Alþýðublaðið - 04.05.1990, Blaðsíða 7
Föstudagur 4. maí 1990
NÆSTAFTASTA SÍÐAN
7
T.v. Lauritz Melchior sem „Sigfried" Wagners. T.h. Benjamino Gigli „gulltenórinn"eins oq hann var
kallaöur.
Tvöfalt
tenérafmæK
Þann 20. mars sl. voru nákvœmlega 100 ár frá fœdingu
tveggja tenórsöngvara sem áttu eftir aö setja svip sinn á
óperu og tónlistarlíf sinnar samtíöar, hvor á sinn hátt
Hann var talinn ítalskastur
allra tenóra (italianissimo) og
heillaði áheyrendur sína með
ástríðuhita og viðkvæmni allt
að því grátklökkva á stund-
um. Þetta gagnrýndu sumir
tónlistarsérfræðingar en fólk-
ið elskaði hann einmitt vegna
þessa.
Melcior byrjaði söngferil
sinn sem baritón en það var
bandarísk söngkona sem á
heiðurinn af því að hann varð
tenór. Hún kallaðist frú Charl-
es Cahier og sló því föstu um
leið og hún hafði hlustað á
hann, að rödd hans væri hin
fullkomna Wagneriska hetju-
tenórrödd. Það má til sanns
vegar færa að Wagner var
hans sérsvið og hann söng
hin erfiðu Wagner-hlutverk
mörg hundruð sinnum að því
er virtist fyrirhafnarlaust og
hélt upp á 70 ára afmæli sitt
með því að syngja árið 1960
hlutverk Siegmund í danska
útvarpið.
Gigli með sinn ,,gull“-tenór
gerði hina mörgu Napoli
söngva að gullmolum.
Þessi tvö stórmenni á sviði
sönglistarinnar fæddust sem
sagt 20. mars 1890, og hafa
menn í tónlistarheimi hinna
ýmsu landa haft á orði að
gera daginn að „tenórdegi".
(Arbeiderbladet)
Félagslegur bakgrunnur
þessara tveggja stór-
söngvara var mjög ólíkur.
Lauritz Melchior var
danskur, fæddur í Kaup-
mannahöfn inn í vel efn-
aða, menningariega og
músíkalska borgarafjöl-
skyldu.
Gigli aftur á móti var skóla-
bókardæmi um náttúruhæfi-
leikamann af alþýðufólki
kominn, sem vegna með-
fæddrar raddfegurðar og tón-
næmi og röð tilviljana komst
á toppinn í tónlistarheimin-
um.
Faðir hans var skósmiður i
Recanati á Italíu. Það varð
gæfa Gigli og reyndar okkar
allra að faðir hans var einnig
kirkjuvörður í dómkirkju
Recanati. það var vegna þátt-
töku Gigli í kirkjukórnum
sem hin gullfallega rödd hans
strax á barnsaldri uppgötvað-
ist og möguleikar til frama
opnuðust.
Þegar hann hafði íengið
fullorðinsröddina tók hann
þátt í söngkeppni í Parma ár-
ið 1914 og vann til fyrstu
verðlauna. Haft er fyrir satt
að einn dómnefndarmanna
hafi sagt eftir lok keppninn-
ar: „Ecco il tenore" (eða við
höfum fundið Tenórinn) með
stórum staf ritað eftir það.
Velgjörðarmaður útigangsmanna
Oscar-verðlaunahafinn,
William Hurt, sem sjálfur er
óvirkur alkóhólisti, borðar
iðulega með hrjáðum með-
bræðrum sínum.
Hann segir: „Til hvers ætti
maður að gefa þeim peninga.
Þeir færu beint í vímuefnin,
sem er þeirra böl. Nei, ég fer
með þá á McDonalds eða
aðra matsölustaði og borða
með þeim."
Hurt er svo vel þekktur fyr-
ir góðsemi sina, að utan-
garðsmenn í New York, kúra
iðulega fyrir utan íbúð hans
þar í borg.
William Hurt.
DAGFINNUR
Ég hef móttekið skilaboðin
Mér er dálítið í nöp við rit-'
stjórann þessa dagana.
Maður hefur sitt stolt.
Það verða menn að skilja.
Þetta er dálítið viðkvæmt
mál og ég finn að ég á erfitt
með að skrifa um það.
Ég vil samt að lesendur
blaðsins viti hvernig hefur
verið komið fram viö mig.
Fyrir nokkrum vikum
hringdi ritstjórinn í mig.
Honum var mikið niðri fyr-
ir og sagði að nú væru nýir
og miklir tímar framundan.
Það ætti að breyta Alþýðu-
blaðinu. Eiginlega gjör-
bylta því. Útgáfumál lands-
manna yrði ekki söm og
áður.
