Alþýðublaðið - 03.01.1991, Blaðsíða 7
7
Fimmtudagur 3. janúar 1991
ERLEND FRETTA5K YRING ■
Sovétríkin taka skrefin að markaðsbúskap:
Stórfelldar vöru-
hækkanir bolaðar
Matvörur og aðrar neysluvörur munu hækka i
verði i Sovétrikjunum á nýju ári. Verðhækkanirnar
sigla i kjölfar breytinganna á efnahagskerfi lands-
ins þar sem stef nt er f rá miðstýrðum ef nahag i átt að
markaðsbúskap. Þessi staðhæfing kom fram i við-
tali i málgagni sovéska kommúnistaflokksins,
Prövdu, við Anatolí Komin sem er formaður sovéska
verðlagsráðsins.
Komín boðaði í viðtalinu við
Prövdu, að umbætur á verðlags-
málum myndu hefjast á fyrstu sex
mánuðum þessa árs.
„Vörur eru niðurgreiddar að
stórum hluta til í dag,“ sagði Kom-
ín í viðtalinu, „það er því óhjá-
kvæmilegt að verð muni almennt
hækka á árinu."
Allt að 70% hækkun á
heimilistækjum_________
„Á árinu 1991 komumst við ekki
hjá því að gera róttækar breyting-
ar á smásöluverðinu," sagði Kom-
ín. „Verð verður að hækka veru-
lega á almennum neysluvörum.
Enn er of fljótt að segja hve hækk-
anirnar verða miklar, en fyrirsjá-
anleg verðhækkun á bílum, ís-
skápum, útvarpstækjum og sjón-
varpstækjum verður á bilinu 50—
70%,“ sagði Komín í viðtalinu við
Prövdu.
BREYTINGAR A VALDAKERFINU I SOVET
1985: GORBATSJOV NÆR VÖLDUM
FRAMKVÆMDAVALDIÐ
RÍKISSTJÓRN
FORSÆTISRÁÐHERRA
KOMMUNISTAFLOKKURINN
AÐALRITARI
RIKISRAÐ
(Venjulega ábyrgt
gagnvart Æðstaráðinu)
LÖGGJAFAVALDIÐ
(Eðlilegt hlutverk)
FORSETI
ÆÐSTA RAÐSINS
FORSÆTISNEFND
ÆÐSTARÁÐSINS
(Forsetar 15
lýðvelda og flestir
méðlimir fram-
kvæmdastjórnar)
Jljlljlft:™,.
ÆÐSTARAÐIÐ
1,500 meðlimir
FLOKKSÞING
5,000 fulltrúar
1990: TILLÖGUR GORBATSJOVS*
FRAMKVÆMDAVALDIÐ
FORSETI
FORSÆTIS- SAMBANDSRAÐ ORYGGISRAÐ
RÁÐHERRA (Leiðtogar lýðveldanna (Samanstendur
15 og ** svæða með af vernarmálaráðherra,
sjálfsstjórn) utanríkisráðherra,
yfirmanni KGB og
æðstu vísindamanna)
FORSETARÁÐ
(Samanstendur af forsætisráðherrum
allra lýðvelda og sambandsráðherrum)
FULLTRÚAÞINGIÐ
(2,200 meðlímir)
í
ÆÐSTARÁÐIÐ
(450 meðlimir)
LÖGGJAFAVALDIÐ
FORSETI
ÆÐSTARÁÐSSINS
REUTER
•Kommúnistaftokkurinn er nú óháður valdakerflnu i Kreml.
'*Allt að 52 meðlimir
Sovétstjórnin gerði tilraun til að
hækka verð á neysluvörum í maí-
mánuði á síðasta ári en dró í land
vegna mikillar óánægju og fyrir-
sjáanlegs hamsturs almennings.
Verðhækkanir bæWar
með launahækkunum
í viðtalinu við Prövdu sagði An-
atolí Komín verðlagsstjóri að um-
bætur á verðlagi væru lykilatriði
varðandi aðlögun að markaðsbú-
skap í Sovétríkjunum og því að
gera rúbluna að skiptanlegri
mynt.
Smásöluverði í ár verður stjórn-
að af ríkinu og verðhækkanir
verða bættar launþegum með
launahækkunum, hærri eftirlaun-
um o.s.frv.
