Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 1
FIMMTUDAGUR 3. JANÚAR 1991 UNGLINGAR Á BARNATAXTA í STRÆTÓ: ung- lingar á aldrinum 12—15 ára borga barnagjald með stræti- svögnum Reykjavíkur frá og með 1. jan. sl. Fargjöld hækk- uðu almennt frá sama tíma, þannig að fullorðinsmiði með strætó kostar nú 65 krónur. Sama viðmiðun og í almenningsvögnunum verður einn- ig hjá borginni á þeim stöðum sem unglingar þurfa að greiða aðgangseyri. Þannig munu þeir t.d. greiða sama gjald og börn í sundlaugar borgarinnar. Ekki er vitað til þess að þessi gjaldaskrárlækkun hafi á áhrif á vísitölu til' lækkunar, enda eru unglingar ekki reiknaðir í hagtölum okkar. ÞORLÁKUR HELGASON í PRÓFKJÖR: ’orlákur Helgason blaðamaður hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Alþýðuflokksins í Reykjavík sem fyrirhugað er í næsta mánuði. Þorlákur var áður skólameistari við Fjöl- brautaskóla Suðurlands og skipaði þriðja sæti Alþýðu- flokksins í Suðurlandskjördæmi við síðustu kosningar. HLUTAFÉ FYRIR MILLJARÐ ÍÁRSLOK: -llutabréf voru seld fyrir um einn milljarð króna í vikunni milli jóla og nýárs en slík hlutafjárkaup eru að ákveðnu marki frá- dráttarbær frá skatti. Ekki er talið að verð hlutabréfa muni lækka jafnvel þótt eitthvað yrði um það að einstaklingar seldu bréf sín aftur á næstu dögum. SEX TÝNDIR Á FLJÓTSDALSHEIÐI: íkkert hafði spurst til þeirra sex sem saknað var á Fljótsdalsheiði. Þeir höfðu lagt á heiðina á tveimur velbúnum jeppum á sunnu- dagskvöldið og var ferðinni heitið að Snæfelli. Var von á þeim til byggða í fyrradag en þegar blaðið fór í prentun hafði enn ekkert spurst til þeirra. Björgunarsveitir hafa hafið leit að mönnunum en vonskuveður var á Fljótsdals- heiði í gær og leitarskilyrði afar erfið. FÁ SKYNDIBITASTAÐIR VÍNVEITINGALEYFI? A fundi Borgarstjórnar Reykjavíkur í dag verður endanlega afgreidd ósk tveggja skyndibitastaða um vínveitingaleyfi. Ágreiningur varð um leyfisveitinguna í félagsmálaráði og í borgarráði og þess vegna kemur málið til endanlegrar af- greiðslu borgarstjórnar. Það eru veitingahúsin Jarlinn við Tryggvagötu og Jarl- inn við Bústaðaveg 153 sem sækja um vínveitingaleyfi. Á fundi félagsmálaráðs 17. des. andmæltu Guðrún Ágústs- dóttir og Elín G. Ólafsdóttir leyfisveitingunni og létu bóka að þær teldu það ranga stefnu „að veita skyndibitastöðum og stöðum, þar sem matur er seldur út, leyfi til að selja vín.“ Á borgarráðsfundi 21. des. sl. gekk Sigurjón Pétursson til liðs við Guðrúnu og Elínu og greiddi atkvæði gegn um- sókninni. Á fundi borgarstjórnar í dag er búist við að leyfi verði gefið, þar sem borgarstjórnarmeirihluti Sjálfstæðis- flokks hefur verið óskiptur í málinu. LEIÐARINNIDAG Leiðari Alþýðublaðsins fjallar um úrslitaárið 1991. Á þessu ári ræðst framtíð innanríkisþróunarinnar í Sovétríkjunum. Undir henni er framtíð samskipta stórveldanna komin og trygging heimsfriðarins. SJÁ LEIÐARA Á BLS. 4: ÚRSLITAÁRIÐ 1991 Sambandið í sex hlutafélög tórfelldar vöru- ækkanir boðaðar um skot hittu 4 mark í fréttaskýringu er sagt frá þeim sex hlutafélögum sem hafa tekið við rekstri fyrirtækja Sambandsins. Vænta má