Nú ætti að gjörnýta þess-
ar átta síður sem blaðið tel-
ur. Það þýddi að allt efni
yrði styttra. Og jafnframt
fjölgaði fréttum og greinum
og efnisþáttum. Þessi um-
skipti þýddu að ég yrði aö
stytta mína vönduðu og
umdeildu pistla. Ég veit
sem dálkahöfundur að ég
er ekki aðeins talsvert les-
inn, heldur mikið lesinn.
Segjum það bara beint út:
Vinsæll.
Ég merki það á manna-
mótum og oft er hringt í
mig og fólk vill ræða við
mig um skrif mín. Ég hef
núorðið talsverð áhrif og
ræð miklu í umræðunni um
þjóðfélagsmál.
Þetta eru staðreyndir og
ég hélt að ritstjórinn vissi
svona einfalda hluti.
Mér finnst það mjög erfitt
að þurfa aö stytta mig. Mér
líður eins og risa sem send-
ur er í útlegð til Síberíu þar
sem stytting eigi að fara
fram.
Ég skrifa langt og vandað
mál. Enga andatepputexta.
En það er annað verra.
Ritstjórinn hefur ákveðið
aö færa mig af leiðarasíð-
unni. Ég hef allt frá því að
ég hóf daglegar skriftir í Al-
þýðublaðið verið á rit-
stjórnarsíðunni, við hlið
leiðara. Það er staða sem
hæfir mér. Allt annað er
móðgun. Ég veit að ég er
oft miklu meira lesinn en
ritstjórinn. Hann skrifar
fólk út úr flokknum. Ég
skrifa þó fólk inn í flokkinn.
Ég veit um marga sem
hafa gengið í Alþýðuflokk-
inn eftir að hafa lesið mína
pistla.
Svona framkoma er nátt-
úrlega fyrir neðan allar
hellur.
Ritstjórinn tjáði mér að ég
yrði staðsettur á vinsæl-
ustu síðunni. Ég spurði
hvað ætti að vera á þeirri
síðu. Hann sagði krossgáta,
brandarar, erlendir molar
um kvikmyndastjörnur og
samanþjöppuð dagskrá
Ijósvakafjölmiðla.
Ég ætlaði að skella á.
En orð ritstjórans eru víst
lög. Og ég hef móttekið
skilaboðin. Ég get ekki
öðruvísi skilið en að búið sé
aö reka mig af Alþýðublað-
inu. En ég ætla ekki að láta
fara svona með mig.
Ég mun skrifa áfram.
A hverjum degi. We shall
overcome.
Kari
krónprins Breta
Breski krónprinsinn sýnir
áhuga á menningu og arki-
tektúr, sumum til ama, öðr-
um til ánægju. Hann hefur
stungið upp á reglum fyrir
arkitekta: Ékki skemma um-
hverfið.
Ef ekki er hægt að lesa út
úr byggingu hvað hún er,
hvernig eigum við þá að
skilja hana? Lítið getur verið
meira, of mikið ekki nóg.
Gætið þess að barnaleikvellir
séu í skjóli. það er betra að
fólk sjái eitthvað annaö en
dauðar útlitsteikningar. Leyf-
ið fólkinu sem á að búa við
byggingarnar, að stýra hendi
ykkar. Ekki særa augu okkar
á opinberum stöðum.
Arkitektar ku ekki hafa
hrópað húrra.
k
Gleðjist, þið sem
hafið þrútna
augnpoka
Sumir þjóta til og setja
kalda bakstra við augun ef
vottar fyrir þrota eða pokum
í kringum augun. Slappið af
því nú virðast þrútin augu í
tísku!
Stúlkurnar á myndunum
eru allar vinsælar sem fyrir-
sætur og/eða tískusýningar-
stúlkur. Sú lengst til hægri
kallast Cordula og er ein vin-
sælasta þessa dagana, og
menn segja aö hún yröi ekki
svipur hjá sjón án augnþrota.
Gæti hugsast að næsta vin-
sæla fegrunaraðgerðin verði
„falskir augnpokar"?
Einn með
kaffinu
íslenskur sjómaður var
staddur á hafnarknæpu
erlendis. Hann sá laglega
gellu við barborðið og
bauð henni upp á drykk.
— Nei takk, sagði stúlk-
an kuldalega. Ég er
lesbísk!
Sjómaðurinn setti sig í
heimsmannslegar stell-
ingar og spurði:
— Já, ég skil. Hvernig
er ástandið í Beirút?
