Alþýðublaðið - 11.05.1990, Page 4
4
VIÐHORF
Föstudagur 11. maí 1990
MPVIIlllilllHII
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi: Blaö hf.
Framkvæmdastjóri: Hákon Hákonarson
Ritstjóri: Ingólfur Margeirsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Hinrik Gunnar Hilmarsson
Dreifingarstjóri: Siguröur Jónsson
Setning og umbrot: Leturval, Ármúla 36
Prentun: Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
MENGUNIN OG
VASAPENINGAR
DAVÍÐS
Komiö hefur fram í fréttum aö strandlengjan meöfram Reykjavík er
svo illa farin af skólpi, frárennsli og annarri mengun að viöunandi hreins-
um myndi kosta um þrjá milljarða króna. Þetta eru sláandi fréttir. Um-
hverfismál Reykjavíkur hafa veriö í miklum lamasessi, bifreiöaútblástur
er orðinn mikill skaövaldur og enn hefur ekki verið komiö fyrir hreinsiút-
búnaöi á stærri bíla eins og stætisvögnum eins og víöa tíðkast erlendis.
Fréttirnar um mengun sjávarlengjunnar meöfram höfuöborginni eru
enn ein staöfestingin á aögeröarleysi borgaryfirvalda í umhverfismál-
um.
Hreinsum strandlengju borgarinnar kostar þrjá milljaröa. Hvers vegna
hefur Reykjavíkurborg ekki varið neinum fjármunum í hreinsun til
þessa? Eða ráðist í endurbætur á frárennsli og skólpleiöslum af myndar-
skap? Hvert hafa peningarnir runniö? Svariö er einfalt: í prjálbyggingar
og fjárfestingar sem óskyldar eru skyldum og rekstrarábyrgö bæjarfé-
lags. Dæmi: Glerhýsi á Oakjuhlíð, ráöhúsbyggingin umdeilda og um-
svifamiklar fjárfestingar í veitingageiranum, svo sem kaupin á Broad-
way og Hótel Borg. Meðan meirihluti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík
meö Davíö Oddsson borgarstjóra í broddi fylkingar steypir sér út í hvert
fjárfestingarævintýrið á fætur ööru er velferðarmálum borgarbúa ýtt til
hliöar. Raðirnar fyrir framan dagvistunarheimilin og stofnanir aldraöra
lengjast stööugt og strandlengjan veröur æ mengaöri meö hverju árinu
sem líður.
Hin einstaka aöstaöa Reykjavíkur í Ijósi stæröar og umsvifa á lands-
mælikvarða hefur fært borginni gríöarlega sterka tekjustofna. Þessir
tekjustofnar hafa verið vannýttir í þágu borgarbúa en í stað þess verið
pólitískir vasapeningar Davíös Oddssonar. Síöasta hugdetta borgar-
stjóra var aö kaupa Hótel Borg og koma þannig aftan að löggjafarsam-
kundunni sem hugðist leysa brýn húsnæöisvandamál sín meö kaupum
á sama húsi. Fyrirlitning borgarstjóra á Alþingi kom einna best fram í því
máli og minnir einna helst á dekraöan pabbastrák meö vasana fulla af
skotsilfri annarra sem getur keypt þaö sem hugurinn girnist og sem
hugsanlega getur aflaö honum mestu vinsældanna. Borgarbúar vilja
hins vegar aö peningar þeirra séu notaöir á annan hátt en hugdettur
borgarstjóra segja til um.
FOSTUDAGSSPJALL
GAIDRAKARL-
INNIKVOS
„Þegar Davið Oddsson kaupir Hótel Borg beitir hann annesjarökum Fram-
sóknará miðborg Reykjavíkur," segir Guðmundur Einarsson m.a. í Föstu-
Um hvað fjallar
byggðostefno Fram-
sóknarflokksins? Hún
hefur snúisf um að nota
opinbert fé til að kaupa
illa stödd fyrirtæki i
byggðum sem eiga und-
ir högg að sækja.
Þá er vísað til þess aö þaö sé
spurning um mannúö að hamla
gegn fólksfæð og flótta atvinnu-
fyrirtækja.
Framsóknarsukk!
Þessi svokallaöa byggðastefna
gerist oft þannig aö ríkissjóður
eöa opinberir styrktarsjóðir gefa
eöa lána milljónatugi eöa hundr-
uö til reksturs og fjárfestinga með
þeim skýringum aö ella raskist bú-
setan og rætur sögu og menningar
slitni.
