslunnar birtist fyrst hjá Reuter-frétta-
stofunni og beðið um að fréttir bærust ekki út
fyrr en á tilteknum tíma. Ríkisútvarpið virti þetta
að vettugi eitt fjölmiðla. Síðan kom skýrslan sjálf
og óskað eftir að þirting yrði ekki fyrr en á mið-
nætti fimmtudags 3. maí. Þá voru tveir dagar
liðnir frá því að Ríkisútvarpið þjófstartaði.
menna húsnæðislánakerfið. Þá verður Rann-
sóknastofnun byggingariðnaðarins og starfsemi
Arkitektafélags Islands kynnt. Vestmannaeying-
ar munu eflaust flykkjast í Framhaldsskólann, —
opið verður laugardag 10—12 og 14—18 og á
sunnudag frá 13—15.
Örfá sæti laus —
frumsýningu Spaugstofunnar
frestað til hausts
Þjóðarsálin á bágt á laugardagskvöldum, þeg-
ar Spaugstofan er horfin úr sjónvarpskróknum.
Nú er Spaugstofan hinsvegar komin á kreik í
Þjóðleikhúsinu, húslausa leikhúsinu. ÖRFÁ SÆTI
LAUS heitir sá „kolklikkaöi farsi" sem Spaugstof-
an semur og sýnir undir stjórn Egils Ólafssonar,
— frumsýningu er frestað til hausts vegna hús-
Ein íslensk kvikmynd á ári?
Kvikmyndagerðarmenn eru óhressir. Laga-
frumvarp sem liggur fyrir Alþingi og á að bæta
stöðu íslenskrar kvikmyndagerðar — er ólíklegt
til að skila tilætluðum árangri, segja forráðamenn
þriggja samtaka, þ.e. framleiðenda, kvikmynda-
gerðarmanna og kvikmyndaleikstjóra, „því þar
(þ.e. í frumvarpinu) er gert ráð fyrir framlagi, sem
tryggir gerð aðeins einnar kvikmyndar á ári", seg-
ir kvikmyndagerðarfólkið. Tekjuákvæði frum-
varpsins er sagt í þá veruna að stutt sé í endalok
kvikmyndagerðar hér á hólmanum okkar. Tekjur
sjóðsins eiga að koma af skattlagningu erlendra
bíómynda, sem fá stöðugt minni aðsókn. Bent er
á skattlagningu myndbanda sem tekjustofn fyrir
sjóðinn.
Húsnæðisdagar í
Vestmannaeyjum
Byggingaþjónustan mun á laugardag og
sunnudag efna til Húsnæðisdaga í Vestmanna-
eyjum. Þar gefst fólki kostur á að viða að sér
hverskonar upplýsingum um byggingafram-
kvæmdir og húsnæðismál. M.a. mun Vesta-
mannaeyjabær kynna aðalskipulag bæjarins
1988—2008. Byggingafulltrúi, bæjarveitur og
fleiri kynna starfsemi sína, og hið sama gera
byggingaiðnaðarmenn, verktakar og söluaðilar
byggingarefna. Húsnæðisstofnun á stóran hlut í
Húsnæðisdögum, — erindi verður flutt um hús-
bréfakerfið auk þess sem fjallað verður um al-
næðisvandræða. Myndin sem hér fylgir er tekin
í Þjóðleikhúsinu af aðstandendum sýningarinnar
— og sannarlega eru „örfá sæti laus", því sætin
höfðu verið fjarlægð fyrir viðgerðirnar sem eru
að hefjast. Af Þjóðleikhúsinu er það annars að
frétta að Stefnumót er á fjölunum í síðasta sinn
í kvöld(lðnó) og Endurbygging eftir Havel er sýnd
í síðasta sinn á sunnudagskvöld.
Íþróttahátíð grunnskólanna í dag
Laugardalurinn í Reykjavík verður iðandi af
íþróttafólki framtíðarinnar í dag þegar íþróttahá-
tíð grunnskólanna fer fram. Keppt verður af
hörku í fjöldamörgum greinum íþrótta, úti og
inni. Hátíðin hefst kl. 13.30.
Hvað er saga án sagnfræðinga?
Saga kristinnar kirkju á íslandi í þúsund ár
verður rituð á næstu fimm árum, samkvæmt
þingsályktun frá 26. mars sl. Það hefur farið fyrir
brjóstið á sagnfræðingum að Alþingi felur þjóð-
kirkju íslands og Guðfræðideild Háskólans að
standa fyrir samningu verksins. Sagnfræðingar
vilja álíta að hér sé kjörið verkefni fyrir þeirra
stétt. „Það væri fróðlegt að leggja þúsund ára
starf kirkjunnar á íslandi undir mat manna sem
hafa enga hagsmuni af að gera hlut hennar mik-
inn eða lítinn, góðan eöa illan. Og hún er svo
merk stofnun í Islandssögunni að það væri hall-
ærislegt að gefa henni annars konar afmælis-
sögu á slíkum tímamótum" segir í leiðara frétta-
bréfs Sagnfræðingafélags Islands.