frek- ari breytinga hjá samvinnu- hreyfingunni og breytinga á lögum um samvinnufélög. Búist er við stórfelldum hækkunum á matvörum í Sov- étríkjunum samfara því að þau taka upp í auknum mæli mark- aðsbúskap. Erlend fréttaskýr- ing eftir Ingólf Margeirsson. „Svo fer það eftir því hvort fólk er í stuði eða ekki þegar það fylgist með skaupinu. Á fimmta glasi hlæja sumir að öllu," segir Sæmundur Guð- vinsson um áramótaskaup Sjónvarpsins. Á sama tíma og Reykvíkingar hafa selt um 15 þúsund tonna kvóta burt hefur Vestmannaeyingum áskotnast andvirði allrar veiði Bolvíkinga. _ Storfelldir kvotaflutningar Bolungarvik til Yestmannaeyja Vestmannaeyingui.i hefur á árunum 1984—1990 bæst við jafnstór veiðikvóti og nemur öllum núverandi kvóta Bolvíkinga. Vestmannaeyjar eru sú verstöð þar sem mestur kvóti hefur bæst við á tíma- bili kvótakerfisins. Á árínu 1984 nam aflakvóti Vest- mannaeyinga 8,65% af heildarkvóta í landinu. í fyrra höfðu 6750 tonn bæst við aflakvóta Eyjamanna og er það álíka mikill afli úr sjó og Bolvíkingar máttu veiða í fyrra. Aflaverðmæt- in sem áskotnuðust í Vest- mannaeyjum nema ríflega hálfum milljarði króna. Tilfærslur á kvóta hafa verið miklar á þeim tíma sem kvótakerfi hefur verið við líði. Reykvíkingar seldu um 15 þúsund tonn úr kvóta sínum á árunum 1984—1990, og var afla- kvóti þeirra í fyrra aðeins 8,15% heildarkvóta lands- ins samanborið við 11,43% á árinu 1984. Sala á kvóta úr Reykjavík með skipum eða beint er álíka mikil og ársveiði 6—7 skuttogara. 3 þúsund starfsmenn bœttust á ríkissjód um áramótin Ríkið borgar — en hefur ekki hugmynd um launakjörin Um þrjú þúsund manns fluttust um áramótin af sveitarfélögunum yfir á ríkið. Ríkisvaldið hefur ekkert eftirlit með launa- greiðslunum og í ríkis- kerfinu hafa menn enga hugmynd um kaup og kjör þessa hóps. Sú breyting varð um ára- mótin á starfsmannahaldi sjúkrahúsa og heilsugæslu- stöðva, sem eru í tengslum við sjúkrahúsin, að launa- greiðslur koma framvegis al- gjörlega úr ríkissjóði. Stofn- anirnar munu þó greiða fólk- inu launin áfram, en launa- bókhald verður ekki á hendi ríkisins eins og gildir um aðr- ar stofnanir ríkisins. Ríkis- sjóður er sem sé launagreið- andinn, en ríkisvaldið hefur ekkert eftirlit með launa- greiðslum og í ríkiskerfinu þekkja menn ekki kaup og kjör þessa fólks. Um er að ræða tæplega þrjú þúsund manns af um 25 þúsund manns sem vinna hjá ríkinu. Ríkið hefur því enga hugmynd um laun meira en tíunda hvers opinbers starfs- manns. Það var á fyrra ári sem ákveðið var að launa- greiðslur skyldu framvegis verða á hendi sjúkrahúsanna sjálfra og ekki í gegnum launakerfi ríkisins og Reykja- víkurborgar. Litið var á ákvörðunina sem hverja aðra valddreifingu. Slík valddreif- ing var þó ekki viðhöfð fyrir ári er ýmsir starfsmenn — m.a. í skólakerfinu — fluttust af sveitarfélögum á ríki. Ekki er vitað hvenær reikn- ingum verður framvísað í fyrsta sinni, en þá mun vænt- aniega koma í ljós á hvaða kjörum það fólk er sem vinn- ur hjá ríkinu — enn sem kom- ið er virðast launakjörin launagreiðandanum óvið- komandi.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.