Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 6

Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 6
6 Fimmtudagur 3. janúar 1991 RAÐAUGLÝSINGAR Fréttamynd ársins 1990 Frétt érsins 1990, sem nú er horfið í aldanna skaut, var én efa hin marg- umrædda sétt, sem varð með hinni íslensku þjóð, — Þjóðarsáttin. Einar Ólason, Ijósmyndari Alþýðublaðsins, var í Karphúsinu snemma nætur í byrjun febrúar, þegar samningar tókust milli valdablokkanna í þjóðfélag- inu, samningar sem miðuðu að stórfelldu höggi á verðbólguskrímslið, sem lengi hafði gengið laust meðal landsmanna. Á myndinni má sjá Hauk Halldórsson, oddvita bændastéttarinnar og „bjargvættinn frá Flateyri", Einar Odd Kristjánsson, einbeitta á svip við undirskrift samningsins. Kannski segir svipur þeirra meira um þá alvöru og eindrægni sem loks ríkt meðal samningamanna. Loks voru allir sammála um að höfuðmeinið lægi í verðbólgunni, og voru viðbúnir að leggja sitt af mörkum. Myndin er endurprentuð þar eð texti skilaði sér ekki með myndinni í ára- mótablaðinu okkar. Námskeið í náttúruvernd Námskeið í náttúruvernd verður haldið í Reykjavík og á Akureyri eða Egilsstöðum í vetur. Tilgangur námskeiðsins er að gefa fólki innsýn í náttúruvernd á íslandi, þjálfa það til að hafa eftirlit. með friðlýstum svæðum og fræða fólk um náttúru landsins. Þátttakendur skulu vera orðnir 20 ára og hafa stað- góða framhaldsmenntun og gott vald á einhverju eftirtalinna tungumála; ensku, þýsku, frönsku, ítölsku eða einhverju norðurlandamáli. Námskeið í náttúruvernd er skilyrði fyrir ráðningu í landvörslu- störf á vegum Náttúruverndarráðs, en tryggir fólki þó ekki slík störf. Námskeiðið tekur ellefu daga. í Reykjavík verður það haldið dagana 8.—10. febrúar og 8.—10. mars, en á Akureyri/Egilsstöðum 22.—24. febrúar og 22.—24. mars. Verklegur þáttur námskeiðsins (5 dagar) verður seint í apríl eða byrjun maí, í Skafta- felli og Mývatnssveit, nánari tímasetning verður ákveðin síðar. Lágmarksfjöldi þátttakenda í námskeiðinu á Akur- eyri eða Egilsstöðum er 15 manns. Umsóknir um þátttöku óskast sendar skrifstofu Náttúruverndarráðs, Hverfisgötu 26, 101 Reykjavík og skulu greina frá nafni, heimilisfangi, menntun, aldri, störfum, áhugamálum og öðru sem máli skiptir. Þeir sem sækja um námskeiðið á Akureyri/Egilsstöðum eru vinsamlegast beðnir að taka fram á hvorum staðnum þeir óska að það verði haldið. Umsóknir skulu berast fyrir 15. janúar, námskeiðis- gjald er kr. 25.000. Náttúruverndarráð. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur jólatrés- skemmtun fyrir börn félagsmanna sunnudaginn 6. janúar kl. 15.00 á HÓtel íslandi. Miðaverð fyrir börn kr. 550,- og fyrir fullorðna kr. 200,- Miðar eru seldir á skrifstofu VR, Húsi verslunarinn- ar, 8. hæð. Upplýsingar í síma 687100. Verzlunarmannafélag Reykjavíkur. íþróttakennarar Vegna forfalla (barnsburðarleyfi) vantar nú þegar íþróttakennara að Hvaleyrarskóla í Hafnarfirði. Um er að ræða 15 kennslustundir á viku. Nánari upplýsingar veita skólastjóri í síma 50974 og skólaskrifstofa Hafnarfjarðar í síma 53444. Skólafulltrúinn íHafnarfirði. Sjávarútvegsráðuneytið hefur sent útgerðum fiski- skipa 10 brúttólestir og stærri veiðileyfi ásamt til- kynningu um aflamark af botnfiski og úthafsrækju fyrir fiskveiðitímabilið er hefst 1. janúar og lýkur 31. ágúst nk. Jafnframt hefur ráðuneytið sent út til- kynningu um aflamark af hörpudiski fyrir allt næsta ár. Vinnu við úthlutun veiðiheimilda til báta minni en 10 brúttólestir er ekki lokið en gert er ráð fyrir að því verki Ijúki um miðjan janúar. Af þeim sökum var ekki unnt að senda út veiðileyfi til þessa hluta fiskiskipa- flotans fyrir áramót. Útgerðum báta undir 10 brúttólestum sem sótt hafa um veiðileyfi með afla- hlutdeild og fengið hafa tilraunaúthlutun er þrátt fyrir það heimilt að hefja veiðar strax eftir áramót enda hafi viðkomandi bátur haffærisskírteini. Bát- um sem velja leyfi til línu- og handfæraveiða með dagatakmörkunum er ekki heimilt að hefja veiðar fyrr en 1. febrúar nk. Sjávarútvegsráðuneytið, 31. desember 1990. HAMRABORG ÍÉLAGSMIÐSTÖfl JAFNAÐARMANNA HAMRABORG 14A KÓPAVOGI Vikulegu fundirnir um bæjar- og landsmál hefjast nk. mánudagskvöld kl. 20.30. Mætum öll Alþýðuflokkurinn í Kópavogi

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.