Alþýðublaðið - 15.05.1990, Page 4
4
VIÐHORF
Þriðjudagur 15. maí 1990
MÞYÐUBMÐI9
Ármúli 36 Sími 681866
Útgefandi:
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Dreifingarstjóri:
Setning og umbrot:
Prentun:
Blaö hf.
Hákon Hákonarson
Ingólfur Margeirsson
Jón Birgir Pétursson
Hinrik Gunnar Hilmarsson
Siguröur Jónsson
Leturval, Ármúla 36
Oddi hf.
Áskriftarsíminn er 681866
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuöi innanlands.í lausasölu 75 kr. eintakið
RÁÐHUSIÐ
KEMUR ÚR SKURNINNNI
Ráöhúsiö í Reykjavík er nú aö brjóta af sér byggingaskurnina og
birtast höfuöborgarbúum í allri sinni stærö og fáránleik. Þetta sér-
staka dekurbarn Davíð Oddssonar borgarstjóra sem hann hefur
vaöiö eld og brennistein til byggja, er nú aö veröa aö veruleik eöa
réttara sagt aö stööugri mártröö fyrir Reykvíkinga. Byggingin sting-
ur í fyrsta lagi í stúf viö rótgróiö umhverfi tjarnarinnar meö timbur-
húsum Tjarnargötunnar og látleysi Lækjargötunnar. Ráöhúsiö er
einna helst líkt risastórum flugskýlum á súlum og hefur enga sam-
svörun í umhverfi. í ööru lagi gera stærðarhlutföll ráöhússins þaö aö
verkum aö hin rótgrónu hús miðbæjarins í nágrenni Tjarnarinnar
veröa lítil og vesældarleg viö hliö ráöhússins sem æ meira er aö
veröa tákn fyrir hiö mikla bákn borgaryfirvalda.
Viö fyrstu fjárhagsáætlun í árslok 1987 var heildarkostnaöur ráö-
hússins áætluður 750 milljónir króna. í árslok á þessu ári er kostnað-
ur vegna ráöhússins orðinn tæplega 1700 milljónir króna. Þó hafa
byggingaráformin minnkaö, meðal annars hefur áætlaöur bílakjallari
upp á þrjár hæöir orðið aö einni hæö. Áætlaö er nú aö heildarkostn-
aöur við ráöhúsiö fullgert veröi um 3000 milljónir króna. Þaö er um
fjórföld upphæö frá fyrstu fjárhagsáætlun. Borgarstjóri er meö öör-
um orðum á góöri leiö aö fara fjórfalt fram úr fjárhagsáætlun ráö-
hússins!
Þessi upphæð; þrír milljarðar króna er sú sama og Reykjavíkurborg
þarf til þess aö koma umhverfismálum allrar strandlengjunnar meö-
fram höfuðborgarsvæðinu í viöunandi ástand. Fyrir þrjá milljarða
mætti bæta úr knýjandi dagvistarvanda borgarbarna. Þrír milljarðar
myndu breyta öldrunarmálum Reykjavíkurborgar til batnaöar.
Harmsagan um ráöhúsiö er dæmisaga um bruðl og óráösíu borgar-
stjórnarmeirihluta sjálfstæöismanna undir forystu Davíös Odds-
sonar. Fjárfestingar sjálfstæöismanna í Reykjavík í ráöhúsinu nýtast
ekki borgarbúum. Það grátbroslega er ennfremur aö ráöhúsiö þrátt
fyrir mikla fyrirferð, veröur samt ekki nógu stórt til aö hýsa allt skrif-
stofubákn borgarstjóra.
Höfuöverkur í Hvíta húsinu:
Gliml við hallann
Yfirvöld í Bandaríkjunum
standa nú frammi fyrir þeim
vanda að minnka hallann á ríkis-
sjóði án þess að draga úr hag-
vexti í landinu. Stjórnarherrarn-
ir í Washington treysta nú á að
bankayfirvöld muni leggja þeim
lið í þessari baráttu með því að
lækka vexti i landinu til að auka
eftirspurn eftir fjármagni.
,,Við vonum að Seðlabankinn taki
tillit til þess sem viö höfum verið að
gera til að ná niður hallanum,"
sagði Marlin Fitzwater. talsmaður
Hvíta hússins í síðustu viku eftir að
tilkynnt var um fund milli
Bush-stjórnarinnar og Þingsins.
Á sama tíma og sá fundur mun
eiga sér stað munu sérfræöingar
Seðlabanka Bandaríkjanna stinga
saman nefjum til að ræða vaxta og
peningamál. Ekki er búist við mikl-
um árangri á þessum tveimur fund-
um, en hagfræðingar segja að
stjórnin og Seðlabankinn verði aö
vinna saman til að ná fjárlagahall-
anum niöur. Undanfarin átta ár hef-
ur verið uppsveifla í viðskiptalífi
Bandaríkjanna en hvorki Reag-
an-stjórninni né Bush-stjórninni hef-
ur tekist að ráða við fjárlagahallann
Bush Bandaríkjaforseti mun ekki
brosa ef hann hækkar skatta landa
sinna.
sem hefur verið vaxandi með hverju
árinu.