Margir hafa lýst sig andvíga
þessari aöferðafræöi Framsóknar
og kallaö hana misnotkun opin-
bers fjár og dekur viö sérhags-
muni.
Fkki síst hafa ungir sjálfstæöis-
menn gerst býsna stórorðir um
þaö sem þeir kalla sukk meö skatt-
fé borgaranna og þeir hafa meira
aö segja ort og sungið sérstakan
Skattamannssöng um svona fram-
ferði.
Paviðssukk!__________________
Davíð Oddsson er átrúnaðargoð
hinna ungu markaöshauka Sjálf-
stæðisflokksins og vísa þeir gjarn-
an til fjármálastjórnar Reykjavík-
urborgar ef finna á dæmi um góöa
meðferð á skattpeningum.
En af hverju kaupir Davíö Hótel
Borg?
Hótelið stendur í miöbæ sem á
undir högg að sækja. Fólksfæö og
flótti verslana herjar á atvinnulíf
miðborgarinnar.
Fasteignir þar eru margar gaml-
dagsspjalli sinu.
ar og hrörlegar.
Á glæstu skeiöi miöbæjarsög-
unnar var rekiö konunglegt hótel
við Austurvöllinn. Nú hefur mark-
aöurinn hafnaö þvi af því önnur
og betri hótel fást í nýrri og betri
húsum með baðherbergjum og
bilastæðum.
Borgqrbyggðastefna
Þegar Davíð Oddsson kaupir
Hótel Borg beitir hann annesja-
rökum Framsóknar á miðborg
Reykjavikur.
Fn þar fara framsóknarmenn og
Davíö Oddsson villur vegar. Þaö
er ekki hægt til frambúðar aö
hamla gegn grisjun byggðar i Mið-
bænum og á Melrakkasléttu meö
styrkjum til einstakra bænda eöa
hótela.
Þaö er hins vegar hægt meö því
aö bæta umhverfi og aðstöðu fyrir
fólk og fyrirtæki.
Kvosin í Reykjavík byggist ekki
upp meö galdrabrellum á borð við
hótelkaupin eða ráðhúsklumpinn
í Tjörninni.
Hún byggist upp með almenn-
um ráðstöfunum, sem geta komið
öllum fyrirtækjum og íbúum
svæðisins til góða, betri um-
gengni, bættum rekstrarskilyrð-
um og fjölbreyttu mannlifi.
Guðmundur Einarsson
RADDIR
Finnst þér rétt af Steingrími Hermannssyni forsœtisrádherra aö hitta
leiötoga PLO aö máli?
Ólafur Gíslason 24 ára lögreglu-
þjónn
„Ég sé ekkert því til fyrirstöðu
að ræða við manninn. Það er mik-
ilvægt að heyra sem flest sjónatr
mið og það er sjálfsagt það sem
Steingrímur hefur í huga mneð
þessum fundi með Arafat"
Kristján Franklín Magnússon 30
ára leikari
„Arafat er leiðtogi stórs hluta
palestínsku þjóðarinnar og það er
því mikilvægt að heyra sjónarmið
þessa fólks. Orð eru til alls fyrst og
ef á að finna lausn á vanda þessa
fólks er það nauðsynlegt að heyra
mismunandi sjónarmið í þessu
máli."
Ævar Kjartansson 40 ára út-
varpsmaður
„Mér finnst Steingrímur sýna
mikið hugrekki að þora að ræða
Palestínumálið víð einhvern sem
er utan þessa „viðurkennda" hóp
stjórnmálamanna. Við lifum í sí-
fellt breytilegum heimi og þess
vegna finnst mér þetta gott fram-
tak hjá forsætisráðherranum okk-
ar."
Ingigerður Narby 43 ára hús-
móðir
„Það er alveg sjálfsagt aö Stein-
grímur ræði við Arafat. Mér finnst
það ekki sterk rök að ekki megi
ræða við manninn því samtök
hans hafi staðið fyrir hryðjuverk-
um fyrir mörgum árum. Á sama
hátt væri hægt að segja að ekki
ætti að ræða við Israelsmenn fyrir
það sem þeir gerðu í frelsisstríði
sínu og fyrir það sem þeir eru að
gera á hernumdu svæðunum um
þessar mundir."
Yasser Arafat
Gunnar Eyþórsson 49 ára frétta-
maður
„Fyrst PLO hefur viðurkennt til-
verurétt Ísraelsríkis og Bandaríkin
geta rætt við Arafat sé ég enga
ástæðu fyrir því að Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
íslands eigi ekki að ræða við leið-
toga Frelsissamtaka Palestínu."