„Þegar verðlag og tekjur verða
orðnar þær sömu og á Vesturlönd-
um, verður hægt að tala um rúbl-
una sem skiptanlega mynt,“ sagði
Komín við Prövdu. Komín sagði
einnig að heildsöluverð á iðnaðar-
vörum hefði þegar hækkað þann
1. janúar.
Eldsneyti og timburvörur hækk-
uðu um helming, verð á járni
hækkaði um 50% og verð á vélum
hækkaði um 40%.
Lýðveldin mótmæla
hækkunum____________________
Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleið-
togi tilkynnti verðhækkanir á
munaðarvörum í nóvember sl. Til-
kynning hans hefur þó verið virt
að vettugi í ýmsum lýðveldum,
þar á meðal í lýðveldinu Rúss-
landi.
Komín sagði að verðbreytingun-
um hefði þegar verið frestað í þrjú
ár og nú yrði að hrinda þeim í
framkvæmd með samþykki allra
lýðveldanna 15.
Gorbatsjov er nú valdamesti
Sovétleiðtogi frá upphafi. Hin
auknu völd hans munu eflaust
gera verðhækkanirnar auðveldari
í framkvæmd, stjórnskipulega séð.
Hins vegar er nokkuð ljóst, að að-
lögunin að markaðsbúskap, með
tilheyrandi verðhækkunum,
minnkandi niðurgreiðslum og rík-
isstyrkjum ásamt vöruþurrð og
matarskorti, mun gera dæmið
mun erfiðara. Almenningur mun
illa una auknum verðhækkunum
nema á móti komi tekjuaukning
og meira vöruúrval.
Sjúkt niðurgreiöslukerfi
Það verður einnig að hafa í
huga, að Sovétmenn eru alls óvan-
ir verðsveiflum eða verðbólgu-
DAGSKRÁIN
Sjónvorpið
17.50 íþróttaspegill 1&25 Síðasta
risaeðlan 18.50 Táknmálsfréttir
ia55 Fjölskyldulíf 19.20 Kátir voru
karlar 19.50 Hökki hundur 20.00
Fréttir og veður 20.35 Skuggsjá
20.55 Evrópulöggur (4) 21.55 I-
þróttasyrpa 22.25 Þórður Svein-
björnsson Guðjohnsen 23.00 Ellefu-
fréttir og dagskrárlok.
Stöð 2
16.45 Nágrannar 17.30 Með afa 19.19
19.19 20.15 Óráðnar gátur 21.05 H ver
drap Harry Oakes? frh. 22.40 Lista-
mannaskálinn 23.45 Hamingjuleit
(Looking for Mr. Goodbar) 01.55
Dagskrárlok Dagskrárlok.
Rós 1
06.45 Veðurfregnir. Bæn 07.00 Fréttir
07.03 Morgunþáttur Rásar 1 08.00
Fréttir 08.30 Fréttayfirlit 0a32
Segðu mér sögu 09.00 Fréttir 09.03
Laufskálinn 09.45 Laufskálasagan
10.00 Fréttir 10.03 Við jeik og störf
11.00 Fréttir 11.03 Árdegistónar
11.53 Dagbókin 12.00 Fréttayfirlit á
hádegi 12.20 Hádegisfréttir 12.45
Veðurfregnir 12.48 Auðlindin 12.55
Dánarfregnir 13.05 í dagsins önn
13.30 Hornsófinn 14.00 Fréttir 14.03
„Draumur Makars" Jólasaga 14.35
Miðdegistónlist 1500 Fréttir 1503
Leikrit vikunnar „Hann kemur, hann
kemur" 16.00 Fréttir 16.05 Völuskrín
16.15 Veðurfregnir 1520 Á förnum
vegi 16.40 Ég man þá tíð 17.00 Fréttir
17.03 Vita skaltu 17.30 Tónlist á síð-
degi 18.00 Fréttir 18.03 Hér og nú
18.18 Að utan 18.30 Auglýsingar
18.45 Veðurfregnir 19.00 Kvöldfréttir
19.35 Kviksjá 19.55 Daglegt mál
20.00 í tónleikasal 21.30 Söngvaþing
22.00 Fréttir 22.07 Að utan 22.15
Veðurfregnir 22.20 Orð kvöldsins
22.30 Endurtekin dagskrá um ís-
lensk nútímaljóð um Krist 23.10
Blandað á staðnum 24.00 Fréttir
00.10 Miðnæturtónar 01.00 Veður-
fregnir 01.10 Næturútvarp á báðum
rásum til morguns.