Þessir fyrrnefndu sérfræöingar
eru þó sammála um að niðurskurð-
ur myndi koma sér illa á þessum
tíma því hagvöxtur hefur hægt
mjög á sér að undanförnu og niður-
skurður í útgjöldum alríkisstjórnar-
innar myndi hægja enn meira á
honum.
Fjármálamenn eru greinilega
bjartsýnir að bjartir tímar séu fram-
undan því verðbréf á Wall Street
hækkuðu mjög í síðustu viku.
Fjárlagahalíinn i Bandaríkjunum
hefur komið illa við stjórnmála-
menn þar í landi og er jafnvel rætt
um að Bush Bandaríkjaforseti sé til-
búinn að hækka skatta þar í landi til
að ná hallanum niður, jafnvel þó að
það hafi verið eitt að kosningalof-
orðum hans að hækka alls ekki
skatta.
Það eru þó ekki allir bjartsýnir að
stjórnmálamennirnir hafi nægjan-
legt þor í sér til að taka þær óvin-
sælu ákvaröanir sem óhjákvæmi-
lega fylgja þegar dregið er úr ríkis-
útgjöldum. Aö sama skapi eru for-
ráðamenn Seðlabanka tregir aö
lækka vexti þangað til þeir fá staö-
festingu á að raunverulega verði
dregið úr útgjöldum stjórnarherr-
anna í Washington.
Klandur í Kina:
Skjóta fríðardúfurnar
Kínverjar undirbúa nú af
kappi Asíuleikana í íþróttum
sem fram eiga að fara í Bejing
í haust. Hluti af opnunarhátíð-
inni átti að vera flug fieiri þús-
unda dúfna frá leikvanginum
út um alla borg. Þetta átti að
sýna hinn frjálsa anda leik-
anna. Það hefur hins vegar sett
strik í reikinginn að skotveiði-
menn hafa setið fyrir dúfunum
á æfingsvæði þeirra og segja
forráðamenn leikanna að þeg-
ar hafi þeir misst fleiri hundr-
uð dúfur í hendur þessara
óprúttnu veiðimanna.
Æfingaflug dúfnanna hefur leg-
ið frá borginni Shijiazhuang í um
300 km fjarlægt frá höfuðborginni
inn til Bejing en á þeirri leið hafa
þá yfir 100 veiðimenn legið í leyn-
um og fretað á friðardúfurnar. Síð-
an eru þær seldar á mörkuðum
þrátt fyrir að hver einast dúfa sér
merkt Asíu-leikunum. Yfirvöld
standa ráðþrota gagnvart þessari
veiðimennsku en þau hafa samt
sem ekki áður gefið upp alla von
að hægt verði að halda þessu at-
riði inni í opnunarhátíðinni.
Það er ekki nóg að þrifa borgirnar ef
veiðimennirnir skjóta allar friðar-
dúfurnar.
RADDIR
Hvaö er hœgt aö gera til aö sporna viö sívaxandi fíhniefnaneyslu hér á landi?
Þorgrímur Pétursson 27 ára nemi
„Fræösla fyrir börn og unglinga
er þaö sem dugir. Ég hef ekki trú á
því aö aukin löggæsla eigi eftir aö
draga úr þessari þróun aö neinu
marki. Ástæöan er sú aö þaö eru
svo miklir peningar í þessum við-
skiptum aö þaö mun veröa smygl-
aö áfram til landsins á meöan ein-
hver markaöur er til aö metta."
Ester Gísladóttir 64 ára verslun-
armaður
„Þaö þarf aö stórauka löggæsl-
una. Viö búum á eyju þannig aö
þaö er vitað aö öll fíkniefni koma
þá annaöhvort landleiöina eöa
sjóleiðina. Þaö ætti ekki því ekki aö
vera erfitt aö skrúfa fyrir þessar
leiöir með auknum mannaafla í
toll- og löggæslu."
Pétur Þorgeirsson 62 ára verslun-
armaður
„Þaö þarf bæði aö auka fræösl-
una og svo aö þyngja dómana yfir
bæöi innflytjendum og seljendum
þessara fíkniefna. Þeir menn sem
selja börnum eitulyf eru verri en
morðingjar og þá menn ætti aö
loka inni í langan tíma."
Axel Birgisson 20 ára nemi
„Það þarf aö herða viðurlög yfir
þeim sem selja slík efni. Síöan þarf
aö stórauka fræösluna í bæöi
grunn- og framhaldsskólum því ef
tekst aö breyta hugarfari krakka
gagnvart fíkniefnum þá veröur
enginn markaður fyrir hendi í
framtíöinni.
Þórarinn Tyrfingsson 43 ára
læknir
„Þaö þarf aö auka endurhæf-
ingu á þeim hópi sem háöur er
fíkniefnum því sá hópur elur af sér
nýja fíkniefnaneytendur. Svo þarf
auövitaö aö stórauka forvarnar-
starf til sem flestra hópa í þjóöfé-
laginu. Sérstaklega er mikilvægt
er aö ná til foreldra þannig aö þeir
geri sér grein fyrir ef börnin eru
farin aö neyta lyfja því þá geta for-
eldrarnir gripiö í taumana."