Alþýðublaðið - 15.05.1990, Page 6
6
INNLENDAR FRETTIR
Laugardagur 12. maí 1990
Islenskir útflytjendur:
Líla í austurátt
Útflutningsráð mun á næst-
unni kanna hvaða möguleika
breytingarnar ■ Austur-Evrópu
gefa íslenskum útflytjendum.
Norræna ráðherranefndin hefur
boðið Útflutningsráðum Norður-
landa sainstarf um sameiginleg-
ar norrænar aðgerðir og mun
Útflutningsráð Islands taka þátt
í því.
Þetta kom fram í ræðu Magnúsar
Gunnarssonar, stjórnarformanns
Útflutningsráðs á aðalfundi ráðsins.
Uni þetta sagði Magnús ennfremur:
Islandi hefur verið boðið að vera
heiðursþjóð á haustvörusýningunni
i Búdapest og er gert ráð fyrir, að
þar verði kynntar íslenskar sjávaraf-
urðir, jarðhitaþekking og ýmsar iðn-
aðarvörur. í tengslum við sýning-
una verður almenn kynning á Is-
landi og er gert ráð fyrir, að fjölmiðl-
ar í Ungverjalandi fjalli um ísland af
þessu tilefni. Á sýninguna koma
gestir frá flestum Austur-Hvrópu-
löndum og verður fróðlegt að sjá
liver viðbrögðin verða. Útflutnings-
ráð hefur að undanförnu verið að
athuga möguleika á útflutningi á
vélum og tækjum til Sovétríkjanna
og verður jrví verki haldið áfram. I
ágúst verður alþjóðleg vörusýning
fyrir vélar og tæki fyrir sjávarútveg
í Leningrad og verður sameiginlegt
sýningarsvæði íslenskra útflytjenda
á þeirri sýningu."
Kaupmenn í gamla miöbœnum:
Funda með
frambjóðendum
Mikil og sivaxandi óánægja
kaupmanna í miðbæ Reykjavík-
ur mun væntanlega fá útrás á
fundi sem Kaupmannasamtökin
efna til í Húsi verslunarinnar
annað kvöld. Þar munu fulitrúar
þeirra stjórnmálaafla sem bjóða
fram í borgarstjórnarkosning-
unum, svara spurningum kaup-
manna.
Gamli miðbærinr. í Reykjavík má
muna sinn fífil fegri og verslun þar
hefur hrakað mikið á undanförnum
árum, frá því að Kringlan tók til
starfa. Kaupmenn í miðbænum eru
margir hverjir óánægðir með
frammistöðu borgaryfirvalda í mál-
efnum gamla miðbæjarins. Sem
dæmi um þetta má nefna umfjöllun
Verslunartíðinda fyrir fáeinum vik-
um, þar sem rætt er viö tvo kaup-
menn í gamla miðbænum. Þar er
t.d. haft eftir Katli Axelssyni kaup-
manni aö engu sé líkara en yfirvöld
séu jarðsambandslaus í þessu efni
og skipulega sé unniö að því að gera
fólki umferö um miöbæinn eins erf-
iöa og mögulegt sé.
Meðal kaupmanna I gamla mið-
bænum virðist sú skoöun útbreidd
að opnun Austurstrætis fyrir bíla-
umferð sé forsenda þess að gamli
miðbærinn lifni við að nýju. Auk
þess telja menn að fjölga þurfi bíla-
stæöum að miklum mun og haröari
innheimta stöðumælasekta hafi
einnig haft sitt að segja.
RAÐAUGLÝSINGAR
Starfsmannafélag ríkisstofnana
Afgreiöslutími á tímabilinu 14. maí—30. september
er skrifstofa SFR opin frá kl. 8.00—16.00.
Aðalfundur
Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis verður hald-
inn í Súlnasal Hótel Sögu laugardaginn 19. maí kl.
10.00.
Dagskrá samkvæmt lögum félagsins, en auk þess
gerð tillaga um að leggja niður innlánsdeild félags-
ins.
Stjórn KRON.
Félagsstarf aldraðra í Reykjavík
Hinar árlegu sumar og orlofsferðir hafa verið
skipulagðar og tímasettar.
Nánari upplýsingar eru í Fréttabréfi um málefni
aldraðra sem sent er öllum Reykvíkingum 67 ára
og eldri.
Upplýsingar og pantanir í Félags- og þjónustu-
miðstöðinni Bólstaðarhlíð 43 í símum: 689670 og
689671 frá og með mánudeginum 21. maí nk. milli
kl. 9.00 og 12.00.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Félagsstarf aldraðra í Reykjavík
Hinar árlegu yfirlits- og sölusýningar á handa-
vinnu unninni í félagsstarfi aldraðra í Reykjavík
verða dagana 19., 20. og 21. maí frá kl. 13.30 til
17.00 í Hvassaleiti 56, Gerðubergi, Bólstaðahlíð 43
og Vesturgötu 7.
I Seljahlíð v/Hjallasel verður sýningin 25. og 26.
maí frá kl. 13.30 til 17.00.
Kaffiveitingar.
Allir velkomnir.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Alþýðuflokksfélag
Garðabæjar og Bessastaðahrepps
Opinn stjórnmálafundur í Kirkjuhvoli, fimmtudag-
inn 17. maí kl. 20.30.
Stuttar framsöguræður flytja:
Helga Kristín Möller bæjarfulltrúi Jóhanna Sig-
urðardóttir félagsmálaráðherra Jón Sigurðsson,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra Karl Steinar Guðna-
son alþingismaður.
Almennar umræður og fyrirspurnir.
Fundarstjóri:
Gizur Gottskálksson og Erna Gunnarsdóttir.
ALLIR VELKOMNIR.
Stjórnin.
Reykvíkingar!
Jón Baldvin Hannibalsson
formaður Alþýðuflokksins, verður með viðtalstíma
í Félagsheimili jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10,
miðvikudaginn 16. maí kl. 16.00—19.00.
ALLIR VELKOMNIR
Alþýðuflokkurinn, sími 15020 og 626701.
Aðalfundur
Aðalfundur Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur verður
haldinn, þriðjudaginn 15. maí nk. kl. 20.30 á Holiday
Inn.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning stjórnar
3. Önnur mál
Bjarni R Magnússon bæjarfulltrúi flytur ávarp.
Stjórnin.
Góð orð ^
duga skammt.
Gott fordæmi
skiptir mestu
máli