Ráa 2
07.03 Morgunútvarpið 0500 Morg-
unfréttir 09.03 Níu fjögur 11.30 Þarfa-
þing 12.00 Fréttayfirlit og veður
12.20 Hádegisfréttir 12.45 Níu fjögur
14.10 Gettu betur! 1503 Dagskrá
17.30 Meinhornið 1503 Þjóðarsálin
19.00 Kvöldfréttir 19.32 Gullskífan
frá 7. áratugnum 20.00 Lausa rásin
21.00 Stjörnuljós 22.07 Landið og
miðin 00.10 í háttinn 01.00 Næturút-
varp á báðum rásum til morguns.
Bylgjan
07.00 Eiríkur Jónsson 09.00 Páll Þor-
steinsson 11.00 Valgerður Gunnars-
dóttir 12.00 Hádegisfréttir 14.00
Snorri Sturluson 17.00 ísland í dag
1530 Haraldur Gíslason 22.00 Haf-
þór Freyr Sigmundsson 23.00 Kvöld-
sccur 24.00 Hafþór Freyr 02.00 Þrá-
inn Brjánsson.
Stjarnan
07.00 Dýragarðurinn 09.00 Bjarni
Haukur Þórsson 11.00 Geðdeild
Stjörnunnar 14.00 Sigurður Ragn-
arsson 17.00 Björn Sigurðsson 20.00
Jóhannes B. Skúlason 22.00 Ólöf
Marín Úlfarsdóttir 02.00 Nætur-
popp.
Aðalsteðin
07.00 Á besta aldri. Morgunandakt
09.00 Morgunverk Margrétar 09.30
Húsmæðrahornið 10.00 Hvað gerðir
Mikhail Gorbasjov: Valdamesti
Sovétleiðtogi frá upphafi.en munu
aukin völd hans tryggja honum
öruggan sess þegar verðhækkanir
dynja yfir á þessu ári í kjölfar efna-
hagslegrar og félagslegrar upp-
lausnar Sovétríkjanna?
áhrifum. Vöruverð hefur verið að
mestu óbreytt gegnum tíðina frá
byltingu. Þannig hefur t.d. brauð-
verð verið það sama allt frá bylt-
ingu 1917. í raun hefur brauðverð-
ið að sjálfsögðu hækkað. Stórfelld-
ar niðurgreiðslur úr ríkissjóði hafa
hins vegar haldið verðinu
óbreyttu til neytandans. Niður-
greiðslukerfið hefur hins vegar
kallað á ótrúlega spillingu og
krákustigu í kerfinu. Þannig hafa
t.a.m. sovéskir bændur keypt
brauð í borgum og flutt til sveit-
anna sem dýrafóður þar sem
brauð er ódýrara en korn eða ann-,
að dýrafóður.
1991 verður því erfitt ár fyrir al-
menning og Gorbatsjov með
hækkuðu vöruverði í Sovétríkjun-
um þrátt fyrir öll hin nýju og miklu
völd Sovétleiðtogans.
Ingólfur Margeirsson
skrifar
þú við peningana sem frúin í Ham-
borg gaf þér? 10.30 Hvað er í pottun-
um? 11.00 Jólaleikur Aðalstöðvar-
innar 11.30 Slétt og brugöið 12.00
Hádegisspjall 13.00 Strætin úti að
aka 13.30 Gluggað í síðdegisblaðið
14.00 Brugðið á leik í dagsins önn
14.30 Saga dagsins 1500 Topparnir
takast á 1530 Efst á baugi vestan-
hafs 1515 Heiðar, heilsan og ham-
ingjan 1500 Akademían 1530 Mitt
hjartans mál 18.30 Aðalstöðin og
jólaundirbúningurinn 19.00 Eðaltón-
ar 22.00 Á nótum vináttunnar 24.00
Næturtónar Aðalstöðvarinnar.