GETRAUNIR
Stöð 2 hefur nú stungið aðra fjölmiðla af í getraunakeppni
fjölmiðlanna. Hún hefur hlotið 99 stig þegar aðeins tvær um-
ferðir eru eftir. Bylgja er í öðru sæti með 92 stig og síðan kom-
um við á Alþýðublaðinu og Þjóðviljinn með 90 stig. Það er því
borin von að það takist aö velta Stöð 2 úr fyrsta sætinu og ját-
um við okkur hér með sigraða.
Nú líður að lokum ensku deildarkeppninnar og getur það
sett mark sitt á úrslit leikja. Flest liðin hafa að engu sérstöku
að keppa og Liverpool hefur þegar tryggt sér meistaratitilinn.
Þá vekur athygli að allir spá Luton tapi þó svo að með sigri
gæti það bjargað sér frá falli í 2. deild. Það lá að vísu ekki fyrir
þegar við spámenn fjölmiðlanna þurftu að spá fyrir þessa lei-
kviku. Okkar spá er sem hér segir:
2X1/X12/X1X/111
FJÖLMIÐLASPÁ
LEIKIR 5. MAI ’90 -i OD 2 £ z z js I- Z □ > s £L tt s £3 Q £ l cc I BYLGJAN OJ 5 6 a =3 5 5 < < z -J * S SAWTALS
1 X 2
Coventry - Liverpool 2 2 2 2 2 2 2 2 2 X 0 1 9
C. Palace - Man. Clty X X X 1 2 2 2 1 X 2 2 4 4
Derby - Luton 1 1 1 1 1 1 1 1 1 1 10 0 0
Everton - Aston Villa 1 1 1 1 1 2 1 1 X 1 8 1 1
Man. Utd. - Charlton 1 1 1 1 X 1 1 1 1 1 9 1 0
; Millwall - Chelsea 2 2 2 2 2 X 2 2 2 2 0 1 9
Norwich - Arsenal X X 2 1 1 2 2 X X 2 2 4 4
Q.P.R.-Wimbledon 1 1 1 1 1 X 1 1 1 X 8 2 0
1 Sheff.Wed.-Nott.For. 2 1 2 2 2 1 X 2 X X 2 3 5
Tottenham - Southampton 1 1 1 1 1 X 1 1 1 1 9 1 0
Sunderland-Oldham 2 1 X 1 1 X 1 2 1 1 5 2 2
West Ham - Wolves 1 1 2 1 1 1 1 X 1 1 8 1 1
liítiue.í WAutíx ■ ••
RAÐAUGLÝSINGAR
Laus staða
Verðlagsstofnun óskar eftir að ráða starfsmann í
stöðu deildarstjóra neytendadeildar Verðlagsstofn-
unar.
Lögfræðimenntun tilskilin.
Laun verða samkvæmt launakerfi starfsmanna rík-
isins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um aldur, menntun
og fyrri störf sendist Verðlagsstofnun, Laugavegi
118, Pósthólf 5120, 125 Reykjavík.
Upplýsingar um starfið eru veittar í síma 91-27422.
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
í Reykjavík vegna sveitarstjórnarkosninga 1990
flyst í Armúlaskóla laugardaginn 5. maí nk. og verð-
ur opið þann dag frá kl. 14—18.
Síðan verður opið alla virka daga kl. 10—12,14—18
og 20—22, en sunnudaga og helgidaga verður opið
kl. 14—18.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Frá Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis
Lausar eru stöður yfirkennara við eftirtalda grunn-
skóla Reykjavíkur:
Ártúnsskóla
Breiðagerðisskóla
Langholtsskóla
Umsóknarfrestur er til 20. maí nk.
Fræðslustjóri Reykjavíkurumdæmis.
LOKAÐ
Vegna jarðarfarar starfsmanns okkar, Þorsteins
Guðnasonar, verða skrifstofur og bensínstöðvar Ol-
íufélagsins hf. á höfuðborgarsvæðinu lokaðar
föstudaginn 4. maí, frá kl. 14 til kl. 18.
Olíufélagið hf.
VÍSINDARÁÐ
sérfræðingsstaða
Staða sérfræðings við Vísindaráð er laus til um-
sóknar.
Starfssvið er m.a. skýrslu- og áætlanagerð, vinna
við mótun vísindastefnu og almenn stjórnunar- og
skrifstofustörf.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum um mennt-
un og starfsferil sendist Vísindaráði, Bárugötu 3,
101 Reykjavík fyrir 1. júní nk.