Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 5
5 Þórður Magnússon Fœddur 28. ágúst 1922. Dáinn 20. des. 1990 í dag, 3. janúar 1991, er kvaddur frá Borgarneskirkju Þórður Magn- ússon, sjúkrabifreiðastjóri. Hann var fæddur hér í Borgarnesi 28. ágúst 1922 og hér ól hann allan sinn aldur og var einn þeirra sem alla tíð setti sitt mark á samfélag þessa bæjar. Þórður var sonur hjónanna Guðrúnar Guðmundsdóttur og Magnúsar Ólafssonar. Þau bjuggu allan sinn búskap í húsinu nr. 10 við Egilsgötu hér í Borgarnesi. Hús þetta kallast í daglegu tali ,,Arabía“ og er nefnt eftir bygg- ingameistara hússins, sem hér Ari. Borgnesingar minnast enn þess- ara skemmtilegu öðlingshjóna, sem eignuðust hér fjögur börn: Gyðu, búsetta í Borgarnesi, Krist- ján, nú látinn, Þórð, sem nú er kvaddur, og Val, búsettan í Reykja- vík. Áður hafði Guðrún eignast dótturina Margréti, sem búsett er í Reykjavík. Mér segja tengdafor- eldrar mínir að á heimili þeirra Guðrúnar og Magnúsar í Árabíu hafi alla tíð ríkt einstaklega skemmtilegur heimilisandi, sem þessi fimm systkini ólust upp við og setti sitt mark á allt þeirra líf. Þann 7. maí 1949 kvænist Þórð- ur Helgu Jónsdóttur, sem fædd er og uppalin í Reykjavík. Þau hófu þó búskap saman nokkru fyrr og hafði þeirra sambúð staðið í 45 ár nú er Þórður féll frá. Þau eignuð- ust saman 5 börn; Magnús, prent- ara í Reykjavík, Gunnar, mjólkur- fræðing á Selfossi, Hörð, trésmið í Vestmannaeyjum, Þórð, deildar- stjóra hjá VIS í Reykjavík og Guð- rúnu, fatahönnuð í Bandaríkjun- um. Fyrir átti Helga soninn Jón Björnsson, trésmið í Reykjavík. Hér í Borgarnesi bjuggu Helga og Þórður sér notalegt heimili, fyrst í Arabíu og síðar að Böðvarsgötu 4. Heimilið hefur alla tíð borið myndarskap Helgu vitni. Það var um jólin 1959 sem ég get sagt að kynni mín af Þórði Magnússyni hafi hafist. Ég kom þá fyrst á heimili tilvonandi tengda- foreldra minna, Fríðu og Baldurs, hér í Borgarnesi og kynntist þá strax þessum skemmtilega heima- gangi þar. Mér verða þau kynni alltaf minnisstæð. Hann kom mér strax fyrir sjónir sem framúrskar- andi skemmtilegur persónuleiki, hafsjór af skemmtilegum sögum af mönnum og málefnum í Borg- arnesi og nágrenni. Þórði var gef- in einstök frásagnargáfa, hann var aldrei iilkvittinn, en kunni að skreyta og lagfæra sínar sögur á þann hátt að engan meiddi. Mikill vinskapur ríkti milli tengdaforeldra minna og Þórðar ög Helgu. Þessa vinskapar nutum við Ása kona mín. Með þeim var gaman að eiga góðar stundir, þá var Þórður hrókur alls fagnaðar, sem seint gleymist. Þórður var einn af stofnfélögum Lionsklúbbs Borgarness 2. apríl 1957. Hann var síðan einn af burð- arásum þess félagsskapar, gegndi þar öllum helstu trúnaðarstörfum með sóma, svo sem formennsku, ritara- og gjaldkerastörfum. Okk- ur Lionsfélögum verður sjálfsagt minnisstæður síðasti fundurinn sem Þórður sótti, nú í okt. sl. Hann var þá orðinn helsjúkur en hann skýrði okkur samt frá sinni þrauta- göngu í léttum tón og með skemmtilegum dæmisögum eins og hann einn gat. — Við Lionsfé- lagar þökkum Þórði Magnússyni skemmtilega samfylgt og vottum Helgu og fjölskyldu hennar samúð okkar. Helga og Þórður hafa starfað talsvert í Alþýðuflokksfélagi Borg- arfjarðar. Þórður átti oft sæti á framboðslistum flokksins við sveitarstjórnarkosningar hér í Borgarnesi og vildi veg jafnaðar- stefnunnar sem mestan. Við flokksfélagar hans kveðjum hann nú með þökk og virðingu. Án efa verður Þórðar lengst minnst fyrir afrek sín á leiksvið- inu, í fjölmörgum hlutverkum á vegum leikdeildar Umf. Skalla- gríms. Hann var um áratugaskeið einn aðalburðarásinn í starfsemi deildarinnar. Árum saman var ekki sett upp leikrit í Borgarnesi án Þórðar, það einfaldlega kom ekki til greina. Hann var afburða- góður leikari og minnast menn margra persóna sem hann gerði ógleymanlegar. Starfsferill Þórðar var að mestu tengdur þjónustu, fyrst á gamla Laxfossi, sem var í förum milli Borgarness-Akraness-Reykjavík- ur, þá sem skrifstofumaður hjá Bif- reiðastöð K.R og síðan um mörg ár sjúkrabifreiðastjóri Heilsu- gæslustöðvarinnar í Borgarnesi. Ég kynntist Þórði Magnússyni þegar ég stóð á tvítugu þó fannst mér strax að ég hefði þekkt hann alla ævi. Þegar ég nú íhuga hvern- ig á þessari tilfinningu stóð hygg ég að þar hafi komið til sérstakt lag hans við að umgangast sér yngra fólk. Kynslóðabil held ég að hafi ekki verið til í huga Þórðar og lag hans á börnum var einstaklega gott. Nú við leiðarlok vilja tengdafor- eldrar mínir, Fríða og Baldur, og fjölskylda þeirra færa Þórði inni- legar þakkir fyrir samfylgdina og biðja honum blessunar á nýjum vegum. — Við vottum þér, Helga mín, börnum þínum, tengdabörn- um og barnabörnum, okkar dýpstu samúð. — Minningin um góðan dreng mun lifa. Sveinn G. Hálfdánarson. Leikfélag Akureyrar: Ríki og bær hafa tryggt reksturinn Búid er að tryggja áframhald- andi rekstur atvinnuleikhúss á Akureyri með samningi sem gerður var milli ríkissjóðs, Ak- ureyrarbæjar og Leikfélags Ak- ureyrar. Ríkið mun greiða ár- lega 18 milljónir til leikhús- rekstrarins og Akureyrarbær sömu upphæð. Upphæðin mun hækka í samræmi við breyting- ar á launavísitölu á gildistíma samningsins. Leikfélag Akureyrar mun á móti sviðsetja 3—5 leikverk árlega og tryggja hallalausan rekstur á tíma- bilinu, en samningurinn var gerður til þriggja ára. í fjáraukalögum í lok ársins voru samþykktar sex milljón- ir króna til Leikfélags Akureyrar til að koma leikfélaginu á réttan kjöl og til að koma í veg fyrir lokun vegna skulda. Það voru menntamálaráðherra og fjármálaráðherra sem undirrit- uðu samninginn fyrir hönd ríkis- sjóðs, bæjarstjóri og formaður leik- félagsins fyrir hönd heimamanna. t Hjartkær frændi okkar Ingólfur J. Stefánsson múrarameistari Suðurgötu 25, Hafnarfirði andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, 2. janúar. Fyrir hönd ættingja Ragnhildur Ásgeirsdóttir

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.