DAGSKRAIN
Sjónvarpið
17.50 Fjörkálfar 18.20 Hvutti
18.50 Táknmálsfréttir 18.55
Poppkorn 19.20 Reimleikar á
Fáfnishóli 19.50 Abbott og
Costello 20.00 Fréttir og veð-
ur 20.30 Vandinn að verða
pabbi 21.00 Marlowe einka-
spæjari 21.55 Marie 23.45 Út-
varpsfréttir í dagskrárlok
Sföð 2
16.45 Santa Barbara 17.30
Emilía 17.35 jakari 17.40
Dvergurinn Davíð 18.05
Lassý 18.30 Bylmingur 19.19
19.19 20.30 Byrgjum brunn-
inn 21.05 Lif í tuskunum
22.00 Saklaus ást 23.35 Puk-
ur með pilluna 01.10 Njósnar-
inn sem kom inn úr kuldan-
um 02.55 Dagskrárlok
Stjarnan
07—10 Dýragarðurinn
10—13 Snorri Sturluson
13—17 Kristófer Helgason
17—19 Á bakinu með Bjarna
19—22 Arnar Albertsson
22—03 Darri Ólason 03—09
Seinni hluti næturvaktar
Bylgjan
07—09 Þá er það morguninn
09—12 Ólafur Már Björnsson
í helgarhugleiðingum 12—
12.10 Valdis Gunnarsdóttir.
Stefnumót í beinni útsend-
ingu 15—17 Ágúst Héðins-
son og fín tónlist. Valtýr
Björn með iþróttapistil klukk-
an 15.30 17—18 Reykjavik
síðdegis 18—18.15 Kvöld-
fréttir 18.15—19 íslenskir
tónar 19—22 Hafþór Freyr
Sigmundsson á kvöldvakt-
inni 22—02 Á næturvaktinni
02—08 Freymóður T. Sig-
urðsson leiðir fólk inn í nótt-
ina
Rós I
06.45 Veðurfregnir. Bæn
07.00 Fréttir 07.03 í morguns-
árið 09.00 Fréttir 09.03 Litli
barnatíminn 09.20 Af tón-
menntum 10.00 Fréttir 10.10
Veðurfregnir 10.30 Kíkt út um
kýraugað 11.00 Fréttir 11.03
Samhljómur 11.53 Á dagskrá
12.00 Fréttayfirlit 12.15 Dag-
legt mál 12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Dánar-
fregnir 13.00 í dagsins önn
13.30 Miðdegissagan 14.00
Fréttir 14.03 Ljúflingslög
15.00 Fréttir 15.03 „Skáld-
skapur, sannleikur, siðfræði"
15.45 Neytendapunktar
15.52 Þingfréttir 16.00 Fréttir
16.03 Að utan 16.10 Dagbók-
in 16.15 Veðurfregnir 16.20
Barnaútvarpið 17.00 Fréttir
17.03 Þættir úr óperunni
„Marizu greifafrú" 18.00
Freftir 18.03 Sumaraftann
18.30 Tónlist. Dánarfregnir
18.45 Veðurfregnir 19.00
Kvöldfréttir 19.32 Kviksjá
20.00 Litli barnatíminn 20.15
Kórakeppni EBU 1989 21.00
Kvöldvaka 22.00 Fréttir 22.07
Að utan 22.15 Veðurfregnir.
Orð kvöldsins 22.30 Danslög
23.00 í kvöldskugga 24.00
Fréttir 00.10 Ómur að utan
01.00 Veðurfregnir 01.10
Næturútvarp
Rós 2
07.03 Morgunútvarpið 08.00
Morgunfréttir 09.03 Morgun-
syrpa 11.03 Gagn og gaman
12.00 Fréttayfirlit 12.20 Há-
degisfréttir 14.03 Brot úr degi
16.03 Dagskrá. Dægurmála-
útvarp 18.03 Þjóðarsálin
19.00 Kvöldfréttir 19.32
Sveitasæla 20.30 Gullskífan
21.00 Á djasstónleikum 22.07
Kaldur og klár 02.00 Fréttir
02.05 Rokk og nýbylgja 03.00
ístoppurinn 04.00 Fréttir
04.05 Undir værðarvoð 05.00
Fréttir 05.01 Blágresið blíða
06.00 Fréttir 06.01 Áfram ís-
land 07.00 Úr smiðjunni
Landshlutaútvarp ó
Rás 2
Útvarp Norðurland kl. 8.10—
8.20 og 18.03—19.00
Útvarp Austurland kl.
18.03—19.00
Svæðisútvarp Vestfjarða kl.
18.03—19.00
KROSSGÁTAN
□ 1 2 3 n 4
5 □
6 □ m
8 9
75 □ U
□ 12
73 □
27
Lárétt: 1 vasapela, 5 hangs,
6 smáfiskur, 7 hvað, 8 trufl-
ar, 10 kind, 11 beita, 12
glyrna, 13 gæfa.
Lóðrétt: 1 bugtir, 2 hafn-
sögumaður, 3 þegar, 4 fúsa,
5 gunga, 7 bifa, 9 sár, 12 til.